Heimilistíminn - 21.03.1974, Síða 20

Heimilistíminn - 21.03.1974, Síða 20
uðu smjöri, 1 búnti af hakkaðri stein- selju og 1—2 msk. sitrónusafa. Hrært varlega, þar til kartöflurnar eru gegn- heitar. Bacon—kartöflur 1,3 kiló kartöflur, 600 gr. laukur, 300 gr. bacon, 50 gr. olia, 50 gr. smjörliki, salt, pipar. Flysjið kartöflurnar og skerið þær i þykkar sneiðar. Skerið laukinn i hringi og baconið i stóra teninga. Brúnið kartöflurnar i stórri pönnu i oliu og smjörliki og kryddið. Setjið laukinn og baconið út i og siðan lok á pönnuna. Látið þetta krauma saman i hálftima eða svo við litinn hita. Hrærið i öðru hverju. Borið fram heitt. Kartöflusalat með sinnepsdressing 1 klló kartöflur, 10—15 olifur með rauðum pipar,.2 bollar grænar baunir, 3 tsk, franskt sinnep, olifuolia og matarolia, edik, hvitlaukur, salt, krydd og vatn. Hrærið sinnepið út i svolitlu vatni og blandið oliunni, 1 msk. borðediki og kryddinu i. 1 staðinn fyrir hvitlaukinn má nota 1 tesk. hvitlauksduft. Saltið. Skerið kartöflurnar og olifurnar i sneiðar og setjið baunirnar saman við i fat. Hellið dressingnum yfir. Látið salatið standa og jafna sig i hálftima eða svo, áður en það er borið fram. Kartöfluhreiður 1 kiló kartöflur, 150 gr. smjörliki, 150 gr. skinka eða góð pylsa, 100 gr. parmesan ostur, 2 glös mjólk, 4 eggja- rauður, grænar baunir, salt, múskat. Sjóðið kartöflurnar, skerið skinkuna eða pylsuna i litla teninga, og kraumið með baununum i nokkrar minútur. Stappið kartöflurnar vandlega i potti, setjið smjörliki og volga mjólkina i, á- samt ostinum, múskatinu og saltinu. Setjið pottinn yfir hitann og hrærið, þar til stappan er föst og jöfn. Takið pottinn af og setjið eggjarauðurnar út I. Setjið stöppuna i sprautupoka og sprautið i hreiður á bökunarplötu og stingið I ofninn vel heitan i 10—15 min- útur. Fyilið hreiðrin af skinku og baunum. Einfaldar kartöflur m með steiktum mat Um 1 kiló soðnar, flysjaðar kartöflur eru hitaðar i eldföstum potti (sem má bera á borð) i 100 gr. af litillega brún- Forstjórinn er hamingjusamur. Hann á enga óvini og vinir hans þola hann ékki. * Hvernig fer karlmaður að þvi að kvænast stærstu ást sinni, þegar hann getur ekki kvænst sjálfum sér? ** Þú þjáist af svefnleysi, ef þú getur ekki sofnað, þegar þú þarft að fara á fætur. m Peningar færa þér ekki hamingju, en gera þér kleift að leita hennar viðar. Kona klæðist peysu til að sýna það já- kvæða, en magabelti til að dylja það neikvæða. Xi Það cina jákvæða við verðbólguna ei; að peningarnir, sem þú hefur aldrei eignazt,eru ekki jafnmikils virði og áð- ur. Lifið hefst um fertugsaldurinn... Það gera undirhökurnar lika. Svartsýnismaður er maður, sem hefur hlustað á allt of marga bjartsýnis- menn. * Opinn hugur gerir manni kleift að skilja konu sina betur.... Opið seðla- veski hjálpar konu að skilja mann sinn betur. P Geispi er þögult öskur. P Þorp er staður, þar sem þú getur átt samræður I sima, þó að þú hafir hringt i skakkt númer. 20

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.