Morgunblaðið - 03.08.2004, Page 27
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2004 27
✝ Þröstur Helgasonfæddist í Hvera-
gerði 20. september
1946. Hann lést 25.
júlí síðastliðinn. Hann
var fjórða barn
hjónanna Sigríðar
Kristínar Áskelsdótt-
ur frá Hrísey, f. 7.
september 1913, d. 14.
desember 1958, og
Helga Geirssonar
skólastjóra frá Húsa-
tóftum á Skeiðum, f.
3. ágúst 1911, d. 26.
júní 1978. Systkini
Þrastar eru 1) Svala, f. 1939, var
gift Böðvari Guðmundssyni, 2)
Lovísa Erla, f. 1941 gift Sverri Guð-
mundssyni, 3) Áskell Valur, f. 1945,
kvæntur Ástu Gísladóttur, 4) Hauk-
ur, f. 1948, kvæntur Eyrúnu Kjart-
ansdóttur, og 5) Örn, f. 1948,
kvæntur Elísabetu Hannam.
Hinn 3. ágúst 1973 kvæntist
Þröstur Huldu Kristínu Brynjúlfs-
dóttur frá Kópaskeri, f. 13. janúar
1946. Foreldrar hennar eru Ingiríð-
ur Árnadóttir, f. 1918, og Brynjúlf-
ur Sigurðsson, f. 1915, búsett á
Kópaskeri. Systkini Huldu eru 1)
Ragnheiður Regína, f. 1943, gift
Jóni Óskarssyni, og 2) Sigurður, f.
1954, kvæntur Önnu Maríu Karls-
dóttur.
Börn Þrastar og Huldu eru 1)
Úlfur Ingi Jónsson lyfjafræðingur,
f. 1969, sambýliskona hans er
Marta Rúnarsdóttir skóhönnuður,
f. 1969, 2) Drífa Kristín Þrastar-
dóttir sagn-/listfræðingur, f. 1976,
sambýlismaður hennar er Karl
Óskar Ólafsson íslenskufræðingur,
f. 1975, 3) Heiðar Þór Þrastarson
eðlisfræðingur, f. 1979. Þröstur bjó
ásamt fjölskyldu sinni
í Hveragerði til ársins
1956, en var þó í fóstri
hjá móðurbróður sín-
um Agnari Áskelssyni
í Keflavík og konu
hans Bjarnveigu Guð-
mundsdóttur vetur-
inn 1955–1956. Vorið
1956 fluttist fjölskyld-
an að Laugarvatni.
Þar lauk Þröstur
gagnfræðaprófi og
fékk áhuga á trésmíði
eftir góð kynni við
Þórarin Stefánsson
trésmíðakennara. Lærði þá hús-
gagnasmíði hjá Jónasi Sólmunds-
syni á Sólvallagötu 48 í Reykjavík
og tók sveinspróf frá Iðnskólanum í
Reykjavík árið 1967. Meistarabréf
fékk hann árið 1973. Þröstur nam
trétækni við Teknologist Institut í
Kaupmannahöfn á árunum 1970 til
1971 og lauk prófi í uppeldis- og
kennslufræðum frá Kennaraskóla
Íslands árið 1976. Hann hóf kennslu
við Iðnskólann í Reykjavík árið
1971 og kenndi þar aðallega hús-
gagna- og húsasmíðanemum, sem
varð hans ævistarf. Í tengslum við
kennsluna vann Þröstur að gerð
kennslugagna, þýðinga og nám-
skrár, auk þess sem hann hafði um-
sjón með fjölda námskeiða á sviði
tréiðna. Hann vann einnig ötullega
að félagsmálum í þágu Krabba-
meinsfélags Íslands, og þá einkum
Stómasamtakanna, í ein 25 ár.
Áhugamál Þrastar lutu einkum og
sér í lagi að fjölskyldu hans, ferða-
lögum, dansi og því að skapa góða
hluti úr tré. Þröstur verður jarð-
sunginn frá Hallgrímskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Þrösturinn okkar er floginn inn í
sumarnóttina. Lífsviljinn var mikill og
hann viljafastur og reyndi hvað hann
gat að vera lengur hjá okkur og þrátt
fyrir fimm ára baráttu eftir tuttugu
ára hlé frá veikindum vorum við ófús
að sleppa af honum hendinni.
Hann var hrakfallabálkurinn í
systkinahópnum. Fyrstu æviárin lenti
hann í nokkrum slysum, virðulegir
borgarar klöppuðu honum á kollinn
og sögðu „er þetta drengurinn … það
sér ekki meira á honum“, „þú verður
gæfumaður og langlífur“ bætti eitt
skáldið í Hveragerði við. Þetta ríg-
héldum við í þegar við vorum hvað
hræddastar um hann.
Ef hægt er að tala um að fólk fæðist
með silfurskeið í munni mætti segja
að Þröstur hafi fæðst með hamar í
hendi. Einbeittur negldi hann í kistu-
lok, þröskulda og aðra valda staði og
nóg var seinna af leikföngum hjá
bræðrunum. Olíubrúsaskurðgröfur
og vörubílar með Hveragerðis- eða
Hríseyjarfjaðrabúnaði eftir því hvort
notaðar voru gúmmíslöngur eða járn-
sagarblöð. Um átta ára aldurinn voru
smíðisgripirnir bæsuð og lökkuð út-
varpsborð úr kassafjölum svo að mað-
ur tali ekki um seinni tíma verk. Við
verkaskiptinguna þegar við vorum að
ala hvert annað upp var hann „laga-
rinn“ því allt lék í höndunum á honum.
Hann gegndi virðingarstöðunni „stað-
arhaldari“ í Hreiðrinu okkar á Laug-
arvatni enda best til þess fallinn,
traustur og skyldurækinn.
Gæfa hans í lífinu var Hulda og
börnin þeirra þrjú. Hulda kom með
lítinn glókoll í búið og var ánægjulegt
hvað góð vinátta og kærleikar tókust
fljótt með þeim Þresti. Það vakti að-
dáun okkar hvað þau öll voru sérlega
samrýnd og samstiga í öllum sínum
gerðum. Báru svo mikla umhyggju og
virðingu hvert fyrir öðru og nutu þess
að vera í návist hvers annars. Þau
voru einstakir vinir, samlynd og sam-
hent og mikil einlægni ríkti þeirra í
milli. Það var gaman að fylgjast með
þegar þau keyptu gamalt hús við Hóf-
gerði. Þau vöknuðu sæl og glöð að
morgni því í draumalandinu var hann
að smíða og laga húsið og hún að vinna
í garðinum. Þau ræktuðu garðinn sinn
í víðum skilningi. Leið ekki á löngu
þar til búið var að endurnýja húsið og
byggja við af mikilli smekkvísi og
kominn verðlaunagarður. Þar var
ljúft að koma og eiga með þeim stund.
En þau verðlaun sem hann uppskar
og veitti honum mesta gleði og lífsfyll-
ingu var það sem lífið gaf, heimilið og
fjölskyldan enda var Þröstur ástríkur
og umhyggjusamur faðir og uppal-
andi. Börnin hans bera því gott vitni.
Lán Þrastar var líka að hann hafði
ánægju af kennarastarfinu og þótti
vænt um nemendur sína. Við nutum
allt of stutt okkar góðu foreldra og því
lærðist okkur að njóta stuðnings hvert
af öðru. Þar var Þröstur í öndvegi,
bæði litli og stóri bróðir. Hann var
maður friðarins, hóglátur, umburðar-
lyndur og ætíð hjálpfús. Hann eign-
aðist einstaklega góða tengdafjöl-
skyldu sem hann mat mikils.
Það var aðdáunarvert hvað Hulda
og litla fjölskyldan stóð sig vel og vék
ekki frá honum síðustu þrjár vikurnar.
Hann var léttur í lund og hugrakkur
fram á síðustu stundu. Hjartans þakk-
ir viljum við færa því frábæra fólki
sem hefur sinnt Þresti í gegnum tíð-
ina, störf ykkar eru ómetanleg. Ljúfar
og gjöfular minningar af gæflyndum
og örlátum bróður eigum við sem dýr-
mætar perlur og geymum þakklátum
huga. Vertu kært kvaddur elsku bróð-
ir.
Kveðja
systkinin.
Fallinn er úr Hreiðri Þröstur.
Frændi okkar ljúfi og góði, með fal-
lega brosið sitt sem var svo eftirminni-
legt úr sumarferðum fjölskyldunnar
og vina frá Laugarvatni. Eða úr fjöl-
skylduboðunum en þar var aldrei nein
lognmolla, öll heimsins mál leyst, enda
ekki við öðru að búast af mjög svo
samrýndum systkinum.
Margar góðar minningar eigum við
úr Hófgerðinu sem börn.
Missir okkar allra er mikill, það
vantar einn fugl í Hreiðrið. Mestur er
þó missir Huldu, Úlla, Drífu og
Heidda, en Þröstur lifir í minningu
okkar sem einstakur frændi.
Nú vakir hann yfir okkur sem uppá-
halds verndarengill.
Hvíl í friði kæri frændi.
Helgi Geir og Elín Arna.
ÞRÖSTUR
HELGASON
Fleiri minningargreinar um Þröst
Helgason bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga. Höfundar
eru: María, Sigurður Brynjúlfsson,
Helga Sigríður, Samstarfsfólkið í Iðn-
skólanum, Sigurður Jón Ólafsson, Inga
og Sigmar, Helga og Gísli, Logi og
Svanhvít, Maríus og Ásdís, Þórey og
Leif, Ólafur Örn Haraldsson, Gufu-
félagarnir, Skjöldur Vatnar, Herdís,
Agla Egilsdóttir, Margrét Valdimars-
dóttir, Jón Eiríkur, Guðmundur Birkir
Þorkelsson, Jóna Rúna Kvaran.
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
www.englasteinar.is
Englasteinar
Legsteinar
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐLAUGUR ÁGÚSTSSON,
áður til heimilis
að Bauganesi 7, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík miðvikudaginn 4. ágúst kl. 15.00.
Sigurlaug Guðlaugsdóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Ingiborg Guðlaugsdóttir,
Bjartmar Guðlaugsson, María H. Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir mín, tengdamóðir og amma,
NÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Sundlaugavegi 22,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
í dag, þriðjudaginn 3. ágúst, kl. 10.30.
Kristín Halla Traustadóttir,
Jón Ingimarsson,
Nína Björk Jónsdóttir,
Ingimar Trausti Jónsson,
Helga Vala Jónsdóttir.
Hjartans þakkir og kveðjur sendum við öllum
þeim, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför eiginmanns, föður okkar,
tengdaföður, afa, sonar og bróður,
JÓNS ÞÓRS BJARNASONAR,
Æsufelli 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fá hjúkrunarþjónusta Karitas
og deild 13D, Landspítala við Hringbraut.
Kristbjörg Jóhannesdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn,
Margrét Á. Jónsdóttir
og systkini.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SOFFÍA JÓNSDÓTTIR
frá Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga fimmtu-
daginn 29. júlí.
Jarðsett verður frá Siglufjarðarkirkju þriðju-
daginn 10. ágúst kl. 14.00.
Þórður Jónsson, Guðbjörg M. Björnsdóttir,
Margrét Jónsdóttir, Björgvin Þóroddsson,
Ásmundur Jón Jónsson,
Ingibjörg Jónsdóttir, Þráinn G. Gunnarsson,
Sigríður Jónsdóttir, Þorgeir B. Hlöðversson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar og tengdaföður,
HJÁLMARS FINNSSONAR,
Vesturbrún 38.
Starfsfólki deildar 13-D á Landspítala við
Hringbraut og starfsfólki líknardeildar Land-
spítala í Kópavogi þökkum við sérstaklega fyrir
góða umönnun, stuðning og hlýju.
Edward Finnsson, Erna Norðdahl,
Katherine Finnsson, Ronald Smart.
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓHANNESAR ÁGÚSTS GUÐMUNDSSONAR
bónda, Syðri-Þverá,
síðar á Illugastöðum, Vatnsnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofn-
unar Hvammstanga fyrir einstaka umönnun og
alúð.
Auðbjörg Guðmundsdóttir,
Jónína Ögn Jóhannesdóttir,
Guðmundur Jóhannesson, Bjarney G. Valdimarsdóttir,
Árni Jóhannesson, Anna Ólsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
www.mosaik.is
LEGSTEINAR
sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði