Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 31
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
tuganna eftir 1970. Sú ábyrgð hvíl-
ir öðru fremur á herðum þeirra
sem kallaðir verða til starfa, að
þeir gangi með opnum, víðsýnum
og hlutlægum huga til verks, að
hér verði ekki um einangraða og
hlutdræga úttekt að ræða, lista-
sagan á sig sjálf. Meginveigurinn
að hér komi saman hópur eða
teymi sem samanstæði aldrei
minna en af 4–8 manns, sem færu
gaumgæfilega yfir hvert tímabil
fyrir sig. Við sjáum ótal dæmi
þessa varðandi þjóðarlistarsögur
að ef einn maður stendur að baki
þeirra er um undantekningar að
ræða sem sértækar aðstæður
skapa. Hér höfum við dæmið í
listasögu Björns Th. Björnssonar,
sem Ragnar Jónsson kostaði og
tengdist hinni miklu málverkagjöf
listjöfursins til Alþýðusambands
Íslands, fyrra bindið kom út 1964,
seinna 1973. Þetta var fyrsta
metnaðarfulla tilraunin til að taka
saman heildarsögu íslenzkrar list-
ar, þó aðallega hvað snerti 19. og
fyrri hluta 20. aldar, og hvernig
sem á er litið í hæsta máta lofs-
vert framtak. Hængurinn sá að
hún stóð og stendur ein enn þann
dag í dag, engin önnur sjónarhorn
komist að.
Eðlilega var listasagan bergmál
sérskoðana höfundarins og lítið við
því að segja, um leið varð ekkert
úr fyrirhuguðu framhaldi sem var
í meira lagi afleitt fyrir kynslóðina
sem ruddi nýviðhorfum braut eftir
miðbik aldarinnar. Tímabilið fram
að 1970 bauð upp á miklar hrær-
ingar, hefur þó hvergi nærri verið
rannsakað né krufið sem skyldi og
þannig flestum gleymt.
Yngri kynslóðir hafa því skilj-
anlega litla og enga yfirsýn yfir
þessa mikilvægu og umbrotasömu
áratugi, hins vegar öllu betur upp-
lýstar um flest sem gerðist um og
eftir 1970 og til dagsins í dag og
þá iðulega um mjög einsýna sögu-
skoðun að ræða í samræmi við tíð-
arandann allt um kring. Harðari
og skilvirkari markaðssetningu
sem hefur haldist bróðurlega í
hendur við margföldun listsögu-
fræðinga af sömu kynslóð. Einn-
egin ræktarsemi sem aldrei fyrr
við sína menn með fulltingi há-
tækni og nýmiðla.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 31
Velkomin í Eignamiðlun, elstu starfandi fasteignasölu á landinu.
Velkomin í trausta og ábyrga þjónustu hjá fólki sem er með áratuga reynslu af fasteignaviðskiptum.
Velkomin í pottþétt fasteignaviðskipti,
-við sjáum um allt fyrir þig, -nema flutningana.
Velkomin heim!
ÍSLEN
SKA
A
U
G
LÝSIN
G
A
STO
FA
N
/SIA
.IS EIG
26088 LJÓ
SM
YN
D
: SILJA
M
A
G
G
Síðumúla 21 sími 588 90 90 www.eignamidlun.is
Dalshraun 1 í Hafnarfirði
Til sölu
eða leigu
Stórglæsilegt verslunar-, þjónustu- og skrifstofuhúsnæði
sem stendur á mjög áberandi stað við gatnamót Hafnarfjarðarvegar,
Reykjavíkurvegar, Álftanesvegar og Reykjanesbrautar.
Um þessi gatnamót fara þúsundir manna á degi hverjum.
Aðgengi og staðsetning er frábær.
Á hverri hæð eru þrjú rými með tveimur stigahúsum á milli rýma.
Þakhæð, 5. hæð, er inndregin með svölum.
Bílakjallari er undir húsinu og að hluta til undir bílastæði aðkomuhæðar.
Húsnæðið afhendist tilbúið til innréttinga um mitt ár 2005.
Allt annað verður frágengið, einnig lóðin.
Allar hæðirnar eru rúmgóðar og bjartar og útsýni er glæsilegt.
Allar nánari upplýsingar veita Óskar Harðarson lögfræðingur
og Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
Hér gefst kostur á að fjárfesta
í glæsilegu nýju húsnæði á frábærum stað.
Leigutakar athugið: Hér gefst kostur á nýju vönduðu
húsnæði á stað sem hefur gríðarlegt auglýsingagildi.
Kjallari 2.667 m2
1. hæð 1.327 m2
2.-3. hæð 1.323 m2 x2
4. hæð 476 m2
4. hæð 847 m2 selt
5. hæð 933 m2 seld
Samtals 8.896 fm
Bílastæði á lóð = 92
Bílastæði í kjallara = 86
Bílastæði samtals = 178
Stórglæsilegt skrifstofuhúsnæði
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali