Morgunblaðið - 31.10.2004, Side 38
38 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vald páfans í Róm, bæðií stjórnmálum og trú-málum, fór hnignandiá síðmiðöldum, ým-issa hluta vegna. Eitt
var t.d. það, að allir sem gegndu
embættinu á þeim tíma, end-
urreisnarskeiðinu, voru marglátir,
léttúðugir, glysgjarnir og sam-
viskulausir. Trúin var aukaatriði.
Þá risu upp hópar sem vildu
láta skerast í odda við rómversk-
kaþólsku kirkjuna, mótmæla ver-
aldarvafstri hennar, og gerðu það.
Siðbótar var þörf. Einna öflugust
var hreyfing í Bæheimi, kennd við
tékkneska prestinn Jóhann Húss,
en eins og aðrar smærri var hún
þó bæld niður af hörku.
En jarðvegurinn hafði nú verið
undirbúinn, og í fótspor allra
hinna kom enn einn maðurinn
tæpri öld síðar. Hann fæddist 10.
nóvember 1483, í Eisleben í Sax-
landi, einu af þýsku smáríkjunum,
gerðist munkur af reglu Ágúst-
ínusar árið 1505, þá 22 ára að
aldri, en hefur síðar doktorsnám
og lýkur því 1512 og fær sama ár
prófessorsembætti í guðfræði í
Wittenberg. Um þær mundir á
hann í innbyrðis trúarstríði, ekki
síst vegna þess sem fyrir augu
hafði borið í Róm, er hann dvaldi
þar 1510–1511. Spillingin hafði
verið svo augljós, lýtin allt of
mörg og stór, íburður og skraut,
gull og dýrir steinar. Allt þetta
var svo frábrugðið því sem var í
klausturklefa hans.
Kornið sem fyllti mælinn var þó
aflátssala sendimanna Páfagarðs,
þar sem hægt var að fá keypta
syndafyrirgefningu – mismikla –
allt eftir rausnarskapnum og gjaf-
mildinni; háar upphæðir dugðu
betur en aðrar, og veittu lausn úr
hreinsunareldinum. Ástæða þessa
alls var sú, að páfi var í fjárhags-
kröggum, vegna smíði nýrrar
dómkirkju sem átti að vera stærri
og fegurri öllum öðrum guðs-
húsum í heiminum, og kennast við
heilagan Pétur. Og sú bygging var
dýr. Gamla, rómverska timb-
urkirkjan, sem byggð hafði verið á
dögum Konstantíns, á 4. öld, þótti
ekki lengur við hæfi, tíðarandinn
var slíkur, og árið 1506 var hún
því brotin niður og grunnur lagð-
ur að hinni. Júlíus II hafði byrjað
verkið, en andast 1513. Á stól var
kominn Leó X og nú skyldi haldið
áfram; þessu lauk reyndar ekki
fyrr en 1615.
Hinn 31. október 1517 var
Lúther nóg boðið og þann dag
negldi hann voldugt skjal á dyr
hallarkirkjunnar í Wittenberg,
með 95 greinum, eða tesum, eins
og þær voru kallaðar, þar sem
hann mótmælti aflátssölunni. Rök
hans voru þau, að endurlausn
fengist aðeins og bara fyrir trú og
náð.
Honum þótti vænt um róm-
versk-kaþólsku kirkjuna, var
sjálfur í þjónustu hennar, og ætl-
aði sér aldrei að valda neinum
klofningi, heldur einungis stinga á
þessi ljótu og daunillu kaun. En
það gaus upp eldur, sem varð ekki
haminn, bál, sem enginn kunni að
slökkva; með þessu vakti hann
samvisku kristninnar í Evrópu, og
trúin varð aftur meginþáttur. Það
er of löng saga til að rekja hér.
En ný kirkjudeild varð sumsé
til, eftir mótmæli Lúthers og at-
burði í kjölfar þeirra. Þar var og
er fagnaðarerindið – evangelium –
í öndvegi.
Og fleiri mynduðust annars
staðar. Ein heitir t.d. eftir þeim
franska Jóhanni Kalvín, og náði
hún útbreiðslu í Niðurlöndum,
Englandi, Skotlandi, Frakklandi
og Sviss.
Jafnframt olli þetta mikilli
stjórnkerfisbreytingu og varð á
mörgum staðnum fyrsti áfanginn
á leið til einveldis og nútímaríkis.
Sr. Örn Bárður Jónsson sagði t.d.
um það í prédikun á siðbótardag-
inn árið 2001:
Með siðbótinni urðu skil í sögu Evrópu
og hins vestræna heims. Sagt hefur
verið að nútíminn hafi byrjað með sið-
bótinni, hinn frjálsi maður hafi orðið til,
frjáls til að hugsa og trúa án valdboðs
kaþólsku kirkjunnar. Lúther uppgötv-
aði kjarna Nýja testamentisins um rétt-
lætingu af trú en ekki verkum, sbr.
Rómverjabréfið 1:16–17.
Í Svíþjóð var evangelísk-
lútherskri skipan formlega komið
á árið 1527, í Danmörku, Fær-
eyjum og Noregi árið 1537. Ís-
lendingar stóðu lengst Norð-
urlandabúa á móti hinum breytta
sið, en gáfust loks upp þegar síð-
ustu forystumenn rómversk-
kaþólsku kirkjunnar hér, Jón
Arason biskup og synir hans,
höfðu verið teknir af lífi árið 1550.
Fyrir Skálholtsstifti hafði nýja
kirkjuskipanin þó verið samþykkt
1541, en fyrir Hólastifti gerðist
það 1551. Lúther var þá dáinn,
andaðist 18. febrúar 1546.
Síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar. Að því er lesa má í rit-
verkinu „World Christian En-
cyclopedia“ eru kristin, sjálfstæð
trúfélög í heiminum nú alls um
34.000.
Á 20. öld hófust fyrir alvöru til-
raunir við að sætta andstæður
milli kirkjudeilda og vinna að ein-
ingu meðal kristinna manna.
Fram eftir öldinni voru það aðeins
evangelískar kirkjur sem ræddu
þannig mál sín, en fljótlega bætt-
ust rétttrúnaðarkirkjur Austur-
Evrópu og Austurlanda nær inn í
viðræðurnar. Upp úr 1965, eftir
síðara Vatikanþingið, fór svo róm-
versk-kaþólska kirkjan að líta til
hinna og gefa færi á sér. Þetta
mikla verk er enn í gangi.
En ljóst er, burtséð frá öllu því,
að við eigum Marteini Lúther
ævarandi þökk að gjalda fyrir
baráttuna til hreinsunar á svipl-
jótum útbrotum á líkama kirkj-
unnar forðum. Því mig grunar að
ásýnd hennar væri önnur núna, ef
þetta hefði ekki komið til. Og
þessu fögnum við í dag.
Ég ætla að leyfa sr. Kristjáni
Val Ingólfssyni að eiga lokaorðin
að þessu sinni, en í prédikun í
Langholtskirkju á þessum degi í
fyrra sagði hann nokkuð, sem
aldrei má heldur gleymast:
Siðbótin er ekki bara atburður eða
stefnumörkun á tilteknum tíma á 16.
öld. Siðbótin er lifandi hreyfing fólks á
ferð í þjónustu Krists. Siðbótin er
áminning um að halda sig við Krist, er-
indi hans og Orð.
Siðbótardagurinn
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Hinn 31. október árið 1517
gerðist stórmerkur atburður í
Wittenberg í Þýskalandi, sem
átti eftir að hafa afdrifaríkar
afleiðingar fyrir kirkjusöguna
og jafnvel marka upphaf nú-
tímans og frjálsrar hugsunar.
Sigurður Ægisson fjallar um
það mál í dag.
HUGVEKJA
Skipholti 29a
105 Reykjavík
fax 530 6505
heimili@heimili. is
sími 530 6500
HÁALIND 19
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 15.00-18.00
Einstaklega glæsilegt parhús (teng-
ist á bílskúrunum) á tveimur hæð-
um með innbyggðum bílskúr á frá-
bærum stað í Lindahverfinu. Alls 4
svefnherb., tvær stofur, tvö baðher-
bergi og sannkallað gourmet eld-
hús. Ekkert hefur verið til sparað við
frágang og val á innréttingum.
Sjón er sögu ríkari!
Verð. 34,9 millj.
Björn og Halla taka á móti gestum í dag, sunnudag, milli kl. 15-18
w w w . h i b y l i o g s k i p . i s
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. fasteignas.,
Eyrarbakki
Reisulegt vel byggt einbýlishús á
stórri lóð ásamt bílskúr alls 181,8 fm.
Ófrágengið ris er yfir öllu húsinu með
tilheyrandi möguleikum. Stórt eldhús,
tvær stofur, fjögur herbergi og tvær
snyrtingar eru í húsinu. Húsið hefur
verið heilklætt að utan og er í góðu
ástandi. Stuttur afhendingartími. Verð
13,2 milljónir.
Arnarhraun, Hafnarfjörður - 2ja og 3ja herb.
Um er að ræða nýjar íbúðir, 3 3ja herb. íbúðir sem eru 96 fm., 104 fm.,
114 fm. og 2ja herb. íbúð sem er 82 fm. Íbúðunum verður skilað með
vönduðum innréttingum og flísalögðum böðum. Rúmgóðar og bjartar
íbúðir á góðum stað.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar allar gerðir eigna á
söluskrá. Við getum boðið mjög sanngjarna söluþóknun.
STOFNFUNDUR Félags sjálf-
stæðismanna í Grafarholti var hald-
inn 18. október sl. Björn Gíslason,
formaður í Árbæ,
Selási og Ártúns-
holti, setti fund-
inn og sagði frá
aðdraganda að
stofnun félagsins
í Grafarvogi. Fé-
lagsmenn í hinu
nýja félagi eru
476 og var Stein-
grímur Sigur-
geirsson kjörinn
formaður.
Gestir fundarins voru þeir Geir
H. Haarde, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins og fjármálaráð-
herra, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, oddviti borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Félag sjálf-
stæðismanna
í Grafarholti
stofnað
Steingrímur
Sigurgeirsson
NÝLEGA voru sextíu ár liðin frá
því að Orðabók Háskólans tók til
starfa. Í tilefni þess var nýju efni
bætt á vefsíðu stofnunarinnar sem
finna má á slóðinni: www.lexis.hi.is.
Það er öllum aðgengilegt og vonast
Orðabókin til að sem flestir lands-
menn nýti sér það. Þessar nýjungar
eru:
Beygingarlýsing íslensks nútíma-
máls er safn beygingardæma. Þar
má leita að orðum og einstökum
beygingarmyndum orða, þar á með-
al mannanöfnum. Í safninu eru nú
um 176.000 beygingardæmi.
Skráin birtir fjölbreytilega mynd
af notkun einstakra orða í föstum
samböndum og í dæmigerðu sam-
hengi við önnur orð. Hún varpar
ljósi á merkingu og notkun orða og
veitir innsýn í sögu og samhengi
orðaforðans á síðari öldum. Í
skránni eru rösklega 120.000 orða-
sambönd og er hún unnin úr dæma-
söfnum Orðabókarinnar.
Safn tölvutækra texta frá ýmsum
tímum til notkunar við orðabóka-
gerð og málrannsóknir. Á vefsíðu
Orðabókarinnar er hægt að leita að
orðum og sjá dæmi um notkun
þeirra úr þeim hluta textasafnsins
sem opinn er almenningi.
Ritsmálssafn, sem er aðalsafn
Orðabókarinnar með dæmum um
notkun orða í íslensku frá miðri 16.
öld til nútímans, hefur verið að-
gengilegt um nokkurt skeið. Á því
voru gerðar nokkrar breytingar.
Stærstur hluti þess er öllum opinn.
Orðabók
Háskólans
60 ára
STJÓRN Ungra vinstri grænna í
Reykjavík mótmælir harðlega skert-
um opnunartíma Landsbókasafns
Íslands, Háskólabókasafns og telur
að með skerðingu opnunartímans
séu hagsmunir stúdenta við Háskóla
Íslands fyrir borð bornir, segir m.a. í
ályktun sem stjórn félagsins sendi
nýlega frá sér. Síðan segir m.a. í
ályktuninni:
„Þjóðarbókhlaðan er ekki einung-
is lesaðstaða stúdenta heldur hýsir
hún einnig dýrmætt bókasafn sem er
stúdentum ómetanlegt og nauðsyn-
legt í námi. Skertur opnunartími
kemur því illa niður á öllum stúd-
entum. Stjórn Ungra vinstri-grænna
í Reykjavík lýsir jafnframt sárum
vonbrigðum sínum yfir áhuga- og
skilningsleysi stjórnvalda, sem og
Háskólayfirvalda, á þeirri stöðu sem
uppi er.“
Mótmæla
skertum af-
greiðslutíma
ATVINNA mbl.is