Morgunblaðið - 31.10.2004, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Örlagalínan 908 1800 & 595 2001.
Miðlar, spámiðlar, draumráðning-
ar, tarotlestur. Fáðu svör við
spurningum þínum. Örlagalínu-
fólkið er við frá 18-24 öll kvöld
vikunnar. Vísa Euró, s. 595 2001.
Hinn þekkti huglæknir Þorgerð-
ur frá Teigi verður með einkatíma
í versluninni Betra lífi, Kringlunni,
3.-6. nóvember nk.
Pantanir í síma 581 1380.
Andleg leiðsögn, miðlun, tarot,
draumráðningar og huglækning-
ar. Er við frá 13-1.
Hanna s. 908 6040.
Hausttilboð - 30%! Full búð af
nýjum vörum fyrir hunda, ketti og
önnur gæludýr. 30% afsláttur af
öllum vörum. Opið mán.-fös.
kl.10-18, lau. 10-16, sun. 12-16.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði, sími 565 8444.
Cat's Best kattasandur eyðir
lykt 100%, rakadrægur og
klumpast vel.
DÝRABÆR, Hlíðasmára 9, Kóp.,
sími 553 3062. Opið kl. 13-18
mán.-fös., kl. 11-15 lau.
Trjáklippingar. Klippum tré og
runna. Vönduð vinna, áratuga
reynsla. Fjarlægjum afskurðinn.
Trjáklipping núna hreinsar lús og
maðk að mestu. Uppl. 695 9039
Guðlaugur.
Brenderup 1150 S. Frábær fyrir
farangursflutninga eða sem verk-
færakista. Mál: 144x90 cm. Verð
116.000 m. vsk (lok innifalið!)
www.lyfta.is - 848 6922 -
lyfta@lyfta.is.
Heimsendingarþjónusta
Hafðu það kínverskt. Mikið úrval.
Tilboð. Sjá www.sjanghae.is.
Sími 517 3131.
Heimsendingarþjónusta
www.simnet.is/infrarex
Infrarex rafeindahitatæki. Eyðir
bólgu og er verkjastillandi f. t.d
liðagigt, slitgigt, vefjagigt, bak-
verk, axlameiðsl, slitna hásin,
tognun. Verð aðeins 6999 kr.
Póstsendi um allt land.
Upplýsingar í síma 865 4015.
Vatnsleikfimi
Meðgönguleikfimi í laug.
Yoga. BodyBalance.
Tækjasalur. Frábærir leiðbein-
endur. Glæsileg aðstaða.
Saga, Heilsa & Spa,
Nýbýlavegi 24, sími 511 2111.
Jóga og slökun, Bæjarlind 12,
Kópavogi. Mjúkar og styrkjandi
æfingar, slökun og hvíld. Byrjend-
anámskeið - Framhaldstímar.
Gjafakort. Kennari Kolbrún Þórð-
ardóttir hjfr., s. 861 6317.
hjukrunogheilsa@mmedia.is.
Herbalife.
Léttari og frískari meðan kílóin
fjúka. Hringdu s. 699 7383,
www.slim.is.
næring -megrun - heilsa.
ÍTALÍA — FLÓRENS
Leigi út íbúðir fyrir 4-5 manns í
miðbæ Flórens, frá 3 nóttum upp
í 6 mánuði. Einnig langtímaleiga.
begga@inwind.it,
sími 0039 348 8716986.
2ja herb. íbúð í 110 R. Rúmgóð
2ja herbergja ósamþykkt kjallara-
íbúð til leigu í Ártúnsholti. 55 þús
kr. á mán. Upplýsingar í síma 660
2435.
Einstaklingsíbúð í Rvík óskast
til leigu. Óska eftir að leigja 30-50
fm íbúð miðsvæðis í Rvík, þ.e.
101, 103, 105 eða 108. 23 ára,
reglusöm og reyklaus. Heiti skil-
vísum greiðslum. Ásdís, s. 869
3810, asdisj@hi.is.
Til leigu 100 fm skrifstofu- og
lagerhúsnæði í 105 Reykjavík.
Upplýsingar í s. 821 9215.
Tangarhöfði - hagstæð leiga.
Stórglæsilegt 200 fm skrifstofu-
húsnæði á 2. hæð til leigu á ca
kr. 600 fm. Skiptist í rúmgott and-
dyri, 7 herbergi með parketgólfi,
fundar- og eldhúsaðstöðu,
geymslu og snyrtingu. Uppl. í gsm
693 4161.
Listafólk - hönnuðir - einyrkjar.
Nokkur herbergi eru að losna -
vinnustofur - skrifstofur, 18-36-54
fm í snyrtilegu húsnæði í Hafnar-
firði. Sameiginleg kaffistofa. Upp-
lýsingar í síma 588 7050.
mbl.is
Núna á haustdögum
þegar litirnir í nátt-
úrunni voru hvað feg-
urstir lést kær vinur og
mágur minn Gunnar Sigurðsson.
Það var vitað að hverju dró en samt
var maður ekki viðbúinn, þessi
hrausti og hressi maður var allur.
Fyrir rúmum 40 árum kynntust
Gunnar og Hulda Sigríður Vidal,
fóstursystir mín og frænka. Þau
giftu sig og voru núna í maí að halda
upp á 40 ára hjúskaparafmæli sitt.
Þau eignuðust fjögur mannvænleg
börn, Sigurð, Frosta, Elínbjörgu og
Snorra. Síðan komu barnabörnin,
eitt af öðru, og eru þau orðin átta.
Það er margs að minnast og eru þær
minningar allar góðar, hann hafði
svo marga góða eiginleika, eitt var
GUNNAR
SIGURÐSSON
✝ Gunnar Sigurðs-son fæddist í
Reykjavík 15. janúar
1938. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
aðfaranótt mánu-
dagsins 4. október
síðastliðins og var
útför hans gerð í
kyrrþey að ósk hins
látna.
kímnigáfa og að koma
öllum í gott skap og
gera góðlátlegt grín án
þess að særa nokkurn.
Hann var mikill fjöl-
skyldumaður og átti
samheldna fjölskyldu,
barnabörnin voru
ávallt velkomin til
þeirra og þegar þau
komu í heimsókn voru
ávallt fagnaðarfundir
og komu þau oft til afa
og ömmu.
Hann var einn af
þeim sem geta allt,
hafði verkvit og var
vandvirkur. Þannig var hann boðinn
og búinn að rétta hjálparhönd, ég
fann það þegar ég byggði mér hús,
og þegar börnin hans fóru að byggja
var hann óþreytandi að aðstoða.
Núna síðast í sumar þótt heilsan
væri tæp þá kom hann samt til að
veita syni sínum aðstoð.
Núna þegar söknuðurinn fyllir
hugann, þá minnist ég allra þeirra
góðu stunda sem ég og fjölskylda
mín nutu því það var ávallt húsrúm
og ekki síður hjartarúm á þeim bæ.
Guð blessi minningu Gunnars Sig-
urðssonar.
Þórey Sigfúsdóttir.
Hjartkær eiginkona mín og móðir,
GUÐNÝ ÁSDÍS HILMARSDÓTTIR,
Hvassaleiti 58,
Reykjavík,
lést að heimili sínu að kvöldi fimmtudagsins 28.
október.
Sveinn S. Pálmason
og börnin.
Afi og amma á Birki-
hvamminum tóku alltaf
vel á móti okkur þegar
við komum þangað.
Þar fengum við bestu pönnukökur í
heimi sem Unnur amma bakaði. Eft-
ir að amma dó talaði afi oft um það
hvað hann saknaði þess að fá ekki
pönnukökurnar hennar ömmu.
Margar góðar minningar koma upp
þegar við hugsum um afa Óla. Við
munum eftir honum þar sem hann lá
í sófanum inni í stofu, með gulan
kodda undir höfðinu, í ullarsokkum,
með Morgunblaðið yfir andlitinu og
hálfhrjótandi. Við stríddum honum
með því að klípa hann í tærnar en
hann kippti sér ekkert upp við það
og hélt áfram að sofa. Á neðri hæð-
inni á Birkihvamminum var smíða-
herbergið hans afa. Þar áttum við
margar góðar samverustundir með
afa. Við fengum að leika okkur með
hamar og nagla, á meðan afi smíðaði
hluti sem voru sannkölluð listaverk.
Fyrir jólin smíðuðu Ólarnir saman
hina ýmsu hluti og þá var öðrum
bannaður aðgangur. Afraksturinn
kom svo í ljós þegar jólapakkarnir
voru opnaðir. Í smíðaherberginu var
afi með nammihillu og vorum við
spennt að komast í hana. Lengi vel
hélt María að þetta væri töfrahilla.
Afi kenndi okkur margt. Eitt sem
við lærðum var að drekka kringlu-
kaffi. Kringlu kaffi er mjólk með ör-
litlu kaffi, fullt af sykri og svo dýfir
maður kringlu ofan í bollann. Okkur
fannst við svo fullorðin þegar við
drukkum kringlukaffi með afa. Við
systkinin litum mjög upp til afa.
Þegar Óli var lítill og var ekki byrj-
aður að tala almennilega vildi hann
alltaf fara í afa-grænur. Mamma
komst að því að hann var að tala um
ÓLAFUR
MAGNÚSSON
✝ Ólafur MarkúsMagnússon
fæddist á Jófríðar-
stöðum í Hafnarfirði
9. september 1917.
Hann lést á Sólvangi
í Hafnarfirði 15.
október síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Hafnar-
fjarðarkirkju 22.
október.
síðar grænar ullarbux-
ur sem hann vildi vera í
alla daga til að vera
eins og afi. Afi var
nefnilega oft klæddur í
síðar ullarbuxur sem
amma prjónaði á hann.
Afi og amma voru
mikið útivistarfólk.
María man eftir mörg-
um útilegum sem hún
fór í með afa og ömmu í
appelsínugula tjaldinu
þeirra. Hún fór með
þeim í útilegu á hverju
sumri og oft var við-
komustaðurinn Skafta-
fell en þar bjó amma þegar að hún
var lítil stúlka. Þar fóru þau saman í
göngu og enduðu með því að baða
sig í læknum í Lambhaga. Ekki var
alltaf farið langt og oftar en ekki var
tjaldað í Krísuvík. Tjaldað var við lít-
inn læk sem er við veginn sem liggur
niður að Krísuvíkurbjargi. Man
María sérstaklega eftir einni útileg-
unni þar sem afi hjálpaði henni að
byggja stíflu í læknum. Það
skemmtilegasta var að þau stífluð-
um lækinn rétt fyrir neðan þar sem
bílarnir keyrðu yfir og myndaðist
þar stórt lón. María og afi skemmtu
sér konulega að horfa á bílana keyra
yfir lónið sem hafði myndast. Henni
fannst afi vera svo mikill prakkari að
gera þetta með sér.
Afi hafði frá mörgu að segja og
alltaf var jafn gaman að hlusta. Þeg-
ar María fór til Ástralíu skrifaði afi
henni reglulega bréf þar sem hann
sagði henni hvað væri að gerast
heima á Íslandi. Oft fylgdu frásagnir
frá gömlum tímum þegar hann var
ungur maður. Afa þótti merkilegt
hvað María var langt í burtu og hvað
hún hafði ferðast mikið. Þegar hann
var á hennar aldri tíðkaðist ekki að
ferðast svona langt. Helst voru það
ferðalög innanlands í atvinnuleit.
Lýsti hann því þegar hann fór í 20
tíma siglingu vestur á Hesteyri en á
leiðinni varð hann mjög sjóveikur og
var því fegnastur að komast á þurrt
land aftur. Þar var hann í burtu frá
fjölskyldu sinni í sex sumur að vinna
í síld. Seinna fóru Unnur frænka og
Óli líka út sem skiptinemar, Unnur
til Argentínu og Óli til Nýja Sjá-
lands. Einnig hefur Gerður frænka
verið mikið erlendis og býr hún núna
með syni sínum Þórbergi í Noregi.
Honum fannst skrítið að hafa okkur
svona langt í burtu. Þegar María
hafði dvalið í sex mánuði í Ástralíu
þá hætti hún að fá bréf frá afa. Hann
hafði fengið heilablóðfall, varð rúm-
fastur og gat ekki skrifað. Afi flutti á
Sólvang og þar fékk hann góða
umönnun hjá starfsfólkinu og lét
hann vel af dvölinni og talaði alltaf
vel um vinkonurnar sínar þar.
Auður dóttir Maríu fæddist 6. júlí
og fórum við systkinin með hana
nokkurra daga gamla til afa. Hann
var svo glaður að fá að sjá hana.
Hann var mjög hrifin af Auði og vildi
alltaf fá hana upp í rúm til sín. Auði
þótti ekki slæmt að liggja hjá lang-
afa og kom það fyrir að hún sofnaði
hjá honum. Henni fannst svo róandi
hvernig hann klappaði hendinni
taktfast, létt á magann á sér.
Áður en afi veiktist kom hann
heim til mömmu og pabba næstum
því á hverjum degi. Það var alltaf
gott að fá hann í heimsókn. Óli man
eftir því þegar afi hafði óvart sett
díselolíu á Löduna og kom akandi
með svartan mökk á eftir sér. Hann
vissi að pabbi gæti hjálpað honum í
vandræðum sínum.
Síðustu ár kom hann sjaldnar
heim í Háahvamm en þegar hann
kom voru haldnar veislur. Þetta
voru ekki venjulegar veislur, þetta
voru sviðaveislur. Mamma var dug-
leg að halda þessar veislur fyrir afa,
vini og kunningja sem heimsóttu
hann reglulega á Sólvang. Eiga þær
eftir að lifa lengi í minnum þessa
fólks. Stutt er síðan afi spurði
mömmu hvort hún væri búin að
kaupa sviðin í næstu sviðaveislu.
Maríu þykir mjög vænt um að afi
hafi getað komið í heimsókn í íbúð-
ina hennar uppi á Ásfjalli. Talaði
hann um það að hún ætti heima þar
sem hann og amma voru með kart-
öflugarð og honum þótti það svolítið
skrítið. Afi kom í Háahvamm á af-
mælinu sínu 9. september síðastlið-
inn og var viðstaddur skírnina henn-
ar Auðar.
Nú er afi farinn til ömmu. Hann
dó á afmælisdaginn hennar 15. októ-
ber og við erum viss um að hún hef-
ur tekið á móti honum með nýbök-
uðum pönnukökum. Við geymum
minningarnar um afa, og allt það
sem hann hefur kennt okkur verður
okkar veganesti í framtíðinni.
María og Ólafur.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar