Morgunblaðið - 07.12.2004, Síða 20
Land | Akureyri | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Velgengni | Umf. Snæfells í úrvals-
deildinni í körfubolta hefur vakið mikla
athygli um allt land og um leið hafa
heimamenn verið stoltir af sínu liði. Fyr-
ir nokkru hafði eftirlitsnefnd KKÍ um
launaþak afskipti af málum Snæfells.
Nefndin úrskurðaði að liðið bryti reglur
sambandsins og borgaði leikmönnum of
há laun. Það er mál manna að launaþakið
komi illa niður á landsbyggðarfélög-
unum. Leikmönnum sem koma til lands-
byggðarfélaganna eru áætlaðar tekjur
frá félögunum vegna fæðis og húsaleigu
þrátt fyrir að í samningum við leikmenn
sé ekkert minnst á slík atriði. En þetta
snýr öðruvísi við ef leikmenn fara frá
landsbyggðinni til liðs við félög á höf-
uðborgarsvæðinu.
Þá hverfa þeir leikmenn í fjöldann og
hvergi kemur debetmegin kostnaður
vegna fæðis og húsnæðis hjá viðkomandi
félagi jafnvel þó að hann sé greiddur af
félaginu. Einn erlendur leikmaður Snæ-
fells hefur hætt í kjölfarið svo að nú er
launakostnaður Snæfells undir launaþak-
inu í bili. Þetta mál hefur farið mjög illa í
bæjarbúa og ekki síst leikmenn félagsins.
Það hefur komið niður á getu þeirra í síð-
ustu tveimur leikjum liðsins. Á fimmtu-
daginn verða þeir að komast í rétta gír-
inn.
Bónusverslun | Fyrir nokkrum vikum
var opnuð ný og glæsileg Bónusverslun í
húsnæði þar sem áður starfaði 10–11-
verslun. Mikil eru viðbrigðin því mat-
vöruverð snarlækkaði og framboð mat-
vöru er mun meira. Bæjarbúar þurfa
ekki lengur að gera sér ferð til Reykja-
víkur til að versla ódýrt. Nýja verslunin
styrkir búsetu í Hólminum, þótt alltaf
hafi þótt gott að búa þar.
Í Stykkishólmi hefur verið starfrækt
bókaverslun í tugi ára og veitt bæj-
arbúum góða þjónustu. Með tilkomu
Bónuss streyma hingað jólabækurnar á
gjafprís. Þar á bókabúðin engan mögu-
leika á að standast samkeppnina. Bóka-
verð í Bónus er lægra en bóksalinn fær
bókina á frá útgefanda. Bóksalinn fær
30% afslátt frá útgefanda, en Bónus býð-
ur betur, a.m.k. 45% afslátt. Bóksalinn
er ráðalaus og getur ekkert gert, þó að
hann vildi. Bóksalan í desember hefur
haldið þessari litlu bókabúð á floti, en ef
jólavertíðin er ekki lengur til staðar,
hvað gerist þá? Maður spyr sig er hér
um eðlilega og heiðarlega samkeppni að
ræða? Eitt er víst, að almenningur nýtur
góðs af þessu stríði.
Úr
bæjarlífinu
STYKKISHÓLMUR
EFTIR GUNNLAUG ÁRNASON FRÉTTARITARA
Þangverktíðinni hjáÞörungaverk-smiðjunni á Reyk-
hólum er lokið. Fjórir
sláttuprammar voru að
störfum til loka og á vef
Reykhólahepps kemur
fram að það sé frekar
óvenjulegt að svo mikið
sé slegið svona langt
frameftir vetri.
Þangsláttumenn héldu
upp á tímamótin með
borðhaldi. Selshryggur og
lundi voru á boðstólum
og glatt á hjalla, segir á
vefnum. Þangsláttu-
prömmunum er lagt til
vors. Nú tekur þarinn
við, en hann er plægður
upp af botni Breiða-
fjarðar með Karlsey,
skipi verksmiðjunnar.
Þangvertíð
lokið
TónlistarhópurinnÓkyrrð efndi til út-
gáfutónleika í Ketilhús-
inu á Akureyri nýlega.
Ókyrrð varð til haustið
2002 og samanstendur
af átta einstaklingum.
Á myndinni má sjá
Örnu Valsdóttur,
söngkonu Ókyrrðar, og
Baldvin Ringsted gít-
arleikara. Tónleikagest-
ir skemmtu sér hið
besta.
Morgunblaðið/Kristján
Ókyrrð á Akureyri
Ólafur Stefánssonyrkir um GuðnaÁgústsson, sem
býr í Jórutúni norðan Ölf-
usárbrúarinnar:
Sunnlendinga byggðir bætir
bregður svip á föðurtún.
Brúarsporðsins Guðni gætir
grænn er fáni þar við hún.
Svo virðist því sem
Guðni sé í svipuðum spor-
um og Heimdallur, sem
situr við Himinbjörg og
gætir Bifrastar, regn-
bogabrúarinnar sem ligg-
ur í Ásgarð.
Heimdallur heyrir
grasið vaxa og ull á sauð-
um.
Sólskríkjan yrkir:
Við brúarendann vaskur
verst
verði þjóð í nauðum,
enda að Guðna eyrum berst
ef ullin vex á sauðum.
Heimdallur
á þingi
pebl@mbl.is
Aðaldalur | Aðventusamkomur
með þátttöku barna eru fastur
liður í kirkjustarfinu í Aðaldal
og koma þá nemendur tónlistar-
skólans á Hafralæk og spila tón-
list sem tengist jólunum.
Um helgina komu sókn-
arbörnin saman í Neskirkju þar
sem spilað var á blásturs-
hljóðfæri, fiðlur og píanó en
sóknarpresturinn, sr. Þor-
grímur J. Daníelsson, þjónaði
fyrir altari. Ekki voru allir háir í
loftinu sem þar stóðu fyrir fram-
an altarið, en kunnu ótrúlega vel
með hljóðfærin að fara svo varla
heyrðist feilnóta. Mikil ánægja
með frammistöðu þessa unga
tónlistarfólks, en auk þessa
fengu kirkjugestir að hlýða á
aðventuhugvekju Jónasar Sig-
urðarsonar frá Lundarbrekku í
Bárðardal þar sem lýst var jóla-
haldi fyrir meira en hálfri öld.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Andrea Rut Andrésdóttir og Benedikt Natanel Bjarnason með fiðlurnar.
Börnin taka þátt í starfinu
Aðventan
Vestmannaeyjar | Samkomulag tókst nú
um helgina milli fulltrúa Vestmannaeyja-
bæjar og Vegagerðarinnar um breytingar
á vetraráætlun
Herjólfs. Ferð-
um verður
fjölgað um
tvær á viku,
verða tíu alls,
en í gildandi
áætlun sigldi
ferjan átta sinnum milli lands og eyja í viku
hverri. Áætlunin tekur gildi á fimmtudag,
9. desember, og þá verða tvær ferðir á
fimmtudögum, föstudögum og sunnudög-
um. Vetraráætlunin verður í gildi til loka
febrúar á næsta ári. Í samkomulaginu er
einnig fjallað um breytingu á fargjöldum
skipsins en þau hækka um 6% um áramót,
1. janúar 2005. Fargjöld hafa ekki hækkað
síðan 1. júlí árið 2002. Einnig var samið um
að Vestmannaeyjabær og Vegagerðin
gangi til viðræðna í byrjun næsta árs um
ferðaáætlun Herjólfs á næsta samnings-
tímabili, en rekstur skipsins verður boðinn
út á ný á miðju næsta ári og nýtt tímabil
hefst 1. janúar 2006. Arnar Sigurmunds-
son, formaður bæjarráðs, lýsir yfir ánægju
sinni með breytta vetraráætlun í samtali
við eyjafrettir.net.og segir þar að með
samkomulaginu hafi tekist að tryggja
aukna þjónustu skipsins yfir vetrarmán-
uðina. Þörfin hafi verið brýnni nú í kjölfar
þess að strandsiglingum hafi verið hætt,en
það kalli á aukna vöruflutninga með Herj-
ólfi.
Ferðum fjölg-
að um tvær
á viku
Húsavík | Húsavíkurbær hefur auglýst
eftir þremur framkvæmdastjórum vegna
nýrra starfssviða hjá bænum. Samhliða
upptöku nýs skipurits verða fimm stjórn-
unarstöður lagðar niður; staða bæjarrit-
ara, staða fræðslufulltrúa, staða tóm-
stundafulltrúa, staða bæjarverkfræðings
og staða deildartæknifræðings. Nýju störf-
in þrjú sem ráðið verður í eru störf fram-
kvæmdastjóra fjármála- og stjórnsýslu-
sviðs, framkvæmdastjóra fjölskyldu- og
þjónustusviðs og framkvæmdastjóra um-
hverfis- og framkvæmdasviðs. Aukafundur
var boðaður í framkvæmdanefnd að beiðni
minnihlutans en þar skýrði bæjarstjóri
væntanlegar breytingar á starfaskipulagi
Húsavíkurbæjar. Þetta kemur fram á vef
Skarps.
Fimm
stjórnendum
sagt upp
♦♦♦
Húsavík | Sjóminjasafnið á Húsavík
fékk afhent að gjöf tímaritið Ægi frá
upphafi, fallega innbundið í alls 109
bindi. Það var Sigurður Sigurðsson
sem færði safninu þessa gjöf í tilefni
þess að liðin eru 90 ár frá fæðingu
föður hans.
Sigurður Sigurðsson sagði við
þetta tækifæri að faðir sinn, Sig-
urður Sigurðsson, skósmiður og
bókbindari, hefði bundið inn ár-
gangana frá 1905 til ársins 1979.
Þórarinn Þórarinsson frá Vogum í
Kelduhverfi tók við af honum og
batt inn árgangana 1980 til 1990.
Annar Keldhverfingur, Adam Jóns-
son frá Tóvegg, hefur síðan bundið
inn Ægi fyrir Sigurð fram á þennan
dag.
Óskar Þór Halldórsson ritstýrir
Ægi í dag og var hann viðstaddur
afhendinguna. Hann sagði þetta ein-
staka gjöf því alla árganga Ægis
væri óvíða að finna á einum og sama
stað og sem dæmi ætti blaðið sjálft
þá ekki til. Guðni Halldórsson for-
stöðumaður Sjóminjasafnsins sagði
gjöf Sigurðar ómetanlega og góða
viðbót við þau rit og bækur um sjáv-
arútveg sem fyrir væri á safninu.
Morgunblaðið/Hafþór
Færði Sjóminjasafninu
Ægi frá upphafi