Morgunblaðið - 31.10.2004, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 45
DAGBÓK
Þekkir þú fólkið?
FÓLKIÐ á þessum myndum er lík-
lega ættað úr Dalasýslu eða Snæ-
fellsnesi, e.t.v. er það af Ormsætt.
Þeir sem kunna að þekkja fólkið
eru beðnir um að hafa samband við
Björgu Gunnarsdóttur í síma
557 4302.
Súpermódelkettir fást gefins
TVEIR kisustrákar, rúmlega sjö
mánaða, óska eftir hlýlegum heim-
ilum þar sem hægt er að vera frjáls
úti. Annar er smár, einslitur silf-
urgrár, fínlegur og andlitsfríður
hefðarköttur. Hinn er háfættur, silf-
urgrár, beisbröndóttur. Báðir eru
mjög blíðir og ótrúlega skemmti-
legir. Áhugasamir hafi samband við
Kristínu í síma 698 6862.
Holli Polli er týndur
HOLLI Polli er rúmlega 10 ára
gamall fressköttur. Hann er brönd-
óttur og hvítur og með eyrnamarkið
R 7023. Hann lagði af stað í æv-
intýraför frá heimili sínu í Setbergs-
landi í Hafnarfirði og hefur ekki rat-
að til baka. Hann gæti hafa farið inn
í skúr eða tekið sér bílferð. Hans er
sárt saknað. Þeir sem hafa orðið
hans varir vinsamlega hafið sam-
band í síma 555 0701, 555 1914,
848 1591 eða 869 7002.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
ÓL í Istanbúl.
Norður
♠D2
♥ÁK109 S/Allir
♦G74
♣G1087
Vestur Austur
♠ÁKG8764 ♠10953
♥843 ♥765
♦K ♦5
♣D6 ♣ÁK543
Suður
♠–
♥DG2
♦ÁD1098632
♣92
Tígulkóngurinn kæri, kominn vildi
ég væri …
Vestur Norður Austur Suður
Rombaut Filios Palau Papa
– – – 4 tíglar
4 spaðar 5 tíglar 5 spaðar 6 tíglar
Pass Pass Dobl Allir pass
Spilið að ofan er frá 9. umferð
riðlakeppninnar í Tyrklandi, en sagn-
irnar eru úr viðureign Grikkja og
Frakka. Grikkinn Papakyriakopolus
barðist upp á sjötta þrep í sex tígla
og var heppinn með blindan og út-
spilið, sem var spaðakóngur. En þar
lauk hans láni – Papa trompaði, fór
inn í borð á hjarta og svínaði fyrir
tígulkónginn. Vestur átti slaginn og
var ekki höndum seinni að spila laufi
– tveir niður og 500 til Frakka. Á
hinu borðinu spiluðu Grikkir fimm
spaða í AV, sem fóru tvo niður – 200 í
viðbót til Frakka og 12 IMPar.
Í sýningarleik Ítala og Hollendinga
á bridgebase.com lenti Ítalinn Bocchi
í nákvæmlega sömu stöðu og Papa.
Sagnir voru samhljóða og útspilið
háspaði. Bocchi byrjaði eins og Papa,
fór inn á blindan á hjarta í öðrum
slag og spilaði tígulgosa. Austur lét
fimmuna fumlaust, en síðan gerðist
ekkert í langan tíma. En þegar
Bocchi loks tók ákvörðun reyndist
hún rétt – hann stakk upp ás og fékk
tólf slagi, ítölskum áhorfendum til
mikillar gleði. Sennilega hefur Bocchi
hugsað sem svo að austur hefði ekki
endilega sagt fimm spaða með Kx í
tígli, auk þess sem vestur hefði frekar
barist í sex spaða með eyðu. Þetta
eru veikar vísbendingar, en betri en
engar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. f3 e5 7. Rb3 Be6 8. Be3
Rbd7 9. Dd2 b5 10. O-O-O Be7 11. g4
b4 12. Re2 a5 13. Kb1 h6 14. Rg3 a4 15.
Rc1 d5 16. Rf5 Bxf5 17. gxf5 d4 18. Bf2
O-O 19. Hg1 Kh8 20. Bb5 Rc5 21. Rd3
a3 22. Rxe5 axb2 23. Bxd4 Hxa2 24.
Kxa2 Da5+ 25. Kxb2 Dxb5
Staðan kom upp í opnum flokki á Ól-
ympíuskákmótinu sem lauk fyrir
skömmu í Calviu á Mallorca. Peter
Svidler (2735) var aðstoðarmaður
Vladimir Kramniks í einvígi hans um
heimsmeistaratitilinn við Peter Leko
og gat því ekki tekið þátt fyrir rúss-
neska liðið í fyrstu umferðum mótsins.
Hér hafði hann hvítt í sinni fyrstu skák
gegn Ísraelanum Emil Sutovsky
(2697). 26. Hxg7! Kxg7 27. Rg4 Hh8
28. Rxf6 Bxf6 29. Hg1+ Kh7 30. Bxf6
Ra4+ 31. Kc1 og svartur gafst upp
enda taflið tapað eftir 31... Hg8 32.
Hxg8 Df1+ 33. Dd1 Dxd1+ 34. Kxd1
Kxg8 35. Bd4.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
GENGI
GJALDMIÐLA mbl.is
YOGA •YOGA • YOGA
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, símar 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla.
Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar.
Nýtt í yogastöðinni Heilsubót - KRAFT YOGA
Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur
NÝTT! Asthanga Yoga
Jens Ingólfsson, rekstrarhagfræðingur,
Róbert Trausti Árnason, rekstrarfræðingur.
Salómon Jónsson,
löggiltur fasteignasali.
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is eða robert@husid.is .
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Gott fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Þekkt undirfataverslun í stórri verslunarmiðstöð.
Sérverslun - heildverslun með 350 m. kr. ársveltu.
Þekkt bílaleiga á góðum stað á höfuðborgarsvæðinu með fyrirmyndarað-
stöðu í eigin húsnæði. Góð viðskiptasambönd og fastir viðskiptavinir.
Þetta er áhugaverður rekstur fyrir samhenta fjölskyldu.
Rótgróið veitingahús með veisluþjónustu og veislusölum.
Þekkt barnafataverslun í Kringlunni.
Lítil sápugerð með góðar vörur. Hentugt fyrirtæki til flutnings.
Ein þekktasta barnafataverslun landsins. Ársvelta 85 m. kr.
Gullöldin. Rótgróinn hverfispub - skemmtistaður í Grafarvogi.
Þekkt sportvöruverslun í miðbænum. Mjög góður rekstur. Mikill sölutími
framundan.
Söluturninn Miðvangi. Gott tækifæri fyrir einstakling sem vill hefja eigin
atvinnurekstur.
Þekkt verslun með föndurvörur. Ársvelta 60 m. kr.
Þekkt sérverslun með 200 m. kr. ársveltu. Eigin innflutningur. Góður
hagnaður um árabil.
Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Rótgróinn veitingastaður, söluturn og ísbúð. Ársvelta 36 m. kr. Góður
rekstur.
Tveir söluturnar í 101 Reykjavík. Hentugur rekstur fyrir hjón eða fjöl-
skyldu.
Þekkt snyrtistofa við Laugaveg.
Húsgagnaverslun í góðum rekstri.
Skemmtileg gjafavöruverslun í Kringlunni.
Rótgróin brauðstofa í eigin húsnæði. Vel tækjum búin - gott veislueld-
hús. Mikil föst viðskipti.
Bílasprautun og réttingaverkstæði. Vel tækjum búið. 3-4 starfsmenn.
Stór og þekktur pub í eigin húsnæði. Mikil velta, spilakassar og pool.
Glæsileg ísbúð, vídeó og grill á einstaklega góðum stað í austurbænum.
Mikil veitingasala og góð framlegð.
Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum
búið, í eigin húsnæði á góðum stað.
Íþróttavöruverslun með þekkt merki og góð viðskiptasambönd. Sami
eigandi í 20 ár. Hagstætt verð.
Lítill söluturn í Háaleitishverfi. Gott tækifæri fyrir duglegt fólk sem vill
komast í eigin rekstur.
Smáskór. Rótgróin sérverslun með fallega barnaskó. Eigin innflutningur
að stórum hluta. Hentugt fyrirtæki fyrir tvær smekklegar konur eða sem
viðbót við annan rekstur.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is .
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen),
sími 533 4300, GSM 820 8658 (Jens) og 663 8478 (Róbert).
Tanja Þorsteinsson læknir
Sérgrein: Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp
Hef opnað stofu í húsnæði
ART Medica
Bæjarlind 12, 201 Kópavogi
Tímapantanir í síma 515 8100
sérfræðingar í kvensjúkdómum,
innkirtlasjúkdómum kvenna og ófrjósemi.
Guðmundur Arason og Þórður Óskarsson
Höfum flutt læknastofu okkar í
ART Medica,
Bæjarlind 12, Kópavogi, s. 515 8100
18 VIKUR Á LÝÐHÁSKÓLA Í DANMÖRKU
KYNNINGARFUNDUR
HJÁ NORRÆNA FÉLAGINU, ÓÐINSGÖTU 7, 01 REYKJAVÍK:
LAUGARDAGINN 6. NÓVEMBER NK. KL. 14.00
Nánari upplýsingar á
www.krogerup.dk - steinsnar frá Kaupmannahöfn
Krogerup Højskole býður öllu ungu forvitnu fólki upp á
Komið og spjallið við kennara
okkar, Rikke Forchhammer (GSM
+45 4072 0127). Rikke verður á
Íslandi dagana 4.-7/11 nk. Þú
getur einnig hringt til skólans í
síma +45 4919 0380. Við bjóðum
upp á spennandi bóklegar og
verklegar námsgreinar auk
fjölmargra annara tilboða, t.d.
þriggja vikna námsferð til Kína.
Námið fer fram á dönsku. Hægt
er að sækja um styrk til námsins.
Námskeið frá
8.11.2004 til 21.5.2005
og frá 16.1.2005 til 21.5.2005
Verð fyrir 18 vikur: 18.450 DKK
UMSÓKNARFRESTUR um Eyr-
arrósina, sem er viðurkenning
fyrir framúrskarandi menningar-
starf á landsbyggðinni, rennur út
á morgun, 1. nóvember. Að sögn
Hrefnu Haraldsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Listahátíðar í
Reykjavík og nefndarmanns í val-
nefnd Eyrarrósarinnar, hefur
fjöldi umsókna borist og hleypur
talan á einhverjum tugum um-
sókna, enda til mikils að vinna.
„Verðlaunaféð er ein og hálf
milljón króna og einnig fær verð-
launahafi grip til eignar eftir
Steinunni Þórarinsdóttur,“ segir
Hrefna.
Markmið Eyrarrósarinnar er
að sögn Hrefnu að verðlauna
framúrskarandi menningarverk-
efni á landsbyggðinni, sem hafa
náð að skjóta rótum, styrkja sam-
félagið og auka fjölbreytni mann-
lífsins og hvetja þannig til lifandi
menningarstarfs.
Umsóknum skal skilað til
Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf
88, 121 Reykjavík.
Umsóknarfrestur um Eyrarrós að renna út