Morgunblaðið - 17.06.2004, Qupperneq 33
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 33
FASTEIGNAVERÐ á höf-
uðborgarsvæðinu er komið út fyrir
öll skynsamleg mörk. Það sýður á
mér að heyra fréttir þess efnis að
hærra fasteignaverð sé
meginvaldur hækk-
unar verðbólgu. Allt
þjóðfélagið er á leið í
uppnám vegna þessa
og nú segi ég stopp.
Hingað og ekki lengra
og nú verður að kafa
ofan í orsakirnar.
Sjálfur tel ég mig hafa
eina aðalskýringuna og
hún er tvíþætt. Fyrir
það fyrsta er bygg-
ingamarkaðurinn lík-
ast til sú atvinnugrein
sem býr við hvað mest
frelsi til athafna.
Frelsi sem æði margir misnota á
hverjum degi. Ef ríkisvaldinu
finnst tilefni til að setja lög á fjöl-
miðla þá er svo sannarlega tilefni
til að setja lög á byggingariðn-
aðinn.
Vandinn er þessi: Það geta allir
byggt sem eiga hamar og það sem
verra er sumir bankar, sem jafnvel
kenna sig við frelsi, eru bakhjarlar
manna sem eru engan veginn færir
um að byggja íbúðarhúsnæði. For-
svarsmenn þeirra kunna ekki að
reikna út kostnað, siðferði þeirra
er langt undir öllum mörkum og
hugtakið viðskiptavinur hefur enga
meiningu. Afleiðingin er gegnd-
arlaus yfirboð í lóðir, umtalsverður
fjöldi gjaldþrota þessara sömu
manna og fyrirtækja
þeirra og það sem
verra er, tugir kaup-
enda í sárum eftir við-
skipti við þá.
Enginn nálægt
markaðsráðandi
stöðu
Hvernig stendur á því
að u.þ.b. 70–80% af
öllum íbúðum á höf-
uðborgarsvæðinu eru
byggð af fyrirtækjum
sem hafa kennitölu
sem gefin er út á
þessari öld? Flest fyr-
irtækin eru stofnuð utan um hverja
framkvæmd fyrir sig og fæst lifa
það að klára húsin. En það gerir
ekkert til, nýtt fyrirtæki er bara
stofnað til að klára! Og jú, það er í
eigu sömu manna og gátu ekki rek-
ið hið fyrra.
Nú kann einhver að hugsa:
Hvernig stendur á því að stóru fyr-
irtækin bjóða ekki hærra í lóðirnar
og fái þær í sanngjarnri sam-
keppni? Þetta er jú takmörkuð
auðlind og útboðsaðferðin ekki
verri en hver önnur. Því miður
virkar ekki lögmál markaðarins á
markaði sem brýtur allar reglur og
svíkur bæði fé af almenningi og
skilar engum sköttum eða skyldum
til hins opinbera. Það er engin leið
að keppa á þeim grundvelli nema
að leggjast niður á sama plan.
Í síðustu viku var útboð á vegum
Reykjavíkurborgar í Norð-
lingaholti. Lóðagjöld fyrir blokk-
aríbúðirnar fór hátt í 3 milljónir
króna á íbúð! Er einhver hissa á
hækkun fasteignaverðs, er einhver
hissa á hækkun verðbólgu, er eng-
inn orðinn þreyttur á þessu nema
ég?
Það verður að
stokka uppá nýtt
Það er vitlaust gefið í þessu spili.
Sveitarfélögin verða að grípa inn í
og setjast niður með hags-
munaaðilum greinarinnar og laga
þessi mál ekki seinna en strax. Að
öðrum kosti mun verðbólga halda
áfram að vaxa sem þýðir að skuldir
heimilanna margfaldast og samn-
ingar atvinnulífsins fara í uppnám,
og svona get ég lengi talið. Hljóm-
ar sem dómsdagspá en ég er bara
búinn að fá nóg.
Hækkun fast-
eignaverðs og
verðbólgan
Gunnar Jónatansson skrifar
um byggingamarkaðinn
’Flest fyrirtækin eru stofnuð utan
um hverja framkvæmd
fyrir sig og fæst
lifa það að klára
húsin.‘
Gunnar
Jónatansson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Búseta hsf.
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
A› s‡na vináttu kemur af sjálfu sér egar Júlía er annars vegar, heillandi og ægilegur
fimm sæta ra›sófi, framleiddur af Natuzzi me› áherslu á ítalska hönnun, gæ›i og handbrag›.
Natuzzi, sem er lei›andi á heimsvísu í le›ursófum, gefur ér tækifæri á a› velja sófa, hvíldarstóla
og fylgihluti í samræmdri heild. %ú finnur lausnina sem hentar ínum lífsstíl best í Natuzzi versluninni.
Júlía ra›sófinn
kostar frá 471.800 kr. í le›ri
og frá 352.000 kr. í Dreamfibre
Júlía fæst í le›ri og í ofurmíkróefninu, Dreamfibre,
í þriggja sæta sófa og þriggja sæta sófa með tungu.
Heimsending er innifalin á höfu›borgarsvæ›inu
www.natuzzi.com
Natuzzi verslunin - SMÁRALIND 201 Kópavogur - Sími 564 4477 - Verslunin er einnig opin á sunnudögum 13 til 18.
It’s how you live
TIL ÞESS AÐ GERA VEL VIÐ AÐRA
VERÐUR ÞÚ AÐ GERA VEL VIÐ ÞIG