Morgunblaðið - 18.07.2004, Page 37
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 37
ÁSDÍS Hjálmsdóttir, Ármanni,
varð í sjötta sæti í spjótkasti
á heims-meistara-móti
unglinga, 19 ára og yngri, í
frjáls-íþróttum í Grosseto á
Ítalíu síðdegis á fimmtudag.
Ásdís kastaði spjótinu 54,05
metra sem er hennar
næstbesti árangur á
ferlinum, en hún kastaði
spjótinu 55,51 metra í
undan-keppninni á þriðjudag,
það er aðeins þremur
senti-metrum frá
Íslands-meti fullorðinna.
Þetta er um leið besti árangur
sem Íslendingur hefur náð á
heims-meistara-móti
unglinga.
„Ég er stolt af árangri
mínum og ég held að þetta sé
jöfnun á besta árangri sem
íslenskur keppandi hefur náð
á utanhúss-móti í frjálsum,“
sagði Ásdís þegar úrslitin
lágu fyrir. „Allur
undir-búningur minn
undan-farin þrjú ár hefur
miðast við þetta mót og ég
get ekki annað en verið
ánægð með árangurinn. En
vissulega var ég ekki ánægð
með að tvær skyldu kasta
lengra en ég í síðustu
umferðinni, en þá var ég í
fjórða sæti. Það er margt
fram undan; meistara-mótið
og Norður-landa-mót. Ég ætla
mér að ná Íslands-metinu og
þarf að kasta 49 cm lengra,
og ólympíu-lágmarkið er ekki
langt undan,“ sagði Ásdís.
Ásdís varð í
6. sæti á HM
Ásdís Hjálmsdóttir
MIKIÐ er um að vera í
Vatnsmýrinni þessa dagana.
Þar er verið að undirbúa nýja
leið Hringbrautarinnar. Á
myndinni sést svæðið þar
sem ný mislæg gatnamót
munu verða. Á mislægum
gatnamótum fer umferðin í
aðra áttina á brú.
Á meðan verið er að
undirbúa nýju Hringbrautina
er sumum akreinum lokað.
Umferðin er þá þyngri á
meðan. Nýja Hringbrautin á
að vera tilbúin 2005.
Morgunblaðið/RAX
Ný Hringbraut undirbúin
HALLI á rekstri ríkis-sjóðs
var 9,1 milljarður króna árið
2003. Það þýðir að
stofnanir, ráðu-neyti og aðrir,
sem fá peninga á hverju ári,
hafa sumar notað meiri
peninga en þær máttu. Í
nýrri skýrslu frá
Ríkis-endur-skoðun segir að
þetta sé slæmt. Þar kemur
einnig fram að þetta gerist
mjög sjaldan í
nágranna-löndum okkar.
Fjár-hags-leg markmið
stjórn-valda hafi ekki náðst.
Magnús Stefánsson,
formaður fjárlaga-nefndar,
segir að það vanti meiri aga
til að koma í veg fyrir að
stofnanir og ráðu-neyti noti
meiri peninga en þær mega.
Geir H. Haarde
fjármála-ráðherra segir
skýrslu Ríkis-endur-skoðunar
vera villandi. Honum finnst
hún ónákvæm. Hann ætlar
að senda Ríkis-endur-skoðun
athuga-semdir við skýrsluna.
Stofnanir fara ekki eftir fjárlögum
Vantar aga
ÓPERU-SÖNGKONAN
heimskunna, Dame Kiri Te
Kanawa, hefur lengi átti sér
þann draum að koma hingað
að sumri og veiða lax í
miðnætur-sól, en hún er
ættuð úr
fiskimanna-samfélagi á
Nýja-Sjálandi og kveðst kunna
vel að meta bæði að veiða og
matreiða fisk.
Í vikunni rættist
draumurinn, þegar hún dvaldi
við laxveiðar í Rangám. „Þetta
var frábært; – ég setti í tvo
stóra, en náði bara öðrum
þeirra. Hann var fimmtán og
hálft pund. Hinn slapp.“
En það óvæntasta í óvæntri
heimsókn dívunnar til
landsins, var heimsókn
hennar í Söngskólann í
Reykjavík, þar sem hún hélt
námskeið fyrir íslenska
söngvara. „Allir söngvarar
nota einhver brögð,“ sagði
söngkonan, þegar hún
útskýrði fyrir íslensku
söngvurunum hvernig hægt
væri að beita söng-tækninni
til að ná árangri. „Þetta snýst
allt um öndunina, og hún þarf
að vera rétt.“ Dame Kiri
minnti söngvarana á að nota
munninn vel, kveða að á þann
hátt sem áhrifa-ríkast væri
fyrir textann, og sýndi hvernig
mætti skerpa á sérhljóðum og
samhljóðum til að draga fram
ákveðna liti á orðin.
„Þetta með munninn er
svolítið eins og að vera hjá
tann-lækni; þú ert með þrjár
hendur uppi í þér og allar
græjurnar líka. Það verður að
vera sams konar pláss fyrir
orðin í munni söngvarans. Þar
verða öll blæbrigði orðanna og
hljóðanna til, og það hjálpar
að nota munninn vel; tennur,
tungu, varir; allt.“
„Allir söngvarar
nota einhver brögð“
Morgunblaðið/Kristinn
Kiri Te Kanawa leiðbeinir Birni Jónssyni tenórsöngvara á námskeiði í Söngskólanum.
Bresk nefnd segir að
upplýsingar bresku
leyni-þjónustunnar um meint
gereyðingar-vopn Íraka hafi
verið ótraustar og
„meingallaðar“. Nefndin
hreinsaði þó Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands,
af ásökunum um að hann
hefði blekkt þjóðina af ásettu
ráði til að réttlæta innrásina í
Írak.
Bresk blöð segja þó að
Blair sé ekki laus úr klípunni
sem hann komst í þegar hann
tók þá óvinsælu ákvörðun að
fara í stríð í Írak. Breska
stjórnarandstaðan segir að
þjóðin treysti Blair ekki lengur
þar sem hann hafi fyrirskipað
innrás á grundvelli rangra
upplýsinga.
Talið er að óvinsældir Blairs
vegna stríðsins hafi orðið til
þess að flokkur hans,
Verkamanna-flokkurinn,
tapaði þingsæti í
auka-kosningum á
fimmtudag. Frjálslyndir
demókratar unnu þá þingsæti
í Leicester sem
Verkamanna-flokkurinn hafði
haft nær samfellt í 50 ár.
Aftur á móti hélt
Verkamanna-flokkurinn
þingsæti í borginni
Birmingham.
Íhalds-flokkurinn, stærsti
stjórnar-andstöðu-flokkurinn,
fékk lítið fylgi í kosningunum.
Hann varð í þriðja sæti í
báðum kjördæmunum.
Blair hreinsaður