Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 49 MENNING RÖÐ tónleika og málþing undir yfirskriftinni Ný endurreisn hefur göngu sína á morgun. Það eru Caput og Vox academica sem standa að röð- inni, en tónleikar hennar snúast að nokkru leyti um gömul gildi í nýrri tónlist, að sögn Kolbeins Bjarnasonar, framkvæmdastjóra Caputs. „Okk- ur langar til að velta fyrir okkur ákveðnum spurningum á nokkrum tónleikum: Er eitthvað raunverulega nýtt í nýju tónlistinni? Er hægt að vera íhaldssamt tónskáld á tímum þegar mesta framúrstefnan er oftast talin gamaldags? Er saga vestrænnar tónlistar liðin undir lok? Er tíminn stopp?“ Til heiðurs Hauki Alls verða fernir tónleikar haldnir í röðinni og eitt málþing þar sem fjallað verður um stöðu tónlistar. Þeir fyrstu verða annað kvöld kl. 20 í Listasafni Íslands, en þá verða haldnir hátíða- tónleikar í tilefni þess að Haukur Tómasson tekur á móti Tónlistarverðlaunum Norður- landaráðs í Stokkhólmi daginn eftir. Á tónleik- unum verða fluttir Guðrúnarsöngvar eftir Hauk Tómasson og þrjú verk eftir danska tónskáldið Hans Abrahamsen sem sjálfur verður viðstadd- ur tónleikana. „Abrahamsen vakti ungur mikla athygli með frumlegum tónsmíðum,“ segir Kol- beinn. „Síðan hætti hann alveg að semja í ára- tug, og er nokkuð nýbyrjaður aftur. Eitt af fyrstu verkum hans eftir að hann hóf aftur að semja er píanókonsertinn sem við flytjum í Listasafninu.“ Einleikari í píanókonsertinum er Anne-Marie Abildskov, kona Abrahamsen og er verkið skrif- að fyrir hana. Stjórnandi á tónleikunum er hinn bandaríski Joel Sachs. „Sachs hefur lengi vel fylgst með Hans Abrahamsen og þekkir mjög vel til norrænnar tónlistar. Hann er til dæmis nýbúinn að stjórna flutningi á verki eftir Hauk Tómasson með New Juilliard Ensemble í New York og hann stjórnaði píanókonsert Abraham- sen í september 2001 í New York.“ Tónleikarnir í Listasafninu annað kvöld höfðu verið ákveðnir áður en í ljós kom að Haukur hefði hlotið Tónlistarverðlaun Norður- landaráðs fyrir Fjórða söng Guðrúnar. Þegar það kom í ljós var ákveðið að heiðra hann með flutningi Guðrúnarsöngvanna, sem byggðir eru á Fjórða söng Guðrúnar, enda hæg heimatökin fyrir Caput, þar sem hópurinn tók upp geisla- disk með verkinu árið 1998. „Haukur hefur sett saman þrjár aríur Guðrúnar og tvö stór hljóm- sveitarmillispil í eitt verk, sem hann kallar Guð- rúnarsöngva. Þetta er innsti kjarni verksins – bara Guðrún sem elskar, þjáist og hatar! Tón- listin nær mjög vel fram þeim töfrum slungna hryllingi sem birtist í hinum fornu Guðrúnar- kviðum.“ Einsöngvari á tónleikunum er Ingibjörg Guð- jónsdóttir og segir Kolbeinn hana henta afar vel í hlutverk Guðrúnar. „Ingibjörg er bara Guð- rún. Raddlega passar hún algjörlega í hlutverk- ið, en síðan skiptir líka máli að konan sem syngi hana sé ekki of ung. Hún verður að hafa lifað ýmislegt til að vera sannfærandi sem Guðrún.“ Málþing um stöðu tónlistar Málþing „um stöðu tónlistarinnar á jörðinni á vorum dögum“, verður haldið í Borgarleikhús- inu þann 13. nóvember kl. 15.15. Þar munu val- inkunnir einstaklingar fjalla um ýmis mál tengd tónlistarlífi nútímans. „Landslagið í tónlistinni hefur breyst mjög mikið á síðustu 15-20 árum,“ segir Kolbeinn. „Þegar Caput var að byrja árið 1987 var tónlistarlífið meira í afmörkuðum skúffum. Núna er eins og einhver hafi dregið þær allar út og sturtað úr þeim á gólfið! Mál- þingið er ætlað til að rökræða og rífast og tala spekingslega um hvað er að gerast í músík í byrjun 21. aldarinnar, hvað á að gerast og hvað við viljum alls ekki að gerist.“ Miðvikudaginn 3. nóvember verða tónleikar í röðinni þar sem verk Jóhanns Jóhannssonar, Virðulegu forsetar, verður flutt af brassleik- urum Caput, höfundinum sjálfum og fleiri hljóð- færaleikurum undir stjórn Guðna Franzsonar. Þann sama dag kemur samnefnd plata út. Þá flytur Rómeó og Júlíu-kórinn frá Dramaten- leikhúsinu í Stokkhólmi endurreisnarmadrigala á 15.15 tónleikum í Borgarleikhúsinu laug- ardaginn 6. nóvember. Síðustu tónleikarnir í röðinni verða síðan 20. nóvember í Neskirkju. Þá munu Vox Academica ásamt Caput flytja ný verk eftir Úlfar Inga Haraldsson, Báru Grímsdóttur og Hilmar Örn Hilmarsson undir stjórn Hákonar Leifssonar. Tónlist | Tónleikaröðin Ný endurreisn Joel Sachs Haukur Tómasson Kolbeinn Bjarnason Ingibjörg Guðjónsdóttir Anne-Marie Abildskov Hans Abrahamsen Horft til baka í tíma ÓRATÓRÍAN Elía eftir Mendels- sohn verður sett upp í Graf- arvogskirkju í dag kl. 16. Ástæð- an er sú að Óperukórinn í Reykjavík og Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði halda á mánudag til Bandaríkjanna til að taka þátt í flutningi á óratóríunni í hinum virta tónleikasal Carnegie Hall í New York hinn 7. nóvember ásamt Garðari Cortes, sem stjórn- ar uppfærslunni. Af þessu tilefni munu ferðalangarnir ásamt fé- lögum í Sinfóníuhljómsveit Ís- lands flytja verkið í Grafarvogs- kirkju og verða einsöngvarar í verkinu þau Bergþór Pálsson í hlutverki Elía, Snorri Wium, Hulda Björk Garðarsdóttir og Al- ina Dubik. Að sögn Garðars er hugur í tón- listarfólkinu sem senn heldur ut- an. „Undirbúningurinn fyrir ferðalagið hefur staðið í allt haust og verið unnið hörðum höndum,“ segir hann. Nær 120 íslenskir kór- félagar fara í ferðalagið og taka því þátt í tónleikunum í Graf- arvogskirkju. Uppselt er á tón- leikana, og voru 1.084 sæti seld. „Mér skilst reyndar að það sé líka að verða uppselt á tónleikana í New York, þar sem 2.800 sæti eru í salnum,“ segir Garðar, „enda eru þetta upphafstónleikar vetr- arins í Carnegie Hall.“ Hann segist sannfærður um að tónleikarnir ytra muni takast vel. „Kórarnir sem taka þátt eru vel undirbúnir, og síðan hef ég auð- vitað mitt fólk, sem ég þekki vel. Það er mikill styrkur fyrir mig að hafa þau með mér, og ég hlakka mikið til fararinnar.“ Morgunblaðið/RAX Tónlist | Elía flutt í Grafarvogskirkju Upptakturinn að Carnegie Hall Garðar Cortes stjórnar fjölmennum flutningi á óratóríunni Elía eftir Felix Mendelssohn í Grafarvogskirkju í dag. Tónleikarnir hefjast kl. 16.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.