Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nýjasti stórsmellurinn frá
framleiðendum Shrek.
Toppmyndin í USA í dag.
j i ll i
l i .
i í í .
Kvikmyndir.is
H.J.Mbl.
S.V. Mbl. DV
Ó.H.T. Rás 2
Tom Hanks
NÆSLAND
LEIKSTJÓRN FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON
Sýnd kl. 8.
M.M.J. Kvikmyndir.com
H.J. Mbl.
Ó.Ö.H. DV
„Wimbledon er því úrvals mynd, hugljúf og gamansöm, og
ætti að létta
lundina hjá bíógestum í skammdeginu." M.M.J.
kvikmyndir.com
Catherine Zeta
Jones
Sýnd kl. 4 og 10.15.
Sýnd kl. 3 og 5. Ísl tal. / Sýnd kl. 3, 5 og 8. enskt tal.
Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15.
Shall we Dance?
Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon
Taktu sporið út úr hverdagsleikanum!
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIPKL. 8 og 10.15.
Ó.
H.
T.
Rá
s
2
Shall we Dance?
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 5.45, 8 OG 10.15.
Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon
ÁLFABAKKI
2, 4 og 6. Ísl tal./2, 4, 6, 8 og 10.10. Enskt tal.
Taktu sporið
út úr hverdagsleikanum!
Það er aldrei of seint að setja
tónlist í lífið aftur
Sýnd kl. 6.
Kvikmyndir.is
Frábær rómantísk gamanmynd með Richard
Gere, Jennifer Lopez og Susan Sarandon
í aðalhlutverki.
Frábær rómantísk gamanmynd með Richard Gere,
Jennifer Lopez og Susan Sarandon í aðalhlutverki.
H.J: Mbl.
Ó
.H
.T
.
D
V
LITLA
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN
Sýnd kl. 8 og 10.
V
G
.
D
V
H.L. Mbl.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 3, 8 og 10.05.
Sérstakt Yu Gi Oh! Safnkort
fylgir með öllum miðum.
4 tegundir til að safna!
ÁLFABAKKI
kl. 2 og 4. Ísl tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
KRINGLAN
kl. 12, og 2.15.
KRINGLAN
Sýnd kl. 12, 2 og 4.
The Yes Men sýnd kl. 6.
The Corporation sýnd kl. 10.
HÁDEGISBÍÓ
MIÐAVERÐ KR
MYNDIR KL.
KRIN
Kvikmyndin Sky Captain andthe World of tomorrow, semfrumsýnd var hérlendis um
helgina, hefur vakið nokkra athygli
fyrir flott útlit. Ekki síst kemur þar
til að leikarar leika alla myndina fyrir
framan bláskjá en allt umhverfi
hennar er gert í tölvu, fyrir utan
nokkra muni. Eitt er þó ekki hægt að
gera í tölvu en það eru fötin sem aðal-
leikararnir Jude Law og Gwyneth
Paltrow klæðast í myndinni. Hönn-
uðurinn þekkti, Stella McCartney,
dóttir Pauls, hannar búninga í mynd-
inni og er þetta í fyrsta skipti sem
hún fæst við svona verkefni.
„Þegar Jude og Sadie Frost [með-
framleiðendur myndarinnar] og
Gwyneth báðu mig að hanna fötin
fyrir aðalpersónurnar, las ég hand-
ritið og það varð strax ljóst fyrir mér
í hvernig fötum þau þyrftu að vera.
Persóna Gwyneth, Polly Perkins, er
blaðamaður og súperspæjari. Ég sá
hana fyrir mér sem kynþokkafulla
Lois Lane. Jude er myndarlegi og
hugrakki flugmaðurinn, Höfuðs-
maður háloftanna,“ sagði Stella í
samtali við breska Vogue.
Perkins kemst að því að hinn illi
dr. Totenkopf standi á bakvið dul-
arfullt hvarf fjölda þekktra vísinda-
manna. Polly gengur um með blokk í
hendi, á háum hælum og ljósa lokka í
anda Veronicu Lake og ferðast um
heiminn með flugmanninum til að
reyna að bjarga heiminum frá glötun.
Myndin er í anda vísindatrylla frá
fjórða og fimmta áratug síðustu ald-
ar, og þá helst King Kong. Vogue
segir Stellu McCartney hafa hannað
föt í anda þessara áratuga og þá líka
vetrartískunnar í ár. Aðalföt hennar
eru tvíddragt með þröngu pilsi og
jakka sem er með víðum „lambalær-
is“-ermum, eins og það er stundum
kallað. Við er hún í tvídskóm og við
jakkann er belti í mittið. Líka er hún
oft með hatt, sem hallar á ská og að
sjálfsögðu á hún ljósa, síða kápu eins
og allir spæjarar.
Persóna Jude Law er íklædd flug-
mannalegum gæruskinnsjakka og
hermannabuxum og segir Stella að
með hann hafi þetta verið meira
spurning um stílfæringu.
Kynþokkafullir búningar
„Á einum stað rífur Perkins pilsið
sem hún er í og ég vildi hafa hana í
háum silkisokkum með stöfunum PP.
Í annarri senu í Mongólíu klæddi ég
hana í silkináttslopp og loðstígvél.
Gwyneth sagði að þetta væru kyn-
þokkafyllstu búningar, sem hún hefði
nokkru sinni verið í,“ er einnig haft
eftir Stellu, sem er mjög ánægð með
viðbrögð vinkonu sinnar.
McCartney segist hafa rannsakað
kvikmyndir frá fimmta áratugnum til
að undirbúa sig og lesið teiknimynda-
sögur frá Marvel.
Líkt og í gömlum svarthvítum
myndum er mikið um útlínur af
manneskju á tjaldinu. „Ég vildi hafa
útlínurnar sterkar, háa kraga, ská-
settan hatt, svo hægt væri að þekkja
skuggann af Perkins,“ sagði Stella.
Leikstjóri og höfundur sögunnar
er Kerry Conran og fékk hann þessa
sérstöku hugmynd. Myndin kostaði í
framleiðslu 70 milljónir bandaríkja-
dala, eða um 4.900 milljónir króna,
sem er um helmingur þess sem
venjuleg stórmynd kostar.
Tíska| Stella McCartney gerði búningana í Sky Captain
and the World of tomorrow
Stíll og sterkar útlínur
Súper-spæjarinn, Polly Perkins,
sem Gwyneth Paltrow leikur.
Hér eru bæði Perkins og höfuðs-
maðurinn með skáhallandi hatta.
Hetjan sjálf, höfuðsmaður há-
loftanna, sem Jude Law leikur.
McCartney lagðist m.a. í rann-
sóknir á gömlum kvikmyndum.
ingarun@mbl.is
Jóna nokkur Þorsteinsdóttir, ungReykjavíkurmær, ætlar að
leggja það á sig að horfa á vís-
indahrollinn Alien vs. Predator 50
sinnum á þrjátíu dögum. Ekki nóg
með það heldur hefur hún samþykkt
að fara á myndina með 50 mismun-
andi strákum. Þessi uppákoma er
leikur sem útvarpsstöðin X-ið 977
stendur fyrir í samvinnu við Skífuna
í kynningarskyni fyrir myndina.
Auglýst var á X-inu eftir stúlkum
sem tilbúnar yrðu til að leggja „erf-
iðið“ á sig og var Jóna valin úr hópi
umsækjenda. Standist hún þolraun-
ina fær hún að launum 50 þúsund kr.
peningaúttekt og marft fleira góð-
gæti. Jóna sá myndina þrisvar sinn-
um á frumsýningardaginn fimmtu-
dag og er fylgst vel með því hvort
hún haldi sér við efnið.
Fólk folk@mbl.is