Morgunblaðið - 31.10.2004, Side 2
2 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SJÓMENN SEMJA
Skrifað hefur verið undir nýjan
kjarasamning milli sjómanna og út-
vegsmanna. Samningurinn gildir til
maíloka árið 2008 og á þeim tíma
hækka kauptrygging og launaliðir
sjómanna og skipstjórnarmanna um
17,6%.
Aldarspegill Ólafs Jóhanns
Í nýrri skáldsögu Ólafs Jóhanns
Ólafssonar sem ber heitið Sakleys-
ingjarnir og kemur út í vikunni, not-
ar Ólafur Íslendinga og íslenzka at-
burði til sögunnar. Hann segir
söguna aldarspegil, þar sem hann
fjallar um þau efni, sem honum finn-
ast lýsa aldarandanum bezt, en tutt-
ugustu öldina segir hann hafa ein-
kennzt af andstæðum og rótleysi.
Nýtt hættumat
Bráðabirgðaniðurstöður hættu-
mats vegna eldgosa og hlaupa frá
Eyjafjallajökli og vesturhluta Mýr-
dalsjökuls voru kynntar íbúum í
Fljótshlíð og Landeyjum í gær.
Undanfarin ár hefur verið viðvar-
andi og vaxandi skjálftavirkni í suð-
vestanverðum Mýrdalsjökli.
Myndband frá bin Laden
Hryðjuverkastríðið er nú komið í
brennipunkt í bandarísku kosninga-
baráttunni eftir að sýnt var mynd-
band frá Osama bin Laden, leiðtoga
hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda.
Þar hótaði hann nýjum árásum ef
Bandaríkjamenn létu ekki araba í
friði. Hafa frambjóðendurnir, þeir
John Kerry og George W. Bush,
skipst á skotum um frammistöðuna í
hryðjuverkastríðinu en talið er, að
það sé engin tilviljun, að mynd-
bandið komi fram núna. Ekki er þó
ljóst hvaða áhrif það muni hafa í
kosningabaráttunni.
Buttiglione afþakkar
Rocco Buttiglione, sem Ítalíu-
stjórn hafði tilnefnt til að fara með
dómsmál í framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins, ákvað í gær að
draga sig til baka. Hafði meirihluti
þingmanna á Evrópuþinginu hafnað
honum vegna afturhaldssamra skoð-
ana í trú- og samfélagsmálum.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Dagbók 44
Forystugrein 28 Víkverji 44
Sjónspegill 30 Velvakandi 45
Umræðan 32/37 Staður og stund 46
Bréf 37 Menning 47/53
Hugvekja 38 Ljósvakamiðlar 54
Auðlesið 39 Veður 55
Minningar 40/42 Staksteinar 55
* * *
Kynning – Blaðinu í dag fylgir auglýs-
ingablaðið Blindrasýn.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
Á ÁRSFUNDI Hafnasambands
sveitarfélaga kom fram að áætla
mætti að hafnir, sem þjónustað hafa
strandflutningaskip Eimskips, yrðu
fyrir samtals rúmlega 77 milljóna
króna tekjutapi á ári þegar siglingar
þess legðust niður. Gísli Gíslason,
bæjarstjóri á Akranesi, var kosinn
formaður Hafnasambands sveitarfé-
laga á ársfundi sambandsins. Hann
kemur í stað Árna Þórs Sigurðsson-
ar borgarfulltrúa í Reykjavík, sem
gegnt hefur því starfi í nokkur ár.
Á fundinum var lögð fram skýrsla
um strandflutninga, en hún var unn-
in í kjölfar ákvörðunar Eimskips um
að hætta strandflutningum. Niður-
staða skýrslunnar er að akstur
þungra bíla á vegakerfinu muni
aukast um ca 3 milljónir kílómetra á
ári eða u.þ.b. 2%. Flutningar Eim-
skips innanlands muni dragist sam-
an um 30 þús. tonn, eða 20% af því
sem Mánafoss flutti áður, þegar Kís-
iliðjan í Mývatnssveit hættir starf-
semi.
Gera megi ráð fyrir að slysum (þá
er átt við eignatjón og slys á fólki) á
vegum fjölgi um 10 á ári að með-
altali. Að mati skýrsluhöfunda eykst
losun CO2 um 5.400 tonn á ári vegna
aukins aksturs Eimskips en á móti
minnkar losun CO2 vegna niðurlagn-
ingar strandflutningaskipsins Mána-
foss um 9.500 tonn á ári þannig að
heildarlosun minnkar um tæplega
57% vegna þessara breytinga.
Kostnaður Vegagerðarinnar við við-
hald og endurnýjun vega mun
aukast að meðaltali um a.m.k. 100
m.kr. á ári en á móti má reikna með
að tekjur hennar af þungaskatti
vegna viðbótaraksturs aukist um 80–
120 m.kr. á ári.
Vannýting fjárfestinga
200–300 milljónir
Áætlað tekjutap viðkomuhafna
strandflutningaskipsins að útflutn-
ingshöfnum undanskildum er sam-
tals rúmlega 77 m.kr. á ári en tekju-
skerðingin mun að verulegu leyti
koma beint niður á afkomu hafnanna
þar sem kostnaður er að mestu fast-
ur. Gert er ráð fyrir að nýting hafn-
arbakka sem Mánafoss notar í við-
komuhöfn verði á bilinu 12–18%
lakari eftir breytingar. Vannýtt fjár-
festing í höfnum gæti numið 200–300
m.kr. eftir breytingar.
Á fundinum var samþykkt ályktun
þar sem tekið er undir tillögu sam-
gönguráðuneytis og umhverfisráðu-
neytis sem lögð var fyrir ríkisstjórn í
september síðastliðnum, að skipuð
verði nefnd undir forystu samgöngu-
ráðuneytis, með þátttöku fjármála-
ráðuneytis og umhverfisráðuneytis,
sem verði falið að kanna framtíð
strandflutninga og móta framtíðar-
stefnu stjórnvalda.
Fundurinn benti í ályktun á að af-
koma hafna landsins væri óviðun-
andi og full ástæða til þess að brýna
stjórnendur hafna landsins til að
vinna í anda nýrra hafnalaga, þ.e. að
hafnir skuli með gjaldskrársetningu
sinni taka mið af tilkostnaði, s.s.
byggingu, rekstri og viðhaldi hafna,
þannig að hafnir geti skilað jákvæðri
afkomu eftir afskriftir og orðið sjálf-
bærar og sjálfstæðar rekstrarein-
ingar.
Þá var á ársfundi Hafnarsam-
bands sveitarfélaga bent á að það
hafi reynst hafa jákvæðar afleiðing-
ar að loka hafnarsvæðum þar sem
það skapi öryggi og vinnufrið.
Tekjutap hafna þegar strand-
flutningar stöðvast 77 millj.
LÖGREGLAN í Reykjavík veitti
tveimur mönnum eftirför rétt eftir
miðnætti í fyrrinótt eftir að sést
hafði til þeirra brjótast inn í raf-
tækjaverslun í austurborginnni, en
þar höfðu þeir stolið m.a. átta skjá-
vörpum. Mennirnir lögðu á flótta á
stolinni bifreið þegar lögreglan
hugðist stöðva þá. Þjófarnir enduðu
flótta sinn á því að aka stolnu bifreið-
inni inn í garð í Smáíbúðahverfinu
við Fossvog í Reykjavík, en við það
skemmdist bíllinn talsvert.
Eftir það tóku þjófarnir til fótanna
en lögreglan náði að hlaupa þá uppi.
Engan sakaði á flóttanum sem stóð í
skamman tíma. Að sögn lögreglunn-
ar í Reykjavík eru mennirnir tveir
góðkunningjar lögreglunnar, en báð-
ir eru þeir undir tvítugu. Báðir
mennirnir gistu fangageymslur í
fyrrinótt og voru yfirheyrðir í gær.
Ljósmynd/Ólafur B. Kristjánsson
Þjófarnir óku stolnu bifreiðinni inn í garð.
Innbrotsþjófar lögðu
á flótta á stolnum bíl
FORRITUNARKEPPNI fram-
haldsskólanna fór fram um
helgina, en keppnin er haldin ár-
lega á vegum Háskólans í Reykja-
vík. Í ár eru þátttakendur um 70
talsins, en mikill metnaður er á
meðal framhaldsskólanema í
tengslum við keppnina og flestir
skólanna senda lið til þátttöku.
Keppnin hófst í gærmorgun og
stóð allan daginn. Dómnefnd skip-
uðu sérfræðingar við tölv-
unarfræðideild HR. Var keppnin
tvískipt. Fyrir hádegi áttu liðin að
leysa nokkur tiltölulega einföld
forritunardæmi. Dæmin áttu að
prófa hvort liðin réðu við grunn-
atriði forritunar þ.e. nota breytur,
segðir, lykkjur, föll o.s.frv. Eftir
hádegi fengu liðin svo að velja úr
nokkrum flóknari forritunarverk-
efnum á borð við þróun gagna-
grunna eða einfaldra leikja.
Samhliða forritunarkeppninni
fór fram samkeppni um merki
keppninnar fyrir næsta ár. Alls
bárust 19 tillögur í keppnina í ár.
Morgunblaðið/Golli
Bjuggu til segðir og lykkjur
LÖGREGLAN í Reykjavík gerði
upptækt þýfi og fíkniefni í heimahúsi
í austurborginni í fyrrakvöld. Sjö
manns voru handteknir, bæði karlar
og konur. Að sögn lögreglunnar
höfðu allir hinna handteknu komið
við sögu lögreglunnar áður. Fólkið
gisti í fangageymslum í fyrrinótt og
var yfirheyrt í gær.
Þýfi og
fíkniefni
gerð upptæk
BÍLVELTA varð í Breiðadal í Ön-
undarfirði laust eftir miðnætti í fyrri-
nótt, samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Ísafirði. Ökumaður og
farþegi komu sjálfir á lögreglustöðina
á Ísafirði eftir óhappið. Fólkið var
nokkuð lemstrað og skorið. Hafði það
fengið vini sína til þess að sækja sig
og flytja sig til bæjarins, en það var
flutt á sjúkrahús til skoðunar. Bíllinn
er töluvert mikið skemmdur.
♦♦♦
Bílvelta í
Önundarfirði