Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Háskóli Íslands útskrifaði á dögunumGísla Pál Pálsson, fyrsta meist-aranemann í heilsuhagfræði, enheilsuhagfræði er grein innan hag-
fræðinnar sem rannsakar fjárhag og hagfræði
heilbrigðiskerfa. Meistaraverkefni Gísla Páls var
rannsókn á þjóðhagslegum áhrifum þess að sjúk-
lingar þurfi að bíða eftir gervimjaðmarliðum.
Segir Gísli ljóst að biðlistar skaði samfélagið
fjárhagslega fyrst og fremst á tvennan hátt.
„Meðan einstaklingur er á biðlista er hann í
mörgum tilvikum óvinnufær og samfélagið tapar
þar af leiðandi vinnuframlagi viðkomandi og
þjóðarframleiðslan minnkar,“ segir Gísli. „Þetta
er auðvitað ekki algilt og í mörgum tilvikum get-
ur einstaklingur á biðlista unnið a.m.k. hluta
sinnar vinnu. Hitt atriðið sem ég kemst að í rit-
gerðinni er að ef aldraður einstaklingur er of
lengi á biðlista eftir gerviliðaaðgerð í mjöðm get-
ur slíkt leitt til ótímabærrar innlagnar viðkom-
andi á hjúkrunarheimili.“
Gísli segir versnun sjúkdómsins á endanum
leiða til bjargarleysis og þörfin fyrir hjúkr-
unarrými verði því meiri en ella með tilheyrandi
kostnaðarauka fyrir heilbrigðiskerfið.
En hvað er þá til ráða?
„Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Eins
og kemur fram í ritgerðinni eru afköst LSH að
aukast og biðlistar hafa styst. Passa verður upp
á að fjármagn verði ekki skorið niður á þessum
vettvangi því þá koma ofangreind tvö tilvik fram
og þjóðfélagslegur kostnaður eykst.“
Hvaða spennandi rannsóknarverkefni sérðu
framundan innan fræðigreinarinnar?
„Af nógu er að taka. Í mörgum tilvikum er
hægt að yfirfæra erlendar rannsóknir yfir á ís-
lenskar aðstæður og sjá hvort aðstæður hér séu
að einhverju leyti frábrugðnar.
Þá er rannsókn eins og sú sem ég gerði mik-
ilvæg fyrir stjórnendur LSH og íslenska heil-
brigðiskerfisins til þess að sjá kostnaðarhag-
kvæmni einstakra læknisaðgerða. Á næstu árum
kemur til með að fara fram umræða um for-
gangsröðun og kostnaðarhagkvæmni þar sem
nýjungar í læknavísindum eru margar hverjar
afar kostnaðarsamar. Við komum til með að
þurfa að svara mjög viðkvæmum og erfiðum
spurningum eins og hverja skuli lækna og hverj-
um verði einungis veitt líknandi meðferð. Á að
veita fjármagni til þess að lækna ung börn sem
eiga framtíðina fyrir sér eða til eldra fólks sem
hefur greitt skatta og skyldur alla tíð? Þetta eru
siðferðislegar spurningar sem við komumst ekki
hjá að svara. Ein leið gæti þó verið sú að auka
sífellt fjárframlag til heilbrigðisþjónustunnar
þannig að það sé hægt að gera allt fyrir alla. Þá
mun skattbyrði einstaklinga aukast og um það
þarf að ríkja sátt, sem ég er ekki viss um að sé
fyrir hendi.
Þá er afar áhugavert að meta kostnað þeirra
einstaklinga sem eru á biðlistum eftir lækn-
isaðgerðum, en slíkt mat kostar töluverða
vinnu.“
Heilbrigðismál | Fyrsti heilsuhagfræðingurinn útskrifast frá Háskóla Íslands
Gísli Páll Pálsson
fæddist í Reykjavík árið
1966. Hann útskrif-
aðist frá MR 1985,
hlaut cand. oecon
gráðu í viðskiptafræði
frá HÍ 1990 og loks með
meistaragráðu í heilsu-
hagfræði frá HÍ nú í
október. Gísli hefur
starfað sem fram-
kvæmdastjóri Dval-
arheimilisins Áss í Hveragerði síðan 1990.
Hann var einnig forseti bæjarstjórnar Hvera-
gerðis um tíma.
Gísli er kvæntur Huldu Gísladóttur og eiga þau
þrjú börn.
Bið eftir aðgerð getur reynst dýrkeypt
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú lætur gamminn geisa, ferð í stutt
ferðalög, verslar, kaupir og selur og læt-
ur móðan mása við nágranna og systkini.
Skemmtu þér vel.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú virðist upptekinn af eignum þínum og
fjármálum í dag, kæra naut. Farðu í
bankann og gakktu frá þínum málum.
Græddur er geymdur eyrir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Njóttu helgarinnar, tunglið er í þínu
merki. Þú færð óskir þínar uppfylltar í
dag og berð mest úr býtum þar sem þú
lætur til þín taka. Þú ert númer eitt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Leyndarmál og dularfull fyrirbæri valda
þér heilabrotum. Þú ert til í að sletta úr
klaufunum, en vilt jafnframt vera í ein-
rúmi. Kannski felur þú þig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert algerlega á kafi í málefnum sem
tengjast heimili, fjölskyldu og vinum. Þú
nýtur þín í félagsskap barna og barna-
barna ef það á við.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert í brennidepli í dag, því tunglið er
ráðandi í kortinu þínu. Klæddu þig upp
og heillaðu vini og vandamenn upp úr
skónum. Kannski þekkja þeir þig ekki.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þig þyrstir í ævintýri í dag. Þú vilt
breyta til. Kannski er það ástæðan fyrir
því að þú setur upp grímu og reynir að
villa á þér heimildir. En gaman.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Veistu að Allraheilagramessa er í raun
viðburður að hætti drekans? Fólk felur
sig og veldur skelfingu. Beinagrindur
láta á sér kræla og líka draugar og blóð-
sugur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Tunglið er andspænis þínu merki í dag.
Það þýðir að þú þarf að sýna meiri sam-
vinnuvilja en ella. Þú nýtur þess til fulln-
ustu, enda samkvæmisljón í þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fólk bregður á leik og sprellar en þig
langar mest til þess að fara í apótek og
kaupa sápu, sjampó og sitthvað smálegt.
Allt í lagi með það, svo sem.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er ekki laust við að þig þyrsti í að
bregða á leik. Vonandi er þér boðið til
veislu þar sem þú nærð að daðra við ann-
an hvern mann og konu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Foreldrar beina athyglinni að börnum
sínum í dag. Gættu þess að þau fari sér
ekki að voða og mátaðu búninga þeim til
skemmtunar.
Stjörnuspá
Frances Drake
Sporðdreki
Afmælisbarn dagsins:
Ekkert fer framhjá þér, því þú hefur
mikla athyglisgáfu. Þú hefur hæfileika
leynilögreglumanneskju og nýtur þess að
vera skrefi á undan öðrum. Einbeiting
þín er með ólíkindum og hugsunin er
skipulögð. Þú gefst ekki upp og eflist þegar
á móti blæs.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 útdráttur, 4
bangsi, 7 stífla, 8 hugleys-
ingja, 9 blóm, 11 skylda,
13 hagnaðar, 14 þreytuna,
15 sæti, 17 hornmyndun,
20 duft, 22 snúningsás, 23
fiskar, 24 viðfelldin, 25
munnbita.
Lóðrétt | 1 spilið, 2 nið-
urgangurinn, 3 blæs, 4
hýðis, 5 bárur, 6 bola, 10
hugaða, 12 bors, 13 elska,
15 hungruð, 16 ræsi, 18
sterk, 19 námu, 20 högg,
21 borgaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 kærulaust, 8 lýkur, 9 aldin, 10 ann, 11 kúrir, 13
neita, 15 skens, 18 snart, 21 kút, 22 togna, 23 úrinn, 24
karlmaður.
Lóðrétt | 2 æskir, 3 urrar, 4 apann, 5 suddi, 6 flak, 7 enda,
12 inn, 14 ein, 15 sótt, 16 eigra, 17 skafl, 18 stúta, 19 atinu,
20 týna.
Tónlist
Grafarvogskirkja | Óperukórinn í Reykjavík
og Karlakórinn Þrestir halda tónleika kl. 16 í
Grafarvogskirkju ásamt félögum úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og einsöngvurum. Flutt
verður óratorían Elía eftir Mendelsohn.
Salurinn | Tíbrá: Píanótónleikar Barry
Snyder. Á efnisskránni eru Fantasía í C-dúr
eftir Haydn, Valses nobles et sentimentales
eftir Ravel, Etudes tableaux eftir Rachm-
aninoff, Fantasy-Inventions eftir Carter
Pann og Sonata No. 3 í f-moll eftir Jo-
hannes Brahms.
Myndlist
Hafnarborg | Franska listakonan Valerie
Boyce verður með leiðsögn um málverka-
sýningu sína í Hafnarborg. Á sýningunni eru
landslagsmálverk sem Valerie hefur málað í
Frakklandi og á Íslandi. Leiðsögnin verður á
ensku kl. 14 og frönsku kl. 15.
Skemmtanir
Hitt húsið | Nú fer Unglist, listahátíð ungs
fólks, alveg að bresta á. Það verður rokk,
dans, tíska og fleira fjör í Tjarnarbíói frá
5.11.–13.11. og auðvitað allt ókeypis.
www.unglist.is.
Mannfagnaður
SONI | Soni, Samtök nýrra Íslendinga, býð-
ur öllum börnum til að fagna hrekkjavöku,
kl. 15 á efstu hæð í Alþjóðahúsinu, Hverf-
isgötu 18.
Fyrirlestrar
ADHD samtökin | ADHD samtökin halda
fyrirlestur í Safnaðarheimili Háteigskirkju,
2. nóv. kl. 20. Fyrirlesari er Grétar Sig-
urbergsson geðlæknir. Fjallar hann um full-
orðna með athyglisbrest með/án ofvirkni
(ADHD). Allir velkomnir og aðgangur ókeyp-
is. (Ath. gengið er inn baka til við
Háteigskirkju).
Námskeið
Mímir – símenntun ehf | Námskeið um Sýr-
land og Líbanon með Jóhönnu Kristjóns-
dóttur á vegum Mímis – símenntunar verð-
ur 4. nóvember kl. 19.45–22. Rætt er um
sögu landanna tveggja, borgarastyrjöldina í
Líbanon og valdatíma Assadfeðganna. Flutt
verður tónlist og sýndar ljósmyndir og víd-
eómyndir og kynning á ferðamannastöðum.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bridge frjáls spilamennska
alla daga, heitt á könnunni, allir velkomnir.
Kl. 9–16:45.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Félag eldri
borgara í Kópavogi, Skrifstofan er opin á
morgun, máudag kl. 10 til kl. 11.30. Fé-
lagsvist spiluð í Gullsmára á mogun, mánu-
dag kl. 20.30.
Félag eldri borgara Reykjavík | Dansleikur
sunnudagskvöld kl. 20, Caprí-tríó leikur fyr-
ir dansi.
Félagsstarf Gerðubergs | Hvern virkan dag
opið fólki á öllum aldri kl. 9–16.30, fjölbreytt
vetrardagskrá. Upplýsingar á staðnum, sími
575 7720 og www.gerduberg.is.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið í Hæð-
argarði er opið öllum. Fundur í Bókmennta-
klúbbi er miðvikudaginn 3. nóv. kl. 20. Verið
er að lesa Híbýli vindanna eftir Böðvar Guð-
mundsson. Skráningu á leiksýninguna Edith
Piaf í Þjóðleikhúsinu er að ljúka. Föstudag-
inn 5. nóvember 12 koma gestir frá Þjóðleik-
húsinu. Kl. 9–16.
Vesturgata 7 | Boðið verður upp á fyr-
irlestur um skyndihjálp á vegum Rauða
kross Íslands þriðjudaginn 2. nóvember kl.
13.30. Fyrirlesari Herdís Storgaard hjúkr-
unarfræðingur, kaffiveitingar. Fimmtudag-
inn 4. nóvember kl. 10.30 verður helgistund
í umsjá séra Jakobs Ágústs Hjálmarssonar
dómkirkjuprests. Kór félagsstarfs aldraðra
syngur undir stjórn Sigurbjargar Hólm-
grímsdóttur.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Annað myndakvöld
vetrarins verður haldið mánudaginn 1. nóv-
ember kl. 20 í í Húnabúð, Skeifunni 11. Mar-
rit Meintema sýnir myndir sem hún tók á
ferðum sínum yfir Sprengisand og yfir
Vatnajökul. Verð 700 kr. og innifalið er köku-
hlaðborð kaffinefndar.
Ferðafélagið Útivist | Mánudagur. Útivist-
arræktin, gengið frá gömlu Toppstöðinni í
Elliðaárdalnum kl. 18:00. Fimmtudagur. Úti-
vistarræktin, gengið frá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur í Fossvogi kl. 18:00.
Fundir
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði |
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, heldur
jóla-föndurfund, þriðjudaginn 2. nóv. n.k. kl.
20 í safnaðarheimilinu v/ Linnetstíg.
Kirkjustarf
Háteigskirkja | Kvenfélag Háteigssóknar,
fundur þriðjudaginn 2. nóvember klukkan
20. Venjuleg fundarstörf. Félagsvist, kaffi.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Samkoma
sunnudaginn 31. okt. kl. 16:30. Ræðumaður
Eric Cowley. Gospelkór Fíladelfíu leiðir lof-
gjörð. Aldursskipt barnastarf meðan á sam-
komu stendur. Allir velkomnir.
Kvenfélag Laugarneskirkju | Fundur í safn-
aðarheimili Laugarneskirkju mánudaginn 1.
nóvember, kl. 20. Allar konur velkomnar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Mynd af John Tavener
KAMMERKÓR Suðurlands mun í kvöld kl.
20 flytja níu verk eftir sir John Tavener í
Kristskirkju á Landakoti. Hilmar Örn Agn-
arsson, stjórnandi kórsins, segir í raun um
að ræða nokkurs konar heildarmynd af
þessu merka tónskáldi. „Elsta verkið er frá
því einhvers staðar í kringum 1994 og síð-
an erum við að frumflytja alveg splunku-
nýtt verk, sem hann tileinkaði okkur,“ segir
Hilmar, en verkið sem um er að ræða heitir
Schuon Hymn. „Hann skrifaði þetta verk
fyrir kammerkór Suðurlands og gerir það
miklar kröfur til kórsins. Þar syngur Hrólf-
ur Sæmundsson barítónhlutverk, sem er
eins og möntrulíki sem tengir allt verkið
saman, en verkið er eins og samtenging
trúarbragða heimsins.“
Frithjof Schuon, sem
samdi textann að
verkinu, er múslimi
og birtist Tavener í
draumi, en Schuon
er eitt af fremstu
ljóðskáldum músl-
imaheimsins, að
sögn Hilmars. „Text-
inn fjallar um Maríu
mey, í raun sem
frumkonuna,“ segir Hilmar.
Einnig kemur mezzósópransöngkonan
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir fram ásamt
nokkrum hljóðfæraleikurum og flytur verk-
ið Iero Oniro (Heilagan draum) eftir Tave-
ner, en Guðrún fékk að njóta handleiðslu
Taveners þegar hún dvaldi í námi í Bret-
landi og vann hann verkið með henni.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
90ÁRA afmæli. Ámorgun, 1.
nóvember, verður ní-
ræður Guðmundur
Hjartarson, fyrrver-
andi seðlabankastjóri.
Af því tilefni verður
opið hús fyrir fjöl-
skyldu, vini og sam-
ferðafólk í gyllta sal Hótels Borgar kl.
16. sama dag. Guðmundur fæddist á
Litla-Fjalli í Borgarhreppi í Mýrasýslu.
Hann var lögregluþjónn í Reykjavík á
árunum 1942–46, síðar starfsmaður
Sósíalistaflokksins 1946–56 og forstjóri
Innflutningsskrifstofunnar 1956–60.
Guðmundur vann ýmis störf fyrir Sósí-
alistaflokkinn frá 1960. Hann var seðla-
bankastjóri í áratug, frá 1974 til 1984.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Fréttir á SMS