Morgunblaðið - 07.12.2004, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Forvitnin ber þig ofurliði í dag og þú
drekkur í þig fróðleik eins og svampur.
Þetta er góður dagur fyrir hvers kyns
nám eða menntun, þú sérð veröldina í
mjög skýru ljósi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hæfileikar þínir til rannsókna eru með
mesta móti í dag. Þú getur veitt nánast
hvað sem er upp úr hverjum sem er. Þér
tekst hvaðeina sem þú ákveður að taka
þér fyrir hendur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samræður við maka eða nána vini verða
óvenju ákafar í dag. Þú gætir laðað að
þér fólk sem er staðráðið í því að sann-
færa þig um eitthvað.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ekki hika við að kynna nýjar hugmyndir
þínar um umbætur á vinnustað. Þú veist
hvað þú ert að tala um og ert bæði út-
sjónarsamur og laginn núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki er ólíklegt að þú fáir einhvern á
heilann. Þú hreinlega losnar ekki við við-
komandi úr kollinum. Kannski fellur þú
fyrir einhverjum sem þú þekkir, eða
manneskju í mikilli fjarlægð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Umræður í fjölskyldunni eru kraftmikl-
ar og ákafar um þessar mundir. Ekki
láta sannfæra þig um eitthvað sem þér
er á móti skapi. Ekki heldur reyna að
tala um fyrir öðrum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu að vera eins mikið á ferðinni og
þú getur í dag. Þú ert full af krafti, vog,
og vilt hafa mikið fyrir stafni. Breyttu út
af vananum og bryddaðu upp á ein-
hverju nýju ef þú getur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú færð snjallar viðskiptahugmyndir í
dag, ef af líkum lætur. Þær eru ekki svo
galnar. Ekki hika við að deila þeim með
öðrum, sjáðu hvað fólkinu í kringum þig
finnst.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú sérð í gegnum holt og hæðir í dag,
það sem leynist undir niðri blasir við þér.
Þegar sannleikurinn blasir við er allt
annað eins og léleg eftirlíking.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Leyndarmál og leynilegt samkomulag
eru lykilorð dagsins. Þig langar til þess
að starfa bakvið tjöldin. Búðu þig undir
að uppgötva leyndarmál og finna týnda
hluti.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Eitthvað sem vinur þinn lætur út úr sér
nær algerum tökum á þér. Engu er lík-
ara en að þú sért heltekinn. Þú heillast af
áhrifamiklu fólki núna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki reita áhrifafólk til reiði í dag. Það
er mikill kraftur í þér núna, en hið sama
gildir um aðra. Ekki bíta í þig eitthvað
sem þú getur ekki bakkað með síðar.
Stjörnuspá
Frances Drake
Bogmaður
Afmælisbarn dagsins:
Þú ferð jafnan þínar eigin leiðir og því
lítur fólk stundum á þig sem sérvitring.
Þú laðast að sérkennilegum persónum og
hefur dálæti á óhefðbundnum hlutum.
Afmælisbörn dagsins blómstra stundum
seint, þar sem þau eiga erfitt með að taka
ákveðna stefnu í lífinu.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 tilkynnir, 8
stafagerð, 9 duglegar, 10
fljót, 11 híma, 13 deila, 15
heilnæmt, 18 heilbrigð, 21
bókstafur, 22 setjum, 23
hringl, 24 andlátsstund.
Lóðrétt | 2 kæpur, 3 fersk-
ara, 4 í vafa, 5 út, 6 kjáni, 7
máttur, 12 skaut, 14
málmur, 15 gat, 16 óveru-
lega, 17 þjálfa, 18 næstum
allt, 19 klakinn, 20 hnött-
ur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 doppa, 4 hófar, 7 gárum, 8 risum, 9 tám, 11 rósa,
13 bana, 14 notar, 15 munn, 17 álka, 20 snæ, 22 túnin, 23
ræðin, 24 rauða, 25 niður.
Lóðrétt | 1 dugur, 2 parts, 3 aumt, 4 harm, 5 fossa, 6
rimma, 10 ástin, 12 ann, 13 brá, 15 matur, 16 nunnu, 18 lið-
ið, 19 Agnar, 20 snúa, 21 ærin.
Kafað djúpt.
Norður
♠Á96
♥D75
♦Á5432
♣108
Suður
♠K108743
♥–
♦K106
♣ÁKDG
Suður spilar sex spaða og fær út
hjartagosa.
Hvernig er best að spila trompinu?
Við fyrstu skoðun virðist þetta vera
tiltölulega einfalt spil, en það er víða
fiskur undir steini. Ef hægt er að vinna
úr trompinu tapslagalaust má leggja
upp og snúa sér að næsta spili. En hvort
á að taka spaðaásinn eða kónginn fyrst?
Komi mannspil (gosi eða drottning) frá
vörninni í fyrsta trompið er rétt að svína
fyrir hitt mannspilið sé það á annað borð
hægt.
Frestum þessum pælingum og íhug-
um hvort vinna megi slemmuna ef vörn-
in á trompslag. Það er reyndar hugs-
anlegt. Miðað við útspilið lítur út fyrir
að austur sé með ÁK í hjarta, og ef hann
á lengdina í tígli líka má kannski þvinga
hann í rauðu litunum. Lokastaðan yrði
sú að blindur ætti hjartadrottningu og
Áx í tígli, en heima væri sagnhafi með
K10x í tígli. Austur er þá í vondum mál-
um hafi hann byrjað með þrílit í tígli og
ÁK í hjarta.
En kastþröngin er ekki alveg sjálf-
gefin. Þegar vörnin kemst inn á tromp
getur hún hugsanlega brotið upp þving-
unina með því að spila tígli. Ef austur
lendir inni og spilar tígli verður hann að
hafa byrjað með DGx(x). En ef vestur
lendir inni á tromp kostar það vörnina
slag ef hann spilar tígli frá Dx eða Gx.
Og líkur á því eru tvöfalt meiri en að
austur sé með DGx.
Trompíferðin ætti að ráðast af þessu.
Sem sagt, sagnhafi ætti að byrja á því
að leggja niður ásinn. Komi gosi eða
drottning í slaginn frá vestri er rétt að
svína til hans. Sagnhafi er þá enn á lífi ef
vestur hefur byrjað með DG í spaða og
annað litlu hjónanna í tígli í tvíspili.
Hér er vissulega kafað djúpt, en það
leynast oft fallegir fiskar á botninum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
50 ÁRA afmæli. Ídag, 7. desem-
ber, er fimmtug Sig-
ríður Finnbjörns-
dóttir, hárgreiðslu-
meistari, Norðurbrú
6, Garðabæ. Eigin-
maður hennar er Hall-
dór Hilmarsson. Þau
eru stödd í Las Vegas í Bandaríkj-
unum.
Myndlist
Akranes | Gylfi Ægisson sýnir um 60
akrýlmyndir í Listasetrinu Kirkjuhvoli,
Akranesi.
Alliance Francaise | Marie–Sandrine Bej-
anninn – málverk.
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíu-
málverk.
Gallerí 101 | Daníel Magnússon myndlist-
armaður – Matprjónagerð lýðveldisins
kynnir: Innihald heimilisins.
Gallerí Bananas | Hrafnkell Sigurðsson –
Verkamaður / Workman.
Gallerí i8 | Kristján Guðmundsson sýnir
„Arkitektúr“.
Gallerí Sævars Karls | Hjörtur Marteins-
son – Ókyrrar kyrralífsmyndir.
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir –
„Efnið og andinn“.
Hafnarborg | Jólagjafir hönnunarnema í
Iðnskólanum í Hafnarfirði til þjóðþekktra
Íslendinga.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk í forkirkju Hallgrímskirkju.
Hrafnista Hafnarfirði | Sólveig Eggertz
Pétursdóttir sýnir í Menningarsalnum.
Hönnunarsafnið | Sænskt listgler – þjóð-
argjöf.
Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir sýnir
olíumálverk – „Leikur að steinum“.
Kling og Bang gallerí | Sigurður Guð-
jónsson – „Hýsill“.
Listasafn Árnesinga | Tumi Magnússon –
Innsetning.
Listasafnið á Akureyri | Patrick Huse –
Encounter.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist:
Um veruleikann, manninn og ímyndina. 20
listamenn sýna.
Listasafn Kópavogs Gerðarsafn | Ný ís-
lensk gullsmíði í Austursal, Salóme eftir
Richard Strauss í Vestursal og verk úr
einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og
Ingibjargar Guðmundsdóttur á neðri hæð
safnsins.
Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið. Yf-
irlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar.
Listasafn Reykjav., Hafnarhús | Grafísk
hönnun á Íslandi. Stendur til áramóta.
Erró – Víðáttur. Stendur til 27. feb. nk.
Listasafn Reykjav., Kjarvalsstaðir | Text-
íllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning. Mynd-
ir úr Kjarvalssafni.
Norræna húsið | Vetrarmessa fimmtán
listamanna og -kvenna.
Nýlistasafnið | Ráðhildur Ingadóttir „Inni
í kuðungi, einn díll“. Björk Guðnadóttir
„Eilífðin er líklega núna“.
Suzuki Bílar | Björn E. Westergren sýnir
myndir málaðar í akrýl og raf
Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir
sýnir –sKæti–.
Tjarnarsalur | Ráðhús Reykjavíkur. Ketill
Larsen – Sólstafir frá öðrum heimi.
Tónlist
Hveragerðiskirkja | Nemendafélag Garð-
yrkjuskólans stendur fyrir tónleikum kl.
20.30, í Hveragerðiskirkju með þeim Guð-
rúnu Gunnarsdóttur og Valgeiri Skagfjörð.
Þau flytja m.a.lög af geislaplötunni „Eins
og vindurinn“. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Bækur
Þjóðarbókhlaðan | Kl. 12 lesa höfundar úr
þessum verkum í fyrirlestrasal Þjóð-
arbókhlöðu: Halldór Laxness, Klisju-
kenndir, Barn að eilífu, Í samræðum við
þig, Gullkornasandurinn, Hvar frómur
flækist, Truflanir í vetrarbrautinni. Allir
velkomnir.
Kvikmyndir
Bæjarbíó | Kvikmyndin 79 af stöðinni
(Pigen Gogo) verður sýnd kl. 20. Myndin
er gerð árið 1962 eftir samnefndri skáld-
sögu Indriða G. Þorsteinssonar en í leik-
stjórn Danans Erik Balling. Leikarar í aðal-
hlutverkum eru Gunnar Eyjólfsson,
Róbert Arnfinnsson og Kristbjörg Kjeld.
Miðasala opnar hálftíma fyrir sýningu og
miðaverð ar kr. 500.
Fundir
Félagsheimili Seltjarnarness | Kven-
félagið Seltjörn heldur jólafund kl. 20.
ITC Korpa | Jólafundur á morgun kl. 20 í
Safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þver-
holti 3, 3. hæð, Mosfellsbæ. Gestir vel-
komnir. Uppl. í síma 5667169.
Kvenfélag Langholtssóknar | Jólafundur
í safnaðarheimilinu kl. 20. Gestir velkomn-
ir. Veitingar og skemmtiatriði. Happdrætti
til styrktar gluggasjóði.
Grand hótel Reykjavík | Neytenda-
samtökin halda opinn fund kl. 20, undir yf-
irskriftinni Olíumengun í íslensku við-
skiptalífi. Á fundinum verður farið yfir í
hverju ólögmætt samráð olíufélaganna
fólst og afleiðingar þess á íslenskt efna-
hagslíf og fyrir neytendur.
Fyrirlestrar
Karuna Búddamiðstöð | Kennsla og hug-
leiðsla um ókosti sjálfselsku og hvernig
hægt er að vinna bug á henni. kl. 20–21.15
á Ljósvallagötu 10. www.karuna.is.
Fréttir
Bókatíðindi 2004 | Númer þriðjudagsins
7. desember er 27378.
Menntaskólinn í Kópavogi | Ný önn fyrir
verðandi flugfreyjur og flugþjóna hefst 10.
janúar nk. Skráning er hafin. Nánar sjá
www.mk.is.
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs | Mæðra-
styrksnefnd Kópavogs er opin alla þriðju-
daga kl. 16–18. Fatamóttaka og úthlutun á
sama tíma.
Listasýning
Handverk og hönnun | Jólasýningin „Allir
fá þá eitthvað fallegt…“ Sölusýning þar
sem 32 aðilar sýna íslenskt handverk og
listiðnað.
Námskeið
www.ljosmyndari.is | 3 daga námskeið
fyrir stafrænar myndavélar 7.–9. des.
kl.17–20. Skráning og nánari uppl. á
www.ljosmyndari.is.
Skemmtanir
Kringlukráin | Geirmundur Valtýsson
skemmtir frá kl. 23.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivistarræktin fer
frá gömlu Toppstöðinni í Elliðaárdal kl. 18.
Börn
www.menntagatt.is | Opinn jólakortavef-
ur á menntagatt.is. Allir nemendur í leik-,
grunn- og framhaldsskólum geta sent inn
myndir og verða þær sjálfkrafa að jóla-
kortum. Hver sem er getur skoðað mynd-
irnar og sent þær sem jólakort til vina og
ættingja.
Söfn
www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Ís-
lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og
héraðsskjalasöfn um land allt hafa sam-
einast um vefinn www.skjaladagur.is þar
sem að finna fróðleik og sýningu um árið
1974 í skjölum.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
1. c4 Rf6 2. Rf3 b6 3. d4 Bb7 4. d5 e6 5.
dxe6 fxe6 6. a3 a5 7. g3 Rc6 8. Rc3 Bc5
9. Bg2 Re5 10. b3 0–0 11. 0–0 Rf7 12.
Dc2 Rd6 13. Bb2 De8 14. Ra4 Be4 15.
Dc3 Rf5 16. Rxc5 bxc5 17. Rd2 Rd4 18.
Hae1 Bxg2 19. Kxg2 d6 20. e3 Rc6 21.
f4 e5 22. Rf3 Hb8 23. fxe5 dxe5 24. Hd1
Dg6 25. Rxe5 De4+ 26. Rf3 a4 27. bxa4
Staðan kom upp í fyrrihluta Íslands-
móts skákfélaga sem lauk fyrir nokkru
í húsakynnum Menntaskólans í
Hamrahlíð. Arnar E. Gunnarsson
(2.437) hafði svart gegn Sigurði Páli
Steindórssyni (2.227). 27. … Hxb2+!
28. Dxb2 Rg4 29. Hde1? Hvítur hefði
getað haldið taflinu gangandi eftir 29.
Db1. 29. … Rce5 30. De2 Rxf3 31.
Hxf3 Re5 32. Hef1 g5! 33. h3 h5 og
hvítur gafst upp enda er hann óumflýj-
anlega að verða manni undir.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
UM þessar mundir stendur
yfir í Listasafni Árnesinga í
Hveragerði sýning á nýjum
verkum eftir Tuma Magn-
ússon.
Sýningin er innsetning,
með stafrænum ljósmyndum,
málverkum og hljóðverkum.
Verkin í rýminu og rýmið
með verkunum er síbreytileg
upplifun með ferköntuðum
fiskum og tveggja metra
háum blómum.
Í umsögn um sýninguna í
Morgunblaðinu sagði Ragna
Sigurðardóttir meðal annars:
„Þetta er sterk og heilsteypt
sýning hjá Tuma sem fer létt
með að fylla nokkuð stóra
sali safnsins lífi. Óhætt er að segja að Lista-
safn Árnesinga er mjög góð viðbót við sýn-
ingarmöguleika íslenskra listamanna og
stutt að skreppa yfir heiðina. “
Tumi hefur verið ötull við sýningar bæði
hérlendis og erlendis. Sýndi í Kaupmanna-
höfn síðastliðið vor í Paintbox extensions
og 2003 í Toronto og Boreas New York. Á
heimasíðu hans, www.tumimagnusson.com
er að finna frekari upplýsingar um feril hans
og verk.
Listasafn Árnesinga er opið þriðjudaga,
fimmtudaga og laugardaga kl. 13.30–17.
Kaffistofan er opin á sama tíma. Aðgangur
er ókeypis. Upplýsingar um safnið má finna
á heimasíðunni www.listasafnarnesinga.is.
Tumi sýnir í Listasafni Árnesinga í Hveragerði
FRÉTTIR
mbl.is