Morgunblaðið - 12.09.2004, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2004 23
LEIÐSÖGUNÁM
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og mynd-
um. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
Mannleg samskipti. Skyndihjálp og skipulag.
Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhalds-
nám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“.
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00.
Heimasíða: www.menntun.is
Martha Jensdóttir
kennari.
Hamraborg 1 • 200 Kópavogi • Sími 544-4600 • Fax 544-4601
skipasalan@simnet.is
Skoðaðu...
www.skipasalan.is
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Heimsferðir selja nú síðustu sætin í haust og bjóða þér einstök tilboð í
sólina á vinsælustu áfangastaði Íslendinga. Fáðu þér sumarauka á
ótrúlegu verði og tryggðu þér eitt af
síðustu sætunum í haust.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
í sólina í haust
frá kr. 9.990
Verð kr. 9.990
Önnur leiðin til Alicante, 22. september
með sköttum. Netverð.
Verð kr. 19.990
Flugsæti, 2 fyrir 1, 22, 29. sept. Alicante,
með sköttum. Netverð.
Verð kr. 29.990
M.v. 2 í stúdíó/líbúð - 6. okt. - vikuferð.
Stökktutilboð.
Benidorm
Tryggðu þér sumarauka á ótrúlegu verði
Verð kr. 19.990
Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1. 14. sept.
Verð kr. 29.990
M.v. 2 í íbúð, 7 nætur með sköttum, 14.
sept. netverð. Stökktutilboð.
Portúgal
Verð kr. 19.990
Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1. 16. sept.
Verð kr. 29.990
M.v. 2 í stúdíó, stökktutilboð, 16. sept.
Netverð.
Rimini
Verð kr. 19.990
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
stökktutilboð, 22. sept. Netverð.
Verð kr. 29.990
M.v. 2 í íbúð, stökktutilboð, 22. sept.
Vikuferð, netverð.
Mallorka
Verð kr. 24.995
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
stökktutilboð, 22. sept. Netverð.
Verð kr. 29.990
M.v. 2 í stúdíó, stökktutilboð, 22. sept.
Vikuferð, netverð.
Costa del Sol
þessu ekki alveg þegjandi sem og líka
varð raunin á í sumum tilfellum með
alla þá flutninga sem áttu eftir að
verða í það heila á öllu þessu mikla
byggingarefni.
Enn skrifar sýslumaður Vest-
mannaeyja Árna Gíslasyni sýslu-
manni 17. maí 1857. Þar greinir hann
frá því að hann sé búinn að fá skip hjá
kaupmanni Bryde til að taka kirkju-
efnið til landsins en fer fram á að fá
Jón Þorsteinsson, hreppstjóra á Sól-
heimum, eða Einar Bjarnason á Hvoli
til að koma til Vestmannaeyja til að
leiðbeina um hvar helst sé að koma
með farminn að ströndinni. Til þess-
ara flutninga hefur fengist jaktin
Maria. Má sjá það af farmskrá, sem
gerð er í Vestmannaeyjum 18. júní
1857, undirrituð af A. Kohl sýslu-
manni.
Vert er að geta þess sérstaklega að
á þeirri farmskrá stendur: „11 rimla-
kistur með 11 járnkirkjugluggum“
auk fjölda annarra hluta og efnis. Svo
er að sjá að kirkjuefnið sé stílað á
hreppstjórana í Dyrhólahreppi, þá
Jón Þorsteinsson á Sólheimum og
Einar Jóhannsson í Þórisholti, til
móttöku en það er einungis sá síð-
arnefndi er kvittar undir 3. júlí 1857.
Uppskipunin fer síðan fram, að
minnsta kosti að mestu, dagana 25.–
26. júní 1857. Eru 3 skip í gangi við að
koma efninu í land, skip Einars Jó-
hannssonar, skip Hjalta Einarssonar
og skip Jóns Þorsteinssonar, með 18
manna skipshöfn hvert. Eftir bréfum
að dæma mun Einar Jóhannsson lítið
hafa verið með sitt skip en fengið ann-
an formann í sinn stað þar sem hann
varð að vera mest um borð í Mariu til
að reyna að fá þá til að liggja sem
næst lendingarstað sem hefur sýni-
lega gengið erfiðlega. Einar ætlast til
að efnið verði tekið í land á Eiðinu
austan Dyrhólaeyjar og vill umfram
allt hafa það á sama staðnum en sök-
um sjávarlags og strauma hefur
reynst erfitt að halda jaktinni Mariu
það austarlega með ströndinni og allt
vestur á móts við Hvolabæi mátti
stundum ná í farminn. Getur Einar
Jóhannsson þess í bréfi til Árna
sýslumanns 27. júní, degi eftir mestu
uppskipunardagana á þessa leið:
„Hjalti sótti í dag farm á jaktina út að
Hvoli og djúpt þar, og í kvöld sækir
hann annan og flytur á Eiði því ég
vildi hafa það allt í 1 stað ef mögulegt
var en Jón hreppstjóri hafði ei fengið
þessu ráðið fyrir hásetum og mundi
hollast að flytja það heim að Hvoli.“
Var Jón formaður talhlýðinn við
sjó samanber skrif Eyjólfs Guð-
mundssonar í bókinni Pabbi og
mamma bls. 135.
Eru líkur á að Jón hafi verið með
stærsta skipið, þ.a.l. tekur hann
stærstu stykkin í sinn bát en það voru
einmitt rimlakisturnar með gluggun-
um í er voru fyrirferðarmestu og
þyngstu hlutirnir.
Flutningar erfiðir í framkvæmd
Í bréfi 9. júlí 1857, rituðu af A. Khol
sýslumanni, sést að hann er að greina
frá að rýrnun timburs við geymslu í
Eyjum stafi einkum af miklu veðri er
gengið hafi yfir þar í febrúar sem hafi
bæði sundrað timbri og brotið, einnig
hafi töluvert efni farið í grindur ut-
anum járngluggana svo þeir væru
hæfir til flutnings. Þar sem aðal upp-
skipunarstaðurinn á kirkjuefninu
varð á Eiðinu, féll það í hlut Einars
Jóhannssonar í Þórisholti að afhenda
það til flutnings í landi. Eftir tæpt ár
er hann að gera grein fyrir því sem
undir hans umsjá er með bréfi 1. maí
1858 en þar segir: „allmargt af borð-
um er hér og hvar í Reynissókn og
veit ég ógjörla um það sem ég var bú-
inn að afhenda af kirkjuefni því sem
var flutt upp að Hvoli 10 gluggar í
grindum, 2 tjörukaggar 1 saumkista,
borð.“ Þarna er endanlega staðfest að
kirkjugluggarnir hafa verið fluttir
ásamt öðru byggingarefni með jakt-
inni Mariu og þeim hafi verið skipað
upp á Hvoli, eins og Einar tekur sér-
staklega fram. Margt má ráða í sam-
bandi við flutning á kirkjuefninu og
helst að sjá að sóknarbændur væru
skyldugir að koma því öllu á bygging-
arstað.
Greinilegt er að flutningur á glugg-
unum er það sem talið er erfiðast að
framkvæma. Jón Jónsson, umboðs-
maður á Höfðabrekku, skrifar Árna
sýslumanni 16. ágúst 1858 og minnist
á flutningana á þessa leið: „Á næst-
liðnum lestum þegar ég fann stipt-
amtmann sagði hann mér vera sjálf-
sagða skyldu sóknarmanna að flytja
járngluggana og allt annað til kirkj-
unnar.“
Aftur og fram hafa menn velt þess-
um flutningum fyrir sér og sést að
alltaf eru það gluggarnir er valda
mestum höfuðverk til flutninga, sam-
anber eftirfarandi bréf J.D. Trampe
til sýslumannsins í Skaftafellssýslu:
„Eftir að hafa ráðgast við timbur-
meistara Nilsen áhrærandi flutninga
á járnstólpum þeim og járngluggum
sem ætlaðir eru í Prestbakkakirkju
skal ég ekki draga að tjá yður eins og
ráð var fyrir gert. Ætlast til þess að
hlutir verði fyrst fluttir sjóleiðis aust-
ur fyrir Reynisfjall en að því búnu
vildu þér þóknanlega ráðgast við um-
boðsmann, hvort ekki muni hentug-
ast að sæta góðu akfæri í vetur til að
koma bæði stólpum og gluggum á
byggingarstaðinn. Annars telur Nil-
sen það ófært að bora naglana úr sem
halda saman samskeytum glugganna
ef það skyldi vera álitið hægara að
flytja þá þannig sundurtekna á hest-
um, heldur en heila á sleðum í góðu
færi.
Íslands stiptamtshúsinu 26. ágúst
1857.
J.D.Trampe.“
Í þessu bréfi kemur í ljós að hver
gluggi mun hafa verið steyptur í
tvennu lagi og síðan hnoðaður saman.
Jón Jónsson umboðsmaður greinir
sýslumanni Skaftafellssýslu frá því
að Eiríkur bóndi á Ketilsstöðum geri
tilboð með flutning á einum glugga til
Víkur. Ætlar hann að flytja hann á
kviktrjám á tveimur hestum með 4
menn til stuðnings. Átti það að kosta
6 ríkisdali. Ekki virðist þessu tilboði
hafa verið sinnt.
Í niðurlagi tilvitnunar minnar í
grein Björns Magnússonar sagði:
„Ellefti glugginn sem var miklu
minni en hinir var ætlaður á fram-
stafn kirkjunnar yfir dyrunum. Hann
er sá eini er austur komst og var sett-
ur á sinn stað.“ Þetta stenst fullkom-
lega þar sem hann er þar enn þann
dag í dag 2004 en hefur átt að snúa
svona miðað við tígla í hliðargluggum.
Það er ljóst af framansögðu að Ein-
ar Jóhannsson hefur séð til þess að
allt kirkjuefnið væri sett á nokkuð
örugga staði þar sem hann er sýni-
lega með umsjón á öllu hvað snertir
afhendingu þess. Talar hann um að
koma gluggunum er fóru upp við
Hvol þar heim. Á þessum árum
standa allir bæirnir á Hvoli fram á
Hvolshól sem er eina hæðin í Hvols-
landi (en er núna á sjávarkampinum).
Er hér greinilegt að hann hefur í
huga að koma gluggunum heimundir
bæjarhólinn, á öruggan stað frá sjó.
Gluggarnir á Hvoli
Á þessum árum eru 5 bændur á
Hvoli. Í handritum Eyjólfs Guð-
mundssonar á Hvoli má sjá að vegna
sjávarbrota og fjörusandsfoks er á
þessum tíma farið að huga að flutn-
ingi á bæjarhúsum og alveg um 1860
er fyrsti bærinn fluttur af Hvolshóln-
um. Er það Þorsteinn Magnússon er
það gerir fyrstur, á jörðinni Nyrsta-
Hvoli, eins og sú jörð var nefnd þá.
Flytur hann bæinn upp í Kvíaskák,
svonefnda Miðtungu. Einhvern tím-
ann í hans búskap er komið þar upp
þurrkhjalli nálægt bænum. Í stafna
hjallsins eru notaðir tveir af gluggum
þeim er áttu að fara í Prestbakka-
kirkju.
Síðan er enn á ný byrjað á flutningi
með íbúðarhús á þessari sömu jörð
1924 og fært sig töluverðan spöl ofar í
landið, byggt upp stórt og mikið
steinhús sem flutt var í 1926 og
bærinn síðan alltaf nefndur
Norður-Hvoll. Voru þá öll hús rifin á
gamla bæjarstæðinu, þar á meðal
hjallurinn og byggður upp að nýju
skammt norðan við hið nýbyggða
steinhús. Er þar komið hjallhúsið er
ég sá fyrst í skólagöngunni 1941.
Þarna er þá komin vissa um afdrif
tveggja glugganna af þeim 10 er skip-
að var upp á Hvoli úr jaktinni Mariu.
Skammt suðaustur af gömlu úti-
húsunum á Suður-Hvoli var lengi
eitthvert töluvert járnstykki. Eyjólf-
ur Högnason, er var lengi ráðsmaður
á þeim bæ, náði sér í smá járnbúta úr
því til að potta skeifur er hann var að
smíða undir. Mundu þeir það vel sem
börn og unglingar, bræðurnir Guð-
mundur og Sigurður Eyjólfssynir er
voru báðir fæddir á Suður-Hvoli og
ólust þar upp, síðar bændur á þeirri
jörð um áraraðir. Heyrðu þeir talað
um að þetta járn væri úr einum af
kirkjugluggunum er áttu að fara í
Prestbakkakirkju.
Er þá komin nokkur vitneskja um
þriðja gluggann en þá er alveg óljóst
hvar hinir 7 hafa verið látnir liggja án
þess að hafa nokkuð verið nýttir.
Enginn vafi leikur þó þar á að ein-
hvers staðar í námunda við Hvol
muni þeir vera í jörðinni. Efnið í þeim
er pottur, gott efni eftir glugganum
sem er á stafni Prestbakkakirkju að
dæma en hvort slíkt efni þolir saltan
sand eða moldarjarðveg er spurning
sem fæst ekki svarað nema þeir fynd-
ust en 147 ár eru frá því þeir komu
þar á land. Trúlega væri hægt að
finna þá með þar til gerðum málmleit-
artækjum þar sem um svona mikið
magn er að ræða og væri fróðlegt ef
einhverjir sem hefðu góð tök á slíkum
tækjum, tækju sig fram um að kanna
það.
Litla-Hvammi á þorra 2004.
Heimildir
Prentaðar heimildir: Dynskógar, 1. hefti,
Rvk, 1982. Eyjólfur Guðmundsson, Pabbi og
mamma, Mál og menning, 1944. Helgi
Bernódusson og Ágúst Karlsson – Saman-
tekt um Landakirkju: http://www.kirkju-
gardar.is/kgsi/bautast3/landakirkja.html
Gögn á Konunglega bókasafninu í Kaup-
mannahöfn:
Auglýsing 4. júlí 1855.
Skjöl á Þjóðskjalasafni Íslands:
Póstskipið Sölöven 21. júlí 1856.
Bréf A. Kohl sýslumanns 25. júlí 1856.
Gögn v/ flutnings efnis upp í Sandavarir
undir Eyjafjöllum.
Bréf Sighvatar Árnasonar hreppstjóra
17. júní 1857.
Bréf sýslumanns í Skaftafellssýslu 17.
maí 1857.
Farmskrá 18. júní 1857.
Kvittanir 3. júlí 1857.
Einar Jóhannsson til Á.G. sýslumanns
27. júní 1857.
Bréf A. Kohl 9. júlí 1857.
Bréf Jóns Jónssonar til Á.G. 16. ágúst
1858.
Bréf J.D. Trampe 26. ágúst 1857.
Gögn á Byggðasafninu að Skógum um
flutning Hvolabæja:
Eyjólfur Guðmundsson frá Hvoli.
Munnlegar heimildir:
Sigurður B. Gunnarsson, Litla-Hvammi.
Kristján Bjarnason, Norður- Hvoli.
Kristín Friðriksdóttir, Norður- Hvoli.
Bjarni Kristjánsson, Norður- Hvoli.
Jóhann Friðfinnsson, Vestmannaeyjum.
Sigmundur Andrésson, Vestmannaeyj-
um.
Guðmundur Eyjólfsson, Suður-Hvoli.
Sigurður Eyjólfsson, Suður-Hvoli.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Sigmundur Andrésson með járn-
gluggann úr Landakirkju.