Heimilistíminn - 21.03.1974, Page 23

Heimilistíminn - 21.03.1974, Page 23
reka skipbrotsmennina aftur út i björg- unarbátana, en skipstjóranum á Comet tókst að lokum að tala um fyrir mönnum sinum. Nú var stefnt til strandar Ástraliu og siglt i vikutima. Ferðin var svo róleg og friðsamleg, að mannskapurinn var farinn að halda, að bölvuninni væri aflétt. Þeim 22, sem verið höfðu á Mermaid var stór- lega létt. Allt er þegar þrennt er, og þeir höfðu bjargast á ævintýrlegan hátt þrisv- ar sinnum. Þá gerðist það ótrúlega. Skipið lenti i hvirfilbyl, ofsalegum og ó- væntum. Hann skall fyrirvaralaust á þeim, stórsiglan brotnaði, stjórnpalls- skýlið rifnaði brott, og skipsflakið rak upp að stórhættulegum rifunum. 1 þetta skiptið hættu menn ekki á neitt. Ahöfnin af Comet fór i björgunarbátana, en skipbrotsmennirnir, sem teknir höfðu verið um borð, voru skildir eftir. Þrjár skipshafnir, sem þegar höfðu fengið að kenna á óheppni og slysum, voru fólgnir örlögunum á vald um borð i flakinu, sem dæmt var til að farast. 1 18 klukkustundir héldu mennirnir dauðahaldi i sökkvandi flakið. Þá gerðist kraftaverkið i fjórða skipti: storminn lægði, og seglskipið Jupiter kom þeim til hjálpar. Áhöfnin náði öllum skipbrots- mönnunum um borð, og skipstjórarnir af Mermaid, Swiftsure og Governor Ready tóku þegar til við að telja áhafnir sinar. Þá kom i ljós, aö i veðurofsanum hafði ekki einn einasti maður týnt lifi! Loksins komust mennirnir 22 af Mer- maid heilu og höldnu i land. En ævintýr- inu var ekki lokiö, hvað einn þeirra snerti. Jupiter var hlaðinn alls konar varningi, en um borð voru einnig nokkrir farþegar frá Englandi. A meðal þeirra fann enski hásetinn Peter Richey móður sina, Söru Richey frá Yorkshire! Gamla konan hafði ferðast hálfan hnöttinn til þess að leita að syni sinum, sem fimmtán árum áður hafði strokið að heiman. Nú fann hún hann þarna aftur á meðal þeirra 22, sem bjargast höfðu á svo furðulegan hátt. En hvað er þá að segja um áhöfnina af Comet, sem hafði hugsað' um það eitt að bjarga eigin skinni og skilið alla hina eftir um borb i sökkvandi skipsflaki? Ja, til þeirra spurðist aldrei framar... i

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.