Morgunblaðið - 17.06.2004, Qupperneq 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 55
Puma Torceira
Fullorðinsstærðir 5.490 kr.
Barnastærðir 4.990 kr.
Útilíf - Glæsibæ, Smáralind
og Kringlunni
Maraþon - Kringlunni
Sportver - Akureyri
Boltamaðurinn
- Laugavegi 42
Sportbúð Grafarvogs
Axel Ó - Vestmannaeyjum
Sportbær - Selfossi
Tákn - Húsavík
K-sport - Keflavík
ALBERT Sævarsson, markvörður
Grindvíkinga, var sæmilega sáttur
með leikinn. „Þetta var fínasti leik-
ur en það vantaði mörkin. Mér
fannst bæði lið hrædd við að fá á sig
mark og þau gættu sín í vörninni en
það vantaði bara eitt mark í leikinn,
þá hefði hann opnast,“ sagði mark-
vörðurinn sem þurfti ekki að taka á
fyrr en á lokasprettinum. Grindvík-
ingar eru í 7. sæti og Albert er
sallarólegur. „Það er engin pressa
á okkur, ég finn ekki fyrir því og
við ætlum bara að hafa gaman af
þessu, ekki síst þegar við förum að
taka á. Ég er hvergi smeykur við að
þetta komi ekki hjá okkur, við eig-
um eflaust eftir að vinna marga
sigra og tapa jafnvel líka en þetta
fer nú bara upp á við hjá okkur.“
Fyrirliði og markvörður KR,
Kristján Finnbogason, tók í sama
streng. „Þetta var hörkuleikur en
enginn glans yfir honum, menn
börðust og ég held að eitt stig fyrir
hvort lið hafi verið sanngjarnt. Við
ætluðum auðvitað að vinna leikinn
og fá þrjú stig en náðum ekki að
skora undan golunni í fyrri hálfleik
og fórum varlegar í seinni hálfleik
en börðumst samt fyrir stiginu,“
sagði fyrirliðinn og liggur heldur
ekkert á. „Þetta er allt á réttri leið,
sérstaklega ef miðað er við fyrsta
leik okkar í mótinu og þá var þessi
leikur mjög góður. Við höfum spil-
að ágætlega að undanförnu og
byggjum svo á því og þá fer þetta
að smella saman enda eru fleiri og
fleiri leikmenn að verða klárir.“
„Bæði liðin hrædd við
að fá á sig mark“
Grindavík 0:0 KR
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla,
6. umferð
Grindavíkurvöllur
Miðvikudaginn 16. júní 2004
Aðstæður:
Norðan næðingur, þurrt, 9
stiga hiti, völlurinn góður
Áhorfendur: 915
Dómari:
Jóhannes Valgeirsson,
KA, 5
Aðstoðardómarar:
Guðmundur H. Jónsson,
Eyjólfur Finnsson
Skot á mark: 10(4) - 10(3)
Hornspyrnur: 5 - 6
Rangstöður: 8 - 8
Leikskipulag: 4-4-2
Albert Sævarsson M
Guðmundur A. Bjarnason
Óðinn Árnason M
Óli Stefán Flóventsson M
Ray Anthony Jónsson M
Paul McShane
(Aleksandar Petkovic 70.)
Eysteinn Húni Hauksson M
Eyþór Atli Einarsson
Óskar Örn Hauksson M
(Gestur Gylfason 81.)
Sinisa Valdimar Kekic M
Grétar Ó. Hjartarson
Kristján Finnbogason M
Jökull I. Elísabetarson
Gunnar Einarsson M
Kristján Örn Sigurðsson M
Bjarni Þorsteinsson M
(Kristinn Magnússon 70.)
Arnar Jón Sigurgeirsson
Kristinn Hafliðason M
Petr Podzemsky
Ágúst Þór Gylfason
Kjartan Henry Finnbogason M
(Sigurður Ragnar Eyjólfsson 88.)
Arnar B. Gunnlaugsson
(Guðmundur Benediktsson 65.)
Gul spjöld: Paul McShane, Grindavík (73.) fyrir mótmæli Aleksandar Petkovic, Grinda-
vík (76.) fyrir brot
Rauð spjöld: Engin
Fyrstu 15 mínúturnar voru gest-irnir úr Reykjavík meira með
boltann og reyndu að byggja upp
sóknir en þær
strönduðu allar á
sterkri vörn Grinda-
víkur með Óðin
Árnason og Óla Stefán Flóventsson
fasta fyrir á miðjunni. Helst var KR-
ingurinn spræki, Kjartan Henry
Finnbogason, að gera góðar tilraun-
ir upp vinstri kantinn en þegar hann
slapp framhjá Guðmundi Andra
Bjarnasyni tók Óðinn við honum og
lengra fór Kjartan Henry ekki.
Grindvíkingar sjálfir biðu frekar
átekta enda vissu þeir, jafnvel og
varnarmenn KR, að með Grétar Ólaf
Hjartarson og Sinisa Kekic í
fremstu víglínu mátti búast við
snörpum sóknum. Það var ekki fyrr
en á 16. mínútu að Albert Sævars-
son, markvörður Grindvíkinga, varði
ágætlega eftir horn KR að heima-
menn tóku við sér. Á 20. mínútu
komst Ian Paul McShane upp hægri
kantinn, gaf fyrir og eftir þvögu
skaut varnarmaðurinn Guðmundur
Andri í slá KR. Boltinn hrökk inn í
teig þar sem Gunnar Einarsson,
varnarmaður KR, skallaði boltann í
horn, rétt framhjá eigin stöng. Ekk-
ert meira markvert gerðist sem eftir
lifði fyrri hálfleiks og í raun langt
fram í seinni hálfleik. Bætt hafði í
norðannæðing, sem Grindvíkingar
höfðu nú í bakið en það dugði þeim
ekki. Þeir náðu að vísu oft að spila
upp að vörn KR en hún var föst fyrir
og frekar að KR-ingar væru að
byggja upp sóknir sínar. Á 75. mín-
útu virtist koma skipun inn á völlinn:
Sækja. Við það færðist meira fjör í
leikinn en fram að því hafði boltinn
einu sinni hitt rammann og síðustu
mínúturnar þurftu markverðir sex
sinnum að bjarga. Besta færið kom á
síðustu mínútu leiksins þegar Guð-
mundur Benediktsson, sem kom inn
á fyrir Arnar Gunnlaugsson á 65.
mínútu, komst inn fyrir vörn Grind-
víkinga. Albert markvörður tók á
sprett á móti honum og Guðmundur
reyndi að skjóta yfir hann en Albert
stökk hátt og varði alveg við víta-
teigslínuna.
Þó að skot á mark hafi vantað
fram eftir öllum leik skiluðu leik-
menn sínu og tókst að halda einbeit-
ingu og þolinmæði. Það getur verið
erfitt þegar lítið er um færi því
menn vilja oft fá meira líf í leikinn.
Varnir beggja liða skiluðu sínu og
markverðir gerðu það sem þurfti að
gera. Miðjumenn börðust en fram-
herjar fengu úr of litlu að moða.
Leikmenn voru þó flestir á því að
mark hefði alveg vantað og áhorf-
endur voru því sammála – fannst
jafnvel vel gert að leikmenn skyldu
klappa fyrir þeim í lokin fyrir að
hafa þraukað út leikinn.
Morgunblaðið/Eggert
Eysteinn Húni Hauksson, miðjumaður Grindvíkinga, reynir að ná boltanum af Arnari Jóni Sig-
urgeirssyni, miðjumanni KR-inga, í leiknum í Grindavík í gærkvöld.
Stig fyrir að
fara varlega
VARKÁRNI var lykilatriði þegar KR sótti Grindavík heim í gær-
kvöldi. Varnir beggja liða voru vel vakandi og fátt um færi. Fram
að 75. mínútu hafði boltinn einu sinni hitt á markið – þegar hann
fór í slá KR og ekkert spjald farið á loft en 15 rangstöður. Þá var
spýtt í lófana og meira fjör en það tókst ekki að skora og sitt-
hvort stigið ríkulegt uppgjör. Liðið er því eftir sem áður í 6. og 7.
sæti deildarinnar.
Stefán
Stefánsson
skrifar
STUÐNINGSMENN hollenska
landsliðsins í knattspyrnu voru held-
ur betur undrandi þegar starfsmenn
EM gerðu hatta sem þeir báru upp-
tæka. Hattarnir, sem eru í hollensku
fánalitunum og eru merktir Heinek-
en, voru teknir af stuðningsmönnun-
um í miðjum leik Hollands og Þýska-
lands í fyrradag. „Heineken-
hattarnir okkar voru bara teknir í
burtu. Ég held að þetta hafi eitthvað
að gera með Carlsberg,“ sagði von-
svikinn áhorfandi en Carlsberg er
aðalstyrktaraðili mótsins.
Hattarnir gerðir upptækir