Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 1.50 og 3.50. Íslenskt talSýnd kl. 2.30 og 5.15.
Sýnd kl. 2, 3, 5, 6, 8, 9 og 11. B.i. 12 ára.
kl. 2.30, 5.30, 8.30 og 11.30.
ÓÖH
„Tvímælalaust besta
sumarmyndin...“
SV MBL
"Afþreyingarmyndir gerast ekki
betri."“
„Geðveik mynd.
Alveg tótallí brilljant“
.ÞÞ.FBL.
26 þúsund gestir á 9 dögum FRUMSÝNING
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Missið ekki af
svölustu mynd
sumarsins!
Frábær hasarmynd með
ofurtöffaranum The Rock
Sýnd kl. 8 og 10. Bi 16.
3 barnalegir menn -
3 börn - 3falt gaman!
Léttgeggjuð grínmynd.
www .borgarb io. is
Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 8 og 10.
ÓÖH
„Tvímælalaust besta
sumarmyndin...“
SV MBL
"Afþreyingarmyndir gerast
ekki betri."“
„Geðveik mynd.
Alveg tótallí brilljant“
.ÞÞ.FBL.
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8, 10.20. B.i. 12 ára.
26 þúsund gestir á 9 dögum
ÞAÐ SANNAÐIST eftirminnilega
fyrir tónleikagestum á tónlistarhátíð-
inni sem haldin var í Laugardalnum
fyrir fjórum árum að Youssou N’Do-
ur er með helstu tónlistarmönnum
heims. Segja má að hann hafi komið,
séð og sigrað; greinilegt að fæstir
tónleikagesta vissu hver hann var en
eftir nokkur lög átti hann salinn. Milli
laga hafði Youssou til siðs að segja
„þekkið þið mig núna? Nei, þið þekk-
ið mig ekki“ sem má til sanns vegar
færa þegar litið er yfir feril hans, því
hvað eftir annað hefur hann komið
aðdáendum sínum á óvart, farið aðra
leið en vænst var. Á nýrri plötu fer
hann enn ótroðnar slóðir því ólíkt há-
tæknivæddu poppinu sem hefur verið
hans aðal syngur Youssou órafmagn-
aða lofsöngva til guðs; ný plata hans,
Egypt, er samfellt ákall til allah.
Youssou N’Dour tók þátt í að búa
til nýja tónlistarhreyfingu í heima-
landi sínu, en þegar Senegal fékk
sjálfstæði byrjuðu menn þar í landi,
líkt og öðrum nýfrjálsum Afr-
íkulöndum, að leita í gamlar hefðir til
að búja til nýja nútímalega þjóðlega
tónlist. Í Senegal varð til tónlist-
arstefna sem kallaðist mbalax og Yo-
ussou N’Dour var helsti spámaður
þeirra hreyfingar, hæfileikamesti
tónlistarmaðurinn og hugmyndarík-
asti.
Einstök rödd
Youssou vakti snemma athygli fyr-
ir einstaka rödd sína, en hann var
bryjaður að troða upp opinberlega
tólf ára gamall. Móðir hans var griot,
en svo kallast lofsöngvasöngvari í
Senegal, en faðir hans heittrúaður
bifvélavirki. Youssou byrjaði einmitt
að syngja við íslamskar trúar-
samkomur. Hann gekk í helstu popp-
sveit Senegal á þeim tíma, Etoile de
Dakar, snemma á áttunda áratgun-
um og stofnaði svo sína eigin hljóm-
sveit, Super Etoile de Dakar, 1979.
Með þeirri sveit komst hann í fyrsta
sinn fyrir eyru almennings á Vest-
urlöndum og þá aðallega fyrir stuðn-
ing samtaka senegalskra legubíl-
stjóra í París sem fjármögnuðu
fyrstu tónleikaferðir hans til Frakk-
lands, en einnig naut hann hylli í
Bretlandi, ekki síst eftir að Rough
Trade gaf út plötuna Nelson Man-
dela 1986.
Á næstu árum var Youssou mjög
áberandi í þjóðlegu poppi, sem átti
upp á pallborðið á Vesturlöndum um
tíma, og einnig vestrænu poppi, söng
til að mynda á milljónaplötu Pauls
Simons, Graceland, og einnig inn á
plötuna So með Peter Gabriel. Hann
fór einnig um heiminn í Amnesty-
tónleikaferðinni með Gabriel, Bruce
Springsteen, Sting og Tracy Chap-
man 1988. Hæst náðu þó vinsældir
hans 1994 er hann fékk Neneh
Cherry til að syngja með sér lagið
Seven Seconds inn á plötuna Set, en
það lag varð gríðarlega vinsælt.
Arabísk hefð
Á plötum sínum hefur Youssou
fengist við ýmiskonar tónlist og
seinni ár verið nokkuð hallur undir
það sem kalla má vestrænt pop. Á
þarsíðustu plötu sinni, Nothing’s in
Vain / Coono du réér, sem kom út
fyrir tveimur árum nýtti hann þó
órafmögnuð hljóðfæri og tónlistin var
þjóðlegri en oft áður, innhverf og
ljóðræn – frábær plata. Um daginn
kom svo út enn ein plata þar sem
hann fetar nýja slóð, áðurnefnd
Egypt. Á henni er hann að fást við ar-
abíska hefð, notar raddir og hljóðfæri
sem menn kannast við úr tónlist frá
Egptalandi, Sýrlandi og Líbanon, en
grunnþáttur hennar er þó sufi-
tónlist, tónlist múslimskra einsetu-
manna og dulspekinga. Undirleikur á
skífunni er í höndum fjórtán manna
hljómsveitar sem sérhæft hefur sig í
trúarlegri tónlist múslima, Fathy
Salama-sveitarinnar, en einnig er
hljómsveit Youssou á sínum stað þótt
minna beri á henni en áður.
Í viðtali við Youssou á vefmiðli sem
helgaður er afrískri tónlist kom fram
að platan á sér nokkurn aðdraganda,
því samstarf hans við Fathy Salama-
sveitina hefur staðið með hléum síð-
ustu fimm ár. Hann segir að í ramad-
an, helgimánuði múslima, hætti hann
alltaf allri vinnu og spilamennsku og
haldi sig heima, hitti vini og ræði
trúna. Það hafi því verið eðlilegt
framhald af því að hugleiða hvort
ekki væri hægt að semja tónlist sem
félli að slíkum umræðum og íhugun
um tónlist. „Faðir minn átti útvarp
sem náði útvarpsstöðvum frá Norð-
ur-Afríku og ég ólst upp við að hlusta
á [egypsku söngkonuna] Umm Kult-
hum. Það gerði svo að verkum að
þegar ég fór að spá í að gera trúar-
lega plötu datt mér fyrst í hug að
finna norður-afríska hljómsveit til að
spila með mér og þá fann ég hljóm-
sveit Fathy Salama í Fez [í Mar-
okkó].“
Youssou segist hafa lagt mikið á
sig til að halda verkefninu leyndu á
meðan hann vissi ekki hvernig það
myndi þróast og þannig breytti hann
rödd sinni í tölvu til að senegalskir
slagverksleikarar sem hann fékk til
að spila í nokkrum laganna myndu
ekki þekkja að Youssou var sjálfur að
syngja. „Þetta var svo persónulegt
verkefni að ég vildi halda því leyndu
þar til það væri tilbúið, vildi koma
fólki á óvart.“
Upptökum við plötuna lauk í lok
árs 1999, en hún beið um stund enda
var Nothing’s in Vain líka tilbúin og
kom út áður.
Youssou N’Dour hefur barist fyrir
auknum mannréttindum í gegnum
árin og leggur áherslu á að fjölmenn-
ingarlegt umhverfi sé besta leiðin til
að miða mannkyninu í átt að umburð-
arlyndi og skilningi á þörfum ann-
arra. Upphaflega átti platan að heita
Allah í takt við yrkisefnið en á loka-
stigum var nafninu breytt í Egypt. „Í
ljósi aðstæðna í heimsmálum er erfitt
að gefa fólki innsýn í trúarbrögð okk-
ar og Vesturlandabúar eru almennt
fáfróðir um islam. Miklu skiptir í því
sambandi að fólk geti nálgast plötuna
með opnum huga og nái síðan að
skilja að það er ekki til senegalskt ísl-
am eða egypskt islam, það er bara ein
trú þótt leiðirnar til að boða hana séu
margar. Að taka upp þessa plötu
gerði mér gott og vonandi tekst mér
að koma því til skila að íslam er trú
friðar og ástar, umburðarlyndis og
virðingar fyrir náunganum.“
Trú friðar og ástar
Youssou N’Dour: Söngvari og baráttumaður.
Senegalski tónlistarmaðurinn Youssou
N’Dour kom aðdáendum sínum enn á óvart
fyrir skemmstu er hann sendi frá sér plötu
með íslömskum lofgjörðarsöngvum.
ÞAÐ VORU ekki bara tjöld, svefn-
pokar og fatnaður tónleikagesta
sem fóru illa í drullusvaðinu sem ein-
kenndi hina votviðrasömu Hróars-
kelduhátíð. Þær lestir sem sáu um
að flytja gesti til og frá tónleika-
svæðinu urðu hvað verst úti og stóð
meira að segja til á tímabili að hætta
alfarið lestarferðum til Hróars-
keldu, svo slæm var umge ngnin.
Að sögn Jens Benny Andersen,
umsjónarmanns viðgerða hjá sam-
göngurisanum DSB, var ástandið
mun verra en hann hefði nokkurn
tíma getað ímyndað sér.
„Fólk setti drulluskítug stígvél og
farangur upp í sætin. Ég hef aldrei
átt eins erfitt með að koma lestum í
samt horf áður,“ sagði Andersen.
Fyrirtækið kallaði til aukamann-
skap til að auðvelda þrifin í lest-
unum en allt kom fyrir ekki, ekki
var mögulegt að halda þeim hrein-
lætisstuðli sem DSB er annt um að
halda.
Samgöngur | Svað á
Hróarskeldu
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þessi polli stóð í polli á Hróars-
kelduhátíðinni meðan starfsmenn
DSB bisuðu við að hreinsa lestir sínar.
Lestirnar
urðu illa úti