Morgunblaðið - 03.08.2004, Page 12
MINNSTAÐUR
12 ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGGARVELLIR 4A og B
Í HAFNARFIRÐI - NÝTT LYFTUHÚS -
Nýkomnar á sölu 2ja til 4ra herbergja íbúðir á góðum stað á
Völlunum. Íbúðirnar afhendast fullbúnar að innan en án gólf-
efna, þó með flísum á baðherbergi og þvottahúsi. Lóð full-
kláruð. Innréttingar, hurðir og tæki eru frá Byko, ýmsir valmögu-
leikar. Húsið er fimm hæðir og er með lyftu. Hægt er að fá
íbúðirnar með eða án stæðis í bílageymslu. Stutt verður í alla
þjónustu s.s. skóla, sund og íþróttaaðstöðu. Frábært útivistar-
svæði í grend við húsið.
Afhending janúar - febrúar 2005
Byggingaraðili Feðgar ehf.
Verð frá
2ja herbergja kr. 11.600.000
3ja herbergja kr. 13.000.000
4ra herbergja kr. 14.100.000
Sími 520 7500
hraunhamar@hraunhamar.is • www.hraunhamar.is
Magnús Emilsson, löggiltur fasteignasali, Bæjarhrauni 10, Hafnarfirði
Grundarfjörður | Það er allt á fullu
hjá Loftorku og undirverktökum við
að ná því markmiði að kennsla í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga geti hafist
þann 30. ágúst nk. segir Guðbjörg
Aðalbergsdóttir skólameistari.
Verkið er nokkurn veginn á áætl-
un og ekkert sem bendir til annars
en hægt verði að hefja kennslu á til-
settum tíma. Rúmlega 100 nem-
endur hafa staðfest skólavist sína við
skólann þessa fyrstu önn sem skól-
inn starfar. Flestir nemenda eru að
hefja fyrsta eða annað ár sitt í fram-
haldsskóla.
Búið er að ganga frá ráðningu
kennara og annars starfsfólks. Sjö
kennarar verða fastráðnir við skól-
ann en síðan eru sex til viðbótar sem
eru stundakennarar eða gestakenn-
arar við skólann. Nokkrir af þeim
nemendum sem eru lengra komnir í
námi munu í einstaka áfanga vera í
fjarnámi við aðra skóla þótt þeir séu
nemendur á Grundarfirði, segir
Guðbjörg.
Að sögn Guðbjargar munu vænt-
anlegir nemendur skólans geta feng-
ið ýmsar upplýsingar um skólann,
námsgreinar og námsbækur á
heimasíðu hans, www.fsn.is, sem
opnuð verður í lok næstu viku. Allur
undirbúningur gengur vel og allir
fullir bjartsýni, segir Guðbjörg.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Risinn: Fjölbrautaskóli Snæfellinga er risinn, hér sést norðurhliðin.
Fram-
kvæmdum
miðar vel
Vinna: Guðni Hallgrímsson sýslar
við lagnabrautir í nýja skólanum.
LANDIÐ
Hrunamannahreppur | Það var
margt um manninn um verslunar-
mannahelgina á Flúðum þar sem
Iðandi dagar fóru fram að venju
með fjölbreyttri dagskrá.
Keppt var í hinni árlegu
traktorstorfærukeppni þar sem
keppendur voru sjö en þessi buslu-
gangur í Litlu-Laxá vekur jafnan
mikla kátínu og aldrei meir en nú
enda tilþrifin mikil hjá keppendum
á þessum gömlu traktorum.
Furðubátakeppnin fór fram í
sextánda sinn en þar tóku þátt 27
fley af hinum furðulegustu gerð-
um. Veitt voru verðlaun fyrir flott-
asta bátinn, leikrænustu tilþrifin,
fyndnasta bátinn og þann frumleg-
asta. Flestir þátttakendur voru
börn og unglingar sem jafnan fyrr.
Brekkusöngur fór fram við varð-
eld þar sem Sólmundur Friðriks-
son og Ísólfur Gylfi Pálmason
stjórnuðu og léku á gítara sína.
Sölutorg var í félagsheimilinu sem
og grettukeppni. Íþróttakeppni
sem og Fitnesskeppni fór fram á
íþróttavellinum svo eitthvað sé
nefnt. Sólmundur Friðriksson um-
sjónarmaður Iðandi daga sagðist
vera mjög ánægður með hvernig
til hefði tekist, veðurspáin var
slæm en gekk ekki eftir og veður
var ágætt.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds
Frumleg fley: Ýmsar skrýtnar fleytur tóku þátt í Furðubátakeppninni.
Skipverjar á bátnum Hanastöðum voru þær Margrét Þóra Einarsdóttir og
Brynja Aud Aradóttir.
Vel heppnaðir Iðandi
dagar á Flúðum
VESTURLAND
Vestmannaeyjar | Milli 7000 og 8000
manns sóttu Þjóðhátíðina í Vest-
mannaeyjum að þessu sinni og voru
gestir óðum að tygja sig til heimferðar
í gær. Ekki er gert ráð fyrir að fólks-
flutningum ljúki fyrr en í dag. Þvert of-
an í spár var veður að mestu gott um
helgina, aðeins á sunnudagsmorguninn
rigndi í stífum vindi.
Fyrst var blásið til þjóðhátíðar 1874
þegar Eyjamenn komust ekki á Þing-
völl og urðu því að bjarga hlutunum
sjálfir. Síðan hefur þjóðhátíð í Herjólfs-
dal verið haldin, með einhverjum
hléum þó. Hátíðin byggist því á hefðum
sem eru hver um sig hápunktur hátíð-
arinnar. Fyrsta skal nefna brennuna á
Fjósakletti sem lýsir upp dalinn á föstu-
dagskvöldinu. Á laugardaginn er það
svo flugeldasýningin sem magnast upp
innan um klettana sem umlykja Herj-
ólfsdal og að lokum er það svo brekku-
söngurinn sem Árni Johnsen hefur
stýrt í um 30 ár. Hann var fjarri góðu
gamni í fyrra en nú var hann mættur.
Að þessu sinni voru um 8.000 manns í
Brekkukórnum sem söng einni röddu
undir stjórn Árna.
Þá má ekki gleyma hvítum tjöldum
heimamanna sem eru stór hluti af
gleðinni þar sem fjölskyldurnar koma
sama yfir daginn en á kvöldin og nótt-
unni er það söngurinn sem ræður ríkj-
um. Allt gerir þetta þjóðhátíðina að
einstakri hátíð sem fólk sækir ár eftir
ár.
„Það mætti oft halda að Þjóðhátíð
Vestmannaeyja væri ekki fjöl-
skylduhátíð en svo er alls ekki. Í Herj-
ólfsdal mætast kynslóðirnar til að
skemmta sér og öðrum og til að
skemmta börnunum fáum við listafólk
af bestu gerð,“ sagði Páll Scheving
framkvæmdastjóri ÍBV þegar rætt var
við hann í gær. „Vel heppnuð barna-
dagskrá, endurkoma Egósins hans
Bubba og Árna Johnsen og ánægðir
gestir er það sem er manni kannski efst
í huga eftir helgina. Allt fór þetta vel
fram og eins og alltaf voru gestir okkar
til mikillar fyrirmyndar. Auðvitað er
sorglegt að sjá öll þessi fíkniefnamál,
þau eru því miður orðin hluti af okkar
samfélagi en fjöldinn sýnir líka öflugt
eftirlit og því ber að fagna,“ sagði Páll.
Um 8.000 manns tóku
þátt í brekkusöngnum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Fíkniefnin blettur: Framkvæmdastjóri ÍBV er í meginatriðum ánægð-
ur, en segir fíkniefnamálin sem upp komu á þjóðhátíðinni sorgleg.
Fjöldasöngur: Árni Johnsen hefur stýrt brekkusöngnum í ein 30 ár.