Morgunblaðið - 17.06.2004, Page 64

Morgunblaðið - 17.06.2004, Page 64
64 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ KEFLAVÍK Sýnd kl. 6, 8 og 10. KRINGLAN Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Sýnd 18. júní kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. KRINGLUKAST Í SAMBÍÓUM, KRINGLUNNI MIÐAVERÐ KR. 400 Á ALLAR MYNDIR KL. 2 Á MIÐVIKUDAG OG FÖSTUDAG OG KL. 12 Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banar i t t , r l l , r i Þær eru illgjarnar. Hún er ný. Og fljótlega fær hún alveg nóg af þeim. Frábær og frumleg gamanmynd sem hefur svo sannarlega slegið í gegn í Bandaríkjunum. Með Lindsay Lohan úr „Freaky Friday“ Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Nýjasta og mest spennandi myndin um Harry Potter er komin í bíó. Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna sem enginn má missa af! Ráðgátur leysast, leyndarmál verða uppljóstruð.  Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás 2  HL Mbl Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 6 og 9. Brad Pitt, Orlando Bloom, Eric Banai , l l , i  SV MBL Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6 og 9. B.i.14 ára. Nú er komið frábært sjálfstætt framhald þar sem Elling fer í frí til sólarlanda ásamt móður sinni. Norskt grin uppá sitt besta. Tom Hanks er einhver útsmognasti, klárasti, færasti og mest heillandi afbrotasnillingur sem nokkru sinni hefur REYNT að fremja glæp aldarinar! Mamma hans Elling Ó.H.T Rás 2 Sýningartímar gilda 17. og 18. júní Klúbbakvöld á vegum MTV, Hed Kandi og Gillette, verður haldið á Nasa á laugardaginn. Plötusnúðar frá London, Mark Doyle, John Jones og söng- snillingurinn Peyton frá Hed Kandi verða stjörnur kvöldsins og halda uppi stemningunni. Útgáfu- fyrirtækið Hed Kandi ætlar síðan að gefa afrakstur kvöldsins út á diski undir nafninu Hed Kandi Live from Reykjavik en safn- diskar frá fyrirtækinu hafa getið sér gott orð. Miðasalan er hafin á Nasa og er aðgangseyrir 1.500 krónur. Klúbbakvöld á Nasa MTV á Íslandi á laugardaginn EFTIR vel heppnaða endurkomu þá er nú fullur hugur í þeim Dur- an Duran-liðum að halda samstarf- inu áfram og gera alvöru úr því. Hljómplötufyrirtækið Epic Re- cords hefur boðið sveitinni nýjan útgáfusamning og hungraðir sem úlfar eru þeir Duran-menn önnum kafnir við gerð nýrrar plötu. Platan sú mun innihalda fyrstu lög sem sveitin gerir saman full- skipuð síðan hún sendi frá sér tit- illag Bond-myndarinnar A View To A Kill árið 1985. Neistinn til staðar Þeir Simon Le Bon, Nick Rhod- es, Andy Taylor, John Taylor og Roger Taylor eru reyndar búnir að vera að vinna saman að nýju efni síðan 2001, en hafa fram að þessu verið án plötusamnings – merkilegt nokk. Það kann að virka svolítið und- arlega á gamla eitilharða Duran- aðdáendur að sjá plötu með þeim gefna út á vegum Epic-útgáf- unnar, en hún var einmitt heimili erkifjendanna í Wham! á sínum tíma, þegar Duran Duran var á mála hjá EMI. „Þegar við ákváðum að koma saman aftur, þá var okkar fyrsta verk að skella okkur til Frakk- lands og láta reyna á hvort við næðum ennþá jafnvel saman og áður,“ segir Le Bon í frétta- tilkynningu. „Rann það mjög fljótt upp fyrir okkur að neistinn var sannarlega til staðar. Og eftir að hafa spilað saman þá erum við orðnir ennþá samrýmdari og höfum komist að því að við erum bundnir órjúf- anlegum tónlistarböndum.“ Rokk og R&B Duran Duran kom saman á síð- asta ári, í von og óvon, um að ennþá væri einhver áhugi fyrir sveitinni. Sú varð líka raunin, heldur betur, því það var uppselt á alla tónleika sveitarinnar í Banda- ríkjunum í fyrra og í Bretlandi fyrr á þessu ári. Þeir voru t.a.m. ófáir íslensku aðdáendurnir sem lögðu upp í pílagrímaferð til Mekka poppsins, til að fá loksins tækifæri til þess að sjá guðina sína á sviði. Og nýja platan er svo gott sem tilbúinn. Duran Duran er á fullu í hljóðveri og nýtur þar aðstoðar tveggja þaulreyndra en ólíkra upp- tökustjóra; Rich nokkurs Harri- son, sem stjórnað hefur upptökum á plötum R&B listamanna á borð við Usher, Aliciu Keys og Beyoncé og Don Gilmore sem hefur unnið með rokksveitum eins og Good Charlotte, Linkin Park og Pearl Jam. Þessar andstæður koma Dur- an-sérfræðingum vart á óvart enda var það ætíð eitt af einkennum sveitarinnar að reyna að tvinna saman rokki og diskói í ofurgríp- andi lögum. Samt segir LeBon að það sé ekki verið að reyna að endurskapa gamla hljóminn, sveitin horfi fram á veginn, án þess þó að missa sjónar af upphafsreitnum, rót- unum. „Við viljum auðvitað ekki styggja okkar gömlu hundtryggu aðdáendur.“ Kemur út í október Þegar síðasta plata kom út und- ir nafni Duran Duran þá voru Le- Bon og Nick Rhodes einir eftir. Það var árið 2000 og platan Pop Trash, þótti standa óþægilega mikið undir nafni. Nýja platan hefur enn ekki fengið nafn en meðal laga sem þar verður að finna eru „Sunrise“, sem komið hefur út á plötu með tónlist úr þáttunum Queer Eye for the Straight Guy, „What Happens Tomorrow“, „Bedroom Toys“ og „Still Breathing“. Gert er ráð fyrir að platan komi út í október nk. og með henni mun fylgja mynddiskur með upptöku frá tónleikum sveitarinnar á Wembley Arena – væntanlega til að gulltryggja áhuga gömlu Duran Duran aðdáendanna. Duran Duran fær samning og gerir plötu Reuters Duran Duran sýndi á tónleikaferðinni að í sveitinni eru enn villtir strákar. Hungraðir sem úlfar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.