Morgunblaðið - 31.10.2004, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FJÖLDAMÖRG dæmi um samráð
olíufélaganna eru rakin í skýrslu sam-
keppnisráðs, sem birt var á föstudag.
Meðal annars kemur fram að fyrir-
tækin hafi átt með sér samstarf um að
hækka verð á benzíni og um að halda
erlendum keppinauti burt frá ís-
lenzka markaðnum.
Í skýrslum forsvarsmanna Olíufé-
lagsins hf. (OHF) og Olís, sem veittu
Samkeppnisstofnun upplýsingar við
rannsókn málsins, kemur fram að allt
frá gildistöku samkeppnislaga í marz
1993 og fram á árið 1997 hafi félögin
haft með sér náið samráð um verð-
breytingar. Ráðið segir að gögn máls-
ins sýni að í raun hafi engin eðlis-
breyting orðið á samstarfinu eftir
1997. Þvert á móti hafi þau áfram haft
með sér víðtækt samráð um verð.
Viðbrögð við erindum
FÍB samræmd
Í umfjöllun samkeppnisráðs kemur
fram að fljótlega eftir gildistöku nýju
samkeppnislaganna 1. marz 1993 hafi
þau komið til athugunar hjá olíufélög-
unum. Þeim hafi verið dreift á fundi
hjá Olís 9. marz, skv. fundargerð.
Hinn 26. maí 1993 hafi Félag ís-
lenzkra bifreiðaeigenda, FÍB, sent
kvörtun til Samkeppnisstofnunar og
haldið því fram að olíufélögin hefðu
með sér ólögmætt samráð um ákvörð-
un benzínverðs. Hinn 16. júní sendi
Samkeppnisstofnun olíufélögunum
bréf FÍB og óskaði eftir umsögn
þeirra. Með bréfunum fylgdu eintök
af samkeppnislögunum. Félögin svör-
uðu með bréfum í júlí og ágúst og sóru
öll af sér hvers konar samráð, en tóku
fram að mikil samkeppni væri milli fé-
laganna. „Að fengnum skýringum ol-
íufélaganna ákváðu samkeppnisyfir-
völd að hafast ekkert frekar að,“ segir
í skýrslu samkeppnisráðs.
Þar kemur hins vegar fram að í
fundargerð framkvæmdastjórnar
Skeljungs 23. ágúst 1993 sé að finna
eftirfarandi bókun: „Olíufélögin og
FÍB. Svarbréf olíufélaganna til Sam-
keppnisráðs var til umræðu.“ Í at-
hugasemdum OHF er því mótmælt
að bókun þessi hafi nokkra þýðingu
og bent á að í fundargerðinni séu
ýmsar villur. Samkeppnisráð segir
hins vegar: „Samkeppnisráð ítrekar
hér að OHF hefur upplýst um þátt-
töku sína í umfangsmiklu verðsam-
ráði á þessum tíma og önnur gögn
málsins styðja þann framburð. Í bréfi
fyrirtækisins til Samkeppnisstofnun-
ar frá júlí 1993 er á hinn bóginn fullyrt
að fyrirtækið taki ekki þátt í slíku
samráði. Augljóst er því að fyrirtækið
gaf á sínum tíma rangar yfirlýsingar.
Sama gerðu hin félögin. Þegar orða-
lag umræddrar bókunar frá Skelj-
ungi er virt með hliðsjón af þessum
upplýsingum um samráð og horft er
til þess að öll félögin veittu rangar
upplýsingar telur samkeppnisráð að
félögin hafi haft samvinnu um að
svara erindi FÍB. Þetta er nefnt í
ákvörðun þessari samhengisins
vegna og til að sýna fram á að frá upp-
hafi fólst í samráði olíufélaganna sam-
vinna um að halda því leyndu. Hefur
slíkt þýðingu við mat á eðli samráðs
olíufélaganna. Gerð verður í málinu
grein fyrir öðrum aðgerðum sem
höfðu sama markmið. Ekki er hins
vegar um það að ræða að í máli þessu
verði olíufélögin beitt viðurlögum fyr-
ir að veita stjórnvöldum rangar upp-
lýsingar, enda fellur slíkt utan valds-
sviðs samkeppnisyfirvalda.“
Hinn 15. september 1993 er svo
bókað í fundargerð framkvæmda-
stjórnar Skeljungs að FÍB óski eftir
tilboðum eða afsláttarkjörum fyrir fé-
lagsmenn. Málið var rætt aftur í
framkvæmdastjórninni 11. nóvember
1993. Þar er bókað að möguleg af-
sláttarkjör á benzínstöðvum félagsins
fyrir félagsmenn í FÍB hafi verið til
skoðunar að undanförnu. Svo er bók-
að að fulltrúi Skeljungs „ræði málið
við fulltrúa hinna olíufélaganna“.
„Bensínhækkun allt að 3 kr.“
Í skýrslu samkeppnisráðs er fjallað
um fund fulltrúa olíufélaganna 10.
ágúst 1994 (hálfu öðru ári eftir gild-
istöku samkeppnislaga) þar sem ýmis
samráðsmál voru rædd. Í minnis-
punktum Þórólfs Árnasonar, þáver-
andi framkvæmdastjóra markaðs-
sviðs OHF, segir m.a.:
„Bensínhækkun allt að 3 kr.“
Um þetta segir samkeppnisráð:
„Samkvæmt þessari bókun hefur ver-
ið rætt um eða ákveðið á fundinum að
hækka verð á bensíni um allt að 3 kr. á
lítra. Samkeppnisstofnun hefur spurt
framkvæmdastjórann um þessa fund-
argerð. Hann kvaðst kannast við rit-
hönd sína á blaðinu en efaðist um að
hann hefði rætt við hin félögin um
þessa verðhækkun þar sem hann hafi
ekki borið ábyrgð innan OHF á verð-
lagsmálum bensíns. Hann hafi því
trúlega heyrt þessi sjónarmið frá Olís
og Skeljungi og bókað þetta hjá sér.
Að mati samkeppnisráðs staðfestir
þetta gagn framangreinda lýsingu
OHF og Olís á samvinnu olíufélag-
anna þriggja í verðlagsmálum á þess-
um tíma.“
Skortur á
„jákvæðum samskiptum“
Í gögnum málsins er jafnframt að
finna minnisblað, sem Þórólfur tók
saman fyrir Geir Magnússon, for-
stjóra OHF, og lýstir fundi hans með
Einari Benediktssyni, forstjóra Olís
11. september 1994. Í umfjöllun sam-
keppnisráðs segir: „Fundurinn var
haldinn að frumkvæði forstjóra Olís
og er augljóst af minnisblaðinu að til-
gangur hans hefur verið að efla sam-
vinnu og samband milli Olís og OHF.
Sagt er að Olís hafi á fundinum lýst
yfir vonbrigðum með samskiptin við
OHF og sagt að Olís fyndist jafnvel
„einföldustu mál“ hafa þvælst lengi
og „lítill vilji til samvinnu, jafnvel þeg-
ar auðveld tækifæri gefast“. Jafn-
framt hafi komið fram á fundinum að
tiltekinn starfsmaður Olís sé pirraður
yfir því að framkvæmdastjórinn hjá
OHF þegi og láti lítið í ljós á sameig-
inlegum fundum með Skeljungi. Á
fundinum hefur forstjóri Olís sagt frá
því „að öll jákvæðu samskiptin við
Skeljung“ séu við tiltekinn starfs-
mann þess fyrirtækis og forstjórinn
setti einnig fram tillögur um bætta
samvinnu félaganna.“
Síðan er vitnað beint í minnisblað
Þórólfs: „E.B. kom einnig inn á það að
fyrirtækin lentu í því að vera stillt upp
við vegg, af verstu kúnnunum eða að-
ilum með markaðstengd verkefni.
Hann mæltist til þess að við hringd-
um okkur saman í slíkum málum,
frekar en að fá sögurnar frá öðrum. ...
Hann var líka sammála mér þegar ég
nefndi að nú þyrftu félögin öll að vera
mjög vakandi í því að láta ekki egna
sig saman í verðstríð í útboðum. Hann
sagði þá vera að vinna upp taktík í af-
sláttarkjörum, sem byggðust á
magni.“
Samkeppnisráð segir ljóst af þess-
um orðum að forstjóri Olís hafi lagt til
að félögin myndu vinna saman gegn
tilraunum viðskiptavina þeirra til að
fá lægra verð.
Samtaka um að hækka benzín
Enn vitnar samkeppnisráð í hand-
skrifað minnisblað Þórólfs Árnasonar
frá 3. janúar 1995, sem lýsi fundi
framkvæmdastjóra markaðssviða ol-
íufélaganna þriggja. Undir fyrsta lið
er bókað: „Ath. breyta 92 okt. „upp“
um ca. 1 kr. 15. jan.“ Þetta telur sam-
keppnisráð að verði ekki túlkað öðru-
vísi en svo að á fundinum hafi verið
ákveðið að hækka 92 oktana benzínið
um eina krónu. Fram kemur að að-
spurður hafi Þórólfur kannazt við
minnisblaðið og sagt að þarna hafi fé-
lögin rætt um verðlagningu á benzíni.
Þetta hafi tengzt sameiginlegum að-
gerðum olíufélaganna um að taka 92
oktana benzín út af markaðnum og ol-
íufélögin hafi „sjálfsagt ákveðið að
hækka verð á 92ja oktana bensíni
meðan breytingin gengi yfir“. Jafn-
framt er haft eftir Þórólfi að fulltrúar
hinna olíufélaganna hafi gjarnan
hvatt OHF til verðhækkunar, en
hann hafi þá bent þeim á að þeir gætu
sjálfir hækkað verð sitt.
Athugasemdum OHF, um að þótt
þetta kunni að brjóta gegn sam-
keppnislögum verði að horfa á það
mildum augum vegna þess að þau hafi
verið að fylgja þeirri þróun í ná-
grannalöndunum að hætta að selja 92
oktana benzín, svarar samkeppnisráð
þannig: „Að mati samkeppnisráðs
fela framangreindar aðgerðir vegna
92ja oktana bensíns í sér skýrt brot á
10. gr. samkeppnislaga. Varðandi það
skiptir engu máli að lögum þó breyt-
ingar hafi orðið varðandi innkaup á
þeirri vöru. Olíufélögunum var í lófa
lagið að leita eftir undanþágu á
grundvelli 16. gr. samkeppnislaga ef
þau töldu ytri aðstæður kalla á sam-
vinnu en það gerðu þau ekki.“
„Umræðugrundvöllur“
settur í nefnd
Samkeppnisráð segir í skýrslu
sinni frá því að 21. febrúar 1995 hafi
framkvæmdastjóri markaðssviðs
smásölu hjá Olís sent símbréf til OHF
og Skeljungs. Í bréfinu til Skeljungs
var listi yfir 18 „verkefni sem gætu
leitt til sparnaðar hjá báðum fé-
lögum“ og sagt að sum hefðu þau ver-
ið áður á dagskrá. Þar á meðal er að
leggja niður benzínstöð á Þórshöfn,
fækka stöðvum á Barðaströnd og
taka upp vinnureglur varðandi dreif-
ingu á tönkum og dælum til viðskipta-
vina oliufélaganna og hugsanlega
gjaldtöku fyrir hana. Í bréfinu til
OHF voru 13 verkefni reifuð, þar á
meðal slík gjaldtaka. Hinn 22. marz
1995 var svo haldinn fundur forstjóra
olíufélaganna þriggja, þar sem mörg
samráðsmál voru til umfjöllunar. Í
fundargerð forstjóra Olís um fundinn
segir orðrétt: „5. Verðmyndun á gas-
olíu til landnotkunar: Fyrir liggur til-
laga að umræðugrundvelli frá okkur
um málið. Ákveðið var að Þórólfur
[Árnason], Bjarni Snæbjörn [Jónsson
hjá Skeljungi] og Thomas [Möller hjá
Olís] tækju umræðu um málið og
tækju með þá af samstarfsfélögum
sínum sem þeir teldu þurfa þykja. Af
minni hálfu kom fram að KBÓ [Krist-
ján B. Ólafsson hjá Olís] myndi taka
þátt í málinu með Thomasi eftir því
sem þurfa þykir og að hálfu [Geirs
Magnússonar] kom fram að líklega
myndi Bjarni Bjarna[son hjá OHF]
verða að einhverju leyti með Þórólfi í
málinu. Ákveðið var að Thomas
myndi hafa frumkvæði að boðun
fundar um málið.“ „Bókun þessi sýnir
markvisst samstarf olíufélaganna í
verðlagsmálum,“ segir samkeppnis-
ráð.
Irving Oil haldið úti
Á sama fundi var rætt um hugs-
anlega samkeppni frá kanadíska olíu-
félaginu Irving Oil, sem á þessum
tíma sýndi því áhuga að hefja starf-
semi á Íslandi. Í fundargerð Einars
Benediktssonar kemur fram að rætt
hafi verið vítt og breitt um Irving Oil.
Tengd þessu sé bókun í fundargerð
framkvæmdastjórnar OHF í janúar
1995, en þar segi að forstjóri Olís hafi
hvatt til þess að olíufélögin hafi undir-
skriftalista liggjandi frammi á benz-
ínstöðvum til að mótmæla byggingu
fyrirhugaðra Irving-stöðva. Í fundar-
gerðinni segir að þetta þjóni ekki
hagsmunum OHF, vegna þess að þá
væri verið að leggjast gegn bygging-
um á lóð við Stekkjarbakka, sem
OHF hafi sótzt eftir.
Jafnframt kemur fram að í bréfi Ol-
ís segi að „frestur til að gera athuga-
semdir við fyrirhugaða landnotkun sé
að renna út. Þetta þarf að kanna strax
og vekja athygli íbúasamtaka á fram-
vindu mála“. Þá vitnar samkeppnis-
ráð í þakkarbréf OHF til erlends olíu-
félags 10. apríl 1996, þar sem segir
„our warmest thanks for your assist-
ance in the battle we fought here to
keep Irving out of Iceland“ eða hug-
heilar þakkir fyrir stuðninginn við
baráttuna fyrir því að halda Irving Oil
burtu frá Íslandi. „Í þessu sambandi
má einnig hafa í huga bréf fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs smásölu
Olís, dags. 28. ágúst 1996, til fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs OHF og
framkvæmdastjóra markaðssviðs
smásölu hjá Skeljungi. Í bréfinu er
sagt að með því fylgi afrit af beiðni til-
tekins manns um að fá að opna bens-
ínstöð á Reykjanesi og síðan segir:
„Vona að þið verðið líka á verði um að
hindra þetta“,“ segir í skýrslu Sam-
keppnisstofnunar.
Samstarf um benzínverð og
að útiloka erlendan keppinaut
Margvíslegt samráð Skeljungs, Olís og Olíufélagsins rakið í skýrslu samkeppnisráðs
Morgunblaðið/Arnaldur
TENGLAR
.....................................................
www.samkeppni.is