Morgunblaðið - 13.06.2004, Side 52
DAGBÓK
52 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Lag-
arfoss kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Obsha kemur í dag.
Fréttir
Fjölskylduhjálp Íslands
Eskihlíð 2 - 4 í fjósinu
við Miklatorg. Móttaka
á vörum og fatnaði,
mánudaga kl. 13–17.
Úthlutun matvæla og
fatnaðar, þriðjudaga kl.
14–17. S: 551 3360, netf:
dalros@islandia.is, gsm
hjá formanni 897 1016
Mannamót
Bólstaðarhlíð 43. Farið
verður á Snæfellsnes
þriðjudaginn 29. júní
lagt af stað frá Bólstað-
arhlíð 43 kl. 8. Ekið
vestur á Snæfellsnes og
fyrir Jökul, kvöldverð-
ur á Hótel Eldborg.
Skráning og greiðsla í
síma 535 2760 fyrir
þriðjudaginn 22. júní.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Dansleikur í
kvöld kl. 20 Caprí-tríó
leikur fyrir dansi. Far-
þegar í Vestfjarðaferð,
fundur með fararstjóra
á morgun mánudag kl.
17 í Ásgarði Glæsibæ.
Gjábakki, Fannborg 8.
Tekið verður á móti
lokagreiðslu ferða
Sundhópsins og Fé-
lagsstarfsins til Fær-
eyja þriðjudag 15 og
miðvikudag 16. júní frá
kl. 10–12 í Gjábakka,
sími 554 3400.
Gerðuberg félagsstarf,
Kvennahlaup ÍSÍ fyrir
þáttakendur í fé-
lagsstarfinu laugardag-
inn 19. júní, lagt af stað
kl. 14. skráning og af-
hending á bolum hafin.
s. 575 7720.
Ferðanefnd FEBK,
Kópavogi. Örfá sæti
laus í 2ja daga ferð á
Snæfellsnes og til Flat-
eyjar þann 22. og 23.
júní. Næsta ferð verður
3ja daga ferð til Vest-
mannaeyja sem farin
verður 20. - 22 júlí.
Skráningarlistar eru í
félagsmiðstöðvunum
Gjábakka s. 554 3400 og
Gullsmára s. 564 52607/
5261 eða hjá ferða-
nefnd, Bogi Þórir s.
554 0233 eða Þráinn
s. 554 0999.
Ferðaklúbbur eldri
borgara, vegna forfalla
eru laus sæti í Norð-
austurlandsferðina 21.
júní. Upplýsingar í s.
892 3011, Hannes.
NA (Ónefndir fíklar).
Neyðar- og upplýs-
ingasími 661 2915. Opn-
ir fundir kl. 21 á þriðju-
dögum í Héðinshúsinu
og á fimmtudögum í
KFUM&K, Austur-
stræti.
Brúðubílar
Brúðubíllinn verður á
morgun kl. 10 við
Rauðalæk.
Brúðubíllinn á gæslu-
leikvöllum Kópavogs
verður á Hjallavelli á
morgun kl. 14.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga,Vestfjörðum: Jón
Jóhann Jónsson, Hlíf
II, Ísafirði, s. 456 3380
Jónína Högnadóttir,
Esso-verslunin, Ísa-
firði, s. 456 3990 Jóhann
Kárason, Engjavegi 8,
Ísafirði, s. 456 3538
Kristín Karvelsdóttir,
Miðstræti 14, Bolung-
arvík, s. 456 7358
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga, Norðurlandi:
Blómabúðin Bæj-
arblómið, Húnabraut 4,
Blönduós, s. 452 4643
Blóma- og gjafabúðin,
Hólavegi 22, Sauð-
árkróki, s. 453 5253
Blómaskúrinn, Kirkju-
vegi 14b, Ólafsfirði, s.
466 2700 Hafdís Krist-
jánsdóttir, Ólafsvegi 30,
Ólafsfirði, s. 466 2260
Blómabúðin Ilex, Hafn-
arbraut 7, Dalvík, s.
466 1212 Bókabúð Jón-
asar, Hafnarstræti 108,
Akureyri, 462 2685
Bókabúðin Möppudýr-
ið, Sunnuhlíð 12c, Ak-
ureyri, s. 462 6368
Penninn Bókval, Hafn-
arstræti 91-93, Ak-
ureyri, s. 461 5050
Blómabúðin Akur,
Kaupangi, Mýrarvegi,
Akureyri, s. 462 4800
Blómabúðin Tamara,
Garðarsbraut 62, Húsa-
vík, s. 464 1565 Bóka-
verslun Þórarins Stef-
ánssonar, Garðarsbraut
9, Húsavík, s. 464 1234,
Skúli Jónsson, Reykja-
heiðarvegi 2, Húsavík,
s. 464 1178 Skúli Þór
Jónsson, Boðagerði 6,
Kópasker, s. 465 2144
Rannveigar H. Ólafs-
dóttur, Hólavegi 3, 650.
Laugum, s. 464 3181
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga, Austfjörðum:
Birgir Hallvarðsson,
Botnahlíð 14, Seyðis-
firði, s. 472 1173 Blóma-
bær, Miðvangi, Egils-
stöðum, s. 471 2230
Nesbær ehf, Egilsbraut
5, 740 Neskaupstaður,
s. 477 1115 Gréta Frið-
riksdóttir, Brekkugötu
13, Reyðarfirði, s.
474 1177 Aðalheiður
Ingimundardóttir,
Bleiksárhlíð 57, Eski-
firði, s. 476 1223 María
Óskarsdóttir, Hlíð-
argötu 26, Fáskrúðs-
firði, s. 475 1273 Sigríð-
ur Magnúsdóttir,
Heiðmörk 11, Stöðv-
arfjörður, s. 475 8854.
Í dag er sunnudagur 13. júní,
166. dagur ársins 2004. Orð
dagsins: Vitið þér eigi, að þér
eruð musteri Guðs og að andi
Guðs býr í yður? Ef nokkur eyðir
musteri Guðs mun Guð eyða
honum, því að musteri Guðs er
heilagt, og þér eruð það musteri.
(I.Kor. 2, 16.–18.)
Í stuttri grein hér í Morg-unblaðinu í fyrradag,
segir Sigurður Líndal,
fyrrverandi lagaprófessor
við Háskóla Íslands, í til-
efni athugasemda í Stak-
steinum:
„Engu máli skiptir
hversu lengi umræður
standa á Alþingi og
hversu „rækilegar“ þær
eru ef á skortir um öflun
upplýsinga og annan und-
irbúning.“
Fyrr í greininni segir
prófessorinn fyrrverandi:
„Allir þeir, sem kvaddir
voru til umsagnar um
frumvarpið og ég hef haft
spurnir af, kvörtuðu yfir
ónógum tíma til að athuga
málið – sjálfur fékk ég
tæplega tvo daga til að
gefa umsögn …“
Nú gerir Sigurður Lín-dal ekki lengur mikið
úr því að „mikill asi“ hafi
einkennt afgreiðslu Al-
þingis á fjölmiðlalögunum
enda getur hann ekki
staðið á
þeirri
staðhæf-
ingu í ljósi
þess
hversu
miklar
umræður
urðu um
málið í
þinginu. Er það vel, að
hinn mæti og sögufróði
prófessor hefur fallið frá
þessum athugasemdum.
Nú kvartar hann hinsvegar undan skorti á
upplýsingum og að hann
sjálfur hafi ekki fengið
nema tvo daga til að und-
irbúa umsögn sína til Al-
þingis. Alþjóð veit, að Sig-
urður Líndal hefur aldrei
þurft langan tíma til að
undirbúa umsögn um ein-
stök mál. Ef miðað er við
fyrirferð hans í fjöl-
miðlum að undanförnu
sýnist hann geta veitt um-
sögn á staðnum, hvenær
sem eftir er leitað og þarf
engum að koma á óvart,
því að fróðari menn um
lagaleg málefni fyrirfinn-
ast varla í landinu, þótt
menn geti greint á við pró-
fessorinn um einstakar
lagaskýringar.
Aðalatriði málsins er þó,að mikil upplýs-
ingaöflun fór fram áður
en fjölmiðlafrumvarpið
var lagt fyrir Alþingi, m.a.
á vegum nefndar mennta-
málaráðherra undir for-
ystu starfsbróður Sig-
urðar, Davíðs Þórs
Björgvinssonar, og hins
vegar í meðferð þingsins á
málinu, ekki sízt í þeim
nefndum, sem um það
fjölluðu. Talsmenn allra
flokka hafa lýst ánægju
með störf nefndar Davíðs
Þórs og þær upplýsingar,
sem þar var að finna. Það
er því fráleit staðhæfing
hjá Sigurði Líndal að
þingmenn hafi skort upp-
lýsingar.
Sigurður Líndal hefurað sjálfsögðu frelsi til
að gerast pólitískur álits-
gjafi. En það dregur óneit-
anlega úr gildi lögfræði-
legrar álitsgjafar hans,
þegar hann ruglar þessu
tvennu svo rækilega sam-
an, sem raun ber vitni.
STAKSTEINAR
Upplýsingar
og umræður
Sigurður
Líndal
Víkverji skrifar...
Víkverji ekur á milli Mosfellsbæjarog Reykjavíkur flesta daga árs-
ins og stundum oft á dag. Á fáum
vegum er meiri umferð en á þessari
leið. Eigi að síður er hending ef vart
verður við lögreglu á þessum um-
ferðarþunga vegakafla þar sem því
miður er talsvert um hrað- og hrein-
lega glannaakstur. Á dögunum var
bíl ekið hægra megin fram úr Vík-
verja, þ.e. vegöxlin var var notuð til
framúraksturs. Tekið skal fram að
Víkverji var ekki stopp á veginum
heldur á um 90 km hraða þegar bíl
var skyndilega ekið framúr hægra
megin. Eins og nærri má geta var
Víkverja nokkuð brugðið. Þetta er
því miður ekki eina dæmið um akst-
urslag sem þrífst á Vesturlandsveg-
inum í skjóli þess að þar sést alltof
sjaldan til lögreglu. Oft hefur Vík-
verji orðið vitni að því að bílstjórar
aki fram úr á bílum á kaflanum fyrir
ofan Hulduhóla. Þar er fram-
úrakstur algjörlega óheimill, hvort
heldur að menn eru að fara í átt til
Reykjavíkur eða Mosfellsbæjar.
x x x
Vart er til of mikils mælst þótt lög-reglan sé oftar á ferðinni á þess-
um vegkafla á milli Reykjavíkur og
Mosfellsbæjar sem er svo fjölfarinn
sem raun ber vitni. Í versta falli væri
hægt minna á löggæslumyndavél-
arnar, eins svo vinsælt er að gera
víða við þjóðveginn, hvað svo sem sú
áminning á fyrirstilla. Víst er að
yrðu menn oftar varir við ferðir lög-
reglu yrðu þeir varari um sig, því
auk dæmanna sem að ofan voru
nefnd er alltaf talsvert um var-
hugaverðan framúrakstur á álags-
tímum, einkum á sumrin þegar bjart
er í veðri og ökumenn viljugri að „slá
í klára sína“.
x x x
Blessuð Símaskráin kom út á dög-unum. Víkverji gleðst yfir því að
hún skuli nú vera komin í eitt bindi
eftir að hafa verið í tveimur bindum
undanfarin ár, Víkverja til tals-
verðrar armæðu. Símaskráin er
sannkallað þarfaþing þótt vissulega
sé hún minna notuð nú en áður eftir
að Víkverji fékk ADSL-tengingu og
símaskráin á Netinu varð aðgengi-
legri. Nú er hægt að velja um mis-
munandi myndir á kápu skrárinnar,
sem er nýbreytni. Víkverji veit um
að minnsta kosti einn heiðursmann
sem gleðst yfir þessari nýjung. Sá
þarf væntanlega ekki að grípa til
þess örþrifaráðs nú sem hann greip
til fyrir nokkrum árum þegar honum
þótti mynd á kápu Símaskrárinnar
einstaklega ljót. Tók maðurinn sig
þá til, prentaði fallega landslags-
mynd úr tölvu sinni og límdi yfir
„ljótu“ myndina. Þá fyrst gat hann
hugsað sér að hafa Símaskrána fyrir
augunum og slegið upp númerum í
henni.
Morgunblaðið/Kristinn
Lögreglan mætti vera oftar á ferð-
inni á Vesturlandsvegi.
Tekur undir
með Mörtu
ELDRI borgari hafði sam-
band við Velvakanda og
sagðist taka heilshugar und-
ir það sem fram kom hjá
Mörtu Ólafsdóttur, í pistli
hennar um ritstjóra Morg-
unblaðsins, í Velvakanda 10.
júní sl.
Ættarmót
á Laugarbakka
BRÚARLANDSÆTTIN,
þ.e. afkomendur Jóns Jó-
hanns Bjarnasonar, fæddur
28. nóvember 1861 í Höfða-
hólum á Skagaströnd, og
konu hans Ólínu Sigurðar-
dóttur, fædd 17. júní 1871 að
Þingeyrum, halda ættarmót
að Laugarbakka í Húna-
vatnssýslu dagana 18. til 20.
júní. Vonast undirbúnings-
nefndin til að sem flestir sjái
sér fært og komi til að end-
urnýja gömul kynni og
tengja ný.
Tapað/fundið
Taupoki tapaðist
RÖNDÓTTUR taupoki
týndist við Miklubrautina 7.
júní sl. Hann er í öllum
regnbogans litum. Finnandi
vinsamlegast hafi samband í
síma 848 5361.
Adidas-skór töpuðust
NÝLEGIR Adidas-skór,
svartir með hvítum röndum,
voru í ógáti skildir eftir við
styttu Einars Ben á
Klambratúni (Miklatúni) 10.
júní sl. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 867 4944.
Myndavél tapaðist
CANON digital Ixus II tap-
aðist sl. þriðjudagskvöld á
tímabilinu frá kl. 19.30–
21.00 á veitingastaðnum
Kaffi Sólon eða á leiðinni
þaðan og að Stangarholti.
Góð fundarlaun í boði. Upp-
lýsingar í síma 551 7064.
Hjól tapaðist
JAMIS Durango Sport FX
17" fjallahjól tapaðist 11.
júní sl. í Lyngbrekku í
Kópavogi. Hjólið er svart og
grátt að lit með diskabrems-
um. Hjólið er hálfs mánaðar
gamalt. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í síma
564 5964 eða 693 6285.
Fundarlaun í boði.
Dýrahald
Ljúf læða fæst gefins
LJÚFUR, svartur kettling-
ur fæst gefins á gott heimili.
Um er að ræða kassavana
og mannelska læðu. Upplýs-
ingar í síma 551 9761 eða
694 1974.
Kettlingur fannst
GULBRÖNDÓTTUR og
hvítur kettlingur fannst í
vesturbæ Kópavogs
fimmtudaginn 3. júní sl.
Upplýsingar í síma 588 3057
eða 693 4134.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 vind, 4 höfðu upp á, 7
bætir við, 8 húð, 9 ílát, 11
topp, 13 at, 14 fiskinn,
15 lítill, 17 óþétt, 20
brodd, 22 gufa, 23 tryllt-
ur, 24 kaggi, 25 ræktuð
lönd.
LÓÐRÉTT
1 digurt, 2 óveður, 3 lofa,
4 kák, 5 synja, 6 alda, 10
tími, 12 skepna, 13 her-
bergi, 15 rófu, 16 greinin,
18 á jakka, 19 hreinar,
20 heiðursmerki, 21
slæpast.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 bókabúðin, 8 skein, 9 dílar, 10 aki, 11 rekur, 12
nemur, 15 stegg, 18 salli, 21 ögn, 22 tíðum, 23 öngul, 24
einlægnin.
Lóðrétt: 2 ómerk, 3 asnar, 4 úldin, 5 illum, 6 ósár, 7
hrár, 12 ugg, 14 efa, 15 súta, 16 eyðni, 17 gömul, 18
snögg, 19 lægri, 20 illt.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html