Morgunblaðið - 18.07.2004, Side 29
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 29
FREYJUGATA - 101 SKÓLAVÖRÐUHOLT
STÓRGLÆSILEG ÍBÚÐ
Eign fyrir vandláta. Mjög falleg og klassa innréttuð 2ja herb. 65,9 fm íbúð í
kjallara í fallegu 3ja hæða uppgerðu húsi. Forstofa m/flísum á gólfi. Eldhús
m/flísum, fallegri nýlegri eikarinnréttingu og Electrecolux-tækjum. Stofa og
borðstofa með parketi lagt í 45°. Baðherb. flísalagt í hólf og gólf með steyptum
stórum sturtuklefa og fallegri innréttingu. Hátt til lofts. Sameiginlegt þvotta-
herbergi á hæðinni. Sjón er sögu ríkari - þessi fer fljótt. Ásett verð13,5 m.
Miðað við ásett verð og ef tekin eru full lán á þessa eign til 20/30/40 ára.
Miðað við 70% lánsrétt með 4,8% vöxtum fást um 9,2 millj. Það sem eftir
stendur er því 4,3 millj.
Greiðslubyrði á mánuði er því um 59,800.- 48,760- eða 43,240.- miðað við
lengd lánstíma.
Íbúðir á efri hæð eru 138,6 fm og þeim fylgir
innbyggður bílskúr 33,8 fm samtals 172,4
fm. Þær afhendast fullbúnar að utan og inn-
an en án gólfefna. Lóðin verður frágengin.
Verð 23,9 millj.
Íbúðir á neðri hæð eru 124,6 fm.
Afhendast fullbúnar að
utan og innan án gólfefna.
Lóðin verður frágengin.
Verð 20,8 millj.
Í öllum íbúðunum verður gert ráð fyrir
kamínu. Staðsetning á húsunum er
frábær á þessum framtíðarstað.
Útsýni.
Vorum að fá í einkasölu glæsilegar íbúðir í klasahúsi við Árbæinn (Norðlingaholt).
Lækjarvað 1-11 - Norðlingaholt
glæsilegar sérhæðir
SÁ ÁNÆGJU-
LEGI atburður gerð-
ist 2. júlí 2004 að
heimsminjanefnd
UNESCO, Menning-
arstofnunar Samein-
uðu þjóðanna, sam-
þykkti samhljóða að
taka Þjóðgarðinn á
Þingvöllum inn á
heimsminjaskrá fyrst-
an íslenskra svæða.
Ástæða er til þess
fyrir Íslendinga að
gleðjast yfir þessum
atburði og þakka
þeim mörgu sem
stuðlað hafa að far-
sælli niðurstöðu á um-
sókn okkar sem lögð
var fram fyrir rúmu
ári. Viðurkenningin
felur í senn í sér
skuldbindingar af Ís-
lands hálfu um vernd-
un Þingvalla í samræmi við þær
kröfur sem gerðar eru til staða á
heimsminjaskránni og undirbún-
ingsferlið getur nýst til að undirbúa
umsókn um fleiri svæði hérlendis
inn á skrána. Nefndur hefur verið í
því samhengi væntanlegur Vatna-
jökulsþjóðgarður en einnig ættu
þar heima Þjórsárver óskert af
virkjunarframkvæmdum og fleiri
svæði.
Langt ferli liggur að baki því að
koma Þingvöllum í þessa höfn þar
sem nær 800 heimsminjar voru fyr-
ir. Um 1970 tókst að snúa vörn í
sókn í Þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Áratugina á undan hafði hallað
hratt undan fæti, sumarbústað-
alóðum verið úthlutað af Þingvalla-
nefnd til einkaaðila í
hjarta þjóðgarðsins og
byrjað að leggja svæði í
Gjábakkalandi undir
sumarhúsabyggð.
Framandi trjáteg-
undum hafði verið
plantað á allstór svæði,
m. a. í og við þjóðminj-
ar í þinghelginni. Sjálf
Þingvallanefnd hreiðr-
aði um sig í hluta Þing-
vallabæjar og fjöldi
hjólhýsa fólks af höf-
uðborgarsvæðinu kögr-
aði vellina sem dulbúin
sumarsetur. Stjórnun
svæðisins hafði þá lengi
einkennst af höfð-
ingjadekri en lítið sem
ekkert verið hirt um
náttúru- og minjavernd.
Gagnsóknin hófst með
opinskárri umræðu og í
kjölfar hennar var knúin fram
stefnubreytingu í málefnum þessa
vanrækta helgistaðar.
Forystu fyrir endurreisn þjóð-
garðsins á 8. áratugnum hafði Ey-
steinn Jónsson, formaður Þingvalla-
nefndar um skeið og um leið
formaður Náttúruverndarráðs. Árið
1972 fór fram skipulagssamkeppni
um framtíð Þingvalla og rannsóknir
hófust á lífríki Þingvallavatns undir
forystu Péturs M. Jónassonar.
Undirritaður fylgdist náið með mál-
efnum Þingvalla á þessum árum og
átti síðan sæti í Þingvallanefnd
samfleytt í 12 ár frá 1980–1991. Ár-
ið 1981 var hafist handa um vinnu
að fyrsta skipulagi þjóðgarðsins
sem leidd var til lykta með form-
legri stefnumörkun Þingvallanefnd-
ar vorið 1988. Sumarbústaðamál,
trjárækt, aðstaða fyrir hestamenn
og fleiri umdeild atriði voru tekin
föstum tökum og ákveðið að koma
upp fræðslumiðstöð við Hakið vest-
an Almannagjár. Síðan hefur þess-
ari stefnumörkun verið fylgt í
meginatriðum og nú nýverið hefur
Þingvallanefnd sett fram nýja
stefnumörkun til ársins 2024 og
„… eru áherslur að mörgu leyti
svipaðar þeim sem fram komu í
fyrri stefnu frá 1988“ segir þar í
upphafi. Án umræddrar vinnu í ald-
arfjórðung í þágu náttúru- og
minjaverndar á Þingvöllum hefði
verið tómt mál að tala um að setja
þjóðgarðinn á heimsminjaskrá.
Þingvellir hafa hlotið verðugan
sess á heimsminjaskrá. Vinna að
verndun og bættri stjórnun stað-
arins heldur áfram þannig að þessi
friðlýsti helgistaður allra Íslend-
ingar rísi undir nafni og nýfenginni
viðurkenningu.
Þingvellir á
heimsminjaskrá
Hjörleifur Guttormsson fjallar
um heimsminjaskrá UNESCO
Hjörleifur Guttormsson
’Þingvellirhafa hlotið
verðugan sess
á heimsminja-
skrá.‘
Höfundur er líffræðingur, fyrrver-
andi alþingismaður og ráðherra.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í MORGUNBLAÐINU 13. júlí sl.
var í miðopnu ágæt umfjöllun um
Bátahús Síldarminjasafnsins þar
sem rætt var við Birgi Guð-
laugsson byggingameistara og
Sigurjón Jóhannsson leik-
myndahönnuð, auk undirritaðs. Í
viðtali við blaðamann sagði ég frá
því hverjir hefðu komið að verki
við hönnun og smíði hússins og
skipulag sýninga. Þar sem haft
var samband við tvo þeirra en
annarra ekki getið vil ég nú á sem
einfaldastan hátt fara yfir það
helsta sem snertir byggingu hins
glæsilega Bátahúss.
Árið 1996 hóf undirritaður að
huga að varðveislu margs konar
síldarbáta og sýningu þeirra í sér-
byggðu bátahúsi og teiknaði síðan
sýninguna í stórum dráttum með
bátum, veiðarfærum og bryggjum
í viðeigandi húsi. En hugmynd-
irnar þróuðust og áformin stækk-
uðu og ekki síst árið 2000 eftir að
Sigurjón Jóhannsson, hinn þaul-
vani leikhúsmaður, kom til sam-
starfs um skipulag verksins. Þá
voru línurnar lagðar endanlega
um stefnu bryggjanna, bryggju-
skúrar komu inn og húsið stækk-
aði enn.
Þá var kallaður til Árni Páll
Jóhannsson leikmyndahönnuður til
að leysa vandann með stærð húss-
ins gagnvart nánasta umhverfi og
er það samdóma álit allra að ein-
staklega vel og glæsilega hafi til
tekist með hönnun þessa mikla
húss sem byggja þurfti utan um
sýninguna.
Gunnar St. Ólafsson verkfræð-
ingur sá að mestu um verk-
fræðilega þáttinn og Leifur Bene-
diktsson verkfræðingur teiknaði
allar byggingateikningar.
Ráðgjafi að staðsetningu húss-
ins og sá sem teiknaði sökkla er
Þorsteinn Jóhannesson verkfræð-
ingur. Stefán Einarsson annaðist
sökklasmíði. Húsbyggingin hófst í
júlí 2003 og sá Byggingafélagið
Berg ehf. um verkið með Birgi
Guðlaugsson byggingameistara í
broddi fylkingar.
Ingi Hauksson, rafvirkjameist-
ari hjá Rafbæ, hannaði flóknar
raflagnir í húsið.
Langstærsti styrkjandi þessara
framkvæmda er ríkið, fjár-
laganefnd og menntamálaráðu-
neytið. Siglufjarðarkaupstaður er
annar stærsti styrkjandi bygg-
ingar Bátahússins. LÍÚ – Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna
veitti mjög rausnarlegan styrk, þá
Pokasjóður, Sveitarfélagið Skaga-
fjörður gaf skipið Tý og fygldi
honum úr höfn með fjárstuðningi
og Eimskip hf. flutti alla bátana
ókeypis.
Síðast en ekki síst ber að nefna
að allt þetta mikla verk hefði tæp-
lega orðið að veruleika ef safnið
hefði ekki átt að áhugamenn og
sjálfboðaliða sem alltaf voru reiðu-
búnir að leggja á sig ómælt erfiði
við öflun gripa og margs annars.
Öllum þeim aðilum sem hér hafa
verið upp taldir og öðrum þeim
sem komu að verki er þakkað fyr-
ir ágætt samstarf.
ÖRLYGUR KRISTFINNSSON,
Norðurgötu 3,
580 Siglufirði.
Safnið varð að veru-
leika vegna áhuga-
manna og sjálfboðaliða
Frá Örlygi Kristfinnssyni, for-
stöðumanni Síldarminjasafnsins í
Siglufirði: