Morgunblaðið - 31.10.2004, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 37
UMRÆÐAN
Til sölu er Djáknaskógur, einn og hálfur hektari sunnan í hlíðinni vestan við
Úthlíð í Bláskógabyggð. Spildan nær niður að Konungsvegi og er utan við
sumarbústaðalandið í Úthlíð. Allt svæðið er vaxið birkiskógi, en auk hans eru
nokkrir 40 ára gamlir furu- og grenilundir. Útsýnið er yfir Suðurlandsundir-
lendið, allt til sjávar. Hér er ekki aðeins ein fegursta skákin úr landi Úthlíðar,
heldur á Suðurlandi öllu. Kjörstaður fyrir þá, sem vilja vera út af fyrir sig, hvort
sem þar yrði byggt eða ekki - óskastaður til að njóta fegurðar.
Tilboð óskast. Upplýsingar gefnar í síma 565 78 55.
LAND Í SÉRFLOKKI TIL SÖLU
Smáratún 15 - Álftanesi
Fallegt og bjart 144 fm einbýlishús á einni hæð auk 38 fm frístandandi
bílskúrs. 5 svefnherbergi eru í húsinu. Stór skjólgóður pallur. Húsið er í góðu ásig-
komulagi. Rólegt og banvænt hverfi. Brunabótamat 18,5 milljónir. Verð 27,7 millj-
ónir. Eign sem vert er að gefa sér tíma til að skoða.
Opið hús kl. 14.00-16.00
Björt og fín 2ja herbergja 75,6 fm
íbúð með frábæru útsýni og sér-
inngangi af svölum í góðu lyftu-
húsi. Stórt svefnherbergi, gott
bað, þvottahús og ágætt eldhús.
Stór stofa með stórum suðursvöl-
um meðfram allri íbúðinni.
LAUS STRAX.
Íbúð merkt 3, hæð B - bjalla merkt: Guðbjörg og Sigurður
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-16
KRUMMAHÓLAR 10
Miðhraun - nýtt og glæsilegt atvinnu-
húsn Erum með í sölu þetta 3100
m2 glæsilega og nýja atvinnuhús-
næði. Um er að ræða hús sem er
fullbúið að utan og með malbikaðri
lóð en að innan er húsið tæplega tilb.
til innréttinga. Húsið getur selst í
minni einingum en hluti hússins er á
steyptu millilofti. Fjöldi innkeyrsludyra.
Hægt er að aka í gegnum húsið. Gott verð.
Um er að ræða nýlegt steinsteypt
verslunar-, skrifstofu- og þjónustu-
húsnæði á tveimur hæðum, skráð
alls 531 fm. Eignin skiptist í góða
götuhæð með verslunargluggum og
tveimur innkeyrsludyrum á bakhlið.
Vandaður frágangur. Á efri hæð er
gert ráð fyrir skrifstofu- og þjónustu-
rými. Vandað parket er á gólfum og
er hæðin nánast nýinnréttuð með
hurðum, gólfefnum o.fl. en ekkert notuð. Gæti nýst undir ýmiskonar starf-
semi. V. 39 m. 2609
Gott iðnaðarhúsnæði við Tunguháls
í nýlegu húsi.
Eftirtaldar einingar eru til sölu:
530 m2 á 42,5 m.
322,7 m2 auk 50 fm millilofts
og u.þ.b. 200 fm útiskýlis á 37,7
milljónir. Góð lofthæð. Innkeyrsludyr.
Frábær staðsetning með miklu aug-
lýsingagildi. 3258
Heil 930 fm húseign við Háholt í
Mosfellsbæ í nýju húsi á áberandi
stað með miklu auglýsingagildi í ört
vaxandi verslunarhverfi. Eignin
skiptist m.a. í götuhæð sem er
verslunarhæð og iðnaðar/þjónusta.
Lagerhúsnæði er í kjallara og á 2.
hæð eru skrifstofur.
V. 65 m. 3357
Vorum að fá í sölu um 1.500 fm at-
vinnuhúsnæði í Mosfellsbæ. Hús-
næðið gæti hentað fyrir iðnað, lager
og fleira. Stórar frysti- og kæli-
geymslur eru í húsinu. Það gæti því
hentað vel fyrir matvælaiðnað. Mikil
lofthæð. Góðar innkeyrsludyr. Góð
bílastæði. Nánari upplýsingar veita
Sverrir og Óskar. 3795
Kaplahraun - Vönduð eign
Miðhraun - nýtt og glæsilegt atvinnuhúsn.
Tunguháls
Háholt - Mosfellsbær
Mosfellsbær - atvinnuhúsnæði
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
KARLREMBA er kvenfyrirlitning.
Karlremban er ekki jafnrétt-
issinnuð og lítur ekki á konur og karla
sem jafningja. Karlremban gengur út
á yfirráð karla yfir konum. Það er því
sorglegt að sjá að fyrirtæki eins og
Fróði, Oddi, Hagkaup, Nóatún, Bón-
us, Krónan, 10–11, 11–11, Esso, Olís
og Skeljungur, að ótöldum flestum
sjoppum landsins, fagni tímaritinu
b&b, sem markaðssetur sig sem karl-
remburit, og sjái um að dreifa því á
áberandi stað í verslunum sínum.
Greinar sem birtast í b&b bera
heiti eins og „Beygðu hana í bólið“
þar sem vísað er í hvernig á að koma
„fórnarlambinu“ í rúmið. Slíkar
greinar eru til þess fallnar að styrkja
þá trú að karlmenn hafi rétt á lík-
ömum kvenna, með eða án þeirra
samþykkis.
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt
fram á tengsl á milli neyslu á klámi,
hlutgervingar og kynferðisofbeldis.
Jafnréttissinnað þjóðfélag myndi
ekki taka málstað þeirrar karlrembu
sem b&b boðar opnum örmum heldur
vinna markvisst að því að útrýma
henni. Með því að dreifa b&b eru of-
antalin fyrirtæki ekki að vinna gegn
kynferðislegu ofbeldi heldur að skapa
umhverfi sem réttlætir það og afsak-
ar.
Nýlega samþykkti Norð-
urlandaráð, þar með talið Ísland, að
skera upp herör gegn klámvæðingu
almannarýmisins. Klámvæðingin er
vaxandi vandamál. Almannarýmið er
okkar sameiginlega svæði og að þekja
það kynferðislegum myndum af kon-
um er ekki til þess fallið að gera það
að stað fyrir okkur öll.
Með því að hlutgera og niðurlægja
kvenlíkamann á forsíðum b&b og
stilla upp sem hverri annarri vöru er
alvarlega vegið að frelsi fólks til að
velja og hafna. Þá er frelsi klámneyt-
enda og klámvæðing almannarým-
isins farin að þrengja að frelsi okkar
hinna.
Foreldrar hafa ekki frelsi til að
hafna því að kvenfyrirlitningu sé
haldið að börnum þeirra. Börn hafa
ekki frelsi til að vera börn. Konur
hafa ekki frelsi til að versla án þess að
horfa upp á kvenlíkamann hlut-
gerðan. Og karlar hafa ekki frelsi til
að hafna því að karlmennska byggist
á kvenfyrirlitningu.
Föstudaginn 29. október nýttum
við undirrituð frelsi okkar til að hafa
skoðun. Við heimsóttum sölustaði
sem bjóða uppá b&b og merktum
tímaritið orðunum „Hefur þú frelsi til
að hafna?“
Við skorum á þau fyrirtæki sem
hafa valið að styrkja karlrembuna í
sessi með því að dreifa blaðinu b&b
að endurskoða þá afstöðu og sýna
okkur viðskiptavinum þá virðingu að
fjarlægja blaðið úr verslunum sínum.
Fyrirtækjum ætti að vera umhugað
um að sem flestum líði vel í við-
skiptum við þau og sækist eftir að
nýta sér þjónustu þeirra.
SÓLEY STEFÁNSDÓTTIR,
ráðskona staðalímyndahóps,
KRISTÍN TÓMASDÓTTIR,
ráðskona öryggisráðs.
Opið bréf til forsvarsmanna matvöru-
verslana, bensínstöðva, Odda og Fróða
Frá Sóleyju Stefánsdóttur og
Kristínu Tómasdóttur f.h. félaga í
staðalímyndahópi og öryggisráði
Femínistafélags Íslands:
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111