Morgunblaðið - 18.07.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 194. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Lofsöngvar
til guðs
Youssou N’Dour sendir frá sér
plötuna Egypt Menning
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Tregi stríðsmaðurinn Klink og Bank er fljótandi
og lífrænt hús Mjúkar hetjur Atvinna | Hvernig á að nýta
hæfni starfsmanna? Lausum störfum fjölgar um 190 milli ára
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
ACTAVIS hefur stækkað ört á undanförnum
árum og eru áform um að halda vextinum
áfram, meðal annars með því að fara inn á
Bandaríkjamarkað með samheitalyf. Fyrir-
tækið hefur þegar valið lyf til þróunar allt fram
til ársins 2016. Í undirbúningi er skráning fé-
lagsins í kauphöllinni í London sem er meðal
annars liður í því að styrkja ásýnd Actavis sem
alþjóðlegs félags.
Í viðtali við Róbert Wessman í Tímariti
Morgunblaðsins í dag kemur fram að óráðið sé
hvort sjálfar höfuðstöðvarnar verði í London
eða á Íslandi í framtíðinni. „Það er ekkert
óeðlilegt að hluti af yfirstjórninni verði hér
[í London] til lengri tíma, m.a. vegna þess að
það verða mikil samskipti við ýmsa greining-
araðila hér úti eftir að búið er að skrá fyr-
irtækið á markað. Menn vilja sjálfsagt fylgjast
mjög vel með rekstrinum.“
Aðeins lítill hluti af veltu félagsins er á Ís-
landi en Róbert segir að Ísland leiki þó stórt
hlutverk: „Hjartað í þróunarstarfseminni er og
mun verða áfram á Íslandi og hluti af verk-
smiðjunum er sömuleiðis á Íslandi.“
Lyfjaþróun næstu 12 ár ákveðin
Óráðið hvort höfuð-
stöðvar Actavis verða
í London eða á Íslandi
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínumanna,
lýsti yfir neyðarástandi á Gaza-svæðinu í gær
vegna mannrána og glundroða en hafnaði af-
sagnarbeiðni Ahmeds Qoreis forsætisráð-
herra. Allir mennirnir sem rænt var – tveir pal-
estínskir embættismenn og fjórir franskir
hjálparstarfsmenn – voru leystir úr haldi í
fyrrakvöld.
„Við höfum aldrei séð slíkan glundroða,“
sagði Qorei forsætisráðherra fyrir fund í pal-
estínsku heimastjórninni í gær. Qorei og tveir
hátt settir embættismenn, sem fara með ör-
yggismál, buðust til að segja af sér. Arafat
hafnaði því, en samþykkti viðamiklar umbætur
á öryggissveitum Palestínumanna.
Glundroðinn er rakinn til togstreitu milli
hópa Palestínumanna sem reyna nú að styrkja
stöðu sína á Gaza-svæðinu áður en Ariel Shar-
on, forsætisráðherra Ísraels, efnir loforð sitt
um brotthvarf ísraelskra hermanna og land-
tökumanna af svæðinu seint á næsta ári.
Neyðar-
ástandi lýst
yfir á Gaza
Gazaborg. AP, AFP.
ALGENGT er að fólk veigri sér við að bera
vitni í heimilisofbeldismálum, að því er fram
kemur í samtali við Drífu Snædal, fræðslu- og
kynningarstýru Kvennathvarfsins, í Morgun-
blaðinu í dag. Drífa segir að fólki geti fundist
erfitt að bera vitni vegna ótta við ofbeldis-
mennina.
„Það er hins vegar nauðsynlegt að dómur
byggist ekki einungis á vitnisburði kvennanna
sem fyrir ofbeldinu verða heldur einnig ein-
hverjum áþreifanlegum sönnunum eins og
áverkavottorðum og vitnisburði annarra. Við
hvetjum konur til að fá áverkavottorð, geyma
hótunarskilaboð frá ofbeldismönnunum og svo
framvegis ef þær kynnu að vilja kæra síðar.“
Talið er að um 1.600 konur láti lífið vegna
heimilisofbeldis í Bandaríkjunum á hverju ári.
Hér á landi létu sex konur lífið af völdum maka
eða fyrrverandi maka á síðustu öld. Ekki var
þó alltaf um heimilisofbeldi að ræða.
Heimilisofbeldi
Vitni óttast oft
ofbeldismennina
Mesta smán samfélagsins/10
INDVERSKA lögreglan handtók í gær fimm
stjórnendur barnaskóla fyrir vanrækslu í starfi
vegna eldsvoða sem varð að minnsta kosti 90
börnum að bana í bænum Kumbakonam á sunn-
anverðu Indlandi í fyrradag. Slökkviliðsmenn
sökuðu kennara skólans um að hafa flúið út úr
byggingunni án þess að hjálpa börnunum.
Börnin, sem voru á aldrinum sex til tíu ára,
voru borin til grafar í gær.
Sautján börn voru enn í lífshættu í gær vegna
brunasára.
sagði J. Radhakrishnan, héraðsstjóri í Kumba-
konam.
Sagðir hafa skilið börnin eftir
Nokkrir slökkviliðsmenn sögðu að allir 23
kennarar skólans hefðu lifað eldsvoðann af
vegna þess að þeir hefðu yfirgefið börnin og að-
eins hugsað um að bjarga sjálfum sér. Hátt sett-
ur embættismaður vildi þó ekki staðfesta þetta.
Hann benti á að um 700 börn lifðu eldsvoðann af
og sagði að kennarar hefðu líklega hjálpað þeim.
Fregnir hermdu að eldurinn hefði kviknað í
eldhúsi skólans þegar verið var að elda mat
handa börnunum. Matreiðslumaðurinn notaði
lauf til tendra opinn eld og vegna gusts í húsinu
fauk eitt þeirra upp í stráþak sem fuðraði upp á
svipstundu. Þakið féll, þannig að allar útgöngu-
leiðir lokuðust.
Lögreglan handtók skólastjórann, tvo yfir-
kennara, matreiðslumanninn og yfirmann
mötuneytisins. „Þeir hafa verið ákærðir fyrir
vítaverða vanrækslu, sem leiddi til dauðsfalla,“
Reuters
Indverji syrgir átta ára son sinn við útför í indverska bænum Kumbakonam þar sem um 90 börn fórust í eldsvoða í barnaskóla á föstudag.
Fimm ákærðir vegna
eldsvoða í barnaskóla
Sakaðir um vanrækslu vegna dauða 90 barna í suðurhluta Indlands
Kumbakonam. AFP, AP.
FIMM lífverðir nýskipaðs dómsmálaráðherra
Íraks biðu bana og sjö manns særðust þegar
reynt var að ráða ráðherrann af dögum í Bag-
dad í gær. Óþekktur tilræð-
ismaður sprengdi bíl sinn í
loft upp nálægt þremur bíl-
um ráðherrans og lífvarða
hans í grennd við heimili
hans. Dómsmálaráðherr-
ann, Malik Dohan al-Hass-
an, sakaði ekki.
Herská hreyfing, undir
forystu Jórdanans Abus
Mussabs al-Zarqawis, sem
tengist al-Qaeda, lýsti til-
ræðinu á hendur sér.
Tveir menn létu lífið og 25 særðust þegar
önnur bílsprengja sprakk fyrir utan höfuð-
stöðvar íraskra þjóðvarðliða í bænum Mahmu-
diyah, um 30 km sunnan við Bagdad.
Ráðherra sýnt
banatilræði
Bagdad. AP, AFP.
Malik al-Hassan
♦♦♦
♦♦♦