Morgunblaðið - 07.12.2004, Síða 38

Morgunblaðið - 07.12.2004, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ég votta Ólu og börnunum mína dýpstu samúð. Árni Magnússon. Fundum okkar Sigurðar Geirdal bar saman nokkrum dögum fyrir lát hans. Það var á góðum degi í Kópa- vogi, við opnun læknamiðstöðvar fyrir tæknifrjóvgun. Hann var eins og venjulega hress í viðmóti og fullur af hugmyndum og krafti. Nokkrum dögum síðar barst svo fregnin að hann væri látinn langt um aldur fram. Svona getur lífið verið hverfult á stundum. Missir hans nánustu er mestur, en missir vina hans og sam- starfsmanna er mikill og hans er sárt saknað af öllum sem kynntust hon- um og áttu við hann samskipti. Ég kynntist honum fyrst þegar hann var framkvæmdastjóri Fram- sóknarflokksins. Það var upplífgandi að koma á skrifstofuna og spjalla við hann. Hann var einn af þeim sem hafa einstaklega góða nærveru og drífa menn áfram. Hann lagði áherslu á liðsandann og góðan fé- lagsskap, enda voru hans rætur í ungmennafélagshreyfingunni og hann hafði áður stjórnað hinum öfl- ugu samtökum Ungmennafélagi Ís- lands með glæsibrag. Af flokksskrifstofunni lá leið Sig- urðar í sveitarstjórnarmálin, og þar hefur starfsvettvangur hans verið síðustu áratugina. Á vettvangi sveit- arstjórnarmála var hann áhrifamik- ill, var einn af forustumönnum Framsóknarflokksins þar, en hann var þeirrar gerðar að mikið var á hann hlustað af okkur sem unnum á landsvísu. Hann var stjórnmálamað- ur fram í fingurgóma, en Kópavogur naut krafta hans og það var mikið lán fyrir byggðarlagið og árangurinn glæsilegur. Uppgangurinn þar er ævintýri líkastur. Ég minnist þess á fyrstu árum Sigurðar þar að hann tjáði mér áætlanirnar um framtíðar- uppbygginguna þegar Smára- hvammslandið hafði verið keypt. Mér fannst þetta minna á loftkast- ala, en allt er það nú orðið að veru- leika sem hann sá í hillingum og miklu meira. Hann var öflugur framkvæmda- og athafnamaður sem hafði hugsjón- ir í farteskinu um ræktun lands og lýðs svo notað sé hið gamla slagorð ungmennafélaganna. Hann samein- aði félagsandann og kraft athafna- mannsins með glæsilegum árangri. Hann átti virðingu allra. Ég sendi þessi fátæklegu kveðju- orð til minningar um góðan dreng. Í starfi að félagsmálum og að stjórn- málum er það gæfa að hitta margt gott og eftirminnilegt fólk. Sigurður Geirdal fyllir þann flokk. Nú er hann allur en góðar minningar lifa. Við Margrét sendum fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Jón Kristjánsson. Það er dýrmætt að eiga góða vini og sárt að missa þá, ekki síst þegar menn hafa frá jafnmiklu að hverfa og Sigurður Geirdal. Ég kynntist hon- um þegar ég gekk til liðs við Fram- sóknarflokkinn í Kópavogi árið 1990 og sá fljótt að hann var óvenjufjöl- hæfur og vel gerður maður. Síðan hef ég notið vináttu hans og leið- sagnar í störfum mínum sem bæj- arfulltrúi í Kópavogi og fyrir það vil ég þakka. Þrátt fyrir erilsamt starf sem bæj- arstjóri í Kópavogi gaf Sigurður sér ávallt tíma til að spjalla við fólk á förnum vegi og var fljótur að leysa úr málum sem bárust honum þannig og tölvupósti svaraði hann ævinlega samdægurs. Hann fylgdist vel með bæjarlífinu, leit oft við hjá fyrirtækjum vítt og breitt um bæinn og börnin í bænum hittu oft bæjarstjórann sinn því að hann var tíður gestur í leikskólum og félagsmiðstöðvum og gaf sér góðan tíma til að tala við unga sem aldna. Sigurður Geirdal var virtur og vin- sæll bæjarstjóri, jafnt hjá samherj- um sem pólitískum andstæðingum og sveitarstjórar um land allt áttu hauk í horni þar sem Sigurður var enda leituðu þeir margir ráða hjá honum og öðrum sveitarstjórnar- mönnum reyndist hann ráðhollur, burtséð frá flokksböndum. Hann gekk ungur til liðs við Framsóknarflokkinn enda sam- vinnumaður eins og þeir gerast best- ir. Hann var óumdeildur foringi okk- ar framsóknarmanna í Kópavogi og til marks um það má nefna að undir forystu hans þrefaldaðist bæjarfull- trúatala flokksins. Hann sinnti flokksstarfinu vel og lét sig sjaldan vanta á opna húsið í framsóknarsaln- um á Digranesveginum á laugar- dagsmorgnum. Þar naut hann sín vel, fór gjarnan með frumsamdar vísur og gamanmál en eðlislægur léttleiki og glaðlyndi var honum í blóð borið. Fordild og hroki var eitur í hans beinum. Um störf Sigurðar Geirdal sem bæjarfulltrúa og bæjarstjóra ætla ég ekki að fjölyrða. Verkin tala. Það er ekki ofmælt að hann hafi verið vak- inn og sofinn yfir velferð bæjarins okkar á öllum sviðum. Kópavogsbú- ar munu um langa framtíð njóta verka hans og framsýni. Saknar nú margur vinar í stað því að skarð er fyrir skildi. Óvenju ein- lægur og gegnheill maður er geng- inn. Fari hann vel. Ólafíu konu Sigurðar og fjölskyldu þeirra flyt ég fyrir hönd framsókn- armanna í Kópavogi einlægar sam- úðarkveðjur. Hansína Ásta Björgvinsdóttir bæjarfulltrúi. Í dag er borinn til grafar Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, en hann andaðist fyrsta sunnudag í að- ventu, hinn 28. nóvember. Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn hafa starfað sam- an af heilindum í meirihluta í bæj- arstjórn Kópavogs í 14 ár og þar hefur aldrei borið skugga á. Á hinum langa og farsæla ferli sínum sem bæjarstjóri hafði Sigurður öðlast miklar vinsældir meðal starfsmanna bæjarins og ekki síður meðal bæj- arbúa. Hann hafði einstakt lag á að ræða við og eiga samskipti við fólk óháð aldri enda voru allir velkomnir í hans hús. Hann hafði yfirburða þekkingu á málefnum og stjórnsýslu bæjarins sem nýttist bæjarfélaginu vel. Sigurður var bóngóður og alltaf reiðubúinn að gefa góðar og vel ígrundaðar ráðleggingar þegar leit- að var til hans. Sigurður var mikill menningarunnandi og gaf sér ætíð tíma til að vera við opnanir myndlist- arsýninga í Gerðarsafni og hlusta á tónleika í Salnum eða í kirkjum. Ljóðelskur var hann og virkur með- limur í Ritlistarhópi Kópavogs. Sig- urður var sjálfur gott ljóðskáld og varpaði oft fram vísum á fundum um menn og málefni. Á lífsins göngu kynnist maður mörgum og ólíkum einstaklingum. Þrátt fyrir að við Sigurður værum ekki samflokka í stjórnmálum höfð- um við líka lífssýn. Allt frá okkar fyrstu kynnum var samstarf okkar sérlega gott. Ég er forsjóninni þakk- lát fyrir að hafa fengið að starfa við hlið Sigurðar og fá að njóta þekk- ingar hans og vináttu. Ég kveð þennan mæta dreng með miklum trega og sorg í hjarta. Ég votta Ólafíu og fjölskyldu hans mína dýpstu samúð og bið guð að gefa þeim styrk. Jafnframt votta ég starfsmönnum Kópavogsbæjar og öllum Kópavogsbúum samúð mína. Sigurrós Þorgrímsdóttir bæjarfulltrúi. Það er dauf birta á skrifstofu bæj- arstjóra í Kópavogi. Kertaljós og mynd af Sigurði Geirdal bæjarstjóra mætir okkur þegar við förum hjá. Við starfsmennirnir höfum enn ekki fyllilega áttað okkur á því að hann sé farinn. Þegar við heyrum að dyrnar á skrifstofunni hans opnast lítum við ósjálfrátt upp og búumst við að Sig- urður komi á fullri ferð brosandi. Söknuðurinn er mikill, Sigurður var ekki aðeins frábær yfirmaður, held- ur einnig góður félagi. Sigurður var ótrúlega fjölhæfur og víðlesinn. Hvergi var komið að tómum kofun- um og hann hafði skoðanir á flestu. Oft ræddum við um framandi staði sem hann hafði heimsótt og ekki síð- ur þá sem hann átti eftir að heim- sækja. Mörgu var ólokið. Sigurður var mikill unnandi lista og hann lét sig aldrei vanta á sýningar í Gerð- arsafni, þar mættum við honum og Ólu ávallt hlýjum og brosandi. Þetta voru góðar stundir. Þó að annríki væri mikið gaf Sigurður sér tíma til að taka þátt í spaugi og margar hnyttnar stökurnar urðu þá til. Margar minningar koma upp í hug- ann. Lífshlaup Sigurðar var ótrúlega fjölbreytt og því verða ekki gerð skil í stuttri grein. Hann var ástsæll og virtur bæjarstjóri í um 14 ár. Sig- urðar mun verða minnst sem bæj- arstjórans sem stýrði Kópavogi á mesta uppgangstíma í sögu bæjar- félagsins. Sigurður eignaði sér ein- um aldrei þann mikla árangur sem hvarvetna blasir við hér í bænum, heldur þakkaði hann góðu samstarfi í forystu bæjarfélagsins. En það er ekki aðeins á þessum vettvangi sem verkin varða veginn. Ljóð hans í bundnu og óbundnu máli eru lista- verk og munu lifa með okkur áfram ásamt minningunni um góðan dreng og félaga. Það er stutt í að daginn fari að lengja og þá birtir aftur. Við biðjum guð að blessa og veita fjölskyldu hans styrk í sorginni. Þórður Clausen Þórðarson og Anna Stella Snorradóttir Dimmu. Það er ótrúlegt og næstum óger- legt að sætta sig við þá harmafregn, að vinur minn og samstarfsmaður til margra ára, Sigurður Geirdal, sé lát- inn, aðeins 65 ára gamall. Ungur að árum helgaði hann sig málefnum ungmennafélaganna og íþróttastarfi í landinu. Hann var einn af öflugustu leiðtogum Framsóknarflokksins og um tíma framkvæmdastjóri flokks- ins. Sigurður kaus að helga sig sveit- arstjórnarmálum í sinni heima- byggð, Kópavogi, þar sem hann hef- ur átt óvenju glæsilegan feril í 14 ár. Fyrst man ég eftir Sigurði á lands- mótinu eftirminnilega á Laugarvatni 1965. Þar var hann ungur og glæsi- legur frjálsíþróttamaður í keppnis- liði UMSK. Ég sá hann í sigursveit UMSK í 1000 m boðhlaupi, hann hljóp endasprettinn og hreinlega flaug í gegnum markið, fremstur meðal jafningja. Þannig hef ég séð Sigurð allar götur síðan. Hann stefndi jafnan hátt og fataðist aldrei flugið. Árið 1969 var undirritaður kosinn formaður UMFÍ og þar var valinn maður í hverri stöðu með mér í stjórn, en okkur vantaði fram- kvæmdastjóra, og raunar verðugt húsnæði fyrir þjónustumiðstöð UMFÍ. Um þetta leyti hafði Sigurður Geirdal skrifað athyglisverða bar- áttugrein í Skinfaxa, sem ég var mjög ánægður með. Ég leitaði Sig- urð uppi, sem ég var tæpast mál- kunnugur þá, og tjáði honum að ég vildi fá hann sem framkvæmdastjóra fyrir UMFÍ hjá nýkjörinni stjórn. Það gekk og áratuga samstarf okkar hófst. Höfuðstöðvar samtak- anna fluttust úr litlu kjallaraher- bergi á Hjarðarhaganum í Reykja- vík og áður en samstarfi okkar lauk vorum við komin í eigið húsnæði á heilli hæð í Mjölnisholti 14. Á þeim áratug sem við Sigurður unnum saman gekk okkur flest í haginn fyrir samtökin. Fjárhagurinn styrktist, félagafjöldinn tvöfaldaðist, markviss erindrekstur tekinn upp, Félagsmálaskólinn varð til og erlend samskipti endurvakin, svo fátt eitt sé talið. Engum manni vandalausum hefi ég kynnst sem mér hefur þótt jafnmikið til um. Við Sigurður vorum svo rækilega tengdir hugsjónalega, en faglega og framkvæmdalega höf- um við líklega bætt hvor annan upp. Sigurður var einstakur gleðigjafi og fræðari hvar sem hann fór, hann var með ólíkindum sjáandi fram í tímann og snöggur að sjá aðalatriðin í því sem við var að fást, og vörslu- maður fjármuna með afbrigðum. Þá var hann hagyrðingur góður. Vinnu- þjarkur var Sigurður og gerði tæp- ast greinarmun á því hvenær sólar- hringsins sú vinna var látin í té. Í öllu sínu fjölþætta félagsstarfi naut Sigurður þess að eiga góða konu og skilningsríka og sama má auðvitað segja um börnin hans. Ólafía Ragnarsdóttir stóð við hlið manns síns á hverju sem gekk og hafa þau hjón verið áberandi dugleg að mæta á mannfundum á þeim fjöl- þætta akri félagsmála sem Sigurður hefur starfað á í gegnum árin. Ungmennafélagshreyfingin sér nú á bak einum virtasta leiðtoga sínum frá upphafi vega. Mikill stuðnings- maður öflugs íþróttastarfs í landinu er á braut. Framsóknarflokkurinn missir einn öflugusta leiðtoga sinn. Kópavogskaupstaður missir dáðan leiðtoga og bæjarstjóra og mér er til efs að nokkur bæjarstjóri á Íslandi hafi átt slíkan feril að baki, þegar við horfum til uppbyggingar Kópavogs- kaupstaðar á öllum sviðum á liðnum tæpum 14 árum. Sigurður átti líka sem fyrr því láni að fagna að vera virtur að verðleik- um af samstarfsmönnum sínum á vettvangi bæjarstjórnar. Það mun taka okkur vini og samstarfsmenn Sigurðar Geirdals langan tíma að sætta okkur við að hafa hann ekki lengur á meðal okkar. Minningin mun lifa um góðan dreng sem stóð fyrir djörfum og fögrum hugsjónum og vann þeim brautargengi af sann- færingu og sannri gleði. Þess vegna átti Sigurður Geirdal alls staðar vin- um að fagna. Elsku Ólafía, við Hildur og fjöl- skylda okkar flytjum þér og aðstand- endum öllum innilegar samúðar- kveðjur við fráfall Sigurðar. Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi form. UMFÍ. Kveðja frá Reykjavíkurborg Látinn er langt um aldur fram sómamaðurinn Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi. Sigurður varð bæjarstjóri í Kópa- vogi árið 1990 og hafði því lengstan starfsaldur allra framkvæmdastjóra sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu. Íþróttamaður var hann mikill og starfaði lengi hjá Ung- mennafélagshreyfingunni auk þess sem hann sinnti fjölda annarra trún- aðarstarfa á vegum opinberra aðila. Innan Framsóknarflokksins var hann alla tíð öflugur talsmaður sveit- arfélaganna enda ekki nema rétt lið- lega þrítugur að aldri er hann fyrst var kjörinn varabæjarfulltrúi árið 1970. Kynni okkar Sigurðar hófust árið 1994 þegar ég tók fyrst sæti í borg- arstjórn Reykjavíkur og var kjörin í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu þar sem Sigurður var formaður. Þar störfuðum við saman í allmörg ár að ýmsum málum fyrir sveitarfélögin á svæðinu. Sig- urður var mikill Kópavogsbúi og bar hag bæjarins mjög fyrir brjósti, hafði metnað fyrir hönd bæjarfélags- ins og talaði oft um höfuðborgar- svæðið sem Stór-Kópavogssvæðið sem var öðrum þræði gert til að stríða okkur Reykvíkingunum. Und- ir hans stjórn hefur mikil uppbygg- ing átt sér stað í Kópavogi enda ungt sveitarfélag sé miðað við mörg önn- ur. Á vettvangi sveitarfélaganna var hann öflugur talmaður þess að efla sveitarstjórnarstigið og skapa sveit- arfélögunum meira sjálfstæði varð- andi tekjustofna. Hann var fé- lagshyggjumaður fram í fingurgóma og maður sátta og málamiðlana. Þegar mörg stór sveitarfélög koma saman eru hagsmunirnir oft nokkuð ólíkir þótt í grunninn séu viðfangs- efnin þau sömu. Sigurður hafði lag á því að sætta ólík sjónarmið og var oft í erfiðu hlutverki á þingum Sam- bands íslenskra sveitarfélaga þar sem þurfti að ná sameiginlegri nið- urstöðu. En vegna reynslu sinnar og þekkingar á sveitarstjórnarmálum naut hann trausts langt út fyrir eigin flokksraðir. Persónulega vil ég þakka vináttu og trúnað í fjölmörg- um verkefnum sem við unnum að á liðnum árum. Sem bæjarstjóri var Sigurður maður fólksins, hann var blátt áfram og sagði það sem hann meinti og meinti það sem hann sagði. Hann var skemmtilegur og glettinn maður með fallegt blik í auga sem lýsti vel góðmennsku hans. Fyrir hönd Reykjavíkurborgar þakka ég Sigurði Geirdal samvinnu á undanförnum árum. Ég votta eigin- konu hans, börnum og fjölskyldu dýpstu samúð. Guð blessi minningu Sigurðar Geirdal. Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Það var fyrir um 13 árum að Sig- urður Geirdal bæjarstjóri hringdi í mig og spurði hvort ég gæti hitt sig á kaffihúsi í miðbænum, í stutt spjall. Hann átti lausa stund og vildi hitta mig sem fyrst. Ástæðan var umsókn mín um vinnu hjá Kópavogsbæ og það var hans stíll að sleppa form- legheitum. Mér leist vel á að hitta bæjarstjórann á mínum heimavelli, því ég starfaði í miðbænum á þeim tíma. Því varð ég hissa eftir örstutt- an göngutúr yfir Arnarhólinn og nið- ur á Austurstræti, að sjá Sigurð skima eftir mér í dyragættinni. Ég taldi víst að hann hefði hringt úr skrifstofunni skömmu áður og ég hafði á orði, hálfafsakandi fyrir að koma seint á fundinn, hvort hann hefði ekki slegið hraðamet úr Kópa- voginum. Hann svaraði því til, sposk- ur á svip, að það væri styttra í Kópa- voginn en margir héldu. Auðvitað hlaut hann að hafa hringt úr bíla- símanum hugsaði ég með mér síðar. En þannig hófst samtal okkar á kaffihúsinu og þetta upphaf samtals- ins er mér minnisstætt því það lýsti honum svo vel. Hann var kíminn, röskur og sannspár. Það var svo sannarlega stutt í Kópavoginn, hvort sem hann keyrði á methraða eða hringdi úr bílasímanum. Kaffispjall- ið var upphafið að starfsferli mínum hjá Kópavogsbæ og varð til þess að ég fluttist þangað búferlum úr Foss- voginum. Fyrir marga aðra reyndist stutt í Kópavoginn, því þessi tími markaði upphafið að miklum fólks- flutningum til bæjarins og uppbygg- ingu. Það var engin tilviljun að Sig- urður sat í stóli bæjarstjóra þegar uppgangurinn hófst, hann hafði metnað fyrir hönd bæjarfélagsins. Sigurður var mjög aðgengilegur bæjarstjóri. Ófáir voru þeir bæj- arbúarnir sem gengu á hans fund brúnaþungir og mæðulegir, en ég held mér sé óhætt að fullyrða að flestir voru þeir sporléttari eftir spjallið. Það var engin tilviljun held- ur. Sigurður var spakur maður, fróð- ur og lét sér fáa málaflokka óviðkom- andi. Hann gat fléttað saman frásagnir af ólíkum toga af stakri snilld og svo gátu menn átt von á samantekt í lokin, í bundnu máli. Ég er sannfærður um, að margir bæj- arbúanna hafi lagt leið sína til bæj- SIGURÐUR GEIRDAL Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast. Og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Með þessum ljóðlínum kveð ég traustan vin og félaga, Sig- urð Geirdal, með djúpri virð- ingu og þökk fyrir öll holl- ráðin, heilindin og stuðninginn í hvívetna. Elsku Óla, börnin ykkar og fjölskyldur þeirra, svo og aðr- ir syrgjendur, við Haukur biðjum Guð að blessa ykkur öll og veita ykkur styrk til að takast á við lífið sem heldur áfram. Blessuð sé minning Sig- urðar Geirdals. Sigurbjörg Björgvinsdóttir. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, Hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pétursson.) Birna Árnadóttir. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.