Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 21
MINNSTAÐUR
Laugarvatn | Skálholtskórinn
stendur að venju fyrir metn-
aðarfullu tónleikahaldi á jólaföst-
unni með miklu úrvali hljómlist-
armanna og söngvara. Örlygur
Benediktsson tónskáld sem ný-
kominn er heim frá tónlistarnámi
við Tónlistarakademíuna í Péturs-
borg í Rússlandi, samdi sérstakt
jólalag af þessu tilefni við mið-
aldajólatexta.
Lagið er sérstaklega samið fyrir
söngvarann Egil Ólafsson sem
tekur þátt í tónleikunum ásamt
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Auk
þeirra koma fram Barna- og
Kammerkór Biskupstungna, 12
manna strengja- og blásarasveit,
allt einvalalið. Konsertmeistari er
Hjörleifur Valsson en öll lögin
sem flutt verða eru útsett sér-
staklega af Þóri Baldurssyni,
stjórnandi er Hilmar Örn Agn-
arsson, organisti í Skálholti.
Á dagskránni eru 20 verk, allt
frá því að vera háklassísk yfir í
létt amerísk. Að sögn stjórnand-
ans er kórinn nú í annað sinn með
sérsamið jólalag á dagskránni og
stefnan að halda því áfram þar til
þau verða nógu mörg til að fylla
geisladisk. Tónleikarnir verða
tvennir og fara fram 11. desember
kl. 14 og 16.30. Síðast var uppselt
viku fyrir tónleikana en kirkjan í
Skálholti tekur 300 manns í sæti.
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Á æfingu Skálholtskórinn ásamt Hilmari Erni Agnarssyni, lengst til vinstri
á myndinni, á æfingu fyrir jólatónleikana.
Samdi
jólalag
við mið-
aldatexta
LANDIÐ
Biskupstungur | Listaverkið
Skeifukast eftir Stefán Geir
Karlsson var afhjúpað við frí-
stundahúsið Laufbrekku í landi
Efri-Reykja í Biskupstungum síð-
astliðinn laugardag. Verkið er
skeifa í stækkaðri mynd, rúmur
metri á kant og gerð úr áli.
Listamaðurinn er þekktur fyrir
verk sem byggjast á stækkun
hversdagslegra muna.
Eigendur bústaðarins eru
Kristín Jóhanna Kjartansdóttir
og Stefán H. Stephensen. Stefán
Geir segir að nafni hans hafi unn-
ið fyrir sig í Reykjavík og óskað
eftir að fá listaverk eftir sig í
staðinn. „Hann sagðist vera með
tvö áhugamál, hestamennsku og
trjárækt. Mér datt í hug að
blanda þessu saman og vinna
þetta út frá skeifukastinu þar
sem stungið er niður hæl og
reynt að hitta í kastinu á hælinn.
Listaverkið er um þriggja metra
stálstaur með hatti og það er bú-
ið að kasta skeifunni og hitta í
mark,“ segir Stefán Geir og bæt-
ir við að hægt sé að fara undir
skeifuna og óska sér.
Stefán Geir hefur gert fjölda
stórra listaverka, svo sem stærsta
herðatré í heimi sem og blokk-
flautu. Þau verk eru skráð í
heimsmetabók Guinness.
„Ég hef þá áráttu að stækka
hlutina og gera þá sýnilegri,“
segir Stefán Geir. Hann segist
hafa hugleitt að gera tífalt stærri
skeifu, tólf sinnum tíu metra að
stærð, og gæti hugsað sér að
setja hana upp við keppnissvæði
hestamanna á Gaddstaðaflötum
við Hellu.
Listaverkið Skeifukast afhjúpað
Skeifan hitti í mark
Skeifukast Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra afhjúpaði listaverkið.
Hann stendur á milli listamannsins og eigandans, Stefáns Geirs Karlssonar
og Stefáns H. Stephensen, með listaverkið í baksýn.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Notið þægindin
Notaleg stæði í sex bílahúsum bíða þín
í jólaumferðinni.
H
ön
nu
n:
G
ís
li
B
.
Bergstaðir
Á horni Bergstaðastrætis
og Skólavörðustígs. 154 stæði.