Morgunblaðið - 18.07.2004, Síða 28
UMRÆÐAN
28 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.EIGNAVAL.ISSigurður Óskarsson, lögg. fasteignasali
Fjölbreytt úrval sumarhúsalóða og landspildna
í stórbrotnu umhverfi á bökkum Ytri-Rangár
Um er að ræða 31 spildu úr jörðinni Svínhaga í Rangárþingi ytra. Stærð
spildna er 10-30 ha. Sumar eru fallega grónar við Rangá, en aðrar eru lítt
grónar og tilvaldar til skógræktar. Nánari upplýsingar um verð og stærðir á
spildum á www.heklubyggd.is .
Sumarhúsalóðirnar eru 106 á 300 ha landsvæði. Flestar lóðirnar eru á bil-
inu 1–2 ha. Tekin eru frá rúm svæði til útivistar og gönguleiðir eru m.a.
meðfram Rangá. Nánari uppl. um verð og stærðir á
www.heklubyggd.is
Hér er um að ræða fallegan stað við Ytri-Rangá. Útsýni er glæsilegt og
Hekla setur svip sinn á fallega náttúru.
Uppl. hjá landeiganda í síma 898 8300, Grettir. Einnig hjá Þórarni hjá
Eignavali í símum 585 9999/664 6996 og Kristbjörn hjá Húsunum í
bænum í símum 535 0600/692 3000.
Draumasumarhús á góðum
stað. Myndarlegt lítið hús
með fallegum garði við rólega
götu í Þorlákshöfn. Það skipt-
ist í 61 fm íbúð og 61 fm kjall-
ari alls 122 fm. Húsið er allt
nýstandsett og mikið endur-
nýjað svo sem vatnslagnir,
raflagnir, innréttingar, gólfefni,
gler og blöndunartæki svo lít-
ið eitt sé nefnt og því fylgir 49 fm bílskúr byggður 1998.
Þarna er 9 holu völlur, verður í lok sumars 18, fullkomin
sundaðstaða og góðar gönguleiðir ásamt fleiru.
Skoðið www.holl.is fyrir nánari uppl. eða hafið samband
við sölumann Lárus 824-3934.
Verð 7,9 millj. (6576)
REYKJABRAUT - ÞORLÁKSHÖFN
Sími 595 9000
Franz Jezorski hdl. lögfr.
Um er að ræða stórt og
gott atvinnuhúsnæði í Gróf-
inni í Keflavík. Húsið er 630
fm að stærð, á tveimur
hæðum og hentar undir
hverskyns rekstur. Fullkom-
in fiskvinnsla var nýlega í
húsinu. Á efri hæð er ver-
búð, þrjú svefnherbergi, tvö
stór og eitt lítið. Stór matsalur/setustofa, skrifstofa, eld-
hús, þvottahús, góð salernisaðstaða, myndarleg
forstofa/sjónvarpsherbergi og góð geymsla. Allur
frágangur er góður og gott viðhald er á húsinu.
Sölumaður Lárus 824-3934.
Verð 25 millj.
GRÓFIN - KEFLAVÍK
Sími 595 9000
Franz Jezorski hdl. lögfr.
Fallegt 85 fm einlyft enda-raðhús
í Garðabæ sem skiptist í for-
stofu, hol, stórt herbergi, stóra
stofu, eldhús, baðherbergi,
þvottahús og sólstofu. Allt sér.
Gott aðgengi. Neyðarhnappur.
Laus strax. V. 17 m. 4347
BOÐAHLEIN 1 - ELDRI BORGARAR
Framnesvegur 29 - Reykjavík
Góð 2ja herbergja íbúð á
fyrstu hæð. Eign í mjög
góðu ástandi. Íbúðin skiptist
í hol, eldhús, stofu og baðh.
Laust strax.
Verð kr. 10.900.000
Myndir af eigninni og fleiri
upplýsingar eru á Ásberg.is
Fasteignasalan Ásberg
Hafnargötu 27, Keflavík
Sími: 421 1420 Fax: 421 5393
Netfang: fasteign-Asberg@simi.is
Vorum að fá í sölu fallega 100 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð í góðu fjöl-
býli við Eiðistorg á Seltjarnarnesi. Tvennar svalir til suðurs og norð-
urs. Glæsilegt sjávarútsýni og til Esjunnar. Íbúðin er laus strax.
V. 15,9 m. 3894
EIÐISTORG - LAUS STRAX
NÁLÆGÐIN við ósnortna nátt-
úru, fell og víðáttu móta sérstöðu
Mosfellsbæjar. Við viljum að Mos-
fellsbær verði valkostur númer eitt
hjá fólki sem kýs sam-
býli við náttúruna og
fallegt umhverfi frek-
ar en ys og skarkala
borgarinnar.
Mosfellsbær er úti-
vistar- og íþróttabær.
Öflugt íþrótta- og
æskulýðsstarf hrífur
til sín fólk á öllum
aldri, styrkir það fé-
lagslega og líkamlega
og vekur til umhugs-
unar um gildi góðrar
hreyfingar og holls
lífernis.
Íþróttamiðstöðin
að Varmá
Við Íþróttamiðstöðina
að Varmá er glæsi-
legur íþróttavöllur
fyrir knattspyrnu og
frjálsar íþróttir og
gervigrasvöllur. Inn-
anhúss eru þrír
íþróttasalir og líkams-
ræktarstöð, 25 metra
útisundlaug, heitir
pottar og gufubað.
Verið er að vinna að
hugmyndum um end-
urnýjun á sundlaugarsvæði s.s.
flotbakka við sundlaugarkerið,
nýja heita potta, leggja nýjar
gúmmímottur umhverfis sundlaug-
ina o.fl. Áætlað er að gera útisvæð-
ið meira aðlaðandi og huga að girð-
ingu umhverfis sundlaugina sem ef
til vill mætti að hluta til vera úr
hertu gleri til þess að starfsemin á
sundlaugarsvæðinu verði sýnilegri
þeim sem að koma og einnig til
þess að tryggja útsýni frá sund-
laugarsvæði út að íþróttavelli og
útivistarsvæðinu.
Á vegum umhverfisnefndar og
íþrótta- og tómstundanefndar er
verið að vinna tillögur að samfellu
íþróttasvæðisins og útivistarsvæðis
á Stekkjarflöt. Auk þess er fyr-
irhugað að ljúka frambyggingu
sem tengir og gerir að einni heild
alla hluta íþróttamiðstöðvarinnar.
Með slíkri byggingu næðist að fá
heilsteypta mynd á
Íþróttamiðstöðina að
Varmá og skapa henni
þann sess sem henni
ber í bæjarfélaginu en
búa til um leið
skemmtilegt innrými
sem tengir saman alla
starfsemi sem nú er í
íþróttamiðstöðinni.
Í göngufæri
Íþróttamiðstöðv-
arinnar að Varmá er
tjaldsvæði umkringt
trjágróðri og æf-
ingavöllur í gryfj-
unum.
Tungubakkar
Á vordögum verður
tekinn í notkun fyrsti
áfangi nýs vallarhúss
og búið er að bæta að-
gengi að Tungubökk-
um frá Vesturlands-
vegi. Tungubakkarnir
eru frá náttúrunnar
hendi eitt besta knatt-
spyrnusvæði landsins
og hefur UMFA þarna
frábært æfinga- og
keppnissvæði og mörg
félög og landslið okkar renna hýru
auga til þessa svæðis fyrir æfing-
ar.
Íþróttamiðstöðin á
vestursvæði
Samþykkt hefur verið í bæj-
arstjórn að hefja uppbyggingu
íþróttamiðstöðvar á vestursvæði.
Þar á að koma íþróttasalur sem
sinna mun fyrst og fremst grunn-
skólum á svæðinu einnig munu þar
koma inni- og útilaug. Með þessari
byggingu er verið að jafna aðstöðu
grunnskólanna og nemenda.
Með uppbyggingu íþrótta-
miðstöðvar á vestursvæði verða til
þrjú sundlaugaker í Mosfellsbæ og
mun þá þjónustan aukast til muna.
Því samhliða sundkennslu og þjálf-
un verður hægt að hafa á sama
tíma opna sundlaug sérstaklega
fyrir hinn almenna bæjarbúa.
Gönguleiðir
Göngustígar liggja um Mosfells-
bæinn þveran og endilangan og
eru bæjarbúar hvattir til þess að
nýta sér þá til heilsueflingar en um
leið er hægt að fræðast því á
mörgum leiðum er að finna frábær
fræðsluskilti. Einnig eru fellin sem
umlykja Mosfellsbæinn kjörin til
göngu og útivistar.
Skátar úr Skátafélaginu Mos-
verjum leiðbeina fólki um fellin og
skokk- og gönguklúbbur er til
reiðu þeim sem vilja ganga og
þjálfa um stígana í Mosfellsbæ.
Reiðleiðir
Fá sveitarfélög státa af jafn frá-
bærri aðstöðu frá náttúrunnar
hendi fyrir hestafólk og Mosfells-
bær. Frá hesthúsahverfinu á
Varmárbökkum er að finna reið-
leiðir til allra átta og hestafólk er
fljótt að komast frá í byggðinni út í
náttúruna og Leirurnar sjálfar eru
engu líkar. En laga þarf aðkomu
frá Reykjahverfi að svæðinu á
Varmárbökkum og mun það vera í
skoðun og væntanlega finnst við-
unandi lausn.
Í Hestamannafélaginu Herði er
vel staðið að málum og innan fé-
lagsins er að finna venjulegt út-
reiðarfólk og afburða íþróttamenn
á öllum aldri sem bera hróður fé-
lagsins víða.
Það eflir Mosfellsbæ sem útivist-
ar- og íþróttabæ að tryggja góða
aðstöðu fyrir hestafólk og því betri
sem hún verður þeim mun fleiri
kjósa þá búsetu í bænum.
Golfvellir
Tveir níu holu golfvellir eru í Mos-
fellsbæ, annar að Bakkakoti í Mos-
fellsdal, hinn er við Leiruvog, Hlíð-
arvöllur. Mosfellingar eiga í
þessari íþrótt sem öðrum frábæra
einstaklinga sem gert hafa garðinn
frægan innanlands sem utan.
Fyrir bæjarstjórn liggur samn-
ingur milli Mosfellsbæjar og Golf-
klúbbsins Kjalar um stækkun
Hlíðarvallar í 18 holu golfvöll og
mun stækkunin þá ná út á Blika-
staðanesið. Ljóst er að 18 holu
golfvöllur á þessum stað verður
lyftistöng fyrir allt starf í Golf-
klúbbnum Kili en ekki síður fyrir
bæjarfélagið sjálft því slík aðstaða
til golfiðkunar mun án efa laða að
enn fleira fólk til búsetu. Fólk sem
kýs sambýli við náttúru og fallegt
umhverfi og hefur aðstöðu fyrir
útivist og íþróttir við húsgaflinn.
Mosfellsbær er og verður í far-
arbroddi sveitarfélaga á landinu
sem útivistar- og íþróttabær hvort
heldur litið er til heilsueflingar eða
keppnisíþrótta.
Í okkar bæ geta allir fundið eitt-
hvað við sitt hæfi og eflt þannig
andlegan og líkamlegan styrk sinn.
Útivist og íþróttir
í Mosfellsbæ
Bjarki Sigurðsson og Halldór
Jökull Ragnarsson skrifa um
íþróttir og útivist ’Mosfellsbær er útivist-ar- og íþróttabær. Öfl-
ugt íþrótta- og æsku-
lýðsstarf hrífur til sín
fólk á öllum aldri, styrk-
ir það félagslega og lík-
amlega og vekur til um-
hugsunar um gildi
góðrar hreyfingar og
holls lífernis.‘
Halldór Jökull
Ragnarsson
Bjarki er formaður íþrótta- og tóm-
stundanefndar.
Halldór Jökull er varaformaður
íþrótta- og tómstundanefndar.
Bjarki Sigurðsson