Morgunblaðið - 31.10.2004, Síða 27
laxins
Netin upp ...
Árni reiknar með því að selja
veiðileyfi í Tungufljót sumarið 2006
og í sumar og í fyrra hafa veiðimenn
fengið að veiða í fljótinu með þeim
formerkjum að verið sé að kort-
leggja veiðistaði. Mjög vænir
silungastofnar eru í fljótinu, bæði
urriði og bleikja, en þar er um fáa
fiska og stóra að ræða, fremur en
mikið magn. Reynsla manna af veið-
um í sumar og í fyrra verður uppi-
staðan í gerð veiðikorts sem verður
tilbúið þegar þar að kemur. Árni
vonar enn fremur að netin verði þá
annaðhvort farin upp úr Ölfusá/
Hvítá eða þá að þau verði á leiðinni
upp.
„Það hefur ekki tekist enn að ná
sátt um netaupptöku líkt og gert var
í Borgarfirðinum. Þetta er e.t.v.
flóknara hér en þar, ég veit það þó
ekki, en það er unnið í þessu og það
verður að virða öll sjónarmið og taka
tillit til allra. Þeir sem stunda enn
netaveiðina fá að vísu ekki mikið fyr-
ir laxinn og alla vinnuna sem felst í
netaveiði, en á móti kemur að þetta
er rótgróinn lífsstíll nokkurra aðila
og erfið tilhugsun að allt í einu sé
bara allt búið. Þetta er þó örugglega
framtíðin og það sem koma skal. Það
tekur bara sinn tíma og við verðum
bara að vera þolinmóð og búa allt í
haginn,“ segir Árni.
Faxi
Fyrir allmörgum árum hafði
Stangaveiðifélag Reykjavíkur uppi
svipuð áform og Lax-á nú, en for-
merkin voru önnur. Seiðasleppingar
í þá daga voru aðrar og mislukkaðri
en síðar hefur þróast. Laxastigi sem
þá var smíðaður þótti auk þess illa
heppnaður, en Lax-á hefur endur-
gert stigann, en leifar hans hafa alla
tíð verið við hlið fossins Faxa. Í stig-
anum er fyrrgreind laxagildra og
hefur einu sinni verið stolið úr henni
klaklaxi og það með talsverðri fyr-
irhöfn, sem bendir til að áform Lax-
ár falli ekki öllum vel í geð. Árni
Baldursson hefur vissa aðila grunaða
en vill ekki tjá sig um það, hins vegar
hefur gildran verið treyst þannig að
ekki hefur verið stolið meiru úr
henni og Snorri vörður hefur auk
þess aukið gæslu með svæðinu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Árni Baldursson t.v. og Snorri Ólafsson, veiðieftirlitsmaður við Tungufljót, háfa
lax uppúr gildru í laxastiganum í Faxa.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 27
Laugavegi 5 og Spönginni, símar 551 3383 og 577 1660
Hér með leyfi ég mér að tilkynna heiðruðu bæjarbúum og
ferðamönnum að ég hef sezt að hér í Reykjavík og læt af hendi
allskonar smíðar út gulli og silfri með sanngjörnu verði.
Virðingafyllst Jón Sigmundsson, gullsmiður.
Tilkynning úr Ísafold 29. október 1904
20% afsláttur
dagana 29. okt. til 6. nóv.
í tilefni afmælis okkar
100 ára
Fáðu fréttirnar
sendar í
símann þinn