Morgunblaðið - 17.06.2004, Qupperneq 50
50 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ gefnu tilefni er nú mjög rætt um
vald forseta og sýnist sitt hverjum
og oft vitnað til fyrrverandi prófess-
oranna Ólafs Jóhannessonar og Sig-
urðar Líndal í umræðunni.
Ólafur Jóhannesson skrifaði bók-
ina „Lög og réttur, þættir um ís-
lenska réttarskipan ásamt formála-
safni“. Ég á þessa bók, 3. útgáfu
Bókmenntafélagsins frá 1975, en þá
útgáfu önnuðust lagaprófessorarnir
Lúðvík Ingvarsson, Páll Sigurðsson,
Sigurður Líndal (sem upphaflega
tók verkið að sér, fékk hina til liðs við
sig og ritar formála) og Stefán Már
Stefánsson.
Bókin skiptist í sjö þætti og fjallar
sá fyrsti þeirra um stjórnskipan og
stjórnsýslu. Í A lið 3. greinar þess
þáttar er fjallað um embætti forseta.
V. töluliður greinarinnar er um „hin
helstu störf forseta“ og er þar vitnað
í þær greinar stjórnarskrárinnar,
sem Ólafur telur við eiga. Að lokinni
þessari upptalningu, m.a. um að vísa
lögum til þjóðaratkvæðis skv. 26. gr.,
segir svo orðrétt:
„Engar stjórnarathafnir forseta
öðlast gildi, nema einhver ráðherra
riti undir þær með honum. Sam-
kvæmt stjórnskipunarháttum og
venjum hér eru það því í reyndinni
ráðherrar, sem ráða stjórnarfram-
kvæmdum þessum og framkvæma
vald það, sem forseta er fengið í
stjórnarskránni.“
Í B liður 3. greinar fjallar um ráð-
herra. Þar segir:
„Svo sem áður er sagt, er forseti
ábyrgðarlaus af stjórnarathöfnum.
Nú er það hins vegar eitt af grund-
vallareinkennum hins þingbundna
stjórnskipulags, að á bak við allar
stjórnarframkvæmdir standi ein-
hverjir menn, sem á þeim bera
ábyrgð. Í stjórnarskránni segir því,
að ráðherrar beri ábyrgð á stjórn-
arframkvæmdum öllum. […] Því er
svo fyrir mælt í stjskr. [sic], að for-
seti láti ráðherra framkvæma vald
sitt og engin stjórnarathöfn fái gildi
fyrr en ráðherra hefur með undirrit-
að hana og þar með tekið á sig
ábyrgð á henni. Í reyndinni eru það
því ráðherrar, sem fara með æðstu
stjórn framkvæmdavaldsins og ráða
mestu um stjórnarframkvæmdir og
stjórnarstefnu.“
Ég segi nú bara eins og haft var
eftir Sigurði Líndal á dögunum: Get-
ur þetta verið skýrara? Ef þetta er
ekki skýrt, þá er ég ekki læs. Nú er
ég ekki löglærður og hef ekki fylgst
með breytingum, sem gerðar hafa
verið á stjórnarskránni undanfarið.
Tel þó nokkuð víst, að ekki hafi hing-
að til verið hróflað við því, sem að
forseta og starfi hans lýtur.
Því spyr ég: Mun ráðherra með-
undirrita þá stjórnarathöfn forseta
að vísa lögum um fjölmiðla til þjóð-
aratkvæðis þannig að hún öðlist
stjórnskipulegt gildi? Eða er skiln-
ingur Ólafs Jóhannessonar út í hött
og getur forsetinn gert þetta upp á
sitt eindæmi? Ég leyfi mér að ætla,
að Sigurður Líndal hafi á sínum tíma
gert skilning Ólafs að sínum, en sam-
kvæmt því, sem hann segir í formála,
endurskoðaði hann eimitt þennan
þátt 3. útgáfu bókarinnar, sem Ólaf-
ur samdi að eigin sögn „með það fyr-
ir augum, að hún geti veitt fróðleiks-
fúsum lesendum fræðslu um ýmis
meginatriði íslenzkrar réttarskipun-
ar“.
Þeim sem vilja kynna sér þetta frá
fyrstu hendi er bent á bók Ólafs, bls.
21–22 í tilvitnaðri útgáfu, og formála
SL.
VIGFÚS MAGNÚSSON,
Stigahlíð 42,
105 Reykjavík.
Um vald forseta
Frá Vigfúsi Magnússyni:
MESTA böl þjóðanna og þá ekki síst
Íslands, landsins okkar góða eins og
Jónas Hallgrímsson orðaði það, er
án vafa áfengisbölið. Við erum í
hverri viku að heyra og sjá árangur
þess í hinu daglega lífi. Þetta fer ekki
framhjá neinum. Þau skörð sem það
heggur í líf bæði einstaklinga og fjöl-
skyldna, er oft óbætanlegt. Þetta eru
staðreyndir sem tala skýru máli.
Þess vegna hlýtur það að vera skylda
hvers hugsandi manns að stemma
stigu við neyslu þess alveg eins og
frekast er auðið. Þarna hefir alþingi
okkar mestu áhrifin bæði til ills og
góðs. Ég hefi margsinnis bent á það
og blákaldur veruleikinn hefir sann-
að það svo vel að öll tilslökun á
reglum um meðferð þessa eiturs
eykur bölið og það svo að margar
þjóðir eru alvarlega hugsandi um að
herða reglur um sölu og meðferð
áfengis. Við vitum það að því nær
sem það kemur manninum, því
meira selst af áfenginu og eins hafa
auglýsingar og ummæli fólks mikið
að segja í útbreiðslu þess. Þetta veit
áfengisauðvaldið og er ötult við að
brjóta niður alla þá varnarmúra sem
hafa verið settir til að verja æskulýð
landsins og alltaf er verið að koma
því lengra inn í óþroskaða unglinga.
Í stað þess að verja einstaklinginn
fyrir þessari vá, hafa alþingismenn
látið sig hafa það að veita þessu böli
frekar framgang en viðnám, m.a.
með því að leyfa það selt í öllum veit-
ingastöðum á landinu, og þeir sem þá
reka ötulir við að beina því til fólks-
ins og er sama hvort fólkið er veikt
fyrir því eða ekki. Og alltaf er lengra
haldið inn á vegi spillingarinnar án
þess að spyrja þá sem hafa mest
rannsakað og varað við þessu böli.
Og nú á að færa aldur þeirra sem
eiga að verða þessu böli að bráð nið-
ur í 18 ár og að þessu stendur hið háa
alþingi eða stjórnendur þess. Og eins
dettur sömu aðilum í hug að flytja
frv. um að leyfa sölu þess í öllum
matvöruverslunum í landinu. Vitandi
vits um að það stóreykur bölið sem af
því stafar. Ég hélt og hefi alltaf hald-
ið að alþingi ætti að stuðla að ham-
ingju landsmanna en ekki auka böl
og það versta böl sem heilbrigðir
menn berjast á móti. Er þetta ekki
augljóst? Sjá ekki alþingismenn
þetta? Vonandi.
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Mesta böl þjóðanna
Frá Árna Helgasyni:
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Grettir
Smáfólk
Smáfólk
DAMAN MÍN STÓÐ UPP OG SAGÐIST
ÞURFA AÐ NOTA SNYRTINGUNA...
OG KOM
EKKI AFTUR!
AFSAKAÐU
MIG JÓN...
KANNSKI LÆSTIST HÚN INNI Á
KVENNAKLÓSETINU...
...Á MEÐAN ÉG
FER INN Í
SKÁP AÐ
HLÆGJA AF
ÞER
GEÐHJÁLP
10kr.
ÞANNIG
AÐ ÉG
KEYPTI NÝTT
TEPPI... ÉG
VILTI BARA
GERA RÉTT..
HMM... ÉG VEIT EKKI ALVEG
HVERNIG ÉG Á AÐ SEGJA
ÞÉR ÞETTA KALLI...
Í GEGNUM TÍÐINA HEFUR
ALDREI NEINN VALDIÐ EINS
MIKLUM SKAÐA OG ÞEIR
SEM HÉLDU AÐ ÞEIR VÆRU
AÐ GERA RÉTT
10kr.
TAKK!
Æ!
VIÐ
VERÐUM AÐ
LÆRA METRA-
KERFIÐ FRIKKI
ÞEGAR VIÐ VERÐUM ORÐIN
FULLORÐIN ÞÁ VERÐUR
METRAKERFIÐ ÖRUGGLEGA
OPINBERT...
EIN TOMMA ER 2,54 CM
EITT FET ER 0,3048 M
EIN MÍLA ER 1,609 KM...
ÉG ÆTLA ALDREI AÐ
MÆLA NEITT ÞAÐ SEM EFTIR
ER ÆVINNAR!
Svínið mitt
© DARGAUD
EN HVAÐ
ÞAÐ ER
GOTT AÐ FÁ
ÞIG AFTUR!
ÉG ER LÍKA
ÁNÆGÐ
EKKI MEIRI
VANDAMÁL
MEÐ PÖSSUN
FYRIR ÖDDU
GROIN!
ÉG KOM MEÐ
SMÁ GJÖF
HANDA YKKUR ÞETTA
ER TIL
ÞÍN
HVAÐ ER
ÞETTA?
ÞETTA ER BAKOTAGRÍMA. HÚN
GÆTIR HINNA DAUÐU. ÞÚ SETUR
HANA Á GRÖFINA ÞEGAR ÞÚ DEYRÐ
TAKK
FYRIR
HANDA ÞÉR
KOM ÉG MEÐ
ÞETTA FALLEGA
HÁLSMEN
ÞETTA
ER
MJÖG
FALLEGT
ELSA
FYRIR YKKUR KOM ÉG
MEÐ SANZA OG N’GOMA TIL
SKEMMTUNAR
VÁ! EN
SKEMMTILEGT!
LA LALA
LAAAA!!
Í KVÖLD ÆTLA ÉG
AÐ MATREIÐA HANDA
YKKUR RÉTT FRÁ
HEIMALANDI MÍNU
HVAÐ
BORÐUM
VIÐ?
MAMBÚMMÚS!
GRILLAÐIR MAURAR Í
FORRÉTT. SVO KEMUR
KRÓKÓDÍLAKJÖT Í
ÓNEFNDRI SÓSU
MÚNGÚKBLI ER
AUÐVITAÐ MEÐ
EF ÞAÐ ER
MÚNGÚKBLI ÞÁ
HLÝTUR ÞAÐ AÐ
VERA GOTT
DRÍFUM
OKKUR
INN Í
ELDHÚS!
ER VIRKILEGA SVONA GOTT AÐ
VERA BÚIN AÐ FÁ ELSU AFTUR?
ÉG BARA SPYR!