Morgunblaðið - 17.06.2004, Side 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 51
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKTIN miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
ÞJÓNUSTA
KRABBAMEINSFÉLAG Íslands
efndi í mars og apríl í annað sinn til
söfnunarátaksins „Hækkaðu upp í
næsta hundrað – til styrktar
Krabbameinsfélaginu“. Áhersla var
lögð á aukna þjónustu við sjúklinga.
Alls tóku 38 verslanir þátt í þessu
átaki, Debenhams, Topshop, Útilíf
og Lyfja og samstarfsaðilar.
Um 14 þúsund manns lögðu
Krabbameinsfélaginu lið í átakinu og
voru framlögin í heild 773 þúsund
krónur. Stór hluti framlaga kom frá
viðskiptavinum verslana Lyfju, þar
af hlutfallslega mest frá Lyfju í Lág-
múla í Reykjavík. Í fréttatilkynningu
frá Krabbameinsfélaginu segir að fé-
lagið meti mikils þennan stuðning.
14 þúsund manns lögðu
Krabbameinsfélaginu lið
HARPA Sjöfn hf. hefur afhent 19
aðilum málningarstyrk fyrir árið
2004, að verðmæti tvær milljónir
króna.
Með styrkjunum vilja forráða-
menn Hörpu Sjafnar leggja menn-
ingar- og þjóðrifamálum lið á áþreif-
anlegan hátt, stuðla að verndum
mannvirkja sem hafa menningar-
sögulegt gildi, auk þess að styðja við
góðgerðarsamtök og íþrótta- og
ungmennafélög víða um land, segir í
fréttatilkynningu.
Til þess að koma til móts við þá
umsækjendur sem ekki hlutu styrk
hefur Harpa Sjöfn ákveðið að þeir
njóti sérstakra vildarkjara hjá fyr-
irtækinu.
Eftirtaldir aðilar hljóta málning-
arstyrk Hörpu Sjafnar hf. árið 2004,
Nonnahús, Akureyri, Leikfélagið
Hugleikur, Gamla íbúðarhúsið að
Laxamýri, Staðarkirkja, Hrútafirði,
Hjálparsveit skáta, Hveragerði,
Laugavegur 2, Þórbergssetur að
Hala í Suðursveit, Hvammeyri við
Tálknafjörð, Bergsstaðakirkja,
Grettisgata 27, Íþróttafélag fatl-
aðra, Reykjavík, Patreksfjarðar-
kirkja, Skíðaskólinn í Kerlingarfjöll-
um, Ferðafélag Akureyrar vegna
skála í Drekagili, Miðdalskirkja í
Laugardal, Ungmennafélagið Reyn-
ir, Vík, vegna Félagsheimilisins
Eyrarlands, Vinaminni, Mjóstræti 3,
Slysavarnafélagið Landsbjörg
vegna viðhalds neyðarskýla og
Skútustaðakirkja, Mývatnssveit.
Tvær milljónir í
málningarstyrki
EJS styrkir UNICEF
EJS gaf nýlega Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna allan tölvubúnað í
skrifstofu sína að Skaftahlíð 24 í
Reykjavík, en árlega velur EJS eitt
gott málefni og veitir því rausn-
arlegan styrk.
„Styrkurinn er mikilvægur fyrir
þær sakir að nú renna þeir pen-
ingar sem landsnefnd UNICEF afli
hér á landi beint til þeirra sem á
þurfa að halda, það er til barna um
allan heim, en ekki í tölvur og ann-
an slíkan búnað,“ segir í frétta-
tilkynningu frá UNICEF en mark-
mið samtakanna er fjáröflun fyrir
þróunaraðstoð við börn.
Guðbrandur Örn Arnarson, markaðsstjóri EJS, og Stefán Ingi Stefánsson,
framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, við afhendinguna.