Morgunblaðið - 31.10.2004, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 9
FRÉTTIR
’Það er ekki að ástæðulausu semmargir koma aftur og aftur með
í þessa ljúfu skemmti- og jóla-
verslunarferð til Kanada.
Í St. John's er hagstætt að
versla og þú færð sannkallaða
jólastemningu í kaupbæti.
Aðeins um 3 klst. flug og gist er
á glæsilegum hótelum. Frábær
gestrisni, góðir veitingastaðir, írsk
pöbbastemning og skoðunarferðir.
Árleg jólaskrúðganga
um miðborgina.
VR-ávísun
gildir.
Ferðaskrifstofan
Vestfjarðaleið
Hesthálsi 10
s: 562 9950 og 587 6000
www.vesttravel.is
info@vesttravel.is
. ÁN
Ý
F
U
N
D
N
A
L
A
N
D
I
St
Jo
hn
sKrækið ykkur í síðustusætin 28. nóv. - 1. des.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Kýpur
frá kr. 85.233
Kýpur, eyjan fyrir botni Miðjarðarhafsins, þar sem er að finna minjar frá árdögum
evrópskrar hámenningar. Sólríkar strendur ylja fölum frónbúum og furuvaxin fjöllin eru
ævintýri líkust. Afslappað andrúmsloft, góðir veitingastaðir, spennandi skemmtistaðir,
glæsileg hótel, góðar gönguleiðir, íþróttir í úrvali jafnt á sjó sem landi. Kýpverjar eru
heiðarlegt og vingjarnlegt fólk sem dáir börn og fjölskyldan er í fyrirrúmi. Hér geta allir
aldurshópar sameinast í fullkomnu fríi og fyrir þá sem þess óska eru siglingar til
Egyptalands rúsínan í pylsuendanum.
17 des. - 3. jan. 17 dagar • 22. des - 3. jan. 12 dagar
Verð kr. 85.233 á mann
Miðað við 2 fullorðna og 2 börn í 12 nætur í
íbúð m/1 svefnh. á Atlantica Balmyra Beach.
Innifalið: flug, flugvallarskattar, gisting og
íslensk fararstjórn.
Jólaferðir
17. og 22. desember
Verð kr. 89.990 á mann
Miðað við 2 í stúdíó í 12 nætur
á Estella Hotel Apartments. Innifalið: flug,
flugvallarskattar, gisting og íslensk
fararstjórn.
UM 97% Íslendinga hafa heyrt um
Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusam-
bandið og Atlantshafsbandalagið og
85% hafa heyrt um Efnahags- og
framfarastofnunina. Þetta er meðal
niðurstaðna úr könnun á ímynd
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og fleiri
alþjóðastofnana sem gerð var í rúm-
lega 60 löndum í júní og ágúst 2004.
IMG Gallup gerði könnunina hér á
landi.
Ísraelar neikvæðastir
Samkvæmt könnuninni skera Ís-
lendingar sig nokkuð úr því fleiri Ís-
lendingar hafa heyrt þessara stofn-
anna getið en nokkur önnur þjóð
sem tók þátt í könnuninni, að því er
fram kemur í tilkynningu frá IMG
Gallup. Þá er Ísland í hópi þeirra
þriggja landa sem eru hvað jákvæð-
astir í garð SÞ.
SÞ var best þekkta stofnunin
nema hvað Atlantshafsbandalagið
(NATO) var best þekkt í Austur- og
Mið-Evrópu og í Evrópu var Evr-
ópusambandið (ESB) sú stofnun
sem flestir könnuðust við.
Þeir sem höfðu heyrt um viðkom-
andi stofnanir voru beðnir um að
lýsa viðhorfum sínum til þeirra.
Flestir voru jákvæðir í garð SÞ,
ESB hafði næstbestu ímyndina, þá
Efnahags- og framfarastofnunin
(OECD) en NATO rak lestina. Íbúar
í Afríkuríkjum voru jákvæðastir í
garð SÞ en álit á henni var minnst í
Mið-Austurlöndum. Ísraelar er sú
þjóð sem er neikvæðust gagnvart SÞ
en 48% svarenda höfðu neikvæða
ímynd af stofnuninni. „Má gera því
skóna að afskipti Sameinuðu þjóð-
anna af deilum þeirra við Palestínu
hafi áhrif á afstöðu Ísraela,“ segir í
tilkynningunni.
Íslendingar voru mun jákvæðari
og tóku 82% jákvæða afstöðu í garð
Sameinuðu þjóðanna. Aðeins Alb-
anir og Norðmenn voru uppbyggi-
legri í svörum.
Á Íslandi svöruðu 500 manns á
aldrinum 16–75 ára.
Könnuðust best við
alþjóðastofnanir