Morgunblaðið - 03.08.2004, Page 32
© DARGAUD
Bubbi og Billi
Grettir
Smáfólk
Smáfólk
VÁÁÁ!! ANDFÝLAN ÞÍN GÆTI FENGIÐMÁLNINGUNA Á VEGGJUNM TIL ÞESS
AÐ FLAGNA
HVAÐ MEINARÐU
MEÐ GÆTI?
HÉR SITUR
YFIRHUNDUR
VIÐ
SKRIFBORÐ
AÐ TAKA
ÁKVARÐANIR
OG ALLAR RANGAR!ÉG ER BÚINN AÐ TAKAHUNDRAÐ ÁKVARÐANIR
Í DAG...
Á ÞESSUM
LISTA ERU
NÖFN 10
MILLJÓN
HUNDA...
ÉG ÞARF AÐ FÁ SKÝRSLU
UM ALLA ÞESSA HUNDA
SKRIFAÐA Í ÞRÍRITI
ÞAÐ LEIÐ AFTUR
YFIR RITARANN MINN!
SJÁÐU
ÞETTA BILLI!
HELDUR
BETUR!
ÉG ER BÚINN AÐ BÍÐA EFTIR
ÞESSU Í HEILT ÁR
ÉG ER BÚINN AÐ
BÍÐA EFTIR ÞESSU Í
MÖRG ÁR!
KOMDU, VIÐ SKULUM
SPURJA MÖMMU HVORT VIÐ
MEGUM FARA ÞANGAÐ EFTIR
HÁDEGI Í DAG
JÁ! ÉG ER SVO
SPENNTUR AÐ
SJÁ ÞETTA
HARRY POTTER
SNÝR AFTUR!
ÓTRÚLEGT!
ÉG VISSI EKKI AÐ ÞÚ
VÆRIR SVONA HRIFINN AF
BEINUM
HARRY POTTER 12
RISAEÐLUR
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 3. ágúst, 216. dagur ársins 2004
Hrein torg, fögurborg, var slagorð
sem Víkverji tók til sín
á sínum uppvaxt-
arárum. Ekkert sam-
bærilegt slagorð virð-
ist vera í gangi um
þessar mundir, því
miður. Víkverji treyst-
ir sér nú samt ekki til
að fullyrða að það sé
helsta ástæða þess
hversu umgengni fólks
á almannafæri hefur
farið aftur, en verður
þó að viðurkenna að
hann er farinn að
undrast nokkuð
hversu litla ábyrgð venjulegt fólk vill
taka á því að halda umhverfi sínu
hreinu og snyrtilegu.
x x x
Tökum bíóhúsin sem dæmi. Þráttfyrir að þar séu ruslatunnur í
hverju horni er umgengnin slík að
þegar ljósin kvikna að sýningu lok-
inni er engu líkara en bíógestir hafi
verið í poppkornsstríði. Öll gólf eru
þakin sælgætisumbúðum og pappa-
glösum og maður má prísa sig sælan
að komast út án þess að vökna í fæt-
urna af dísætum vökvanum sem
áhorfendur höfðu svo ekki lyst á.
Á götum og torgum borgarinnar
tekur ekki betra við,
sígarettustubbar,
pappírsrusl og annar
ófögnuður virðist ekki
rata í ruslatunnur
heldur vera látinn vaða
beint á götuna. Verst
er ástandið um helgar
þegar fólk lætur sig
ekki muna um að
brjóta flöskur og glös á
götum borgarinnar – í
slíku magni að þrátt
fyrir að hreins-
unardeildir borg-
arinnar séu komnar út
fyrir allar aldir er
skæðadrífan enn vel
sýnileg er þeir sem ekki þurfa að sofa
úr sér fara á stjá. Hér er augljóslega
ekki við unglinga að sakast heldur
fullorðið fólk; fólk sem gæti verið hin-
um óhörðnuðu góð fyrirmynd.
Víkverji veltir því fyrir sér hvort
Íslendingar séu svo vanþroskaðir fé-
lagslega að þeir telji sér hreint ekki
skylt að taka til eftir sig og sína. Eða
bera þeir enga virðingu fyrir um-
hverfinu nema komið sé við budduna
hjá þeim? Ef svo er, hvernig væri þá
að fara að eins og víða í erlendum
stórborgum þar sem fólk þarf að
borga háar sektir fyrir illa um-
gengni? Þannig borga sóðarnir í það
minnsta sjálfir fyrir þrifin.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
New York | Síðastliðinn laugardag léku hljómsveitirnar Vínyl, Maus og
Jagúar í Central Park. Aðsóknin var með eindæmum góð og léku hljómsveit-
irnar fyrir mikið fjölmenni í sól og blíðu og góðri stemmningu í garðinum.
Tónleikarnir voru hluti af „Summer Stage“ tónleikaröðinni sem haldin er af
New York borg í samstarfi við „Iceland Naturally“ og „Reykjavík Loftbrú“.
Kristinn Júníusson, söngvari Vínyl, er hér eins og sjá má í góðum gír.
Ljósmynd/Oddur Sigurðsson
Vínyl, Maus og Jagúar á
tónleikum í New York
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu og mig hólpinn
leiða inn í sitt himneska ríki. Honum sé dýrð um aldir alda! Amen.
(Tím. 4, 18.)