Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 17 þú gefur Þóru nafnið Lilja Jónsdóttir Rockwell. „Sums staðar nota ég réttu nöfnin, eins og til dæmis þegar ég læt aðalpersónu mína koma við sögu Bobby Fischer, þegar kalda stríðið er háð á skákborði í Reykjavík. Ég gerði þetta í Höll minninganna, þar sem William Randolph He- arst kom fram undir fullu nafni. Fischer og Rockwell koma fram sem þeir sjálfir – Fischer, maður sem enginn gat stjórnað, hvorki banda- rísk stjórnvöld né aðrir og átti þar að auki í miklum erfiðleikum með að stjórna sjálfum sér. Afstaða beggja til gyðinga er fróðleg. Móðir Fischers var gyðingur og ekki hefur hann vand- að henni kveðjurnar. Rockwell reyndi að vinna nazismanum brautargengi í Bandaríkjunum. Fischer varð heimsmeistari, en Rockwell fann nazismanum engan farveg, enda sagði hann sjálfur, að menn eins og hann fengju ekki með- byr, þegar fólk á tvo bíla, rafmagnssláttuvél og loðfóðraða klósettsetu! Ég ráðskast svolítið með atburðarásina og ég skrifa upp í þá setningar. En þeir eru raunverulegir aðilar að raunveru- legum atburðum, sem ganga upp í samhengi heimssögunnar og þar með líka samhengi skáldsögu minnar. Þetta er eins og að mála mynd af hópi og hafa ákveðin andlit, kunnugleg, með á myndinni. Þau eru þá ákveðnir tjaldhæl- ar eða leiðarsteinar í sögunni. Ég þekki Þóru Hallgrímsson ekki. En ég þekki til sögu hennar. Ég nota hana í bókinni, en breyti til vegna skáldsögunnar. Ætli sé ekki réttast að segja, að Lilja feti í sögunni í fótspor Þóru.“ Það vefst ekkert fyrir þér að taka svona hluti til sögunnar? „Nei. Greinar Sveins Benediktssonar liggja fyrir í Morgunblaðinu. Og andlát Guðmundar Skarphéðinssonar og eftirmál öll eru skráðar staðreyndir. Um hjónaband Þóru og Rockwells og hvernig hún skildi við hann hefur verið fjallað í bókum hér vestra. En í Sakleysingj- unum hnika ég sögu hennar til og þar lýtur hún lögmálum skáldskaparins.“ Vissu Þóra og aðstandendur hennar af þessu? „Já. Þegar ég var búinn með uppkastið gerði ég útgefanda mínum grein fyrir gangi sög- unnar. Þá höfðu þær breytingar orðið, að Björgólfur Guðmundsson, eiginmaður Þóru, sem ættleiddi þrjú börn hennar og Rockwells, var orðinn aðal- eigandi að forlagi mínu, Eddu, og félagi hans Páll Bragi Kristjónsson forstjóri þess. Við kynntumst í kjölfar þessara breytinga og talið barst að því, hvað ég væri að skrifa, eins og höf- undar og útgefendur spjalla jafnan um og hve- nær það kæmi til útgáfu. Þá sagði ég Páli Braga frá þessu. Við Björgólfur drukkum svo saman morgunkaffi og töluðum þá út um þetta mál.“ Engir árekstrar? „Nei. Alls engir. Auðvitað er þetta viðkvæmt mál og hefur ekki farið hátt heima. En ég þykist líka hafa tekið þannig á því, að það, sem er í sög- unni, eigi ekki að særa neinn, enda var leikurinn ekki til þess gerður.“ Nú kom það fram á sínum tíma, þegar Höll minninganna kom út, að það var frekar yngra fólkið í fjölskyldu fyrirmyndarinnar, sem var með einhverjar efasemdir. Veizt þú til einhvers slíks núna? „Þegar Höll minninganna kom út, gladdist ég mjög þegar ég fékk viðbrögð frá afkomendum Árna Benediktssonar, því auðvitað hafði ég haft af því áhyggjur, hvort ég væri að ýfa gömul sár. Ég sé enga ástæðu til að þetta fari öðru vísi að þessu sinni.“ Rótlaus kennileiti Ólafur Jóhann lætur leið Dags Alfreðs Hunt- ingfield liggja víða; frá Siglufirði til Englands, þar sem hann menntast, síðan til Indlands í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar, þaðan aftur til Englands, þar sem hann stundar blaða- mennsku af óvægnara taginu. Hann fer til Ís- lands að leita uppi konur, sem brezkir hermenn hurfu frá barnshafandi, ílendist og gerist rit- stjóri, en mistekst að gerast Íslendingur aftur. Eftir það liggur leið hans í utanríkisþjónustuna, til Bandaríkjanna, þar sem leiðir hans og Lilju Jónsdóttur Rockwell liggja saman. Hann bland- ast svo inn í einvígismál í Reykjavík, kemur Fischer til Íslands, og er kvaddur heim í byrjun einvígisins, þegar allt er í uppnámi. Rithöfundurinn hefur setið sallarólegur undir ingjanna þessari stuttu samantekt á sögu hans. Þetta er mikið rót, segi ég. „Þetta voru líka rótlausir tímar. Þeir eru eitt af kennileitum tuttugustu aldarinnar. Veröldin var að opnast og menn kynntust löndum, sem fram að því voru ókortlagðar óbyggðir, nýlendur til síns brúks, en ekki hluti af heimsmyndinni. Það er svo dæmigert fyrir allt það rót sem var í heiminum, að drengur, sem er alinn upp á Siglufirði, skuli fara til Indlands í leit að enskum föður sínum. Og sjálfum sér um leið.“ Bókin heitir Sakleysingjarnir. Einhver lykill þar? „Já, og varla rétt að höfundur reyni að skýra það fyrir lesendum, sem munu efalaust draga sínar eigin ályktanir. Dagur Alfreð er spurður í upphafi bók- arinnar, hvort hann sé saklaus. Ég ætla, að bók- in sé að ákveðnu leyti svar við því, en þar, sem svo oft, munu lesendur eiga lokasvarið.“ Dagur fann ekki alltaf þá eða það sem hann leitaði að. Og hafi hann týnt sjálfum sér, þegar hann fór frá Siglufirði, þá sýnist áhorf um, hvað hann fann af sjálfum sér annars staðar. Hefur Ólafur Jóhann Ólafsson fundið sjálfan sig? „Maður er alltaf að finna eitthvað nýtt. Og um leið og maður finnur eitthvað, þá er maður far- inn að leita að einhverju öðru. Ég vona að ég hætti aldrei að leita.“ freysteinn@mbl.is Skotveiðiútsala Gæsaveiðitímabili lýkur senn - Veiðihornið býður til 11 daga útsöluhvells á skotveiðivörum • Gervigæsir. 12 skeljar í kassa ásamt festijárnum - Aðeins 6.900. • Allar gæsaflautur, pokar, felunet með 25% afslætti. • Ofurtilboðsgæsapakki - Stoeger, hálfsjálfvirk haglabyssa, byssuskápur fyrir 7 byssur, 12 gervigæsir, 250 skot, byssupoki og ól. Aðeins 99.900. (Ath. aðeins 10 pakkar í boði). • Norinco 22 cal lr. riffill. Boltalás, 5 skota magasín, hörð plasttaska, sjónauki, festingar og 100 skot. Aðeins 29.900. • Stoeger 2000 hálfsjálfvirk haglabyssa. Bakslagsskift með snúningsbolta. 5 þrengingar. Meðan á útsöluhvelli stendur bjóðum við ókeypis ól og poka með byssunni. Aðeins 59.900. • Browning Fusion, hálfsjálfvirk gasskift. Taska, 5 þrengingar, dropplötur, gikklás, ólarfestingar. Aðeins 89.900. • Sellier & Bellot gæsaskot. 3" 53 gr. aðeins 28 krónur skotið ef keypt eru 250 skot. 2 ¾" 42.5 gr. aðeins 24 krónur skotið ef keypt eru 250 skot. • Örfáar byssur á sértilboði í fáa daga. Remington 11-87 kr. 69.900 stgr., Benelli S90 99.900 stgr., Benelli Centro 119.900 stgr. Einnig Winchester, Browning, Mossberg, Franchi o.fl. • Norinco pumpa. Góð byrjendabyssa, 3 þrengingar. Við bjóðum þessa byssu með ól og poka á aðeins 29.900 stgr. • 25% afsláttur af jökkum og buxum í felulitum. Enn eru nokkrir byssuskápar óseldir úr næstu sendingu sem væntanleg er um miðjan nóvember. Hvergi betra verð á byssuskápum. Sjá www.veidihornid.is Opið í dag frá kl. 12-16 Veiðihornið - Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Veiðihornið - Síðumúla 8 - sími 568 8410 Sendum samdægursMunið gjafabréfin Fréttasíminn 904 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.