Heimilistíminn - 21.03.1974, Side 17
Þrátt fyrir allt talið um hitaeiningar og
megrunarkúra, eru blessaðar terturnar alltaf
sjálfsagðar á veizluborðum. Stórar, fallegar tert-
ur, sem eru svo yndislegar á bragðið og hlaðast
utan á mann. En þú hefur verið aðvaraður, lesandi
góður, ef þú fellur fyrir freistingunni, þvi að það
er erfitt að stilla sig um að smakka á.
Stríðs-
tertur
handa
sæl-
kerum
Súkkulaðiterta.
150 g. smjör
125 g. sykur
100 gr. dökkt súkkulaði
3 egg
100 g. hveiti
100 g. kartöflumél.
1 1/2 tesk. lyftiduft
2 msk. Kakó
3-4 eggjahvitur
1/2 1. þeyttur rjómi
75-100 sykruð kirsuber eða kokteilber.
Hrærið smjör þangað til það freyðir og
setjið sykur út i, siðan eggjarauðurnar,
eina i einu. Bræðið 50 g. súkkulaði i skál
og hrærið það út i, þegar það hefur kólnað.
Blandið hveiti, kartöflumj. lyftidufti og
hrærið lauslega saman. Eggjahviturnar
skai þeyta mjög stifar og setja út i deigið i
þrem skömmtum, og hrærið enn sem
allra minnst, svo að deigið verði sem létt
ast. Setjið nú deigið i þrjú velsmurð tertu-
form með lausum botni. Baksturstimi er
hérumbil 15 min. við 225°fyrir þunna botna
og ca. 50 min við 190° fyrir allan skammt-
inn i springformi.
Snúið tertubotnunum nú varlega og
setjið þá til kælingar á bökunarrist. Eftir
kælingu skal stóru kökunni skipt i þrjú lög
með löngum, beittum hnif.
Þeytið rjómann stifan, en alls ekki svo
stifan, að hann verði kornóttur. Setjið
siðan einn tertubotninn i springform, sem
er einum cm. stærri aö ummáli en botninn
sjálfur. Smyrjið lagi af þeyttum rjóma
innan á forminn, háifan sm að þykkt með
spaða. Hyljið tertubotninn með jöfnu lagi
af þeyttum rjóma og setjið nokkur niður-
skorin kirsuber i. Setjið næsta tertubotn
17
I