Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 9 FRÉTTIR Laugavegi 53 sími 552 3737 opið virka daga 10-18 laugardaga 10-16 Hlýtt í kuldann Flísfóðraðar buxur Ullarpeysur • ullarnærföt Nú bjóðum við 20-30% afslátt af öllum vörum í nokkra daga Glæsibæ, s. 588 4848 Hallveigarstíg 1, s. 551 4944 Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Höfum kaupanda, sem búinn er að selja, að 4ra herbergja íbúð við Lauga- eða Hofteig. Góðar greiðslur í boði. Eignin má kosta frá 14-15 millj. og þarf að vera stærri en 100 fm. Ris og kjallaraíbúðir koma vel til greina. Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 533 4805. Lauga- eða Hofteigur AÐSTANDENDUR geðsjúkra stofnuðu í gærkvöldi hóp þar sem ætlunin er að reynslumeiri að- standendur geti að- stoðað þá sem reynsluminni eru við að takast á við geð- sjúkdóma nákominna vina og ættingja. Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir að mikilvægt sér að stofna sjálfshjálpar- hópa fyrir aðstand- endur fólks með geð- sjúkdóma, ekki síður en þá hópa sem nú eru starfandi fyrir geðsjúka á vegum Geðhjálpar. „Þörfin er gríðarlega mikil, ef við tökum bara saman hjálp- arbeiðnir sem berast inn hér til Geðhjálpar, sem eru á annað hundrað mánaðarlega í ýmsu formi, þá er stærsti hluti þeirra sem hingað leita með hjálparbeiðnir að- standendur,“ segir Sveinn. Hann segir flestar hjálparbeiðnir aðstandenda lúta að heilbrigðis- og fé- lagslegum þáttum. „Veitir ekkert af stuðningi“ „Þessu fólki veitir ekkert af stuðningi, t.d. frá stuðningshópum að- standenda. Þá er það fólk sem byggir á reynslu sem er að miðla af reynslu sinni til ann- arra til þess að upp- hefja fólk úr bágind- unum eins langt og það nær. Þetta er sjálfshjálp, þarna mætir fólk til þess að styðja við bakið hvað á öðru,“ segir Sveinn. Hann segir að- standendur sem upplifa geð- sjúkdóm einhvers nákomins græða mikið á því að ræða við fólk sem hefur gengið í gegnum þetta sama; sem þekkir leiðir til að takast á við þessa upplifun. Stofnuðu hóp að- standenda geðsjúkra Sveinn Magnússon HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt fertugan karlmann í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 121 milljón í sekt fyrir að standa hvorki skil á virðisauka- skatti né opinberum gjöldum sem dregin voru af starfsfólki fyrirtækis sem hann rak. Í fyrrahaust var hann dæmdur til að greiða rúmlega 30 milljóna sekt fyrir samskonar brot. Þetta eru mestu sektir sem dæmdar hafa verið hér á landi fyrir slík brot, 151 milljón. Dómurinn sem kveðinn var upp í síðustu viku var vegna undanskota á um 60,5 milljónum. Fram kemur að maðurinn hefur endurgreitt stærst- an hluta þeirra fjármuna eða um 52 milljónir. Embætti ríkislögreglu- stjóra ákærði manninn fyrir að standa embætti tollstjórans í Reykjavík ekki skil á virðisauka- skatti, sem innheimtur var í nafni einkahlutafélags hans, Brasserie Borgar, á árunum 1999 til 2001, sam- tals að fjárhæð rúmar 39,3 milljónir. Þá stóð hann ekki skil á staðgreiðslu skatta, sem haldið var eftir af laun- um starfsmanna félagsins á árunum árunum 2000 og 2001, samtals að fjárhæð 21,2 milljónir króna. Fram kemur í dómnum, að mað- urinn játaði brot sín greiðlega. Hann var í október í fyrra dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir samskonar brot og var þá gert að greiða 30,4 milljónir innan fjögurra vikna en vararefsing var 12 mánaða fangelsi. Brotin sem nú var dæmt fyrir voru framin fyrir upp- kvaðningu þess dóms og var dóm- urinn nú því hegningarauki. Í dómn- um segir að samkvæmt almennum hegningarlögum verði ekki dæmd þyngri vararefsing en 12 mánuðir og því yrði manninum ekki dæmd frek- ari vararefsing. Ingveldur Einarsdóttir kvað upp dóminn. Helgi Magnús Gunnarsson, fulltrúi ríkislögreglustjóra, sótti málið. Maðurinn hélt sjálfur uppi vörnum. Dæmdur til að greiða 151 milljón í sektir Endurgreiddi 52 milljónir FÉLAGIÐ Ísland-Palestína hefur sent utanríkisráðherra og ríkis- stjórn Íslands opið bréf, vegna framgangs Ísraelshers í flótta- mannabúðunum Jabaliya á Gaza- strönd, þar sem skorað er á utan- ríkisráðherra að bregðast við. „Félagið Ísland-Palestína vekur athygli utanríkisráðherra og rík- isstjórnar Íslands á hryllilegum fjöldamorðum Ísraelshers síðustu daga í flóttamannabúðunum Jabal- iya á Gazaströnd. Hátt á annað hundrað óbreyttra borgara hafa látið lífið og þar af meira en 30 börn. Félagið skorar á utanríkis- ráðherra að bregðast við þessum tíðindum þegar í stað fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóð- arinnar og gera Ísraelsstjórn ljóst að slíkt framferði verði ekki liðið. Félagið skorar jafnframt á rík- isstjórn Íslands að leggja fram fé til hjálparstarfs á herteknu svæð- unum.“ Brugðist verði við mannfalli á Gazaströnd Úrslitin úr enska boltanum beint í símann þinn Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.