Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 39
RÚNAR Sigtryggsson var í vikunni ráðinn þjálfari þýska 2. deildarliðsins ThSV Eisenach. En Rúnar er landsliðs-maður í handknatt-leik.Hann hefur leikið með Eisenach síðan í sumar. Liðinu hefur hins vegar ekki vegnað sem skyldi á leik-tíðinni, aðeins unnið þrjá leiki en tapað fjórum. Fyrir leik-tíðina höfðu forráða-menn Eisenach sett stefnuna á að endur-heimta sæti í 1. deild, en úr þeirri deild féll liðið í vor. Rúnar fékk skamman tíma til að velta fyrir sér tilboði liðsins. „Ég ákvað slá til enda hef ég verið spenntur fyrir því að taka að mér þjálfun. Það var ekkert annað að gera en stinga sér strax til sunds í djúpu lauginni,“ sagði Rúnar. „Það verður mitt hlutverk að ná meira út úr þeim leikmönnum sem skipa liðið enda margir þeirra að leika langt undir getu. Leikmanna-hópurinn er ekki stór. Sjö atvinnu-menn og aðrir leikmenn eru ungir áhuga-menn. En ég hef ákveðnar hugmyndir um hvað þarf að laga. Það fyrsta er að láta liðið leika hraðari sóknar-leik,“ sagði Rúnar. En hann reiknar með að hafa leikið sinn síðasta landsleik í handknatt-leik, að minsta kosti í bili. Rúnar þjálfar Eisenach MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 39 AUÐLESIÐ EFNI                                           ! " #    $   !   #% & '   #  !        !   " !  " # # !  $ " # # !  % " # # )  "   !   !   #     %%   !     '  # $    !      "  % *         !          $   ! '   !      '$  % +!   "       '          ,           &  '(  )&!!*(    SUÐURLANDSBRAUT 16 • 108 REYKJAVÍK SÍMI 585 9999 • FAX 585 9998 FÉLAG FASTEIGNASALA TIL LEIGU/SÖLU SKYNDIBITASTAÐUR WWW.EIGNAVAL.ISSigurður Óskarsson, lögg. fastsali Til leigu/sölu skyndibitastaður með öllum tækjum og tólum sem þarf í daglegan rekstur. Borð eru fyrir 40 manns í sal, gott eldhús og aðstaða hin snyrtilegasta. Upplýsingar gefur Þórir á skrifstofu. Netfang: auefni@mbl.is VERKFALLI kennara hefur verið frestað eftir að ríkis-sáttasemjari lagði fram miðlunar-tillögu í vikunni. Kennsla hefst í grunn-skólum landsins á mánudag, sjö vikum eftir að verkfallið hófst. Hafa 45 þúsund nemendur verið án kennslu þann tíma. Nú fer fram atkvæða-greiðsla meðal kennara um tillöguna og á henni að ljúka mánudaginn 8. nóvember. Atkvæði verða þá talin. Verði tillagan samþykkt hefur nýr kjara-samningur komist á milli kennara og sveitar-félaganna. Ríkis-sáttasemjari hefur ekki upplýst um inni-hald tillögunnar. Verði hún felld Morgunblaðið/Þorkell Verkfalli kennara frestað Vetrar-fríi sem átti að vera í mörgum skólum eftir helgina hefur verið aflýst, meðal annars í Reykjavík. hefst verkfall að nýju þriðjudaginn 9. nóvember og samninga-viðræður þurfa að hefjast aftur. BANDARÍKJA-MENN kjósa forseta á þriðju-daginn. Fólk þar er orðið mjög spennt. Kannanir sýna að mennirnir tveir sem bjóða sig fram eru með næstum því jafn-mikið fylgi. Í framboði eru George Bush og John Kerry. Bush er nú-verandi forseti en sækist eftir að vera endur-kjörinn. Kosið verður á þriðjudag. Sennilega kjósa meira en hundrað milljónir manna. Bandaríkin skiptast í 50 ríki. Kosið er í hverju ríki. Kosningarnar verða mjög spennandi. Fylgst er með þeim um allan heim. Forseti Bandaríkjanna er sennilega sá maður sem ræður mestu í heiminum. Bandaríkin eru líka risa-veldi. Enginn veit hver vinnur. Ómögulegt er að spá um það. Margir eru óánægðir með Bush. Á innrásin í Írak þar ekki hvað síst hlut að máli. En illa hefur gengið að koma á friðsamlegu stjórnar-fari þar í landi. Aðrir segja að Kerry skipti of mikið um skoðun. Það sé ekki hægt að treysta honum. Mikil spenna í Banda- ríkjunum Reuters John Kerry, til vinstri, og George Bush. Myndin var tekin þegar þeir ræddu kosn- inga-málin í sjónvarpi. ÞRÍR íslenskir friðargæslu-liðar slösuðust í sprengju-árás í borginni Kabúl í Afganistan fyrir viku. Komu þeir til landsins í sjúkra-leyfi á föstudag og var fagnað af fjölskyldum sínum. Einn þeirra, Stefán Gunnarsson, fékk mörg sprengju-brot í fætur og andlit en hinir slösuðust minna. Þegar árásin var gerð af einum manni voru friðargæslu-liðarnir í einka-erindum í verslun. Hallgrímur Sigurðsson, yfir-maður flugvallarins í Kabúl, lýsti atburðinum svo í Morgun-blaðinu: „Þetta gerist allt á innan við 20 sekúndum. Hann kastar tveimur sprengjum áður en hann kemur að þeim og um leið og þær springa þyrlast upp gríðar-legt rykský og reykur. Það verður allt svart. Hann hleypur trúlega áfram inn í reyk-skýið og alveg inn að þeim og sprengir þá sjálfan sig. Þetta gerist allt á örfáum sekúndum.“ Íslenskir friðargæslu- liðar slösuðust TÓNLISTAR-HÁTÍÐIN Iceland Airwaves var haldin í Reykjavík um síðustu helgi. Í kringum 120 íslenskar og erlendar hljómsveitir komu þar fram. Tónleikarnir fóru fram í miðbæ Reykjavíkur á næstum öllum þeim skemmti-stöðum og samkomu-húsum sem þar eru í boði. Þar á meðal léku hljómsveitir í Lista-safni Reykjavíkur – Hafnar-húsinu, á NASA við Austurvöll og á Gauki á Stöng. Mörg hundruð blaðamenn og fulltrúar erlendra tónlistar-fyrirtækja komu til landsins gagngert til að fylgjast með tónlistar-hátíðinni. Vöktu margar af íslensku sveitunum athygli þeirra. Má þar nefna ísfirska tónlistar-manninn Mugison, reggí-sveitina Hjálma, hljómsveitirnar Leaves, Maus, Reykjavík, Skáta, Mínus og rappsveitina Forgotten Lores. Dæmi eru um að íslenskir tónlistar-menn hafi fengið boð um að leika erlendis, eftir að vekja athygli á Airwaves. Tónlistar-hátíðin Iceland Airwaves er haldin árlega. Þetta var í sjötta skiptið sem hátíðin fór fram. Tónlistar- hátíð í Reykja- vík Morgunblaðið/Árni Torfason Tom Chaplin, söngvari bresku hljómsveitarinnar Keane, sem lék á Airwaves.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.