Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VESTURBYGGÐ fær úthlutað
mestum byggðarkvóta á yfirstand-
andi fiskveiðiári, alls 218 þorsk-
ígildistonnum, samkvæmt ákvörðun
sjávarútvegsráðherra sem hann
kynnti í gær. Samtals er úthlutað
3.200 þorskígildistonnum til fjörutíu
byggðarlaga í 32 sveitarfélögum.
Auglýst var eftir umsóknum en
samkvæmt ákvæðum laga um stjórn
fiskveiða skal byggt á tveimur meg-
insjónarmiðum við úthlutun byggða-
kvóta. Annars vegar var úthlutað
byggðakvóta til byggðarfélaga sem
lent hafa í vandræðum vegna sam-
dráttar í sjávarútvegi og háð eru
veiðum eða vinnslu á botnfiski. Við
úthlutunina var metinn samdráttur í
veiðum og vinnslu botnfisks á við-
komandi stöðum. Byggðarlög með
fleiri en 1.500 íbúa komu ekki til
greina við úthlutunina. Alls var út-
hlutað 2.000 þorskígildistonnum til
þessara byggða.
Hins vegar var úthlutað til byggð-
arlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri
skerðingu á heildaraflaheimildum
fiskiskipa sem gerð hafa verið út og
landað hafa í viðkomandi byggðar-
lögum og sem hafa haft veruleg áhrif
á atvinnuástand í byggðarlögunum.
Annars vegar var komið til móts við
byggðarlög sem hafa treyst á veiðar
og vinnslu á rækju og hörpuskel sem
veidd er innan íslenskrar lögsögu en
hins vegar var tekið tillit til sam-
dráttar í úthlutuðum kvóta frá
Byggðastofnun.
Samkvæmt úthlutuninni fær Vest-
urbyggð mestan kvóta allra sveitar-
félaga nú, alls 218 tonn. Þar af fær
Bíldudalur 138 tonn, Patreksfjörður
75 tonn og Brjánslækur 5 tonn. Þá
fær Ísafjarðarbær úthlutað 210
tonnum. Sé hins vegar tekið mið af
einstökum byggðum fá Siglufjörður
og Stykkishólmur mestan kvóta, alls
205 tonn en í báðum tilfellum er
kvótanum ætlað að mæta samdrætti
í rækju- og hörpuskelveiðum. Þá er
Súðavíkurhreppi úthlutað 150 tonn-
um og Sandgerði 145 tonnum.
Hefur víða tekist vel
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir að sér sýnist að út-
hlutuninni nú takist betur að bæta
stöðu minni sveitarfélaga, sem séu
mjög háð botnfiskaflanum, svo sem á
Norðaustur- og Austurlandi. Eins sé
nú auðveldara að bregðast við áhrif-
um samdráttar í innfjarðarrækju-
veiðum, enda sé byggðakvótanum nú
úthlutað til sveitarfélaga en ekki út-
gerða eins og áður. Sagði Árni að
mörg dæmi væru um að einstakar
byggðir hefðu nýtt byggðakvótann
vel og væru ekki lengur háð úthlut-
unum uppbótarkvóta. Nefndi hann
meðal annars Flateyri og Suðureyri í
því sambandi en hvorug þessara
byggða fær úthlutað byggðakvóta
nú. Árni sagði einnig dæmi að
byggðir væru enn í vanda, þrátt fyrir
að þau hefðu fengið byggðakvóta en
þar væri helst um allra minnstu
byggðirnar að ræða.
Mestur byggðakvóti
til Vesturbyggðar
!!
" #
$
%# !!
!!
& !!
'# !!
'% (
")
')!!
)
)
* )
+# , -!!
. !!
/ !!
!!
! !!
"!!
)
,
" !!
+%! !!
Ætlar
að verða
geimfari
á morgun
Íslenskur nemi
í stjarneðlisfræði
flottastur
í Ameríku
HEIMILISOFBELDI er eitt alvar-
legasta mannréttindabrot í heimin-
um, sagði Ágúst Ólafur Ágústsson
alþingismaður á opnum fundi um
kynbundið ofbeldi, sem haldinn var
á vegum UNIFEM á Íslandi og
annarra samtaka sem standa að 16
daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi.
Kolbrún Halldórsdóttir þingmað-
ur sagði mikilvægt að þeir sem
fylgdust með þessum málaflokki,
þ.e. þeir sem störfuðu á akrinum,
héldu umræðunni um þessi mál
vakandi og Sólveig Pétursdóttir
þingmaður sagði mikilvægt að
breyta viðhorfum almennings til
þessara mála. Til þess að svo gæti
orðið þyrfti opinskáa og hreinskilna
umræðu.
Þingmennirnir þrír voru allir
frummælendur á fundinum sem var
haldinn í Odda, húsnæði félagsvís-
indadeildar Háskóla Íslands.
Á fundinum var m.a. rætt hvort
bæta þyrfti lög gegn kynbundnu of-
beldi. Sólveig benti m.a. á, í því
sambandi, að mikið hefði áunnist á
síðasta áratug. Hún hefði t.d. sem
dómsmálaráðherra beitt sér fyrir
ákveðnum réttarbótum fyrir þol-
endur ofbeldisbrota. Til dæmis
nálgunarbanni. Nú þegar reynsla
væri komin á þær réttarbætur væri
eðlilegt að skoða hvernig til hefði
tekist.
Dragi kærur til baka
Ágúst Ólafur gerði m.a. grein
fyrir þingsályktunartillögu sinni um
að heimilisofbeldi yrði skilgreint
sérstaklega í hegningarlögum en í
núgildandi löggjöf væri hvergi að
finna ákvæði sem skilgreindi slíkt
ofbeldi. Í heimilisofbeldismálum,
sem koma fyrir dómstóla, er því
dæmt skv. ákvæðum hegningarlaga
sem fjalla um líkamsmeiðingar.
Sólveig sagði hins vegar í þessu
sambandi að ekki væri víst að sér-
ákvæði um heimilisofbeldi leysti all-
an vanda. Frekar ætti að líta á
hvernig núgildandi ákvæðum lag-
anna væri framfylgt. „Ég held að
framkvæmd laganna sé oft meira
vandamál,“ sagði hún.
Drífa Snædal, framkvæmdastýra
Samtaka um kvennaathvarf, sagði
stjórnvaldsaðgerðir nauðsynlegar
til að ná umbótum í þessum mála-
flokki. Til dæmis þyrfti að taka ráð-
in af þeim konum sem yrðu fyrir
heimilisofbeldi, þannig að hið op-
inbera myndi sjálfkrafa kæra of-
beldismanninn en ekki konurnar
sjálfar. Hún sagði jafnframt, í þessu
sambandi, dæmi um að lögreglan
hringdi í konur og færi fram á að
þær drægju kærur til baka.
Fundargestir ræddu einnig dóma
í málum sem tengdust kynbundnu
ofbeldi. Kolbrún og Ágúst Ólafur
tóku m.a. undir með þeim sem
gagnrýndu að dómarar nýttu refsi-
rammann í slíkum málum ekki til
fullnustu. Ágúst sagði að meðal-
lengd dóma í nauðgunarmálum væri
um átján mánuðir. Hann sagði
refsirammann í slíkum málum skýr-
an en dómarar hundsuðu þrátt fyrir
það stóran hluta hans. Hámarks-
refsing fyrir nauðgun væri sextán
ár. „Við þurfum einhvers konar við-
horfsbreytingu meðal dómara.“
Hann velti því einnig fyrir sér hvort
löggjafinn ætti að setja refsihækk-
unarákvæði í hegningarlögin, til að
ná fram þyngri refsingu í nauðg-
unarmálum.
„Heimilisofbeldi eitt
alvarlegasta mannrétt-
indabrot í heiminum“
Morgunblaðið/Þorkell
Fundargestir á fundi um kynbundið ofbeldi. Fremstar á myndinni eru
Rúna Jónsdóttir og Kolbrún Pétursdóttir.
ÚR VERINU
SH HEFUR tilkynnt kaup á franska
fyrirtækinu Comigro Geneco SA og
að unnið sé að sameiningu þess við
Icelandic France. Kaupverð franska
félagsins er þrjár milljónir evra og
vinna aðeins 3 starfsmenn hjá því.
Velta Comigro er um 10 milljónir
evra sem er um 1,4% af veltu SH í
fyrra. Samkvæmt tilkynningu frá
SH hefur Comigro skilað ágætum
hagnaði en í fréttatilkynningu frá
SH kemur fram að félagið sé með
sterka markaðsstöðu í ákveðnum
hlutum smásölugeirans, frystibúð-
um og heimsendingarþjónustu.
Comigro fellur því vel að Icelandic
France sem hefur sterka stöðu með-
al stórverslana og í veitingaþjón-
ustu.
Á hluthafafundi SH í gærmorgun
var samþykkt að veita stjórn félags-
ins heimild til að auka hlutafé þess
um einn milljarð króna. Jafnframt
samþykkti fundurinn að víkja frá
forgangsrétti hluthafa til að skrifa
sig fyrir hlutafjáraukningunni. Út-
boðsgengi verður ákveðið síðar af
stjórn félagsins. Tilgangur heimild-
arinnar er að fjármagna nýlegar
fjárfestingar í Bretlandi en einnig er
ætlunin að nota hlutaféð til áfram-
haldandi uppbyggingar. Þá er einnig
ætlunin að uppfylla skilyrði Kaup-
hallar Íslands um eignarhald og
auka viðskipti með hlutabréf félags-
ins.
Þá var á fundinum tilkynnt að ver-
ið væri að ganga frá kaupum á af-
ganginum (25%) af Coldwater Sea-
food sem mun auðvelda alla
hagræðingu í Bretlandi en SH hefur
keypt Seachill og Cavaghan & Gray í
Bretlandi á árinu. Ætti þetta að
styrkja stöðu SH í Bretlandi enn
frekar.
SH kaupir fyrirtæki í Frakklandi
Hlutaféð aukið
um einn
milljarð króna