Morgunblaðið - 31.10.2004, Síða 26
Nýjasta landnám
Árni Baldursson, forstjórifyrirtækisins Lax-á, hef-ur ráðist í metnaðarfulltverkefni svo ekki sédýpra í árinni tekið. Nú
skal breyta Tungufljóti í Biskups-
tungum í laxveiðiá. Hún er erfið til
laxaræktar frá náttúrufræðilegu
sjónarmiði, er of köld til að fóstra lax,
en það eru Rangárnar líka, en eigi að
síður eru þær nú gjöfulustu laxveiði-
ár landsins. Farið verður sömu leiðir
í Tungufljóti og sömu tækni beitt.
„Hér er nýjasta landnám laxins
hér á landi,“ sagði Árni Baldursson í
samtali við Morgunblaðið er kíkt var
austur á dögunum. Hann var þá
ásamt Snorra Ólafssyni, veiðiverði
sínum og umsjónarmanni með seiða-
sleppingum og klakveiðiskap, í óða
önn að háfa laxa upp úr gildru í laxa-
stiganum í fossinum Faxa. 13 laxar
voru í gildrunni er Morgunblaðið bar
að, fyrir voru nokkrir og fleiri hafa
bæst við síðan.
Laxagöngur í Tungufljót í sumar og haust byggjast á lítilli tilrauna-
sleppingu gönguseiða sem fram-
kvæmd var í fyrra. Árni ljómaði er
hann háfaði hvern laxinn upp úr af
öðrum, bæði hænga og hrygnur. „Ég
þarf samt miklu meira, en þetta kem-
ur smátt og smátt, auk þess er mikill
hugur í Veiðifélagi Árnesinga að
veita þessu verkefni liðsinni, því
þetta hefur verið reynt áður, en fór
þá illa, og menn átta sig á því að nú er
lag að láta dæmið ganga upp. Það
kemur til með að vanta upp á klak-
lax, en ég fæ eitthvað hjá veiðifélag-
inu, þá lax héðan af svæðinu og því
enga fjarlæga stofna. Lax-á hefur
keypt sig inn í tvær stórar seiðaeld-
isstöðvar hér á landi og þar verður
laxinn tekinn og kreistur og strok-
inn, seiðin síðan alin í gönguseiða-
stærð og þau síðan sett í sleppitjarn-
ir. Þetta eru sömu vinnubrögð og
þeir Lúðvíksfeðgar og Þröstur El-
liðason þróuðu við Eystri og Ytri
Rangá á sínum tíma og standa nú
undir því að það vatnasvæði er nú
það sem flesta gefur laxana hér á
landi. Það er ótrúlegt hvað hægt er
að gera með þessar sleppingar og ef
menn láta eftir sér að stoppa og virða
fyrir sér Tungufljót, þá blandast
engum hugur að þar getur orðið lax-
veiði í fremstu röð. Og ein sú falleg-
asta í leiðinni,“ sagði Árni.
Metnaðarfullt og framsýnt laxaræktarátak er hafið í Tungufljóti í Biskupstungum
Árni Baldursson t.h. og Margeir Ingólfsson, formaður Veiðifélags Tungufljóts.
Fossinn Faxi í Tungufljóti.
26 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Suðurlandsbraut 32
Sími 577 5775
Veislu-
bakkar
Fyrir 10-2000 manns
Láttu ekki ræna þig
Komdu í verslun okkar að
Laugavegi 168 eða hringdu
í síma 562 5213 og kynntu
þér málið
tór h
luti i
nnbro
ta
hér á
land
i eru
frami
n í sk
yndin
gu af
ógæf
umön
num
sem
grípa
verð
mæti
sem
liggja
á glá
mbek
k.
Mynd
avélar
, fartö
lvur,
farsím
ar, sk
artgri
pir,
lausaf
é og f
leira í
þeim
dúr. S
máir e
n verð
mætir
hlutir
sem a
uðvel
t er að
koma
í verð
.
Innbr
otafar
aldur
Öryggisskápur getur á
einfaldan og ódýran hátt komið
í veg fyrir að verðmæti glatist.
Neyðarþjónustan býður úrval
öryggisskápa fyrir heimili,
stofnanir og fyrirtæki
að þér
NEYÐ
ARÞJÓ
NUSTA
N
VERSL
UN OG
VERK
STÆÐ
I
LAUGA
VEGI 1
68 • 1
05 RE
YKJAV
ÍK
SÍMAR
: 562
5213
/ 562
4240
LYKLA
SMÍÐI
OG LÁ
SAVIÐ
GERÐI
R
Stærð: D.51cm x B.51cm x H.51cm
Stærð: D.44cm x B.47cm x H.51cm
Stærð: D.50cm x B.50cm x H.76cm
V
er
ð:
6
4
.7
0
0
.-
V
er
ð:
5
6
.0
0
0
.-
V
er
ð:
9
2
.8
0
0
.-
www.las.is
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
NÁMSAÐSTOÐ
íslenska - stærðfræði - enska - danska
franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði
þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl.
greining á lestrarerfiðleikum
Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is