Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Katla Nielsen Ei-ríksdóttir fædd-
ist í Reykjavík hinn
19. júní 1949. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi hinn 7.
október síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Grethe Níelsen,
f. 28. 11. 1915, d. 7.2.
1989, og Eiríkur
Marínó Bergsson, f.
15.10. 1919, d. 20.11.
1990. Katla átti einn
bróður, Þór Níelsen,
f. 26.5. 1941, kvæntur
Bjarneyju Guðmundsdóttur, f. 3.5.
1945. Börn þeirra eru 1) Gísli Þór
Guðmundsson, f. 29.12. 1962. 2)
Sigurður Þór Þórsson, f. 20.3.
1964. 3) Birgir Níelsen, f. 11.2.
1974. 4) Gretar Níelsen, f. 14.4.
1981.
Katla átti einnig eina hálfsyst-
ur, Guðríði Halldórsdóttur, f.
31.5. 1950, gift Vil-
hjálmi Arngríms-
syni, f. 30.10. 1947.
Hinn 17. október
1970 giftist Katla
Agli S. Kristjáns-
syni, f. 22.12. 1947,
d. 19.12. 1983 og áttu
þau saman tvær dæt-
ur. Þær eru: 1)Greta
Björg Egilsdóttir, f.
6.1. 1975, maki
Reynir Þór Guð-
mundsson, f. 13.10.
1973, börn: Viktoría
Sól Reynisdóttir, f.
31.8. 2000, og Egill
Andri Reynisson, f. 8.7. 2003. 2)
Olga Perla Egilsdóttir, f. 12.4.
1978, maki Einar Ásgeirsson, f.
23.5. 1967, barn: Arnaldur Ásgeir
Einarsson, f. 14.1. 2004. Einnig
átti Katla dótturina Líf Önnu Níel-
sen Harðardóttur, f. 20.5. 1988.
Útför Kötlu var gerð frá Foss-
vogskapellu 14. október.
Elsku mamma, ég trúi því varla
ennþá að þú sért farin.Við fengum
svo stuttan tíma eftir að sjúkdóm-
urinn greindist. Þú sem varst búin að
vera svo dugleg í veikindum þínum.
Þú sagðir alltaf að þetta yrði allt í
lagi og kannski fyrst núna átta ég
mig á því að í rauninni gat það átt við
á hvorn veginn sem færi. Þú gerðir
allt til þess að stappa í okkur stálinu
og fá okkur til þess að vera sterkar,
þú vissir örugglega meira um gang
mála en þú lést uppi. En alltaf sýnd-
irðu þvílíkan baráttuvilja. Ég er svo
stolt af þér, elsku mamma, hvernig
þú fórst í gegnum þetta og hélst
samt alltaf þínu bjarta brosi og hlýja
hjarta. Ó, hvað ég á eftir að sakna
þín mikið, spjallanna okkar, búða-
ferðanna og tímanna sem ég og
börnin mín dúlluðum okkur bara
heima hjá þér heilu dagana. Þú spil-
aðir stórt hlutverk hjá öllum í fjöl-
skyldunni og margs er að sakna. Ég
veit að hún litla Viktoría Sól (ömmu-
stelpan) á eftir að sakna sárt stund-
anna ykkar, þar sem þið horfðuð á
sjónvarpið, hún bar krem á ömmu og
amma nuddaði á henni tærnar. Það
var nú ekki svo sjaldan sem hún til-
kynnti mömmu sinni að hún ætlaði
sko að sofa hjá ömmu Kötlu í nótt.
Því miður fékk hann litli Egill
Andri ekki að njóta svo margra
góðra stunda með þér en þegar hann
stækkar fær hann eflaust að heyra
margar ömmusögur.
Já, þetta verður erfitt og stórt
rúm að fylla. Þú varst alltaf fyrst til
þess að hlaupa undir bagga með okk-
ur systrunum og hjálpa til á allan
þann hátt sem þú gast. Alltaf gat ég
leitað til þín og við vorum bestu vin-
konur. Svo oft sagðir þú mér frá því
hvað þú værir stolt af okkur, fjöl-
skyldunum sem við höfðum eignast
og hvað við værum duglegar. Mikið
var gaman þegar við hittumst alltaf
öll saman og elduðum og hlógum.
Elsku mamma, ég veit að þér líður
miklu betur núna þar sem þú ert og
ef til vill hefurðu fundið pabba aftur.
En í hjarta mínu áttu alltaf vísan
stað og minning þín lifir með okkur.
Bless, elsku mamma mín, þín
verður sárt saknað.
Þín dóttir,
Greta.
KATLA NIELSEN
EIRÍKSDÓTTIR
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
www.mosaik.is
LEGSTEINAR
sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Vönduð og persónuleg þjónusta
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR K.J. BJARNASON,
Snorrabraut 65,
Reykjavík.
Laufey H. Bjarnason,
Ágúst H. Bjarnason, Sólveig Sveinsdóttir,
Björg H. Bjarnason, Sveinn Guðjónsson,
Jón Hákon Bjarnason, Dagrún Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langa-
langafa,
ÍSAKS SIGURGEIRSSONAR,
Hvammi,
Dvalarheimili aldraðra,
Húsavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalar-
heimilisins.
Kristrún Ísaksdóttir, Erlendur S. Baldursson,
Sigurbjörg Ísaksdóttir, Sigurbjörn Finnbogason,
Tryggvi Ísaksson, Hrefna M. Magnúsdóttir,
Sigurgeir Ísaksson, Sveininna Jónsdóttir,
Sigvaldi Gunnarsson, Lilja Jónasdóttir,
afabörn, langafabörn
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÁRNI BJÖRNSSON
læknir,
Blátúni 4,
Álftanesi,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mið-
vikudaginn 3. nóvember kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Mannvernd, reiknnr. 0101-26-3199.
Guðný Theódórsdóttir Bjarnar,
Vilborg Sigríður Árnadóttir,
Kristín Árnadóttir, Ásgeir Þór Ólafsson,
Björn Theódór Árnason, Sigurlín Einarsdóttir Scheving,
Einar Sveinn Árnason, Margrét Þorvarðardóttir,
Árni Árnason,
Vilhjálmur Jens Árnason, Hanna Birna Kristjánsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN BJÖRN GUÐMUNDSSON
frá Ísafirði,
áður Grandavegi 47,
Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum sunnudaginn 24. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur G. Kristjánsson, Svanborg Eyþórsdóttir,
Sigurbjörn E. Kristjánsson, Erla Kjartansdóttir,
Rolf K.T. Kristjánsson,
Ellý A. Kristjánsdóttir,
Kristjana J. Kristjánsdóttir, Snorri Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðurbróðir okkar,
ROLF KUTSCHER,
Hamborg,
áður til heimilis á Ísafirði,
lést í Hamborg í apríl sl.
Jarðarförin hefur farið fram.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur G. Kristjánsson,
Sigurbjörn E. Kristjánsson,
Rolf K.T. Kristjánsson,
Ellý A. Kristjánsdóttir,
Kristjana J. Kristjánsdóttir.