Morgunblaðið - 09.11.2004, Síða 23
Þæfð ull:
Hattur og
vettlingar,
eftir Snjó-
laugu G.
Sigurjóns-
dóttur.
HANDVERK og hönnun stendur þessa dagana að sýningu á
nytjahlutum úr textíl að beiðni Textílfélags Íslands í tilefni 30
ára afmælis á þessu ári. Efnt var til samkeppni um nytjahluti
úr textíl og bárust hátt í 200 hlutir frá 60 aðilum, allt frá
dúkum, teppum, kerrupokum, sjölum, peysum, púðum til
blómavasa, húfna og vettlinga. Að sögn Fjólu Guðmunds-
dóttur, fulltrúa hjá Handverki og hönnun, var öllum
áhugasömum heimilt að senda inn muni og valdi þriggja
manna dómnefnd verk frá 16 aðilum.
Morgunblaðið/Sverrir
Trefill: Heklufæla um hálsinn úr ull og tréperlum.
HÖNNUN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 23
DAGLEGT LÍF
Hvatinn að því að ég ákvað að setjaupp nýja vefsíðu er að safna á einnstað þeirri reynslu, upplýsingum ogþekkingu sem ég hef viðað að mér í
þessu starfi á annan áratug,“ sagði Jóna Ingi-
björg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur,
sem nú hefur opnað vefsetrið: www.jonaingi-
bjorg.is þar sem fólk getur kynnt sér þá þjón-
ustu sem hún býður almenningi, félagasam-
tökum og stofnunum í starfi sínu á sviði fræðslu
og ráðgjafar um kynlíf og geðheilbrigði.
„Ég býð upp á námskeið af ýmsu tagi, bæði
þau sem ég á tilbúin og eins getur fólk beðið
mig um að hanna sérstök námskeið um eitt-
hvert afmarkað svið, en stór hluti af námi mínu
í kynfræðinni var einmitt námsefnisgerð í kyn-
fræðslu. Enn fremur get ég haldið fyrirlestra
um einhver ákveðin efni og svo er ég einnig
með kynlífsráðgjöf.
Kynlífsráðgjöf í síma
Það nýjasta á því sviði er að nú býð ég, auk
ráðgjafar á stofu, upp á ráðgjöf á Netinu og enn
fremur símaráðgjöf,“ sagði Jóna Ingibjörg,
sem auk menntunar í hjúkrunar- og kynfræði á
að baki nám í viðtalsmeðferð.
„Kynlíf getur verið feimnismál og fólk á
kannski erfitt með að ræða kynlífsvandamál
augliti til auglitis við ókunnuga manneskju og
þá getur hentað vel að hafa samband símleiðis
eða á Netinu. Eins er það til í dæminu að fólk á
ekki heimangengt, er statt úti á landi, eða þá að
menn vilja kanna málin áður en farið er í við-
tal,“ sagði Jóna Ingibjörg og kvaðst hafa hann-
að netráðgjöfina og símaráðgjöfina með tilliti til
þess að auðvelda fólki að hafa samband.
„Samtalsmeðferð er það meðferðarform sem
notað er í kynlífsráðgjöf, sem er í raun fræðsla
og ráðgjöf til sjálfshjálpar vegna áhyggjuefna í
kynlífi. Þetta er sambandsráðgjöf þar sem kyn-
lífsvandamál eru í forgrunni og allir sem leita í
kynlífsráðgjöf eiga það sameiginlegt að vilja
bæta kynlífið og náin samskipti. Kynlífsráðgjöf
er fyrir einstaklinga og pör, gagnkynhneigða
jafnt sem samkynhneigða. En samtalsmeðferð
á borð við kynlífsráðgjöf hentar ekki þeim sem
eru að leita að skyndilausnum eða „pillum“ við
sínum vandamálum,“ sagði Jóna Ingibjörg enn-
fremur.
Þegar farið er inn á vefsetur Jónu Ingibjarg-
ar kennir ýmissa grasa og er of langt mál að
telja upp alla þá fyrirlestra og fjölbreytilegu
námskeið sem boðið er upp á.
Kynlíf og sjúkdómsvæðing
Hún skrifar líka þanka á vefsíðu sína og þar
er meðal annars athyglisverð grein sem ber
heitið Kynlíf og sjúkdómavæðing, en þar segir
Jóna Ingibjörg meðal annars:
„Fullnægingarkremin sem komu fram á sjón-
arsviðið í kjölfar rislyfja eru gott dæmi um sjúk-
dómsvæðinguna. Eftir að lyfið Viagra kom fram
á sjónarsviðið datt markaðsséníum í hug að
hægt væri að gera út á samsvarandi markað
fyrir konur. „Látum okkur nú sjá, ef við getum
tryggt þrútinn lim getum við ekki eins tryggt
þrútinn sníp? Er þetta sama fyrirbærið? Meira
að segja orðalagið í auglýsingunum vísar til að
konur og karlar séu eins – talað er um „stinn-
ingarvefi“. Með þessu er verið að gefa í skyn að
þrútnir kynfæravefir séu það sem báðum kynj-
unum finnist jafn mikilvægt í sínu kynlífi og ver-
ið að setja kynsvörun kvenna á sama bás og
karla og á forsendum karla. Mitt svar er klárt
„nei“, konur og karlar eru ekki alveg eins inn-
réttuð líkamlega og það er munur á viðhorfum
kynjanna til þess hvað telst mikilvægt í kynlífi.“
Síðan segir Jóna Ingibjörg: „Fullnæging-
arkremin eru prýðilegt dæmi um lúmska mark-
aðssetningu og sjúkdómavæðinguna eins og hún
leggur sig – að búa til þörf og búa til nýjan
markað til að plokka peninga af konum …“
Kynverund kvenna
Af þeim námskeiðum sem Jóna Ingibjörg
býður upp á skal hér aðeins tilfært eitt þeirra,
það er námskeið sem ber heitið Kynverund
kvenna (women’s sexuality), en í þessum mán-
uði efnir hún einmitt til námskeiðs um það efni
sem hefst 20. nóvember næstkomandi og er tvo
laugardaga í röð. „Þetta námskeið er nýjung að
því leyti að áherslur byggjast alfarið á veruleika
og forsendum kvennanna sjálfra og hvernig þær
upplifa sig sem kynverur, en ekki viðmiðum eða
hugmyndum annarra um hvernig þær eigi að
vera eða hvað þær áttu að upplifa,“ segir Jóna
Ingibjörg um námskeiðið.
„Hugmyndafræðin á bak við námskeiðið
byggist á því að, eins og konur þekkja, þá snýst
það að vera kynvera ekki bara um kynlífs-
athafnir eða það hvað kynfærin aðhafast hverju
sinni, heldur hvernig hjartað hefur það. Með
kynverund er átt við heildarupplifun þess að
vera kynvera, sjálfsmynd kvenna, hugsanir,
reynslu og líðan því tengda, hvort sem fólk er í
parasambandi eða einhleypingar. Á námskeið-
inu er komið til móts við konur sem vilja styrkja
og læra um kynverund kvenna út frá eigin for-
sendum og reynslu,“ sagði Jóna Ingibjörg Jóns-
dóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur.
FRÆÐSLA | Opnaði vefsetur og býður m.a. námskeið um kynverund kvenna
Kynlífs-
ráðgjöf
á Netinu
Morgunblaðið/Þorkell
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir: Ný vefsíða og námskeið um kynverund kvenna.
Vefslóð: www.jonaingibjorg.is
Netfang: jona@jonaingibjorg.is
svg@mbl.is
Nytjahlutir úr textíl
Peysa: Endurunnin flík
eftir Sigríði Ástu Árnadóttur.
Sýningin
stendur fram
til 14. nóvem-
ber í sýningar-
sal Handverks
og hönnunar í
Aðalstræti 12.
Frábærar, fjörugar og fjölbreyttar
ævintýraferðir fyrir fyrirtæki
jafnt sem vinahópa.
Upplýsingar í síma 562-7700
www.travel-2.is