Morgunblaðið - 17.06.2004, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 39
✝ Jón SigurðurGuðmundsson,
forstjóri og ræðis-
maður Íslands í
Louisville í Ken-
tucky, fæddist á
Þingeyrum í Austur
Húnavatnssýslu 27.
júní 1921. Hann lést
12. júní síðastliðinn.
Jón var sonur
hjónanna Guðmund-
ar Andréssonar og
Jórunnar Loftsdótt-
ur. Auk Jóns áttu
þau eina dóttur,
Ingibjörgu Lovísu,
sem lést árið 1991.
Jón kvæntist Sesselju Svönu
Eggertsdóttur 13. apríl 1946 í
Reykjavík. Hún er dóttir
Jón fluttist til Bandaríkjanna
með fjölskyldu sína árið 1950, og
settust þau að í Louisville í Ken-
tucky. Hann var einn af stofn-
endum og stjórnarformaður Ís-
lenska-Ameríska verslunarráðsins
í New York, og einnig í stjórn
American–Scandinavian Found-
ation. Hann stofnaði Þjóðræknis-
félag Íslendinga í Bandaríkjun-
um.
Jón starfaði í harðviðariðnaðin-
um í mörg ár en árið 1964 stofn-
aði hann sitt eigið harðviðarfyr-
irtæki, Norðland Corporation.
Einnig starfaði hann sem stjórn-
arformaður eða stjórnarmeðlimur
í mörgum aðalsamtökum harðvið-
ariðnaðarins í Bandaríkjunum og
Kanada.
Jón var í 20 ár meðlimur skipu-
lagsnefndar sýslunnar sem hann
bjó í.
Jón var sæmdur Fálkaorðunni
árið 1996.
Útför Jóns var gerð í Louisville
í Kentucky 16. júní.
hjónanna Eggerts
Ólafssonar og Ragn-
hildar Gottskálksdótt-
ur. Börn Jóns og
Sesselju Svönu eru
Örn Eggert, Jórunn
Hilda og Jón Sigurð-
ur. Barnabörnin eru
sex og eitt barna-
barnabarn.
Jón lauk prófi frá
Verslunarskóla Ís-
lands árið 1938. Á
unglingsárum tók
hann mikinn þátt í
skátahreyfingunni í
Reykjavík.
Hann vann hjá Jóni Loftssyni
h.f. í Reykjavík og stýrði inn-
kaupaskrifstofu fyrirtækisins í
New York 1942 til 1946.
Okkur systkinin langar að minnast
ástkærs frænda, Jóns Sigurðar eða
Nonna frænda eins og við ávallt köll-
uðum hann. Hann var fæddur á Þing-
eyrum í A-Hún. og sleit barnsskónum
þar.
Um sex ára aldur fluttist hann með
móður sinni og yngri systur til
Reykjavíkur. Þar bjuggu þau í návist
móðursystkina sinna og gengu í skóla
þar.
Jón Sigurður tók snemma til hend-
inni eins og títt var og vann sem ung-
lingur við þau störf sem til féllu.
Hann var félagslyndur og var virkur
skáti, þar sem hann stofnaði til vin-
áttu sem entist honum ævilangt.
Hann lauk prófi frá Verslunarskóla
Íslands og vann ýmis störf, m.a. hjá
móðurbróður sínum Jóni Loftssyni
stórkaupmanni. Á styrjaldarárunum
var ekki auðvelt um aðföng og fór Jón
sem fulltrúi JL hf. til Bandaríkjanna,
til að sjá um innkaup. Stóð hann sig
vel í því starfi og útvegaði JL hf.
vörur og umboð, sem urðu happa-
drjúg. Á meðan á dvöl þessari stóð,
bauðst honum starf við eitt af þeim
fyrirtækjum sem hann hafði átt sam-
starf við, ílentist þar og að lokum var
hann orðinn í forsvari fyrir eitt af
stærstu timburfyrirtækjum Banda-
ríkjanna.
Fyrir 40 árum stofnaði hann,
ásamt fjölskyldu sinni, eigið fyrirtæki
sem hann rak af miklum myndar-
skap. Síðustu árin hafa börnin hans
tekið við rekstrinum og er Örn sonur
hans forstjóri í dag. Fyrirtækið hefur
vaxið og dafnað og er í dag með útibú
víðsvegar um Bandaríkin og víðar.
Jón var mjög farsæll í starfi og
leik, samskipti við Ísland voru ávallt
mikil og rækti hann skyldur sínar við
ættjörðina. Fyrirtæki hans hefur far-
sæl viðskipti við landann og um langa
hríð var hann ræðismaður Íslands í
Kentucky-fylki, en þar reistu þau
hjónin sér glæsilegt heimili sem
ávallt var opið vandamönnum sem og
Íslendingum sem þangað leituðu til
ræðismannsins.
Nonni frændi lagði vinnu í fé-
lagsstörf tengd Íslandi, sem ræðis-
maður hefur hann unnið að því að fá
Íslendinga búsetta erlendis í þjóð-
skrá. Þá var hann m.a. formaður Am-
erican Scandinavian Foundation um
tíma og einn af stofnendum Íslenska-
ameríska verslunarráðsins í New
York og tók þátt í verkefnum vegna
samskipta Íslands og Bandaríkjanna.
Hann hlaut íslensku fálkaorðuna árið
1996.
Nonni frændi rækti skyldur sínar
einnig gagnvart því landi sem hann
hafði kosið sem ævistað sinn. Hann
var meðlimur í ýmsum félagasamtök-
um, forseti og stjórnarmaður Amer-
ican Hardwood Lumber Association í
mörg ár, forseti National Hardwood
Export Council og tók þátt í nefndum
á vegum Kentucky-fylkis.
Nonna var ávallt mjög annt um
heimahagana. Árlega komu þau hjón-
in í heimsókn til að dvelja um tíma og
ferðast um landið, renna fyrir lax í
Aðaldal og hitta vini og kunningja.
Þegar við systkinin vorum yngri var
alltaf ævintýri þegar Nonni frændi
kom í heimsókn. Alltaf var bjart og
kátt þegar þau komu hjónin og iðu-
lega var einhverju spennandi laumað
í litla hönd þegar heilsað var. Á okkar
heimili var ávallt talað um Nonna
frænda með mikilli virðingu og hlýju.
Móðir okkar og Nonni voru mjög ná-
in og þegar hún veiktist, lagði hann á
sig langt ferðalag til að vera hjá henni
og styðja hana í veikindum sínum og
þótti henni og okkur öllum mjög vænt
um það.
Dauðinn er óumflýjanlegur en
kemur okkur samt á óvart, þó að
frændi hafi verið búinn að vera veik-
ur í langan tíma, var alltaf vonin að
hann myndi ná sér og komast heim
aftur. Uppgjöf var ekki til í hans
skapgerð, hann var sterkur persónu-
leiki og ósérhlífinn, aldrei var kvart-
að, en þessa síðustu glímu var ekki
hægt að vinna.
Elsku Dedda, við sendum þér og
fjölskyldunni okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur, öll gerðuð þið allt sem í
mannlegu valdi stóð til að létta
Nonna frænda þessa sjúkralegu og
við biðjum algóðan guð að styrkja
ykkur og styðja.
Við kveðjum frænda okkar, sem
verður sárt saknað, með uppáhalds-
sálmi systur hans og móður.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hin síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Jórunn, Jón, Arnhildur,
Ingibjörg, Sigríður og
fjölskyldur.
Jón Sig. Guðmundsson vinur minn
andaðist eftir margra mánaða dá-
svefn í kjölfar aðgerðar á heila á
sjúkrahúsi í Kentucky í Bandaríkjun-
um hinn 12. júní s.l., tæpum þremur
vikum fyrir 83. afmælisdaginn. Hans
hefur þegar verið sárt saknað, ekki
bara af sínum nánustu, heldur líka
fjölda vina beggja vegna Atlantsála.
Vinátta okkar Jóns og Sesselju
konu hans á sér 45 ára rætur, en þá,
snemma árs 1959, var ég nýkominn
til framhaldsnáms í lyflækningum á
Louisville General Hospital ásamt
eiginkonu minni heitinni, Ragnheiði
Aradóttur. Örfáum vikum eftir þang-
aðkomu hringdi Dedda, kona Jóns, í
okkur og bauð okkur velkomin. Í
kjölfarið nutum við fjölda vinafunda
með þeim og börnum þeirra, Erni,
Hildu og Jóni yngra, alnafna föður
síns.
Jón var einstakur. Alltaf rólegur
og ljúfur, en augnaráðið geislaði af
lifandi kæti. Góðlátlegri stríðni hans
var auðveldlega tekið, og best þótti
honum, ef andmælandi glímdi við
hann á sömu nótum. Í stríðninni var
aldrei broddur. Ráðagóður var hann
og hjálpsamur, hjálp, sem kom án
þess að hennar væri leitað.
Ævistarf hans var timbur, timbur
af öllu tagi, og í þeirri vitneskju hans
var hvergi fúi. Upphaf þessa verður
rakið til móðurbróður hans, Jóns
Loftssonar, iðnrekanda, sem sendi
hann í miðju síðustu heimstyrjaldar
vestur um haf, alla leið til Oregon á
vesturströnd Bandaríkjanna til að
kynna sér allt um timbur, frá skóg-
arhöggi í óbyggðum til fullunnins
framleiðsluvarnings til allra nota.
Eftir nokkurt hlé og umsvif í inn-
flutningsmálum til Íslands á stríðs-
tímanum í New York fluttist hann
með fjölskyldu til Kentucky og aftur í
timbrið! Framhaldið var, að Jón fór
ótal ferðir til öflunar alls kyns við-
artegunda frá öllum heimshornum,
jafnt í frumskógum sem fjallatindum.
Árið 1964 stofnaði hann eigin fyrir-
tæki í timburiðnaði og sölu, North-
land Corporation Inc. í Lagrange í
nágrenni Louisville, sem til þessa
dags hefur vaxið svo fiskur um hrygg
að verða með virtustu fyrirtækjum í
þessum geira undir stjórn hans og
síðar sona þeirra, Arnar og Jóns.
Íslendingurinn í Jóni styrktist við
fjarlægðina frá Fróni. Hjálpsemi við
landa, sem á vegi hans urðu, var sjálf-
gefin og því auðsótt að fá hann til
ræðismannsstarfa fyrir Ísland sem
hann sinnti af alhug. Hjartansmál
hans í þeim efnum var að gerð yrði
kennitöluskrá um alla Íslendinga í
Bandaríkjunum og Kanada.
Síðustu áratugina hafa þau Sess-
elja komið hingað til sumardvalar og
jafnan haft í för með sér eitt eða fleiri
barnabarna sinna til að styrkja í þeim
Íslendingseðlið. Laxá í Aðaldal var
Jóni unaðsreitur og glíman við ótal
laxa tilefni til ómældra ánægju-
stunda.
Ég kveð hann með söknuði og
votta Sesselju, börnum og barna-
börnum þeirra innilega samúð okkar
Jónínu. Hvíli hann í friði.
Sig. Þ. Guðmundsson.
Ræðismaður Íslands í Louisville í
Kentucky í Bandaríkjunum, Jón Sig-
urður Guðmundsson, er fallinn í val-
inn, hátt á áttugasta og fjórða aldurs-
ári. Kona hans, Sesselja Svana
Eggertsdóttir, lifir mann sinn og
kveður bónda sinn í dag í Louisville,
ásamt stórfjölskyldu þeirra íslenskri,
sonunum, Erni Eggerti og Jóni Sig-
urði jr. og dótturinni, Jórunni Hildu
og börnum þeirra. Við Bryndís vott-
um hinum látna ættarhöfðingja virð-
ingu okkar og sendum Sesselju og
fjölskyldunni allri hlýjar samúðar-
kveðjur.
Lífshlaup Jóns Sigurðar var ævin-
týri líkast. Ungur að aldri hleypti
hann heimdraganum og hélt til
Bandaríkjanna á stríðsárunum. Mað-
urinn frá hinu skóglausa landi vann
fyrir sér m.a. við skógarhögg meðal
harðjaxla villta vestursins.
Árið 1964 stofnaði hann sitt eigið
fyrirtæki, Northland Corp., sem óx
og dafnaði í höndum hans og hefur
lengi verið eitt umsvifamesta fyrir-
tæki sinnar tegundar í Bandaríkjun-
um og í heiminum. Fyrirtækið rekur
útstöðvar í S-Ameríku, í Kanada, á
Filippseyjum og í Austur-Asíu; og í
Flórída og New Orleans, fyrir utan
aðalstöðvar í Louisville, Kentucky.
Elsti sonur þeirra Jóns og Sesselju,
Örn Eggert, fyrrum liðsmaður í
varnarliðinu á Íslandi, hefur fyrir all-
löngu tekið þar við mannaforráðum.
Jón Sigurður var í fremstu röð at-
hafnamanna í sinni grein í Bandaríkj-
unum. Hann var einn sex stofnenda
International Hardwood Product
Association og forseti þess um skeið.
Einnig var hann forseti National
Hardwood Distributors Association
og framkvæmdastjóri National
Hardwood Lumber Association.
Jafnframt gaf hann sér tíma til að
sitja í stjórn American Scandinavian
Foundation, íslensk-ameríska versl-
unarráðsins og í stjórn Þjóðræknis-
félags Íslendinga í Vesturheimi.
Þrátt fyrir útlegðina í Vestuheimi í
meira en hálfa öld var Jón Sigurður
alla tíð sannur Íslendingur. Hann
heimsótti gamla landið á hverju
sumri og stundaði m.a. laxveiðar í
Laxá í Aðaldal. Öll börn og barna-
börn þeirra Sesselju voru send til
sumardvalar á Íslandi þegar þau
höfðu aldur til. Og íslenskara heimili
en burstabærinn þeirra Jóns og Sess-
elju í Louisville er vandfundið.
Ævintýrið er á enda. En eftir
stendur minningin um sannan Ís-
lending, sem jók hróður þjóðar sinn-
ar á erlendri grundu og gleymdi aldr-
ei uppruna sínum.
Blessuð sé minning hans.
Jón Baldvin Hannibalsson,
Helsinki.
Jón Sig. Guðmundsson, ræðismað-
ur Íslands í Louisville, Ky, og góður
kunningi og samstarfsmaður, er lát-
inn.
Fundum okkar bar fyrst saman í
New York 1985, en þangað var ég ný-
kominn sem viðskiptafulltrúi. Mér
leist strax afar vel á Jón og þóttist
viss um að hér færi traustur og góð-
viljaður maður. Það var því meira en
sjálfsagt og eðlilegt að kalla Jón til
þegar rætt var um undirbúning að
stofnun Icelandic American Cham-
ber of Commerce í New York. Svo
mikill áhugamaður var Jón um Ísland
og íslensk málefni að hann lagði það á
sig sem ekkert væri að fljúga frá Lo-
uisville, Ky., til New York til að taka
þátt í stofnfundi félagsins sem fram
fór í febrúar 1986. Þar komu saman
um 50 manns. Þegar við fyrstu
stjórnarkosningu var Jón kosinn í
stjórn og þar hófst formlegt samstarf
okkar, hans sem stjórnarmanns og
mín sem framkvæmdastjóra. En
þetta samstarf átti eftir að verða enn
nánara. Jón var kosinn formaður
IACC 1989 og starfaði sem formaður
til 1991. Á þessum árum hvatti Jón
ásamt öðrum stjórnarmönnum fram-
kvæmdastjóra til starfa. Þannig stóð
félagið fyrir ráðstefnum í Wash-
ington DC 1989 og 1990 auk ráð-
stefnu í Reykjavík 1991 í samstarfi
við Íslenska verslunarráðið og Amer-
ísk-íslenska verslunarráðið sem
starfar í Reykjavík. Þá var Jón
áhugamaður um tengingu Vestur-Ís-
lendinga við gamla landið og þrýsti á
um að þeir ættu að geta fengið að
stofna bankareikninga og fleira. Má
segja að hér hafi Jón verið á undan
tímanum en mörg af þessum málum
hafa nú verið leyst.
Jón sparaði hvorki fé né fyrirhöfn
til þess að allt þetta mætti fara sem
best fram, enda duglegur vel og
fylginn sér. En efst er mér í huga
maðurinn sjálfur. Jón var bæði glað-
legur og hlýr og við áttum löng sam-
töl um lífið og tilveruna, en Jón hafði
frá mörgu að segja.
Sem kunnugt er var Jón timbur-
kaupmaður og sérhæfði fyrirtæki
hans Northland Ltd. sig í harðviði.
Við vissum að Jón stjórnaði fyrirtæki
sínu vel og væri prýðilega röggsamur
en hann naut þar aðstoðar sonar síns
o. fl. Það gladdi okkur alveg sérstak-
lega þegar það fréttist að það hefði
komið í hlut fyrirtækis Jóns að út-
vega harðvið í viðgerðir í Hvíta hús-
inu í Washington DC.
Við hjónin kynntumst konu Jóns,
Sesselju S. Eggertsdóttir, sem gjarn-
an fylgdi manni sínum á ferðum hans,
mikilli ágætiskonu sem okkur þykir
vænt um.
Við sendum henni og börnum
þeirra samúðarkveðjur okkar.
Sigríður Pétursdóttir og
Úlfur Sigurmundsson,
fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Icelandic American
Chamber of Commerce í
New York.
Síðastliðinn sunnudag barst okkur
sú frétt að vinur okkar frá æskuárum
Jón Sigurður Guðmundsson hefði lát-
ist í heimkynnum sínum í Louisville í
Kentucky í Bandaríkjunum eftir
langt og erfitt sjúkdómsstríð.
Við það rifjast upp margar endur-
minningar allt frá æskuárum, þegar
við störfuðum í skátafélaginu Vær-
ingjum í Reykjavík. Jón starfaði í
þriðju sveit Væringja og var þar ötull
liðsmaður eins og hann var alltaf síð-
ar hvar sem hann beitti sér. Þeir
byggðu m.a. Skátaskálann við Hafra-
vatn. Jón ólst upp hjá móður sinni
Jórunni Loftsdóttur, á Seltjarnarnesi
og Reykjavík.
Með góðum stuðningi kennara síns
í barnaskóla tók hann próf upp í
Verslunarskóla Íslands og lauk það-
an prófi 1938.
Nú tók starfið við og á stríðsárun-
um starfaði Jón sem umboðsmaður
móðurbróður síns Jóns Loftssonar í
Ameríku. Eftir stutta dvöl á Íslandi
flutti hann til Ameríku og stofnaði
eigið fyrirtæki „Northland“, sem
hann af miklum dugnaði efldi svo, að
það varð eitt stærsta fyrirtæki með
sjö verksmiðjur, sem unnu úr viði,
harðviði. Jón ferðaðist víða um heim,
því hann var þannig maður, að aðeins
það besta var nógu gott.
Árið 1946 kvæntist Jón eftirlifandi
konu sinni Sesselju Eggertsdóttur,
sem starfað hefur með honum í fyr-
irtækinu af bestu getu. Þau eignuð-
ust þrjú börn: Örn, Hildi og Jón
yngri. Allt mannvænlegt fólk sem
hefur vegnað vel og eignast fjölskyld-
ur í nánd við heimabyggð í Louisville.
Fjölskyldum þessum hefur farnast
vel og búið að íslenskum arfi foreldr-
anna, en þeim var mjög annt um sam-
bandið við Ísland, keyptu sér íbúð í
Grafarvogi þar sem þau komu hvert
sumar með hluta ættingjanna, því
þeim var það mikils virði að halda
sambandinu við Ísland.
Engan mann þekkti ég, sem var
meiri Íslendingur og hugsaði meir
um hag landsins og hvers Íslendings,
sem á vegi hans varð.
Jón var lengi konsúll Íslands í Mið-
ríkjum Bandaríkjanna. Það voru
margir Íslendingar, sem lentu í vand-
ræðum, sem leituðu til Jóns, oft með
fjárhagsleg vandamál, sem hann
leysti með eigin fé, en hann sagði mér
að nánast alltaf hefði það skilað sér
innan fárra ára.
Málstaður Íslands var mikið
kappsmál Jóns, að hann yrði sem
bestur og beitti hann sér á ýmsan
hátt fyrir því að halda á lofti framlagi
Íslendinga til aukinnar menningar.
Þessu vildi hann að við hér heima
héldum betur á lofti.
Nú er góður vinur horfinn á braut,
„farinn heim“ eins og við skátar segj-
um. Hann skilur eftir sig stórt og
mikilvægt lífsstarf og nú eigum við
vinir hans hugljúfar minningar um
góðan mann, sem við geymum í hjört-
um okkar.
Við hjónin eigum minningar um
ótal hamingjuríkar samverustundir
bæði hér á landi, í Frostafold, svo og í
Lousville og Florida. Ekki á það síst
við um spil við bridsborðið, en við
höfðum öll gaman af því. Það var
gaman að fylgjast með glampanum í
augum Jóns eftir vel heppnað spil.
Það er dýrmætt að eiga góðar minn-
ingar um góðan vin, það vermir hug-
ann.
Mest hafa þó misst Sesselja, börn-
in og aðrir ættingjar. Það eru mikil
tímamót í þeirra lífi eftir langa sam-
veru. Við biðjum þeim öllum bless-
unar í sorg þeirra og sárum missi.
Soffía og Páll Gíslason.
JÓN SIGURÐUR
GUÐMUNDSSON
Erfidrykkjur
Salur og veitingar
Félagsheimili KFUM & KFUK
Holtavegi 28, 104 Reykjavík.
Upplýsingar í síma 588 8899.
www.kfum.is