Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRÓUNIN í ljósvakamiðlum virð- ist vera á þá leið að Síminn/Skjár- Einn og Norðurljós/Og Vodafone geti skipt markaðnum á milli sín með því að bjóða heild- arlausnir fyrir heimilin. Síminn gæti þurft að auka efnisúrvalið til að mæta samkeppninni frá Og Vodafone. Heimili munu líklega geta keypt heildarþjón- ustu sjónvarpsefnis og fjarskipta frá sama fyr- irtækinu og gætu þurft að velja hvaða sjón- varpsefni þau fá heim. Það getur verið freistandi að kaupa heildarþjónustu með afslætti. Ætla má að sjónvarpsefnið sem í boði er ráði mestu um það hvaða fyrirtæki neytendur velja. Þannig þjónar það ekki hagsmunum fyrirtækjanna að bjóða samkeppnisaðilanum gott sjón- varpsefni. Spurningin er hvort slík þróun þjóni hagsmunum neytenda. Eignarhald á fjölmiðlum Eignarhald á fjölmiðlum getur skipt máli í slíku umhverfi, sérstaklega eignarhald á stafrænum ljós- vakamiðlum. Í stafrænu sjónvarpi verður hægt að bjóða margskonar af- þreyingu, svo og verslun og upplýs- ingaþjónustu með nýrri tækni. Í Bandaríkjunum hefur þróunin verið sú að skil milli frétta, fréttaskýringa og afþreyingar eru að minnka. Fyr- irtæki á stafrænum fjölmiðlamarkaði bjóða ekki aðeins sjónvarpsefni held- ur einnig úrval afþreyingarefnis og verslunar og reyna að auglýsa þjón- ustu sína á sem flestum stöðum til að auka notkun hennar og þar með arð- semi fyrirtækisins. Þannig kunna sterk tengsl við þjónustufyrirtæki og verslanir að skipta máli þar sem lík- legt er að sum þeirra njóti forréttinda um- fram önnur í svokölluðu „walled garden“ um- hverfi í sjónvarpi fram- tíðarinnar. Þessi garður er einskonar upphafs- síða fyrir sjónvarps- og afþreyingarþjónustu í stafrænu umhverfi þar sem hægt verður að fara beint inn á heima- síður ákveðinna fyr- irtækja, versla o.s.frv. Eigendur fjölmiðlafyr- irtækjanna sem hags- muna hafa að gæta í verslun og þjón- ustu gætu þannig beintengt fyrirtæki sín áhorfendum á upphafssíðu sjón- varpsþjónustunnar. En geta neyt- endur verið vissir um að eigendurnir muni ekki misnota aðstöðu sína? Margrödduð umræða? Í breyttu umhverfi ljósvakamiðla getur fréttaflutningur og hug- myndafræði orðið afar einsleit ef neytendur fá mestallt efnið frá einu fyrirtæki. Í nágrannalöndum okkar eru fjölmörg dæmi um það hvernig eigendur fjölmiðla hafa áhrif á frétta- flutning og hugmyndafræði stöðv- anna. Nefna má Berlusconi á Ítalíu sem er í þeirri sérkennilegu stöðu að eiga ekki aðeins flestar einkareknar sjónvarpsstöðvar landsins heldur ráðskast hann einnig með ríkissjón- varpsstöðvar Ítalíu. Annað dæmi er sterk staða Ruperts Murdochs á fjöl- miðlamarkaði í Evrópu, Bandaríkj- unum og Asíu. Æ fleiri bætast í þann hóp sem deilir á sjónvarpsstöð Mur- dochs, Fox í Bandaríkjunum, sem þykir vera með mjög einsleitan fréttaflutning á sjónvarpsstöðvum sínum og styður stefnu George W. Bush. Sky-sjónvarpsstöðin í Bret- landi, sem einnig er í eigu Murdochs, hefur einnig verið sökuð um að ráð- ast harkalega gegn BBC og styðja Tony Blair, sem styður Bush. Í þessu sambandi hefur hugtakið „foxificat- ion“ verið notað til að lýsa frétta- flutningi og hugmyndafræði sjón- varpsstöðva með svo einsleita umfjöllun. Er hugsanlegt að þetta geti gerst hér á landi og nýr Murdoch líti dagsins ljós? Sótt að ríkisfjölmiðlunum Í hinu breytta stafræna umhverfi þar sem Sky hefur yfirburði á mark- aðnum hafa æ fleiri bæst í þann hóp sem vill styrkja stöðu BBC til hlut- lauss mótvægis við einkastöðvarnar. Þetta gerist m.a. vegna þess að for- svarsmenn Sky hafa látið hafa það eftir sér að BBC sé of sterkt á mark- aði. Þó að hægt sé að horfa á BBC í áskriftarpökkum einkaaðilanna þá hefur BBC þá sérstöðu að geta sjálft sent út stöðvar sínar á stafrænu formi í lofti um allt Bretland. Það er því ekki háð einkaaðilum í stafrænni dreifingu. Á Íslandi er RÚV í þeirri stöðu að vera aðeins með eina rás og dreifikerfi sem er að verða úrelt, en erfitt og dýrt er að halda því við. Not- endur vilja fá tugi stöðva, þar sem boðið er upp á íslenskt efni, fjölda er- lendra stöðva, kvikmyndir og fleira. Stafrænt sjónvarp krefst dýrra myndlykla á hvert heimili og það svarar ekki kostnaði að byggja upp stafrænt kerfi með 1–3 ríkissjón- varpsstöðvar. Ljóst er að RÚV getur ekki keppt á þessum markaði við nú- verandi aðstæður. Því þarf að endur- skoða hlutverk stofnunarinnar og hvaða stöðu hún á að hafa á breyttum markaði. RÚV verður í raun enn mikilvægari sem hlutlaus og óháð sjónvarpsstöð í breyttu umhverfi. Fjölmiðlar hafa mikilvægu hlut- verki að gegna í lýðræðislegu sam- félagi. Þess vegna eru þeir sér- staklega viðkvæmir fyrir hverskyns hagsmunum eigenda. Þeir eru jú fjórða valdið og eigendur geta haft áhrif á fréttamat og hugmyndafræði starfsmanna og þar með umræðuna í samfélaginu. Er lýðræðisleg umræða í hættu í nýju fjölmiðlaumhverfi? Elfa Ýr Gylfadóttir fjallar um fjölmiðla og fjarskipti ’Geta neytendur veriðvissir um að eigendurnir muni ekki misnota að- stöðu sína?‘ Elfa Ýr Gylfadóttir Höfundur hefur lokið MA-prófi í margmiðlunar- og fjarskiptafræðum með sérstakri áherslu á stafrænt sjónvarp frá Georgetown-háskóla í Washington DC. Höfundur er dokt- orsnemi og stundakennari við HÍ. Heimili fasteignasala - þinn hagur er okkar metnaður Sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Þorláksgeisli 108 Glæsilegt parhús frábærlega staðsett í Grafarholtinu Húsið er 200 fm að stærð með innbyggðum bílskúr. Á teikningu er gert ráð fyrir allt að 5 svefnherbergjum. Húsið er staðsett innst í botnlanga á rólegum stað fyrir ofan götu. Frábært útsýni og góð staðsetning þar sem örstutt er í náttúruna og golfvöllinn. Til- valin eign fyrir golfarann eða náttúruunnandann. Húsið er afhent fullbúið að utan og fokhelt að innan. Nánari upplýsingar á skrif- stofu Heimilis. Sjá einnig myndir og teikningu á www.heimili.is Verð 22,9 millj. Glæsibær - salur Til sölu er 846 fm eign í einni glæsilegustu verslunarmiðstöð í Reykjavík. Eignin er í kjallara við hliðina á hinni vinsælu verslun Útilífi. Eignin hentar fyrir hvers konar verslun, þjónustu og félagsstarfsemi. Í plássinu eru stórir salir, veislueldhús, kælar o.fl. Á næst- unni verður byggt 8 hæða hús ásamt bílhýsi á 3 hæðum á lóðinni vestan megin og verður þá að- koman að eigninni önnur og betri en hún er í dag. Góð staðsetning og mjög gott verð. Allar nánari upplýsingar veita Sverrir og Óskar. 1358. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Einbýlishús, parhús eða raðhús í Grafarvogi óskast. Óskum eftir húsi í Grafarvogi með góðu sjávarútsýni. Sverrir veitir nánari upplýsingar. Hús í Vesturborginni eða gamla bænum óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 200-300 fm raðhúsi eða einbýlishúsi á of- angreindum stöðum. Staðgreiðsla. HÚS VIÐ SJÓINN ÓSKAST. Arnarnes - Skerjafjörður - Seltjarnarnes. Hús á bilinu 300-400 fm skv. ofangreindri lýsingu óskast. Staðgreiðsla. Einbýli eða raðhús í Kópavogi óskast. Höfum verið beðnir að útvega gott 200-300 fm einbýlishús eða raðhús í Kópavogi. Sterkar greiðslur í boði. Grafarvogur - einbýli eða parhús. 250-300 fm einbýlishús eða parhús í Grafarvogi. Staðgreiðsla í boði. Raðhús eða einbýli á Seltjarnarnesi óskast. Höfum kaupanda að góðu 200-300 fm raðhúsi eða einb. á Seltjarnarnesi. Sterkar greiðslur í boði. Höfum kaupanda að einbýlishúsi á svæði 200, 201 og 203. Verðbil frá 30-50 millj. Góðar greiðslur. Uppl. veitir Óskar. Sérhæð við Hvassaleiti, Stóragerði eða Háaleitishverfi óskast. Traustur kaupandi óskar eftir sérhæð skv. framangreindri lýsingu. Góðar greiðslur í boði. Nánari uppl. veita Kjartan og Sverrir. Óskum eftir 2ja-3ja herb. íbúðum á svæðum 109, 110 og 112. Ákveðnir kaupendur. Áhugasamir hafi samband við Óskar. Sérhæð í Hlíðunum óskast fyrir ákveðinn kaupanda. Staðgreiðsla í boði. 3ja herbergja íbúð með bílskúr óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 3ja herb. íbúð með bílskúr. Allar uppl. veita Sverrir og Óskar. Skrifstofuhúnæði óskast. Okkur vantar 150-250 fm skrifstofupláss fyrir traustan kaupanda. Nánari uppl. veitir Sverrir. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Vegna mikillar sölu um þessar mundir vantar okkur eignir fyrir nokkra af okkar góðu og traustu viðskiptavinum. Hér á eftir fer sýnishorn úr kaupendaskrá: (Athugið að þetta er aðeins sýnishorn úr kaupendaskrá). Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali www.hofdi.is Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna- og skipasali. Suðurlandsbraut 20 Sími 533 6050 Bæjarhrauni 22 Sími 565 8000 Ármúli 18 - Atvinnuhúsnæði til leigu Vorum að fá til leigu 410 fm skrifstofuhæð á 2. hæð í þessu vel staðsetta húsi. Sérinngangur. Eignin er laus til afhendingar um áramót. Eignin er innréttuð sem skrifstofur og fundarsalir. Verð samkomulag. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur á Höfða í síma 565 8000 eða 895 3000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.