Morgunblaðið - 17.06.2004, Síða 57
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 57
Opna SÁÁ golfmótið
verður haldið á golfvelli Leynis, Akranesi,
laugardaginn 19. júní kl. 09.00.
Höggleikur með og án forgjafar.
Glæsileg verðlaun.
Skráning fer fram á www.golf.is/gl og
í síma 431 2711 - Þátttökugjald kr. 2.500
laugardaginn 19. júní á
Kirkjubólsvelli
Mótið er til styrktar unglingastarfi GSG.
Ræst verður út af öllum teigum kl. 21:00.
Leikið verður Texas Scramble. Samanlögð forgjöf
deilt með 4.
Skráning er á www.golf.is/gsg eða í síma 423 7802.
Undanfarin ár komust færri að en vildu.
Láttu sjá þig! Unglinganefnd GSG
Miðnæturmótið
Golfklúbbur
Sandgerðis
Fram 0:1 KA
Leikskipulag: 3-5-2 Landsbankadeild karla,
6. umferð
Laugardalsvöllur
Miðvikudaginn 16. júní 2004
Aðstæður:
Sól, gola, völlurinn góður.
Áhorfendur: 523
Dómari:
Ólafur Ragnarsson,
Hamar, 4
Aðstoðardómarar:
Ingvar Guðfinnsson,
Einar Sigurðsson
Skot á mark: 16(10) - 9(6)
Hornspyrnur: 10 - 3
Rangstöður: 3 - 1
Leikskipulag: 3-5-2
Gunnar Sigurðsson M
Andrés Jónsson
Hans Fróði Hansen
Eggert Stefánsson M
Ómar Hákonarson
Heiðar Geir Júlíusson M
Ingvar Ólason M
Fróði Benjaminsen
(Andri Steinn Birgisson 79.)
Ragnar Árnason
(Daði Guðmundsson 72.)
Ríkharður Daðason M
Andri Fannar Ottósson
(Kristján Brooks 74.)
Sándor Matus M
Haukur I. Sigurbergsson
Steinn V. Gunnarsson M
Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson M
Örn Kató Hauksson
Atli Sveinn Þórarinsson MM
Dean Martin M
Sigurður Skúli Eyjólfsson
(Jón Gunnar Eysteinsson 76.)
Óli Þór Birgisson
Hreinn Hringsson
Elmar Dan Sigþórsson
(Örlygur Þór Helgason 85.)
0:1 (69.) Hreinn Hringsson ógnaði vörn Fram eftir snögga sókn KA-manna,
skaut í varnarmann og boltinn hrökk af Frömurum út á miðjan vall-
arhelming þeirra. Þar kom Atli Sveinn Þórarinsson á ferðinni og skor-
aði með stórglæsilegu, viðstöðulausu skoti af 30 metra færi, boltinn
sveif efst í markhornið vinstra megin, algjörlega óverjandi fyrir Gunnar
Sigurðsson.
Gul spjöld: Engin
Rauð spjöld: Engin
Þrjú af fjórum mörkum Atla hafafært KA öll sjö stig liðsins til
þessa, hin tvö voru sigurmark gegn
Víkingi og jöfnunar-
mark gegn Grinda-
vík. Atli lék í gær-
kvöld í nýrri stöðu
sem varnartengilið-
ur, spilaði hana stöðugt betur eftir
því sem leið á leikinn og kórónaði
frammistöðu sína með markinu
snilldarlega um miðjan síðari hálf-
leik.
Þetta er þriðji sigur KA í röð gegn
Fram í Laugardalnum, en það er
varla hægt að segja að hann hafi verið
sanngjarn. Framarar voru lengi vel
mun sterkari aðilinn, þeir sóttu af
miklum krafti megnið af fyrri hálf-
leiknum og KA-menn komust þá
sjaldan yfir miðju. Ríkharður Daða-
son var vörn KA stöðugur ógnvaldur
og gerði nánast allt nema skora.
Hann kom við sögu í tíu ágætum fær-
um Safamýrarliðsins í leiknum en
ýmist hittu hann og félagar hans ekki
markið, varnarmenn komust fyrir
skotin, eða Sándor Matus hinn ung-
verski varði mark norðanmanna, eins
og hann gerði nokkrum sinnum mjög
vel.
KA-menn áttu sínar skyndisóknir
og engu munaði að þeir skoruðu úr
fyrsta færi sínu í leiknum, á 23. mín-
útu, þegar Gunnar Sigurðsson varði
mjög vel frá Hreini Hringssyni.
Snöggum sóknum KA fjölgaði þegar
leið á seinni hálfleikinn, oftar en ekki
var Dean Martin, sem nú lék inni á
miðjunni, í stóru hlutverki, og eftir
eina slíka kom sigurmark Atla. Það
slökkti nánast í Frömurum – þeir
reyndu að sækja áfram, en var greini-
lega brugðið og þeir hættu nánast al-
veg að koma sér í námunda við mark
KA. Norðanmenn efldust hins vegar
til muna og gáfu enn í baráttuna.
Fram fékk þó eitt færi til að jafna,
Ingvar Ólason, en skot hans var of
laust og Matus varði af öryggi.
Með þessum úrslitum eru Fram-
arar komnir á kunnuglegar slóðir, í
fallsæti. Þeir virðast hafa eytt púðr-
inu um of í flugeldasýningunni í
fyrsta leiknum því þeir hafa ekki náð
að vinna leik í deildinni síðan.
Frammistaða þeirra var þó með
ágætum lengi vel í gærkvöld og þeir
mega vera mjög ósáttir við að hafa
gengið stigalausir af velli. Þeir sóttu
af krafti í klukkutíma, sýndu þá oft á
tíðum ágætis fótbolta, yfirspiluðu
KA-menn á miðjunni og fengu færin
til að skora. KA-menn voru hins veg-
ar óöruggir í leik sínum lengi vel,
héldu boltanum illa og komust ekkert
áleiðis í fyrri hálfleiknum. Þeir gengu
síðan á lagið, þjöppuðu sér saman og
náðu betri spilaköflum eftir því sem á
leið, og eftir markið hjá Atla voru þeir
líklegir til að halda fengnum hlut –
sem þeir gerðu. Að öðrum kosti hefði
fallsætið verið þeirra. Og þrátt fyrir
þennan sigur er ljóst að lið KA þarf
að halda vel á spilunum ef það ætlar
sér að forðast vandræði í neðri hluta
deildarinnar. Þá þurfa fleiri en Atli
Sveinn að komast á markalistann.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ríkharður Daðason var ágengur við mark KA í gærkvöld og hér reyna Þorvaldur Sveinn Guð-
björnsson og Örn Kató Hauksson að halda honum í skefjum.
Enn kemur Atli
KA til bjargar
ATLI Sveinn Þórarinsson hefur heldur betur reynst KA-mönnum
happafengur. Þeir endurheimtu hann í vor eftir fjögurra ára útlegð í
Svíþjóð, og þessi varnarjaxl, sem hingað til hefur verið þekktur fyrir
allt annað en að skora mörk, hefur séð um það sem framherjum Ak-
ureyrarliðsins hefur gengið brösuglega með það það sem af er
sumri. Atli Sveinn tryggði KA sigur á Fram, 1:0, á Laugardalsvell-
inum í gærkvöld með stórglæsilegu marki, og þetta var fjórða mark
hans á tímabilinu, af þeim fimm mörkum sem KA hefur skorað í
deildinni til þessa.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
„ÞETTA gekk allt eftir, eins og við
lögðum leikinn upp. Reyndar áttu
Framarar nokkur færi sem við gáf-
um þeim í fyrri hálfleik, en við
fengum besta færið til að skora í
hálfleiknum. Þeir komust ekkert
áleiðis í þeim seinni og okkar leikur
var betri eftir því sem á leið, og við
spiluðum fyrst og fremst með hjart-
anu,“ sagði Þorvaldur Örlygsson,
þjálfari KA, við Morgunblaðið eftir
sigurinn á Fram.
„Við höfum ekki haft heppnina
með okkur á heimavelli í sumar en
hlutirnir hafa gengið upp á útivelli.
Öll vafaatriði féllu bláa liðinu í hag,
en við vælum ekki yfir því frekar en
í öðrum leikjum. Við höfum misst
marga menn í meiðsli eftir grófar
tæklingar og okkur vantaði sterka
menn í þessum leik, en aðrir fengu
tækifæri til að spila og nýttu sér
það vel,“ sagði Þorvaldur.
Í lið KA vantaði þrjá leikmenn
frá síðasta leik. Ronni Hartvig,
varnarmaðurinn sterki, er í prófum
í Danmörku, Pálmi Rafn Pálmason
meiddist í leik KA gegn Grindavík
og Kristján Elí Örnólfsson meiddist
á hné á æfingu í fyrrakvöld.
Lékum
með
hjartanu
STEPHANE Henchoz, varnar-
maður Sviss, hefur varað liðsmenn
sína í landsliðinu við félaga sínum frá
Liverpool, Michael Owen. „Owen er
frábær leikmaður og hann er fljótur
að refsa mótherjum sínum,“ sagði
Henchoz.
MIKAEL Silvestre, varnarmaður
Frakka, hefur greint frá því að Fab-
ien Barthez, markvörður Frakk-
lands, hafi fyrir leikinn gegn Eng-
lendingum á sunnudaginn horft á
allar þær vítaspyrnur sem David
Beckham hefur tekið. „Beckham
skýtur alltaf í sama hornið og Fabian
vissi það,“ sagði Silvestre.
DAVID James, markvörður enska
landsliðsins, sagði á þriðjudag að
hann hefði horft á sjö leiki með
franska landsliðinu til að búa sig
undir leikinn gegn Frakklandi. Þrátt
fyrir það hafi hann verið óundirbú-
inn fyrir aukaspyrnu Zinedine Zid-
ane undir lok leiksins. Alls hafi
James horft á sjö leiki með franska
liðinu en í öllum leikjunum hafi Zid-
ane átt misheppnaðar aukaspyrnur.
Í rauninni hafi Zidane ekki skorað úr
aukaspyrnu fyrir franska landsliðið
síðan í fjórðungsúrslitum EM árið
2000 gegn Spáni.
FÓLK
„NEI, ekki segja þetta. Ég veit ekk-
ert hvaðan á mig stendur veðrið og
er furðu lostinn yfir þessu marka-
skori hjá mér. Ég veit hreinlega
ekki hvernig ég á að taka því,“
sagði Atli Sveinn Þórarinsson, fyr-
irliði KA, þegar Morgunblaðið
spurði hann hvort hann hefði sett
stefnuna á markakóngstitilinn eftir
sigurmarkið gegn Fram á Laug-
ardalsvellinum í gærkvöld.
„Ég heyrði í Deano [Dean Mart-
in] sem öskraði og vildi fá boltann
eins og venjulega, en ég ákvað að
hlusta ekki á hann í þetta skiptið og
láta bara vaða á markið. Ég sé ekki
eftir því, það var gaman að sjá á
eftir boltanum í markið,“ sagði Atli.
Hann lék í nýrri stöðu sem varn-
artengiliður, ekki sem miðvörður
eins og hann hefur jafnan spilað til
þessa. „Ég hef spilað þarna í einn
og hálfan leik og er að venjast
þessu. Við höfum verið í basli á
miðjunni og erum að reyna að bæta
það. Við eigum samt að geta betur
en þetta, við spiluðum of þröngt og
misstum boltann alltof ódýrt fram-
an af leiknum. Þá stilltum við upp
þriggja manna vörn í dag og vorum
dálítinn tíma að átta okkur á nýjum
stöðum og færslum. En varn-
arvinnan á öllu liðinu var mjög góð
og Sándor varði nokkrum sinnum
mjög vel í markinu,“ sagði Atli
Sveinn Þórarinsson.
„Ég veit ekki hvaðan á
mig stendur veðrið“