Morgunblaðið - 31.10.2004, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 29
sé mikill munur á frambjóðendunum. Það á ef til
vill við í ákveðnum tilfellum. Kerry hefur til
dæmis ekki í hyggju að kveðja herinn brott frá
Írak þótt hann hyggist fá bandamenn, sem neit-
uðu Bush um stuðning, til liðs við sig. Á ýmsum
öðrum sviðum er munurinn hins vegar meiri og á
það einkum við um bandarísk innanríkismál. Sá
munur kemur glöggt fram í samanburði á stöðu
þeirra í ýmsum lykilmálum, sem birtist á er-
lendri fréttasíðu í Morgunblaðinu í dag, laug-
ardag.
Fulla ferð
áfram
Þessar kosningar snú-
ast hins vegar ekki að-
eins um stefnu fram-
bjóðendanna, heldur
fyrst og fremst um frammistöðu sitjandi forseta.
Mikil átök hafa átt sér stað síðan hann komst til
valda og ýmislegt farið á annan veg en ætla
mátti. Hryðjuverkin 11. september 2001 og eft-
irmál þeirra yfirskyggja vitaskuld allt annað. Í
kosningabaráttunni árið 2000 kvaðst Bush vera
mannasættir og vísaði til frammistöðu sinnar í
embætti ríkisstjóra í Texas. Áttu margir von á
því að eftir allt það sem gekk á eftir kosning-
arnar myndi Bush leita málamiðlana og reyna að
byggja brýr til andstæðinga sinna í röðum demó-
krata, en það var öðru nær. Í bók Bobs Wood-
wards, Plan of Attack, er haft eftir Dick Cheney
varaforseta: „Frá því að við komum inn í bygg-
inguna [Hvíta húsið], var kannski hugsað um þá
hugmynd að nýr forseti þyrfti að halda aftur af
sér vegna þess hvað mjótt var á munum í kosn-
ingunum í kannski 30 sekúndur. Það var ekki
íhugað í neinn tíma. Við vorum með stefnuskrá,
við buðum okkur fram á grundvelli þeirrar
stefnuskrár, við sigruðum í kosingununum –
fulla ferð áfram.“
Í stjórnartíð Bush hafa orðið umskipti í efna-
hagsmálum. Fjárlagaskrifstofa Bandaríkjaþings
birti spá um það leyti, sem Bush tók embætti í
janúar 2001, þar sem boðaður var fimm trilljóna
dollara samanlagður afgangur á fjárlögum
næstu tíu árin. Í fyrra var fjárlagahallinn 375
milljarðar dollara, spáð er að hann fari upp í
fjögur hundruð milljarða á þessu ári og sam-
anlagt verði hann 2,3 trilljónir dollara á tíma-
bilinu 2005 til 2014. Bush gekk fram í upphafi
kjörtímabilsins með afgerandi skattalækkanir,
sem andstæðingar hans segja að hafi einkum
verið í þágu auðmanna í Bandaríkjunum, og lét
árásir hryðjuverkamanna á New York og Wash-
ington og aukin útgjöld vegna innrásanna í Afg-
anistan og Írak engin áhrif hafa á fyrirætlanir
sínar í skattamálum.
Flest ríki heims fylgdu Bush að málum þegar
hann réðst inn í Afganistan. Öðru máli gegndi
um Írak þrátt fyrir að þar ætti að steypa úr stóli
harðstjóra, sem beitt hafði efnavopnum í stríðinu
við Íran og á sína eigin þjóð. Í rökstuðningnum
fyrir því að ráðast inn í Írak var hins vegar ekki
lögð áhersla á grimmdarverk harðstjórans, held-
ur sagt að hann byggi yfir gereyðingarvopnum
og hefði verið í tengslum við hryðjuverkasam-
tökin Al-Qaeda, sem hvorugt reyndist rétt.
Margt hefur hins vegar farið úrskeiðis í Írak.
Hryðjuverk eru þar daglegt brauð, stöðugar
fréttir berast af mannránum og gíslatökum.
Bandaríkjaher hefur beitt sér gegn andspyrnu-
hópum, en ekki verður sagt að hann hafi unnið
stríðið þótt hann hafi sigrað í nokkrum orrust-
um.
Þá hafa margir orðið fyrir sárum vonbrigðum,
svo ekki sé meira sagt, yfir því hversu litla virð-
ingu stjórnarliðar Bush hafa borið fyrir almenn-
um mannréttindum og forsendum réttarríkisins
og eru þeir þó að verja þau gildi í baráttunni
gegn hryðjuverkum. Pyntingarnar í hinu ill-
ræmda fangelsi Abu Ghraib vöktu óhug um allan
heim og tilraunir til að skella skuldinni af kerf-
isbundnum pyntingum á undirmenn í stað þess
að axla ábyrgðina á efstu stöðum eru ekki sann-
færandi. Nokkur hundruð manns hafa setið í
fangelsi í Guantanamo á Kúbu misserum saman
án dóms og laga. Fjöldi útlendinga í Bandaríkj-
unum hefur verið handtekinn vegna gruns um að
tengjast hryðjuverkastarfsemi. Hundruð manna
hafa verið send úr landi í kjölfarið, ekki vegna
þess að sannast hafi að viðkomandi hafi verið við-
riðnir hryðjuverk eða lagt á ráðin um spellvirki,
enda hefðu þeir þá verið dregnir fyrir rétt í
Bandaríkjunum, heldur af því að einhver óreiða
fannst í tengslum við dvalarleyfi þeirra.
Lýðhylli Bush
Hvað sem öllu þessu
líður er ljóst að Bush
nær til kjósenda. Í ný-
legu hefti vinstra tímaritsins The Nation, sem
ávallt hefur verið mjög gagnrýnið í garð forset-
ans, er lýsing á frambjóðandanum Bush: „Við
upphaf sjöundu kosningaheimsóknar sinnar til
lykilríkisins Wisconsin laumaði George W. Bush
leynivopni í rútuna sína: Dr. Britt Kolar, lækni,
sem lék með Bush í rúbbíliðinu í Yale á sjöunda
áratugnum. Hann sat við hlið Bush á meðan ekið
var í gegnum Lake Geneva þar sem hann er
læknir og sagði honum nöfnin á fólkinu, sem stóð
í vegarkantinum og eigendum smáfyrirtækja,
sem höfðu komið út til að fylgjast með. „Sæl,
María,“ tilkynnti forsetinn í gegnum hátalara-
kerfi ökutækisins. „Ég vildi að við gætum stopp-
að.“ „Komið þið sæl, þetta er forsetinn. Ég var
að frétta að þið væruð nýbúin að opna verslunina
ykkar. Við ætlum að styðja við bakið á smáfyr-
irtækjum.“ Forsetinn hélt áfram og talaði um
verslanir á staðnum, veitingastaði og íþróttalið.
Það virðist kannski vera hallærislegt, en fólkið
gat ekki fengið nóg. Fagnaðarlætin voru gríð-
arleg og þótt rútan hefði ekki numið staðar fór
fólkið heim talandi um það að forseti Bandaríkj-
anna hefði tekið sér tíma til að tala við það per-
sónulega.“
Það er greinilegt á öllu að Bush er mjög öfl-
ugur frambjóðandi. Bill Clinton, sem er enginn
viðvaningur í þeim efnum, hefur ítrekað lýst yfir
því hvað hann beri mikla virðingu fyrir Bush í
pólitík og varað demókrata við að vanmeta hann.
Ekki má gleyma því að í kosningunum 2002 sóttu
repúblikanar á í þinginu, en venjan er sú að
flokkur sitjandi forseta gefi eftir í kosningum
milli forsetakosninga. Sigur repúblikana í kosn-
ingunum 2002 var að miklu leyti þátttöku Bush í
kosningabaráttunni að þakka. Bush stundar
kosningabaráttuna af slíkri ákveðni og eljusemi
að viðstaddir lýsa „rafmögnuðu“ andrúmslofti á
fundum með honum.
Kerry leggur líka hart að sér í kosningabarátt-
unni, en þegar hann er um borð í rútunni situr
hann með kosningastjórum sínum og skipulegg-
ur næstu leiki á meðan Bush notar hvert tæki-
færi til að nálgast kjósendur. Leitt hefur verið
getum að því að enginn forseti hafi eytt jafn-
miklum tíma í kosningabaráttu og Bush og oft
ávarpar hann meira en 10 þúsund manns á dag.
Ljóst er að spenna verður í kosningabarátt-
unni fram á síðasta dag. Undanfarna daga hafa
Bush og Kerry tekist hart á í leit að málefni, sem
gæti skilað þeim sigri, og það er ekki aðeins
óvenjumikill áhugi á þessum kosningum í Banda-
ríkjunum, heldur um allan heim.
Reuters
George Bush forseti hefur verið óþreytandi í kosningabaráttunni og virðist njóta sín best með uppbrettar ermar innan um kjósendur sína. John Kerry er einnig þrautseigur frambjóðandi, en
virðist þó ekki ná sama sambandi við kjósendur í návígi og andstæðingur hans. Bush er hér á fundi í Alamogordo í Nýju Mexíkó og Kerry í Orlando í Flórída.
Lýðræði hefur verið
ein helsta útflutn-
ingsvara George
Bush og því verður
fylgst mjög vand-
lega með fram-
kvæmd kosning-
anna á þriðjudag
um allan heim, ekki
síst í löndum á borð
við Afganistan og
Írak.
Laugardagur 30. október
Reuters