Morgunblaðið - 12.09.2004, Blaðsíða 21
að virkja stjórnsemina á jákvæðan
hátt.“
Ragnhildur þótti sem sagt stjórn-
söm sem barn, og til eru nokkrar
fleygar sögur af því. Setning varð
fleyg sem Doddi Ásgeirs, einn af
frumbyggjunum í götunni hennar á
Húsavík, sagði eftir að Ragnhildur og
fjölskylda komu aftur heim eftir sum-
arfrí fyrir sunnan á uppvaxtarárun-
um: „Æ, elskan, mikið er nú gott að þú
ert komin aftur, það hefur ekki verið
nokkur stjórn í götunni síðan þú
fórst.“
Ragnhildur segist meta það mikils
við fólk að vera hreinskilið við sig. „Afi
minn Jón kenndi börnunum sínum þá
reglu að segja aldrei neitt um fólk
nema það sem hægt væri að segja
beint við það sjálft. Auðvitað verður
aldrei hægt að fara alfarið eftir þessu
en ég held að það sé hollt að hafa þetta
að leiðarljósi. Ég hef sjálf reynt að
temja mér það í starfi að koma hreint
fram en ég er lítið fyrir hvers kyns
plott. Það er mér ekki að skapi.“
Stjórnsýsla og ljóð
Ragnhildur hefur fylgst með
stjórnsýslufræðum bæði á Íslandi og í
Danmörku. Stjórnsýsluréttur var
uppáhaldsfagið hennar í lögfræðinni
og hún hefur reglulega setið námskeið
og ráðstefnur í faginu. Starf ráðuneyt-
isstjóra er viðamikið og annasamt,
þetta er starf embættismanns sem
þarf að gæta hlutleysis gagnvart
mönnum og málefnum. Hann þarf að
slíta sambönd sín við einstaka hags-
munahópa, ef einhver eru, og hann má
helst ekki sjálfan langa til þess að
standa í eldlínunni. „Mikil ábyrgð
fylgir þessu embætti, sýna þarf festu í
starfsemi ráðuneytisins og styðja við
daglegt starf ráðherrans,“ segir
Ragnhildur, „jafnframt má ráðuneyt-
isstjóri aldrei missa sjónar á því að
embættið er fyrir borgarana en ekki
fyrir hann sjálfan – meginhlutverk
hans er þjónusta við hinn almenna
borgara. Hann þarf líka að vera sáttur
við að vera vélin sem knýr vinnuna
fyrir ráðherrann og stefnumál hans,
eins og stjórnmálamaðurinn setur þau
fram hverju sinni. Ég hlakka til að
vinna með Árna Magnússyni að hans
markmiðum og finn að hann hefur
skýrt mótaðar hugmyndir og kraft til
þess að fylgja þeim eftir af festu.“
Ragnhildur hefur gegnt annasöm-
um störfum um ævina og segir gott að
geta átt athvarf í góðum fjölskylduarfi
og vinahópi og ekki síst í afslöppuðum
matarboðum, en ekki endilega dýrum,
margréttuðum veislum. Henni finnst
Íslendingar stundum ganga full langt
í flottheitunum, það einfalda sé oft
notalegast, aðalatriðið sé að hittast og
spjalla um daginn og veginn, að vera
saman. „Þá er ég Vesturbæingur og
KR-ingur, og því fylgja skemmtileg
samskipti við nágranna og vini og auð-
vitað fylgi ég drengjunum mínum
hvert á land sem er í fótboltaferðum,“
segir hún og að hún sé mikill ljóðaunn-
andi. „Í ljóð og bækur sæki ég fyllingu
og ró,“ segir hún og að hún hafi oft
opnað ljóðabækur undanfarna daga.
„Einar Benediktsson var einstakt
ljóðskáld og það eru margar hending-
ar í Einræðum Starkaðar sem koma
reglulega upp í hugann, einnig get ég
nefnt ljóðaþýðingar Magnúsar Ás-
geirssonar t.d. á Rudyard Kipling og
mörg ljóð Gunnars Dal eru innihalds-
rík í einfaldleika sínum,“ segir hún og
að henni finnist gott að grípa til ljóða-
hendinga og spakmæla bæði fyrir sig
sjálfa og einnig í tækifærisræðum.
„Ég hef reyndar sérstakt dálæti á
einu ljóði eftir Heiðrek Guðmundsson,
skáld frá Sandi í Aðaldal, þaðan sem
föðurfólkið mitt er ættað, sem heitir
„Heilræði ömmu þinnar“. Þar er m.a.
að finna ljóðlínurnar: „Aldrei skaltu
að leiðum lesti leita í fari nokkurs
manns, aðeins grafa ennþá dýpra eftir
bestu kostum hans.“ Mér finnst þessi
orð eiga oft við og ég hef m.a. notað
þau þegar ég hef ávarpað lögfræð-
inga. Þau, eins og orðin „Aðgát skal
höfð í nærveru sálar“ eru sígild og
hafa vissulega ítrekað komið upp í
huga mér í umfjöllun um embættis-
veitingar fyrr og nú,“ segir Ragnhild-
ur að lokum.
guhe@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2004 21
www.101skuggi.is
Síðumúla 21
Sími 588 9090
Suðurlandsbraut 52, við Faxafen
Sími 530 1500
Íbúðakaup í 101 Skuggahverfi þar sem glæsileiki, vandaðar byggingar
og þægindi fara saman, er ekki fjarlægur draumur.
Kostir:
• Við miðbæinn. • Glæsilegt útsýni.
• Einungis tvær íbúðir á hæð. • Meiri lofthæð.
• Betri hljóðeinangrun. • Lyftur í öllum stigahúsum.
• Bílastæði í lokaðri bílageymslu. • Öryggiskerfi og hátæknisamskiptakerfi.
• Sérstakt gluggaþvottakerfi. • Utanhússklæðning í sérflokki.
Íbúðir til afhendingar í desember
Lindargata 33 – 4. hæð – Stærð: 112,7 m2
Verð: 20,9 millj. kr.*
Lánsfjárhæð: 16,7 millj. kr.
Greiðslubyrði pr. mánuð: 87.600 kr.
Útborgun: 5,1 millj. kr.
Vatnsstígur 15 – 6. hæð – Stærð: 142 m2
Verð: 29,5 millj. kr.*
Lánsfjárhæð: 23,6 millj. kr.
Greiðslubyrði pr. mánuð: 121.300 kr.
Útborgun: 7 millj. kr.
Afhendum fyrstu
íbúðirnar í október
Framtíðarheimili á frábærum stað við miðborgina
Bjóðum einnig fullbúnar íbúðir.
* Íbúð tilbúin til innréttingar. * Íbúð tilbúin til innréttingar.
Góð lánakjör – Dæmi um verð og greiðslubyrði:
LEITIÐ UPPLÝSINGA.