Morgunblaðið - 13.06.2004, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 53
DAGBÓK
Ágúst Örn Sverrisson
sérfræðingur í lyflækningum og hjartasjúkdómum
opnar hinn 2. júlí nk. stofu í
Læknasetrinu, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík.
Tímapantanir í síma 535 7700.
goddi.is, Auðbrekku 19, Kópavogi, sími 544 5550.
Garð- og sumarbústaðaeigendur
Finnsk sérhönnuð bjálkageymsluhús
Geymsluvandamálið er leyst fyrir sláttuvélina, hjólbörurnar, garðáhöldin o.fl.
með þessum snyrtilegu húsum, svo og fyrir næturgesti.
Stærðir 3,80 fm og 6,65 fm - Grenibjálkar 28mm.
Blómaskreytingarnámskeið
21.-25. júní • 5 daga námskeið, ca 40 klst.
Kennt verður:
Blómvendir, brúðarvendir, skreytingar, kransar,
krossar og margt fleira úr ræktuðu og náttúruefni.
Skráning í síma 555 3932 Sæunn og 897 1876 Uffe
Uffe Balslev, blómaskreytir, Hvassahrauni.
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 13.
júní, er níræður Hálfdán
Sveinsson frá Sauðárkróki,
fyrrverandi verslunar-
maður (Hálfdán í Segli).
Þeir sem vilja samgleðjast
honum eru velkomnir í
Lionssalinn Lund, Auð-
brekku 25, Kópavogi, milli
kl. 15:30–18:30.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag,
sunnudaginn 13. júní, eiga
50 ára hjúskaparafmæli
hjónin Þórdís Jónsdóttir og
Andrés G. Jónasson,
Brekkugötu 22, Þingeyri.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert áræðin/n og æv-
intýragjörn/gjarn og lætur
ekkert halda aftur af þér. Þú
hefur yfirleitt mjög gott
innsæi. Þú þarft á aukinni
einveru að halda á þessu ári
því þú þarft að læra eitthvað
mikilvægt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur ákveðnar skoðanir á
hlutunum í dag og það gerir
þér erfitt um vik við að skoða
málin á hlutlausan hátt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ættir að láta það eftir þér
að kaupa þér eitthvað fallegt í
dag. Fjármálin og fjáröfl-
unarhugmyndir þínar líta vel
út.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Afstaða stjarnanna er þér
mjög hagstæð og því ættirðu
endilega að gera alvöru úr
fyrirætlunum þínum, hverjar
svo sem þær kunna að vera.
Notaðu tækifærið til að bæta
samband þitt við vin þinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Orð eru til alls fyrst og þú ert
fær um að gera hugmyndir
þínar að veruleika þessa dag-
ana.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert sérlega félagslynd/ur
þessa dagana og munt því
njóta þess að vera með öðru
fólki í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hikaðu ekki við að koma hug-
myndum þínum á framfæri
við yfirmenn þína og aðra
áhrifamikla einstaklinga í
dag. Þú átt auðvelt með að
telja fólk á þitt band.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú leggur mikið upp úr um-
hverfi þínu og munt njóta
þess að fara á listasöfn og
sýningar í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur mikla þörf fyrir að
ferðast og víkka sjóndeild-
arhring þinn. Þú ættir að
bregða þér í hlutverk ferða-
mannsins og gera eitthvað
nýtt og spennandi í þínu nán-
asta umhverfi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Samvinna við aðra getur auð-
veldað þér að láta drauma
þína rætast. Ræddu hug-
myndir þínar við aðra og at-
hugaðu hvað gerist.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hjálpsemi þín í garð vinnu-
félaganna mun fyrr en varir
koma þér vel í starfi. Mundu
að við uppskerum eins og við
sáum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert upptekin/n af fjöl-
skyldu- og ástarmálunum.
Treystu innsæi þínu. Þú ert á
réttri leið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Samskiptin innan fjölskyld-
unnar eru í góðum farvegi.
Jákvæðni þín og hlýja smita
út frá sér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5
4. Rf3 Bd6 5. Bd3 Re7 6.
O-O Rbc6 7. c3 Bg4 8. Bg5
Dd7 9. Rbd2 f6 10. Bh4 Rg6
11. Bg3 Rf4 12. Bxf4 Bxf4
13. h3 Be6 14. He1 O-O-O
15. Rb3 Bd6 16. Bb5
Hde8 17. Rc5 Bxc5
18. dxc5 a6 19. Bxc6
Dxc6 20. Rd4 Dd7
Staðan kom upp í
undanrásum rúss-
neska meistaramóts-
ins fram fór í Péturs-
borg fyrir stuttu.
Dmitry Andreikin
(2418) hafði hvítt
gegn Evgeny Gleiz-
erov (2592). 21. c6!
bxc6 21...Dd6 hefði
ekki gengi upp vegna
22. Rxe6 Hxe6 23. Dg4
Hhe8 24. Hxe6 Dxe6 25.
He1! og hvítur vinnur. 22.
De2! Þessi tvöfalda hótun
gerir út um skákina.
22...Dd6 23. Rxe6 Kd7 24.
Dg4 Hxe6 25. Hxe6 og
svartur gafst upp enda
hrókur fyrir borð eftir 25...
Dxe6 26. Dxg7+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
SNATI OG ÓLI
Heyrðu snöggvast, Snati minn,
snjalli vinur kæri,
heldurðu ekki hringinn þinn
ég hermannlega bæri?
Lof mér nú að leika að
lútúnshálsgjörð þinni.
Ég skal seinna jafna það
með jólaköku minni.
Jæja þá, í þetta sinn
þér er heimil ólin.
En hvenær koma, kæri minn,
kakan þín og jólin?
Þorsteinn Erlingsson
LJÓÐABROT
DOBL á þremur gröndum
hefur iðulega þann tilgang
að benda á tiltekið útspil.
En þegar sá sem doblar á
sjálfur út, hangir eitthvað
allt annað á spýtunni. Bjarni
H. Einarsson lenti í slíkri
stöðu á landsliðsæfingu.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠63
♥ÁD7
♦K8
♣DG9765
Vestur Austur
♠10974 ♠DG2
♥42 ♥G1096
♦ÁDG104 ♦765
♣Á8 ♣432
Suður
♠ÁK85
♥K853
♦932
♣K10
Bjarni var með spil suð-
urs og vakti á Standard-tígli
á þrjá hunda. Síðan lá leiðin
upp í þrjú grönd. Í norður
var Þröstur Ingimarsson,
en AV þeir Guðmundur
Baldursson og Hermann
Friðriksson:
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Þröstur Hermann Bjarni
-- -- -- 1 tígull *
Pass 2 lauf Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Pass Pass
Dobl Pass Pass 4 lauf
Pass Pass Pass
Í Standard-kerfinu lofar
opnun á tígli minnst fjórlit
nema í þessu einu tilviki –
þegar skiptingin er ná-
kvæmlega 4-4-3-2. Þegar
Guðmundur doblaði þrjú
grönd sá Bjarni fyrir sér að
hann ætti þéttan tígul, eða
hálfþéttan tígullit og laufás
til hliðar. Og tók út í fjögur
lauf á tvíspilið í þeirri von að
Þröstur ætti langan lauflit.
Allt gekk þetta eftir og
Guðmundur mátti sjá eftir
doblinu, en gat þó þakkað
fyrir að Þröstur lyfti ekki í
fimm lauf, sem standa eins
og stafur á bók.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
ÉG HEF veitt því athygli,
að ýmsir virðast rugla sam-
an merkingu orðanna land
og þjóð. Ekki alls fyrir
löngu rakst ég á eftirfar-
andi orðalag í Mbl.: „Hvort
Ísland eða aðrar þjóðir
(Leturbr. hér.) fylgja slík-
um flokkunarkerfum ná-
kvæmlega skiptir ekki
meginmáli.“ Þar sem verið
var að tala um Ísland, hefði
verið eðlilegra mál og rétt-
ara að segja sem svo:
Hvort Ísland eða önnur
lönd fylgja slíkum flokkun-
arkerfum o.s.frv. Nú er það
hins vegar svo, að sú þjóð,
sem byggir landið Ísland,
nefnist Íslendingar. Þegar
þetta er haft í huga, er ekki
rökrétt að tala í sömu
andrá um landið og þjóð-
ina, sem það byggir. Ann-
aðhvort tölum við um Ís-
land og önnur lönd eða þá
Íslendinga og aðrar þjóðir.
Ég held menn geti fallizt á
þessa skýringu, þegar
grannt er skoðað. En hvað
segja orðabækur? Lítum
fyrst á no. þjóð. Í OM
(1983) og eins nokkurn veg-
inn samhljóða í OE (2002)
er skýring orðsins m.a. á
þessa leið: „stór hópur
fólks sem á sér að jafnaði
sameiginlegt tungumál og
menningu … og býr oftast
á samfelldu landsvæði við
gagnkvæm viðskipta-
tengsl.“ Nú er landsvæði
okkar Ísland, og þess
vegna er þjóðin, sem þar
býr, nefnd Íslendingar.
Margir kannast áreiðan-
lega við þessar ljóðlínur frá
sr. Matthíasi Jochumssyni:
„Eitt er landið, ein vor þjóð
/ auðnan sama beggja.“ Í
OH eru mörg dæmi bæði
um land og þjóð, en að
sjálfsögðu ekki samasem-
merki á milli. Í OM er 3.
merking no. land, sem hér
á við, þessi: „ríki (ríkis-
hluti)“ og nokkur dæmi
sýnd um notkun þess: höf-
uðborg landsins, „hér á
landi, þ.e. á Íslandi, ráða
löndum ríkja, stjórna“
o.s.frv. Þessi dæmi koma
einnig orðrétt fram í OE.
Sjálfsagt er að halda þessu
aðgreindu í ræðu eða riti. –
J.A.J.
ORÐABÓKIN
Land – þjóð
ÞJÓNUSTA
LANDSPÍTALI –
HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins
sími 543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKTIN miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin
í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og
Hafnarfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl.
17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitj-
anabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólar-
hringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s.
1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl.
8–24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af
depurð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum sím-
um.
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern
til að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430
tekur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan
skrifstofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sól-
arhringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
KVENNAATHVARF: Athvarf og viðtalsþjónusta fyrir
konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða
orðið fyrir nauðgun. Opið allan sólarhringinn, 561 1205.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112