Morgunblaðið - 17.06.2004, Qupperneq 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Munið hina árlegu fjölskylduhátíð á orlofssvæði RSÍ við Apavatn
helgina 19.-20. júní 2004
Á laugardag er boðið upp á íþróttakeppni, púttkeppni, veiðikeppni, barnaskemmtun, dans og varðeld.
Einnig eru hoppkastalar og leiktæki á svæðinu.
Á orlofssvæðinu við Apavatn er vel búið tjaldsvæði sem er opið félagsmönnum
og gestum þeirra í allt sumar. RSÍ er einn af rekstraraðilum golfvallar Dalbúa við Laugarvatn.
Félagsmenn njóta þar sérstakra kjara. Munið félagsskírteinið.
RAFIÐNAÐARSAMBAND ÍSLANDS
Sumarið er komið hjá RSÍ
Spennugolf RSÍ verður á Hellu föstudaginn 25. júní
Skráning er hafin á golfrsi@rafis.is eða á skrifstofu RSÍ í síma 580 5253.
Fylgist með heimasíðu RSÍ, rafis.is, þar sem auglýstar eru lausar vikur í orlofshúsum
sambandsins sem losnað hafa með skömmum fyrirvara.
FJÖLBREYTT dagskrá verður
víða á höfuðborgarsvæðinu í dag,
17. júní, á sextíu ára afmæli lýð-
veldisins. Fyrir þá sem vilja
kynna sér ítarlega dagskrá síns
bæjarfélags er best að líta á
heimasíðu sveitarfélaganna á höf-
uðborgarsvæðinu.
Í Reykjavík hefst dagskrá með
hefðbundnum hætti í kirkjugarð-
inum við Suðurgötu klukkan 10,
og svo með hátíðardagskrá á
Austurvelli 10.40. Þar leggur for-
seti Íslands blómsveig að minn-
isvarða Jóns Sigurðssonar og for-
sætisráðherra og fjallkonan flytja
ávarp. Að þessu sinni mun fjall-
konan flytja ljóð Hannesar Haf-
stein í tilefni hundrað ára afmælis
heimastjórnar.
Hópakstur fornbíla og sýning
þeirra á Miðbakka er meðal dag-
skráratriða eftir hádegið. Barna-
og fjölskylduskemmtun verður á
Arnarhóli, og þar munu ýmsir
stíga á stokk. Í Hljómskálagarð-
inum verður einnig margt við að
vera. Danssýning verður klukkan
tvö á svonefndum Þingpalli, milli
Ráðhússins og Alþingishússins. Á
sama palli verður glímt klukkan
16. Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður
fjölbreytt dagskrá, og meðal ann-
ars verður tískusýning Lykkju-
falls...úps... klukkan 16.15.
Kvöldtónleikar þjóðhátíðar í
Reykjavík hefjast klukkan 20, og
koma þar fram margar vinsælustu
hljómsveitir landsins. Dansleikur
á Þingpalli hefst klukkan 21.
Samkoma á Víðistaðatúni
Í Hafnarfirði verður sett upp
risatívolí á Víðistaðatúni, ásamt
bílasýningu og kaffisölu. Leik-
tækin verða opnuð klukkan 12, en
fjölskylduskemmtun hefst þar
klukkan 15. Um kvöldið verður
fjölskylduskemmtun við Hafn-
arborg þar sem skemmtikraftar
og hljómsveitir koma fram. Auk
þess verða leiktæki fyrir börnin í
miðbænum um kvöldið.
Þjóðhátíðarmorguninn hefst
með kanósiglingum í Garðabæ,
við Vífilsstaðavatn. Klukkan 13
verður hátíðarstund í Vídal-
ínskirkju og að henni lokinni
skemmtun við Ásgarð og Garða-
skóla. Kaffiborð Kvenfélags
Garðabæjar verður í Garðalundi
frá klukkan 15, en þar verður
einnig slegið upp dansleik fyrir
yngri kynslóðina að kvöldi dags
og mun diskótekið Ó Dollý spila
fyrir dansi.
Í Kópavogi verða bæjarbúar
vaktir með leik blásarasveita, sem
ferðast munu um bæinn á pall-
bílum og spila hátíðartóna. Barna-
samkoma verður í Digraneskirkju
klukkan 11 í tilefni dagsins, og
hátíðarguðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju klukkan 12.30. Hátíðar- og
skemmtidagskrá Kópavogsbæjar
hefst síðan klukkan 14 á Rútstúni
og verður þar margt til skemmt-
unar. Þar verða einnig úti-
tónleikar um kvöldið, milli 20 og
22.
Á Seltjarnarnesi verður gengið
fylktu liði frá Dælustöð við Lind-
arbraut að Eiðistorgi, þar sem há-
tíðardagskrá hefst um hálftvö.
Lúðrasveit Seltjarnarness leikur
og Seltirningar skemmta.
Íbúar Mosfellsbæjar koma sam-
an við Hlégarð, en skrúðganga
verður frá Bæjarleikhúsinu að
Hlégarði klukkan 14. Eftir hátíð-
ardagskrá verður kökuhlaðborð
UMFA í Hlégarði, og keppt verð-
ur um titilinn sterkasta mann Ís-
lands klukkan 16. Um kvöldið
verða síðan vímuefnalausir úti-
tónleikar við Hlégarð.
Margt sér til gamans gert á þjóðhátíðardaginn hjá jafnt ungum sem öldnum
Skemmtanir um borg og bý
á 60 ára afmæli lýðveldisins
Morgunblaðið/Einar Falur
Börnin úr Hálsaborg fóru í skrúðgöngu í gær í tilefni 17. júní og sungu meðal annars við elliheimilið Seljahlíð.
TENGLAR
.....................................................
www.17juni.is
www.hafnarfjordur.is
www.gardabaer.is
www.kopavogur.is
www.seltjarnarnes.is
www.mosfellsbaer.is
Hafnarfjörður | Sýningin „Horfumst
í augu við að enginn getur gert allt,
en allir geta gert eitthvað“ er nú í
anddyri Bókasafns Hafnarfjarðar.
Þetta er farandsýning á vegum
Landverndar og Vistverndar í
verki um sjálfbæran lífsstíl.
Sýningin hefur verið sett upp í
sveitarfélögunum sem tekið hafa
þátt í verkefninu Vistvernd í verki,
og var hún opnuð fyrst á degi um-
hverfisins, 25. apríl og var þá í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Tilgangur sýn-
ingarinnar er að vekja fólk til
umhugsunar um aðgerðir til að
færa heimilishaldið í vistvænna
horf og spara í heimilisrekstrinum,
segir í tilkynningu.
Fjallað er um innkaup, sam-
göngur, sorp, vatn og orkunotkun.
Hentar sýningin öllu fólki frá 10
ára aldri, enda er hún lifandi og
myndræn. Hægt er að svara verð-
launagetraun um leið og sýningin
er skoðuð.
Umhverfið: Frá sýningunni Vist-
vernd í verki í Hafnarfirði.
Allir geta gert
eitthvað
Í þjóðbúningi á Árbæjarsafn |
Gestir Árbæjarsafns eru hvattir til
að mæta í þjóðbúningi í dag, þjóðhá-
tíðardaginn, og njóta fjölbreyttrar
dagskrár safnsins. Fólk af erlendum
uppruna er sérstaklega boðið vel-
komið og hvatt til að mæta í þjóð-
búningi síns heimalands. Leið-
sögumenn munu klæðast
fjölbreyttum búningum í eigu safns-
ins, og meðal annars sýna klukkan
14 hvernig skautbúningi er klæðst.
Klukkan 16 verður sýning Þjóðdans-
afélags Reykjavíkur og boðið verður
upp á veitingar. Safnið verður opið
frá klukkan 10 til 18.
Lokun Lækjargötu í Hafnarfirði |
Framkvæmdir eru hafnar við Lækj-
argötu í Hafnarfirði, og hefur af þeim
sökum þurft að loka hluta götunnar
fyrir umferð. Framkvæmdir við
Lækjargötu eru hluti af útboðnu
verki Hafnarfjarðarbæjar og Vega-
gerðarinnar. Helstu verkþættir eru
lagfæring Lækjargötu með und-
irgöngum við lækinn og hringtorgi
við Hringbraut, hringtorg á mótum
Reykjanesbrautar og Lækjargötu,
breikkun Reykjanesbrautar að
Kaplakrika ásamt undirgöngum við
Sólvang og gerð hringtorgs á mótum
Fjarðarhrauns og Flatahrauns.
BARNA- og fjölskylduskemmt-
unin á Arnarhóli hefst klukkan 14,
og verða þau Birta og Bárður úr
Stundinni okkar kynnar skemmt-
unarinnar. Fyrst stígur kór leik-
skólabarna í Reykjavík á svið, og
syngur Öxar við ána í tilefni dags-
ins. Dýrin í Hálsaskógi koma í
heimsókn frá Þjóðleikhúsinu.
Gunni og Felix og Hattur og Fatt-
ur líta einnig við. Danshópur frá
Klassíska listdansskólanum sýnir
dansverk og sömuleiðis hópur frá
Djassballettskóla Báru. Jónsi
mun syngja Evróvisjónlagið, og
stelpurnar í Nylon taka einnig
lagið. Atriði úr söngleikjunum
tveimur sem sýndir verða í sum-
ar, Hárinu og Fame, verða einnig
á sviðinu við Arnarhól. Stopp-
leikhópurinn sýnir atriði sem
nefnist landnáma, og Rachelle
Gislason tekur lagið.
Á sama tíma verður margt um
að vera í Hljómskálagarðinum, til
dæmis mun Skátakórinn taka lag-
ið og Solla stirða og Halla
hrekkjusvín úr Latabæ verða á
svæðinu. Sögur herma að Bang-
simon muni einnig líta í heimsókn.
Dagskrá á Arnarhóli