Morgunblaðið - 31.10.2004, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 25
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds
Landsmótið verður á Vindheimamelum
LANDSSAMBAND hestamannafélaga og Vind-
heimamelar sf. hafa gengið frá samningi um að lands-
mót hestamanna árið 2006 verði haldið á Vind-
heimamelum dagana 26. júní til 2. júlí 2006.
Samningurinn er sambærilegur samningi þeim er
gerður var um mótshaldið á Hellu sl. sumar.
Á landsþingi Landssambands hestamannafélaga,
sem haldið var á föstudag, voru nokkrum hestamönn-
um veitt heiðursmerki. Þetta voru Gunnar Gunnarsson
(l.t.v.), Jóhanna B. Ingólfsdóttir, Haraldur Sveinsson,
Sigurður Gunnarsson, Gísli B. Björnsson, Einar Sig-
urðsson og Jón Albert Sigurbjörnsson.
FERMINGARBÖRN úr 54 sóknum í
öllum landshlutum ganga í hús mánu-
daginn 1. nóvember milli kl. 17.30 og
21 og safna fé til verkefna Hjálpar-
starfs kirkjunnar í Afríku. Þetta er í
6. sinn sem fermingarbörn safna fyrir
verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar.
Prestar fræða 3000 fermingarbörn
um erfiðleika sem jafnaldrar þeirra
eiga við að etja í fátækum löndum
Afríku s.s. vatnsskort, fáa möguleika
til menntunar og lélega heilsugæslu.
Skuldavanda fátækra landa ber einn-
ig á góma, erfiðleika við að komast að
á mörkuðum Vesturlanda og almennt
ójafnvægi milli ríkra og fátækra. Um
leið fræðast fermingarbörnin um ár-
angur af verkefnum Hjálparstarfsins.
Fermingarbörn safna
fjármunum á mánudag
heppnaðist alveg ljómandi vel,“ segir
Sigurður og bætir því við að bæj-
arráðinu hafi fundist þetta hið besta
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra fór í fyrstu „opinberu“
heimsókn forsætisráðherra til Kópa-
vogsbæjar á fimmtudaginn þar sem
hann hitti fyrir Sigurð Geirdal, bæj-
arstjóra. Sigurður segir heimsókn-
ina hafa verið afar ánægjulega þar
sem Halldór hafi komið og rætt við
menn um málefni bæjarfélagsins
ásamt því að kynna sér öll fimm svið
stjórnsýslunnar í bænum. Sigurður
sló á létta strengi og sagði það af-
skaplega skemmtilegt að Kópavogs-
bær væri eina bæjarráðið á landinu
sem hefði getað sett heimsókn for-
sætisráðherra á dagskrá hjá sér.
„Þetta var allt á léttu nótunum og
mál því enginn ráðherra hafi látið
sér detta í hug áður að heimsækja
bæjarráðið.
Ljósmynd/Kristín Þorgeirsdóttir
Halldór Ásgrímsson ræddi við starfsmenn og stjórnendur Kópavogsbæjar.
Kynnti sér
málefni
Kópavogs