Morgunblaðið - 18.07.2004, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Rannsókn Hrefnu Ólafsdóttur fé-lagsráðgjafa sem birt var fyrirtveimur árum sýnir að 17% svar-enda sem beittir höfðu verið kyn-ferðislegu ofbeldi, áttuðu sig ekki á
að verið væri að gera nokkuð rangt. Þessu vill
verkefnisstjórn Blátt áfram breyta.
Hún kallar eftir aukinni umræðu um kyn-
ferðislegt ofbeldi og vill minnka líkurnar á að
ofbeldið eigi sér stað. Foreldrar eru hvattir til
að ræða blátt áfram við börn sín og kenna að
þau megi segja nei við hvern þann sem reyni að
snerta þau gegn vilja þeirra. Börnin verði að
vita að þau hafi ákveðinn rétt sem ekki megi
ganga á.
Veist þú hvaða börn hafa verið beitt ofbeldi?
Blátt áfram leggur áherslu á að ábyrgðin
liggi hjá þeim fullorðnu – það sé þeirra að ræða
við börnin og þeirra að taka eftir og greina ein-
kenni kynferðislegs ofbeldis. Með því að setja
ábyrgðina á þessu viðkvæma máli í hendur full-
orðinna – foreldra, systkina, ættingja og allra
sem umgangast börn – sé hægt að vernda börn-
in fyrir kynferðislegu ofbeldi og bjóða þeim
bjartari framtíð.
„Tökum á þessu máli með því að fræðast um
staðreyndirnar,“ benda forsvarsmenn Blátt
áfram á. Ólíkt því sem margir töldu áður er
ljóst að meirihluti kynferðisbrota gagnvart
börnum er framinn af einhverjum sem tengist
barninu. Hvort sem okkur líkar betur eða verr
er það staðreynd að börn allt í kringum okkur
verða fyrir kynferðislegu ofbeldi.
„Veist þú hvaða börn það eru?“ spyr Blátt
áfram. Vonast er til að sá dagur komi að við öll
tökum höndum saman og öxlum í sameiningu
ábyrgð á börnum landsins. Vissulega taki á að
skipta sér af en hafa verði í huga að ekkert barn
eigi að þurfa að ganga í gegnum kynferðislegt
ofbeldi og það sem því fylgi.
Ungmennafélag Íslands, UMFÍ, heldur utan
um verkefnið. Úr Menningarsjóði Íslands-
banka og Sjóvár-Almennra fékkst veglegur
styrkur til útgáfu bæklings og Body Shop mun
styrkja verkefnið næstu árin. Í stjórn eru fjór-
ir, tveir fulltrúar UMFÍ og systurnar Svava og
Sigríður Björnsdætur sem áttu hugmyndina að
öllu saman.
Heimasíðan blattafram.is var opnuð í júní en
verkefninu var formlega hleypt af stokkunum í
liðinni viku. Heimasíðan mun gegna veigamiklu
hlutverki í starfinu og í haust verður fræðslu-
hefti dreift inn á öll heimili í landinu. Þar eru
Að ræða málin
blátt áfram
Veist þú hver einkenni kynferðislegs ofbeldis eru? Hefurðu velt því fyrir
þér hvað þú gerir ef þig grunar að barn hafi verið beitt slíku ofbeldi? Þess-
ara og fleiri spurninga spyrja forsvarsmenn verkefnisins Blátt áfram.
Markmiðið er að efla forvarnir vegna kynferðislegs ofbeldis á börnum.
Rannsóknir sýna að rúmlega fimmta hver stúlka á Íslandi og tæplega tí-
undi hver drengur eru beitt kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur.
Sigríður Víðis Jónsdóttir kynnti sér málið.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sigríður og Svava Björnsdætur: „Heyri börn okkur ræða þessi mál og fullyrða að ofbeldið sé ekki
þeim að kenna, verður það hugsanlega til þess að þau þora að segja frá.“
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA